Dagur - 19.05.1990, Qupperneq 3
Laugardagur 19. maí 1990 - DAGUR - 3
Fjármálin gætu sett strik í reikninginn með framkvæmdir við VMA:
Fáist ekld fjármagn verða flórar kennslustofur
teknar í notkun í haust í stað níu
að sögn Magnúsar Garðarssonar,
tæknifræðings.
í sumar verður unnið við að
gera sjötta áfanga byggingarinnar
kláran, en það er bóknámsálma
með 9 kennslustofum. Að vísu
eru blikur á lofti hvað varðar
fjárveitingar til verksins. Magnús
segir: „Við litum svo á, að við
værum að vinna eftir tveggja ára
áætlun til að fullgera fimmta og
sjötta áfanga. í fyrra fengum við
mjög góða fjárveitingu, áttatíu
og sjö milljónir króna og áttum
von á öðru eins nú í ár. Ríkið
skar sitt framlag niður. Inni var
fjárveiting frá ríkisvaldinu að
upphæð kr. fimmtíu og tvær
milljónir, en var lækkað í fjöru-
tíu milljónir króna. Samanlagt
höfum við því frá ríki og bæ, sex-
tíu og sjö milljónir króna. Eftir
áramót hófum við framkvæmdir
við fimmta áfanga og ráðgert var
að taka lán fyrir því sem vantaði
uppá, til að geta lokið þeim fram-
kvæmdum sem stefnt var að.
Áætlað var síðan að vinna minna
á næsta ári og nýta fjárveitingu
þess árs til að endurgreiða lánið.
Nú er sú staða komin upp, að
ef við fáum ekki að taka lán að
upphæð krónur fimmtán milljón-
ir, til að greiða það sem við fór-
um fram yfir áætlun, þá ljúkum
við ekki við sjötta áfanga í haust.
Fari nú sem horfir og ekki fæst
fjármagn til sjötta áfanga, þá
stefnum við á að taka fjórar stof-
ur í gagnið í stað níu.“ ój
HEFUR STAÐGREIÐSLU
ÞINNIVERÐ SKILAÐ?
Áríðandi er að leiðréttingum á staðgreiðsluyfirliti
sé skilað sem allra fyrst.
Áa-hS', ..
i/mhj !%
„Árangur nemenda í prófum
er alltaf eins og til er stofnað,“
sagði skólameistarinn, Bern-
harð Haraldsson, í Verk-
menntaskólanum á Akureyri,
en skólastarfi lýkur 26. maí.
Verklegar framkvæmdir við
skólann í sumar gætu orðið
minni en til stóð.
Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri verður slitið þann 26. maí,
að loknum prófum og einkunnar-
gjöf. Um námsárangur nemenda
hafði skólameistarinn, Bernharð
Haraldsson, þetta að segja:
„Árangur nemenda í prófum verð-
ur alltaf eins og til er stofnað.“
Um verklegar framkvæmdir við
skólann er þetta helst að segja,
Áheitahlaup vegna
Noregsferðar:
Handbolta-
stúlkur í
spretthlaupi
Handboltastúlkur frá Húsavík
hlupu til Akureyrar á sunnu-
dag. Um var að ræða áheita-
hlaup og tókst stúlkunum að
safna fyrir 13 farmiðum til
Noregs með sprettinum.
Tíu stúlkur á aldrinum 13-17
ára, ásamt þrem fararstjórum,
hafa þegið boð um að taka þátt í
norrænu vinabæjamóti í Fred-
rikstad. Hópurinn heldur utan 1.
júní og kemur heim 5. júní.
Krakkar á öllum aldri taka þátt í
mótinu. Að sögn Sædísar Guð-
mundsdóttur tók fólk stúlkunum
vel er þær söfnuðu áheitunum
fyrir ferðina og eru þær ánægðar
með árangur verkefnisins. Stúlk-
urnar hlupu til skiptis,- ein á
hverjum kafla leiðarinnar og á
myndinni er það Erna Þórarins-
dóttir sem sprettir úr spori yfir
Laxárbrúna. IM
Húsavík:
Vel heppnað
mót í boccia
Bocciamót var haldið í fyrsta
sinn á Húsavík í íþróttahúsinu
9. maí sl. Mótið var nefnt
Kiwanismót en Kiwanisklúbb-
urinn Skjálfandi stóð að því
ásamt íþróttafélaginu Völs-
ungi. Kiwanismenn gáfu öll
verðlaun fyrir mótið og
aðstoðuðu við framkvæmd
þess. Mótið var hið skemmti-
íegasta og alls léku sex lið.
Kiwaniskúbburinn hefur
ákveðið að halda Bocciamót
árlega í maí, og skulu mótin
haldin í minningu Þórðar Sveins-
sonar, fyrrverandi formanns
Skjálfanda sem starfaði mikið á
vegum klúbbsins en féll frá nú í
apríl, langt um aldur fram.
Keppendur í mótinu voru frá
íþróttafélaginu Akri á Akureyri
og Völsungi á Húsavík.
Úrslit urðu sem hér segir:
1. Í.F.A B-lið.
2. Í.F.A A-lið.
3. Völsungur B-lið.
4. Í.F.A C-lið.
5. Völsungur/Í.F.A-Blandað lið.
6. Völsungur A-lið.
Völsungar þakka öllum sem
þátt tóku kærlega fyrir skemmti-
legt mót.
Nú eiga launamenn að hafa
fengið sent yfirlit yfir frá-
dregna staðgreiðslu af launa-
tekjum sínum á árinu 1989.
Yfirlitið sýnir skil launa-
greiðenda áfrádreginni stað-
greiðslu launamanna til inn-
heimtumanna.
Brýnt er að launamenn beri
yfirlitið saman við launaseðla
sína til þess að ganga úr
skugga um að staðgreiðslu
sem haldið var eftir af launa-
tekjum þeirra hafi verið skilað
til innheimtumanna.
Að lokinni álagningu tekju-
skatts og útsvars nú í sumar
fer fram samanburður við
staðgreiðsluskil fyrir viðkom-
andi launamann. Ef upplýs-
ingar um staðgreiðslu launa-
manns eru rangar verður
greiðslustaða röng og launa-
maðurinn hugsanlega kraf-
inn um hærri fjárhæð en hon-
um annars ber að greiða ef
ekki er sótt um leiðréttingu í
tækatíð.
Ef um skekkjur á yfirliti er
að ræða er nauðsynlegt að
umsókn um leiðréttingu sé
komið á framfæri við stað-
greiðsludeild RSK, Skúla-
götu 57,150 Reykjavík, hið
allra fyrsta til þess að
tryggja að greiðslustaða
verði rétt við álagningu
opinberra gjalda nú í
sumar.
Tryggið rétt uppgjör á staðgreiðslu
og álagningu í sumar
TKSSKATTSTÍÖR