Dagur - 15.05.1990, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 15. maí 1990
....................................
„Gerum góðan bæ betri“
Fengum takmarkað magn af trimmgöll-
um á börn úr 100% polyester.
1 jakki 4-2 buxur.
Stærðir 4-14 - Verð aðeins kr. 2.995,-
1|1 EYKTÖRÐ
¥ Hjalteyrargötu 4 - Sími 22275
Sumarbúðirnar
Vestmannsvatni
fyrir unga og aldna
1. fl. 8.-15. júní, 9-12 ára
2. fl. 18.-25. júní 7-10 ára
3. fl. 26. júní-3. júlí 10-13 ára
6. fl. 19.-26. júlí aldraðir
7. fl. 28. júlí-4. ágúst blindir og aldraðir
Innritun fer fram virka daga í síma 27575
kl. 17.00-18.30.
Á öðrum tímum í síma 61685 (Jón Helgi), 43511 (Kristján
Valur) og 41668 (Steinunn).
mmmtk FÉLAG viðskiptafræðinga
MMœfMm OG HAGFRÆÐINGA
Félag viðskiptafræðinga
og hagfræðinga
gengst fyrir morgunverðarfundi á Hótel KEA,
miðvikudaginn 16. maí kl. 8.15.
Gestur fundarins verður Þorkell Sigurlaugsson,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs Eimskipafélags
íslands.
Þorkell mun fjalla um stefnumarkandi áætlana-
gerð fyrirtækja.
Félagar eru hvattir til að mæta og taka með sér
gesti. Aðrir áhugaaðilar velkomnir.
Stjórnin.
Hinn 26. maí n.k. ganga Húsvík-
ingar að kjörborðinu og kjósa sér
nýja bæjarstjórn. Ég veit að allir
þeir frambjóðendur sem gefa
kost á sér til setu í bæjarstjórn
Húsavíkur, gera það með því
hugarfari að vinna sem best að
framfaramálum þess samfélags
sem við lifum í.
Við Framsóknarmenn göngum
bjartsýnir til þessara kosnin'ga og
munum vinna af heilindum að
framgangi allra góðra mála fyrir
bæinn okkar. Við viljum sjá
Húsavík sem blómlegan bæ með
öflugri atvinnustarfsemi í fögru
umhverfi, umhverfi sem laðar að
sér fólk og lætur því líða vel.
Nú má ekki skilja orð mín svo
að hér sé allt ómögulegt og að
ekkert hafi verið gert. Húsavík er
á margan hátt blómlegur bær í
fögru umhverfi, en ávallt má gera
betur.
Við höfum eins og svo margir
aðrir gengið í gegnum þrengingar
á síðustu misserum, fyrirtæki
hafa lent í erfiðleikum og atvinna
hefur minnkað. Nokkuð er að
rofa til í þessum málum nú, því
ánægjuleg batamerki eru að
koma í ljós í okkar stærstu fyrir-
tækjum, en því miður eru enn
atvinnugreinar sem eiga í miklum
erfiðleikum, þann vanda þarf að
takast á við og leý§æ, því atvinnu-
málum okkar er þannig komið að
ekkert má missast við þurfum
aukningu í atvinnuframboði.
Nú kann einhver að spyrja
hvað bæjarstjórn Húsavíkur geti
gert í atvinnumálum og hvort
hennar hlutverk sé ekki eitthvað
allt annað en að standa í atvinnu-
rekstri. Þessum vangaveltum má
út af fyrir sig svara bæði játandi
og neitandi. Bæjarsjóður Húsa-
víkur er sameiginlegur sjóður
okkar allra og þeim sjóði ber að
verja á þann hátt að hann komi
samfélaginu sem heild að sem
bestu gagni, þetta á vissulega við
um atvinnumál ekki síður en
aðra málaflokka.
Það er stefna okkar Framsókn-
armanna að bæjarfélaginu beri
að beita sér fyrir því að skapa
fyrirtækjum á Húsavík góðar ytri
aðstæður og umhverfi, þannig að
þau verði vel samkeppnisfær við
fyrirtæki í sömu starfsgrein ann-
ars staðar.
Bæjarfélagið getur verið sam-
nefnari fleiri aðila til stærri átaka,
þar vil ég nefna kaup á fiskiskip-
um til að auka okkar hlutdeild í
sjávaraflanum.
Bjarni Aðalgeirsson.
Bæjarfélagið getur beitt áhrif-
um sínum öðrum fremur við
ríkisvaldið, ef um er að ræða
staðarval meiriháttar atvinnu-
starfsemi sem reist væri með
tilstuðlan ríkisvaldsins.
Auka þarf hlut Húsavíkur í
ferðamannaþjónustu, og leita
leiða til að lengja ferðamanna-
tímann. Uppbygging Húsavík-
urflugvallar er liður í þessari
stefnu.
Við viljum stuðla að framgangi
allra góðra hugmynda um hvers-
kyns smáfyrirtæki á sviði fram-
leiðslu og þjónustu.
Húsvíkingar: Verum jákvæð
og tökum undir allar góðar hug-
myndir.
Ef atvinnumálin eru í lagi og
þá um leið tekjuöflunin, þá eru
næg verkefni við að fást til að
fegra og bæta okkar bæ. Við vilj-
um taka undir hina miklu vakn-
ingu sem átt hefur sér stað í rækt-
un og verndun landsins, að þess-
um verkefnum ber að standa vel.
I tengslum við umhverfismálin
vil ég nefna gatnagerðina, en
átak í gatnagerðinni og það verk-
efni að ljúka lagningu bundins
slitlags á allar eldri götur bæjar-
ins er okkar stærsta umhverfis-
mál. Móta þarf ákveðna tíma-
setta áætlun um að ljúka endur-
byggingu allra eldri gatna og
leggja þær bundnu slitlagi. Fimm
ára áætlun um að ljúka þessu
verkefni er að mínu mati full-
komlega raunhæf.
Við leggjum áherslu á áfram-
haldandi framkvæmdir við Húsa-
víkurhöfn. Ljúka þarf fram-
kvæmdum við Norðurgarðinn, en
þar á eftir þarf að hefjast handa
við lengingu Suðurgarðsins, sú
framkvæmd eykur kyrrð í höfn-
inni og skapar gott viðlegurými
utan á þvergarðinum. Þegar þess-
um framkvæmdum er lokið er að
okkar mati komið að því að
endurbyggja Suðurgarðinn með
nýjum viðlegukanti.
Við leggum áherslu á áfram-
haldandi uppbyggingu hinna
félagslegu þátta bæjarins, þar vil
ég nefna byggingu við Barnaskól-
ann, sem leysir jafnframt úr
brýnni húsnæðisþörf Framhalds-
skólans. Framhaldsskólinn er
ung stofnun, sem okkur ber að
standa vörð um og efla með öll-
um tiltækum hætti. Þá vil ég
minna á uppbyggingu heilsu-
gæslustöðvarinnar, málefni aldr-
aðra, sambýlið og málefni fatl-
aðra, dagvistarmál, æskulýðs og
íþróttamál, en þessum mála-
flokkum verða gerð skil í grein-
arskrifum annarra frambjóðenda
B-listans á næstu dögum.
Við Framsóknarmenn viljum
leggja áherslu á góða samvinnu
við nærliggjandi byggðaríög,
bæði á sviði atvinnumála og
félagsmála. Við vitum að hinar
dreifðu byggðir eiga mjög í vök
að verjast, samdráttur í landbún-
aðarframleiðslu hefur sett sitt
mark á sveitirnar, sem í gegnum
árin hafa verið Húsavík svo
styrkar stoðir. Við skulum hafa í
huga að samvinna Húsavíkur og
nærliggjandi byggðarlaga er
styrkur okkar allru, við þurfum
að koma fram sem órofa heild í
mikilvægum málum til að halda
okkar hlut.
Ég hefi hér að framan dregið
fram nokkur atriði sem við
Framsóknarmenn viljum leggja
áherslu á í störfum okkar á kom-
andi árum. Að þessum málum
viljum við vinna með markviss-
um hætti og ábyrgð. Við viljum
jafnframt gæta þess að fjárhagur
bæjarins sé ætíð sem traustastur
og varðveita þann sess sem Húsa-
víkurkaupstaður hefur skapað
sér í hópi sveitarfélaga, að þar
ríki ávallt ábyrg fjármálastjórn.
Takið undir með okkur, gerum
góðan bæ betri, veitið Framsókn-
arflokknum brautargengi í kom-
andi kosningum. XB.
Bjarni Aðalgeirsson.
Höfundur skipar efsta sæti B-lista Fram-
sóknarflokksins í bæjarstjórnar-
kosningum á Húsavík.
r 'n
AUÐSTILLT
MORATEMP blöndunar-
tækin eru með auðveldri
einnar handar stillingu á
hitastigi og vatnsmagni.
MORA sænsk gæða-
vara fyrir íslenskar
aðstæður.
meiri ánægja
Verslið við
fagmann.
DRAUPNISGÖTli 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
J
\
i
S
i
“I