Dagur - 15.05.1990, Blaðsíða 16
Akureyri, þriðjudagur 15. maí 1990
Sauðárkrókur
Húsavík
96-41585
Skólum á Akureyri fer senn að ijúka og krakkarnir þyrpast út á vinnumarkaðinn.
er um að gera að njóta veðurblíðunnar í hvívetna.
Áður en átök sumarsins hefjast
Mynd: KL
Friðsöm skólalok
„Við bjuggumst við bölvuðum
látum.en það fór betur,“ sagði
lögreglan á Húsavík aðspurð
frétta eftir helgina. Fjöldi
nemenda frá Húsavík og Laug-
um voru um þessa helgi að
fagna því að skólagöngu og
prófum væri að Ijúka á þessu
vori.
Fjölmennur dansleikur var
haldinn að Breiðumýri í Reykja-
dal og fór hann þokkalega fram
að sögn lögreglu, og taldi hún
nánast tíðindalaust eftir helgina.
Allt hafði verið rólegt á Egils-
stöðum um helgina að sögn lög-
reglunnar þar. Nemendur Eiða-
skóla fögnuðu skólaslitum á
svonefndu „táraballi" í Hjalta-
lundi og fór danleikurinn prýði-
lega fram.
Á Raufarhöfn var haldinn
dansleikur sem var ekki fjölsótt-
ur, en engin óhöpp urðu þar á
fólki að sögn lögreglunnar. IM
Verslanir Grundarkjörs:
KEA tapaði engu
Kjötiðnaðarstöð KEA tapar
engum fjármunum vegna
rekstrarstöðvunar verslana
Grundarkjörs á Reykjavíkur-
svæðinu.
Óli Valdimarsson, yfirmaður
Dökkt útlit hjá byggingamönnum á Akureyri:
Átta verktakar bjóða 184
íbúðir í verkamannabústöðum
Frestur til að skila inn tilboð-
um um byggingu 40 íbúða fyrir
Stjórn verkamannabústaða á
Akureyri rann út á fimmtudag
í síðustu viku. Átta bygginga-
fyrirtæki buðu 184 íbúðir.
íbúðirnar, sem boðnar voru,
eru af ýmsum stærðum og gerð-
um. Stjórn verkamannabústaða
óskaði einna helst eftir tveggja til
þriggja herbergja íbúðum.
Reiknað er með að ganga til
samninga við byggingaraðila
seinna í þessari viku eða þeirri
næstu.
SS Byggir bauð 58 íbúðir við
Tröllagil og Drekagil, Aðalgeir
Finnson 28 íbúðir við Melasíðu 1
og Drekagil, Fjölnir er með 12
íbúðir við Fögrusíðu og Múla-
síðu, Fjölnismenn 24 íbúðir við
Vestursíðu, Haraldur og Guð-
laugur 21 íbúð við Tröllagil og
Vestursíðu, Trétak 5 íbúðir við
Tröllagil, SJS verktakar 18 íbúðir
við Vestursíðu og Pan 18 íbúðir
við Vestursíðu.
Sigurður Sigurðsson hjá SS
Byggi segir að þeir hafi boðið all-
ar íbúðir sem fyrirtækið má
byggja í tiiteknum reit í Gilja-
hverfi. Um er að ræða tvær átta
hæða blokkir og 16 íbúðir í rað-
húsum. „Við bjóðum í svona
mikið því það er ekkert annað en
dauði framundan. Við erum með
35 manns í vinnu og ekki með
nema eitt tíu íbúða hús í bygg-
ingu,“ segir Sigurður.
Eyjaíjarðarferjan Sæfari:
Farþegasalur byggður í Slippnum
Fyrir helgina var gengið frá
óformlegu samkomulagi um að
Slippstöðin á Aku.eyri smíði
farþegasal á Sæfara, Eyja-
fjarðarferjuna nýju. Farþega-
byggingin verður smíðuð í
stöðinni og sett á ferjuna í
næsta mánuði.
Guðjón Björnsson, sveitar-
stjóri í Hrísey, segir að salurinn
taki um eða yfir 80 farþega. Ætl-
unin er að hann verði aðeins not-
aður á sumrin, tekinn af á haustin
en settur á í byrjun ferðamanna-
tímans á vorin. Guðjón vildi ekki
að svo stöddu gefa upp hver áætl-
aður kostnaður er við þessar
breytingar þar sem ekki hefur
verið gengið frá verksamningi við
Slippstöðina.
Guðjón segir að flutningar
með Sæfara séu þegar orðnir
mun meiri en gert hafi verið ráð
fyrir, sérstaklega ýmis konar fisk-
flutningar. JÓH
En hvað þýðir það að 8 verk-
takar bjóða 184 íbúðir þar sem
aðeins er beðið um 40? „Þetta
þýðjr að mjög lítið er að gera hjá
öllumjressum verktökum, og það
sem verktakarnir gefa upp er það
sem þeir geta hugsað sér að
byggja næstu fimmtán mánuðina.
Það verður alvarlegt fyrir þá
aðila sem engin verkefni fá, og
jafn alvarlegt fyrir okkur ef við
komumst ekki af stað, því búið er
að úthluta okkur átta hæða
blokkum, og ekki þýðir að byrja
nema selja verulegan hluta í
hvorri blokk áður,“ segir Sigurð-
ur.
SJS verktakar bjóða nú í fyrsta
sinn íbúðir til Stjórnar verka-
mannabústaða. Sigurður Björg-
vin Björnsson segir að fyrirtækin
hafi greinilega fá verkefni um
þessar mundir, og því sæki svo
margir um að byggja þessar 40
íbúðir fyrir verkamannabústaði.
EHB
sláturhúss og kjötvinnslu KEA,
segir að sjónvarpsfréttir um millj-
óna króna tap KEA vegna við-
skipta þess við Jens Ólafsson séu
úr lausu lofti gripnar og ósannar.
„KEA tapar ekki neinu á við-
skiptum við Grundarkjörsversl-
anirnar,“ segir Óli. Fyrirtækið
Vöruborg í Kópavogi sér um
vörudreifingu fyrir Kjötiðnaðar-
stöðina, þar með til verslana
Grundarkjörs, og Jens Ólafsson
var skuldlaus við dreifingaraðil-
ann þegar verslanir hans hættu
starfsemi. EHB-
Akureyri:
Þjófar á ferð
Komist hefur upp um tjald-
vagnaþjóf á Akureyri. Akur-
eyringur um fimmtugt hefur
játað að hafa stolið fimm tjald-
vögnum í Reykjavík og á
Akureyri að undanförnu. Hann
gistir nú fangageymslu lögregl-
unnar á Akureyri, en mun
losna þaðan á morgun, sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu.
Lögreglan á Akureyri hafði í
ýmsu öðru að snúast um helgina.
Menn voru liprir við inngjöfina
og því nokkrir ökumenn stöðvað-
ir vegna hraðaksturs. Brotist var
inn í íbúðarhús á Brekkunni og
stolið ávísanahefti. Þjófurinn var
gripinn glóðvolgur suður í
Reykjavík. Þá var brotist inn í
verslunina Fínar línur á Akureyri
og stolið þar fötum. Það mál er
einnig upplýst. óþh
Skýrsla um afkomu bátaflotans:
Heldur ófógur mynd
Bátadotinn var rekinn með
tapi árið 1988 og var afkoman
verst hjá bátum á Vestur- og
Norðurlandi. Þetta kom fram
í máli Sveins Hjartar Iljartar-
sonar, hagfræðings LIÚ, á
fundi Utvegsmannafélags
Norðurlands í gær, en þar
kynnti hann niðurstöður
skýrslu nefndar sem sjávar-
útvegsráðherra skipaði í des-
ember sl. til að athuga mun á
áfkomu báta og togara, sem
fram kemur í reikningi Þjóð-
hagsstofnunar.
Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, sagði margt
sláandi í skýrslunni. Hann sagði
t.d. athyglisvert hversu mikill
munur væri á afkomu einstakra
báta. Taldi hann að í sumum til-
fellum hefði skort á kostnaðar-
eftirlit. Halldór sagði að ef
mönnurn tækist ekki að skera
niður kostnað væru horfurnar
fyrir bátaútgerðina slæmar.
Kristján Ragnarsson, for-
maður LÍÚ, sagði niðurstöður
skýrslunnar athyglisverðar.
Hann sagðist telja að taka yrði á
launaþættinum, í sumum tilvik-
um væru menn að borga hærri
laun en útgerðin réði við. óþh
Gengið frá samningum í gær um tónleika Kim Larsens:
Búist við að Norðlendingar
flykkist á tónleika goðsins
Iþróttafélagið Þór hefur nú
endanlega gengið frá samning
um um að Kim Larsen haldi
tónleika á Akureyri föstudag
inn 25. maí næstkomandi kl
21. Fyrirhugað er að hafa tón
leikana í Skemmunni en þó er
íþróttahöllin enn inni í mynd
inni því búist er við mikilli
aðsókn. Þetta eru einu tón
leikarnir með Kim Larsen
Norðurlandi og líklegt að fólk
Hykkist í sætafcrðir til Akur-
eyrar.
Aðalsteinn Sigurgeirsson, for-
maður Þórs, sagði að samning-
arnir hefðu verið staðfestir með
greiðslu í gær. Þetta er mjög dýrt
dæmi en að sögn Aðalsteins verð-
ur miðaverð þó ekki hærra en
1800 krónur. Vonast er til að
a.m.k þúsund manns sæki tón-
leikana.
Kim Larsen er væntanlegur til
íslands 18. maí. Hann mun spila í
Reykjavík, Hafnarfirði, Stykkis-
hólmi og Akranesi áður en hann
kemur til Akureyrar. Danski
stórpopparinn er ekki hrifinn af
innanlandsfluginu og kemur því
nieð rútu. Þórsarar þurfa að
koma honum aftur suður að
morgni laugardags því Larsen á
að spila á tónleikum í Kaup-
mannahöfn þann dag.
„Hann setti fram ákveðnar
kröfur um tækjabúnað og til að
uppfylla þær þurfum við að taka
hljómflutningskerfi Reykjavíkur-
borgar á leigu. Síðan kemur hann
sjálfur með eitt og hálft tonn af
græjum með sér,“ sagði Aðal-
steinn, en það eru aðalstjórn
Þórs og körfuknattleiksdeildin
sem standa að tónleikunum.
Aðalsteinn sagði greinilegt að
margir fögnuðu þessu framtaki.
Norðlendingar voru mjög spenntir
fyrir tónleikum Larsens í Reykja-
vík á síðasta ári en skiljanlega
höfðu ekki allir tök á því að fara
suður. Nú kemur þessi vinsæli
poppari hins vegar norður og það
strax í næstu viku þannig að
norðlenskir aðdáendur sitja nú
við sama borð og höfuðborgar-
búar. SS