Dagur - 19.05.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 19. maí 1990
fréttir
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga:
Skilaði 11,6 millj-
ónum í hagnað
Hagnaður á reglulegri starf-
semi Kaupfélags Vestur-Hún-
vetninga á síðasta ári nam 11,6
milij'ónum króna. Hagnaður
varð á öllum deildum félags-
ins. Heildarveltan á síðasta ári
var 891 milljón króna, sem er
20,9% hækkun frá fyrra ári.
Hjá Kaupfélagi Vestur-Hún-
vetninga starfa um 50 manns og
námu launagreiðslur á síðasta ári
tæpum 78 milljónum króna. Fé-
lagið rekur m.a. sölubúð á
Hvammstanga, sláturhús og
mjólkursamlag að einum þriðja
hluta.
í stjórn Kaupfélags Vestur-
Húnvetninga eru Agnar J. Levý,
Daníel Pétursson, Eiríkur
Tryggvason, Ásmundur Sm.
Valdemarsson og Ragnar Gunn-
laugsson. Kaupfélagsstjóri er
Gunnar V. Sigurðsson. óþh
Kór Akureyrarkirkju:
B
örg, Petrma og Bijánn
íjörin heiðursfélagar
Lýst var kjöri þriggja heiðurs-
félaga Kórs Akureyrarkirkju á
aðalfundi kórsins sl. þriðju-
dagskvöld. Þeir eru Björg
Baldvinsdóttir, Petrína Eld-
járn og Brjánn Guðjónsson.
Öll hafa þau starfað vel og
lengi með kórnum. Björg syngur
enn í Kór Akureyrarkirkju og
lætur engan bilbug á sér finna.
Hún hefur sungið með kórnum
frá stofnun hans, árið 1945.
Petrína Eldjárn hefur sömuleiðis
sungið með kórnum frá stofnun
hans og Brjánn Guðjónsson kom
til liðs við kórinn árið 1949. óþh
Frá stjórn Verkamannabústaða, Akureyri
íbúðir til sölu
í verkamannabústöðum
Stjórn Verkamannabústaða auglýsir eftir
umsóknum í 2ja til 4ra herbergja íbúðir sem
stjórnin hyggst hefja byggingu á á þessu og
næsta ári. Aætlaður afhendingartími þessara
íbúða er á árinu 1990-91.
Einnig mun stjórn Verkamannabústaða úthluta til
umsækjenda eldri íbúðum sem koma til endursölu
innan verkamannabústaðakerfisins á þessu ári.
Áætlað er að úthlutað verði 30-40 íbúðum í bygg-
ingu og 5-10 endursöluíbúðum.
Athygli umsækjenda er vakin á að stjórn verka-
mannabústaða hefur til ráðstöfunar 2-3 íbúðir í fjöl-
býlishúsi við Víðilund 20 sem eru sérstaklega hann-
aðar með þarfir fatlaðra og aldraðra í huga.
Réttur til kaupa á íbúð í verkamannabústöðum er
bundinn við þá sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
A. Eiga lögheimili á Akureyri þegar úthlutun fer
fram.
B. Eiga ekki íbúð fyrir eða samsvarandi eign í öðru
formi.
C. Hafa haft í meðaltekjur þrjú síðustu tekjuár
(1986, 1987 og 1988) ekki hærri fjárhæð en sem
svarar kr. 975.000,- hvert ár fyrir einhleyping
(samtals kr. 2.925.000,-) og kr. 89.000,- fyrir
hvert barn á framfæri til 16 ára aldurs (samtals
kr. 267.000,-). Fyrir hjón og sambýlisfólk gilda
hærri tekjumörk; þ.e. 1.219.000,- hvert ár (sam-
tals kr. 3.657.000,-) að auki fyrir hvert barn á
framfæri til 16 ára aldurs kr. 89.000,- (samtals kr.
267.000,-).
Ath. að ákvæði C-liðar gildir einnig fyrir umsækjend-
ur sem óska eftir skiptum innan verkamannabú-
staðakerfisins.
Þeir umsækjendur sem eiga inni umsóknir frá
síðustu auglýsingu og óska eftir að koma áfram
til greina við úthlutun verða að endurnýja
umsóknir sínar skriflega á skrifstofu verka-
mannabústaða.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar
fást á skrifstofu verkamannabústaða, Skipagötu
12, 3. hæð, sími 25392.
Opnunartími skrifstofunnar er mánudaga til
föstudaga frá kl. 13.00 til 15.30.
Umsóknarfrestur rennur út þann 8. júní 1990.
18. maí 1990.
Stjórn Verkamannabústaða, Akureyri.
Aflabrögð í apríl:
Ekki upp á
marga físka
Aflabrögð á landinu í aprO-
mánuði voru ekki upp á
marga fiska. Heildaraflinn
var tæplega 78 þúsund tonn
á móti 125 þúsund tonnum í
aprO 1989. Engin loðna og
minni þorskur og grálúða
skýra þennan samdrátt. Á
Norðurlandi var heildarafl-
inn í aprfl 14.591 tonn á
móti 16.579 í sama mánuði í
fyrra.
Samdrátturinn á Norður-
landi er reyndar minni en í
öðrum landshlutum. í apríl sl.
veiddist ívið minna af þorski,
grálúðu og skarkola en í apríl
1989, en heldur meira af ýsu,
ufsa, karfa og rækju.
Togarar á Norðurlandi
komu með 10.045 tonn að
landi á móti 9.287 í sama mán-
uði á síðasta ári, þannig að
þeir hafa heldur aukið við sig.
Afli bátanna var hins vegar
3.510 tonn á móti 6.119 og
munar þar um rúmlega tvö
þúsund tonn af loðnu sem
veiddust í apríl 1989. Hjá
smábátunum er dálítill sam-
dráttur, 1.036 tonn á móti
1.173. SS
i
Kosningamar í Ólafsfirði:
Kjörfimdur að þessu sinni
í Gagnfræðaskólanum
Kjörfundur vegna bæjarstjórn-
arkosninganna í Ólafsfirði
annan laugardag verður að
þessu sinni í Gagnfræða-
skólanum. í mörg undanfarin
ár hefur kjörfundur í kosning-
um til bæjarstjórnar og
Alþingis verið í félagsheimil-
inu Tjarnarborg, en vegna við-
gerða sem standa yfir á því var
ákveðið að þessu sinni að flytja
kjörfund yfir í Gagnfræðaskól-
ann. %
Að sögn Hreins Bernharðsson-
ar, formanns kjörstjórnar, verða
atkvæði þó talin í Tjarnarborg.
Sú vinna ætti að geta hafist upp
úr miðnætti, en kjörfundur
stendur frá kl. 10 til 23 í Gagn-
fræðaskólanum.
Á kjörskrá í Ólafsfirði eru 830,
en rétt til að greiða atkvæði hafa
815. Tveir listar eru í kjöri, listi
Sjálfstæðisflokks og vinstri
manna.
Opinn framboðsfundur verður
í Ólafsfirði nk. þriðjudagskvöld
kl. 20.30. óþh
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins:
Breytingar á útsöluverði bjórs
Innkaupsverð ÁTVR á bjór
hefur hækkað. Ástæður þess
eru einkum gengisbreytingar
og aukinn flutningskostnaður á
áfengi og tóbaki til landsins.
Innkaupsverð Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins á bjór
hefur hækkað nokkuð frá því
sem það var þegar síðasta verð-
ákvörðun tók gildi 29.nóvember
1989. Ástæður þess að innkaups-
verð hefur hækkað eru einkum
gengisbreytingar og aukinn flutn-
ingskostnaður á áfengi og tóbaki
til landsins, en á síðasta ári náð-
ust hagstæðir samningar um
flutning í kjölfar útboðs. Nýlegt
útboð á þessum flutningum skil-
aði ekki jafn hagstæðri niður-
stöðu og því hækkar flutnings-
kostnaður sem nemur 11-52%.
Bjór frá innlendum framleiðend-
um hefur hækkað um 5-10% frá
16. maí, þó ekki á Sanitas
pilsner.
Með hliðsjón af ofangreindu hef-
ur verið ákveðið að útsöluverð á
helstu tegundum af bjór verði
sem hér segir f.o.m. 17. maí
1990:
Frá og með 19. júní n.k. verð-
ur allt áfengt öl verðlagt með
hliðsjón af innkaupsverði þess
hverju sinni. ój
Bjórtegund 1 Kippa Verð áður Nýtt verð
Tuborg, flöskur 1 760 810
Tuborg, dósir 1 750 790
Budweiser, flöskur 1 700 800
Budweiser, dósir 1 700 760
Beck’s, flöskur 1 810 840
Beck’s, dósir I 800 800
Lövenbrau 1 730 770
Lageröl, dósir 1 770 790
Víkingur 1 770 790
Víkingur, dökkur 1 770 790
Sanitas pilsner 1 560 560
Egils Gull 1 700 720
Egils Dökkur 1 770 790
Polar Beer 1 750 770
Vínardrengjakórinn:
Forsala að heíjast á
Akureyrartónleikana
Vínardrengjakórinn syngur í Akureyrarkirkju laugardaginn 2. júní n.k.
Laugardaginn 2. júní n.k. er
hinn þekkti Vínardrengjakór
væntanlegur til Akureyrar og
mun halda tónleika í Akureyr-
arkirkju. Kórinn kemur hing-
að í tengslum við Listahátíð
sem hefst um sama leyti í
Reykjavík. Forsala aðgöngu-
miða á þessa merku tónleika
hefst næstkomandi mánudag.
Vínardrengjakórinn er án efa
einn þekktasti kór í heimi. Keis-
arinn Maximillian I stofnaði kór-
inn árið 1498 formlega og í gegn-
um aldirnar hefur kórínn sungíð
fyrir ýmsa konunga og keisara.
Upphaflega voru aðeins 8 drengir
í kórnum en nú eru um 20 dreng-
ir í honum. Það hefur ætíð þótt
mikill heiður að komast í Vínar-
drengakórinn og árlega sækja
hundruð drengja um að komast í
hann. Allir sem komast í kórinn
fara síðan í sama skólann, þar
sem lögð er sérstök áhersla á tón-
listarkennslu, auk almennrar
grunnskólafræðslu.
Um 1930 hóf kórinn að ferðast
um heiminn og halda söng-
skemmtanir. Síðan hefur kórinn
ferðast um allar heimsálfur og
alls staðar vakið mikla hrifninu.
Forsala aðgöngumiða að tón-
leikum kórsins á Akureyri hefst
mánudaginn 21. maí n.k. Mið-
arnir verða seldir á skrifstofu
menningarfulltrúa Akureyrar,
Strandgötu 19 B, á tímabilinu kl.
09.00 til 15.00. Einnig verður
tekið á móti pöntunum í síma 96-
27245. Aðeins verður um þessa
einu tónleika kórsins á Akurevri
að ræða. JOH