Dagur


Dagur - 19.05.1990, Qupperneq 5

Dagur - 19.05.1990, Qupperneq 5
Laugardagur 19. maí 1990 - DAGUR - 5 Hinn óborganlegi Kim Larsen og hljómsveit hans Bellami með tónaflóð í íþróttahöllinni á Akureyri nk. fóstudagskvöld: Hann er danskarí en aJlt sem danskt er Það hefur víst ekki farið fram hjá neinum að hann Kim Melius Flyvholm Larsen, betur þekktur sem Kim Larsen, og hljómsveit hans Bellami er mættur í sína aðra tónleikaferð til íslands. Kappinn treður upp í kvöld á Gauki á Stöng í Reykjavík og við það tækifæri verður honum afhent gullplata fyrir yfír 3000 eintaka sölu af hinni rómuðu plötu Yummi Yummi. Á mánudagskvöldið verða Larsen og Bellami með tónleika í íþróttahöllinni á Akranesi og á miðvikudagskvöld verða Hafn- firðingar spilaðir upp úr skónum með tónleikum í nýja íþróttahús- inu að Kaplakrika. Punkturinn yfir i-ið verða tónleikar í íþrótta- höllinni á Akureyri nk. föstu- dagskvöld. Petta eru tónleikar sem Norðlendingar hafa lengi beðið eftir og sá er þetta ritar er illa svikinn ef ekki verður fullt út' úr dyrum í Höllinni. Lítt hrifinn af Hótel íslandi Eins og aðdáendur Kims Larsens rekur minni til kom kappinn til hljómleikahalds í musteri Ólafs Laufdals, Hótel ísland, síðla árs 1988. Kim hafði þá nýlega gefið út breiðskífuna Yummi Yummi, sem óhikað má segja að hafi skotið honum upp á stjörnu- himininn hér á Fróni. Aðsókn á tónleika hans á Hótel íslandi fór fram úr björtustu vonum for- ráðamanna þess, en Larsen var að sama skapi ekki alltof hrifinn af aðstæðum hjá Laufdal. Hann hafði aldrei vanist því á tónieik- um að fólk sæti eins og þvörur við borð, hakkandi í sig dýrar nauta- steikur og væri meinað að stíga upp á dansgólfið og hreifa skanka í takt við músíkina. Larsen setti hnefann í borðið og neitaði að spila, ef fyrirkomulaginu yrði ekki breytt. Samningar náðust, fólk flykktist upp á sviðið og ærð- ist af fögnuði. Á gras af seðlum í þessari íslandsferð verður ann- að upp á teningnum. Kim gaf Ólafi Laufdal og öðrum hótel- vertum í Reykjavík langt nef og sagðist vilja spila á krám og öðr- um ófínni stöðum víðsvegar um landið. Við því var ljúflega orðið og hingað er hann kominn í ann- að sinn með hina stórgóðu hljóm- sveit Bellami. Kim Larsen er í sjálfu sér kapítuli út af fyrir sig. Hann er danskari en allt sem danskt er. Hann á skítnóga peninga, hefur enda selt milljónir eintaka af plötum sínum í Danmörku og í fjölmörgum öðrum löndum. Þrátt fyrir ríkidæmið berst Larsen ekki á. Síður en svo. Hann segist fjandakornið ekkert hafa með alla þessa peninga að gera. Nóg sé fyrir hann að hafa gítarinn og kannski einn bjór með. 45 ára rokkari Kim Larsen er ekkert unglamb lengur. Hann er 45 ára gamall, fæddur í Kaupmannahöfn árið 1945. Sagan segir að kappinn hafi hrifist af rokksnillingum á borð við Little Richard, Presley og Cliff Richard og byrjað að gutla á gítar fjórtán ára gamall. Árið 1969 stofnaði hann hljómsveitina Gasolin, sem óhætt er að segja að hafi strax slegið rækilega í gegn á áttunda áratugnum í Danmörku og raunar í allri Skandinavíu. Hljómsveitin lagði upp láupana árið 1978, en áður hafði Larsen gefið úl tvær sólóplötur, þá fyrri árið 1976 (tónlist við sjónvarps- þáttaröðina Östre Gasværk). Árið eftir gaf hann út sólóplötu með enskum textum. Árið 1979 kom þriðja sólóplata Larsens, sem óhætt er að segja að hann hafi slegið í gegn með. Á henni var m.a. lagið Blip blaat, sem enn þann dag í dag verður að telja eitt af hans bestu lögum. Himinbláa Súsana og fleiri góð lög Með þá frægð í rassvasanum, sem þessi plata veitti Larsen, flaug hann vestur til Ameríku og stofnaði hljómsveitina Jungle- dreams og hugðist sigra heiminn. Á daginn kom hins vegar að kan- ar féllu ekki jafn flatir fyrir húm- orískum texturn Larsens og land- ar hans heima í Danaveldi. Að tveim árum liðnum snéri hann því heim og þá fyrst tók frægðar- sólin að skína. Arið 1983 yfirgaf Larsen hljómplötufyrirtækið CBS og gerði samning við Medley. í kjölfarið fylgdi ein af mest seldu plötum allra tíma í Danmörku, Midt om natten, með tónlist úr samnefndri kvikmynd. Á plötunni er m.a. að finna þá heillandi laglínu um Súsönu himinbláu. Samkvæmt nýjustu upplagstölum hefur plat- an sú selst í um sjö hundruð þús- und eintökum í Danmörku. Næstu plötur Larsens, Forklædt som voksen, Kim i Cirkus og Yummi Yummi, hafa einnig selst hreint með ólíkindum vel í Dana- veldi og sama hefur verið upp á teningnum hér heima. Það gildir raunar lík.a um síðasta afkvæmi hans, Kielgasten, sem út kom á síðasta ári. Kjözfundur í Saurbæjarhreppi Kjörfundur vegna Hreppsnefndarkosninga í Saurbæjarhreppi verður settur að Sólgarði laugardaginn 26. maí kl. 10. f.h. Kosning verður óbundin, þar sem enginn listi hefur komið fram. Jafnframt fer fram skoðanakönnun um viðhorf hreppsbúa um sameiningu hreppanna þriggja framan Akureyrar. Kjörstjórn. Dásamlega mikill Dani Það er erfitt að kveða upp úr um hver sé leyndardómurinn á bak við vinsældir og velgengni Kims Larsens. Danir elska hann og dá - líklega einfaldlega vegna þess hversu dásamlega mikill Dani hann er. Húmorinn er á réttum stað, Hann er blátt áfram og er ekkert að rembast við að vera annar en hann er, hinn óheflaði Kim Larsen. Tónlistin sjálf á að vitaskuld ekki síður þátt í vel- gengninni. Lögin eru yfirleitt ein- föld og grípandi og fá fólk til að hoppa, dansa og baða út öllum öngum. Larsen er rokkari, en honum er einnig lagið að gera gullfalleg róleg lög. Af áheyrendahópnum á Hótel íslandi forðum má draga þá ályktun að tónlist Kims Larsens hafi náð eyrum mjög breiðs aldurshóps hér upp á Fróni. Þar voru stórir sem smáir, ungir sem aldnir. Allir virtust skemmta sér jafn vel. Skólamaður á Akureyri sagði í eyru undirritaðs á dögunum að tónlist Larsens hafi gjörbreytt viðhorfi ungdómsins gagnvart dönskunámi. Var víst ekki van- þörf á, kynnu sumir að hugsa. Ef marka má viðbrögð Akur- eyringa og nærsveitarmanna við fregnum um tónleika Kims Lar- sens og Bellami í íþróttahöllinni nk. föstudagskvöld er þess að vænta aö þar verði þétt setinn Svarfaðardalur. Með von um að siá sem flesta. Góða skemmtun! óþh Vœntanleg er á nœstunni hin árlega símaskrá Knattspyrnu- deildar KA Forráðamönnum fyrirtækja, stofnana svo og öðrum sem óska eftir að fá birta auglýsingu í skránni er bent á að hafa samband við okkur í síma 23482 þriðju- daginn 22. og mið- vikudaginn 23. maí kl. 15.00-19.00. Símaskránni er dreift frítt til símnot- enda á Akureyri og nágrenni. Knattspyrnudeild KA

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.