Dagur - 19.05.1990, Side 11
Laugardagur 19. maí 1990 - DAGUR - 11
„Fiskvinnslan hefur bætt stöðu sína veru-
lega. Það eru mikil gleðitíðindi því að menn
líta til fiskvinnslunnar þegar samdráttur
verður í landbúnaðargeiranum. Möguleikar
á aukinni verðmætasköpun og vöruþróun
munu vera mestir í fiskvinnslunni í nánustu
framtfð."
Mlkill samdráttur í dilkakjötinu
Mikill samdráttur hefur verið í hefðbundn-
um landbúnaði á undaförnum árum. Minni
kindakjötsframleiðsla hefur orðið til þess að
Sláturhús Kaupfélags Skagfirðinga hefur
verið rekið með halla undanfarin ár. Slátur-
húsið er eitt hið fullkomnasta á landinu en
er langt frá því að vera fullnýtt.
„Vissulega er samdrátturinn í landbúnað-
inum okkur mjög mikið áhyggjuefni.
Kindakjötsframleiðslan hefur dregist saman
frá því að vera um sjötíu þúsund fjár þegar
mest var, til þess að vera nú þrjátíu og tvö
þúsund síðasta haust. Við ætlum að reyna
að nýta sláturhúsið betur með því að flytja
kjötvinnsluna í húsnæði sláturhússins. Stór-
gripaslátrun stendur nú yfir allt árið og
þannig nýtist sá hluti hússins mjög vel. Nú
er í athugun hvernig hægt er að spara í bein-
um sláturkostnaði en tillögur þess efnis
liggja ekki fyrir. Kostnaður við húsið svo
sem fasteignagjöld og ýmis annar kostnaður
er sá sami hvort sem slátrað er þrjátíu eða
sjötíu þúsund fjár og vissulega veldur sam-
drátturinn í dilkakjötsframleiðslunni okkur
miklum áhyggjum."
Slæm stada SÍS áhyggjuefni
Talið barst að slæmri stöðu Sambands
íslenskra samvinnufélaga. Sambandið hefur
verið að draga saman seglin og selt eignar-
hlut sinn í Samvinnubankanum og íslensk-
um aðalverktökum. Rekstur þess gengur
illa og skuldir orðnar injög háar.
„Auðvitað hef ég eins og aðrir áhyggjur
af slæmri stöðu Sambandsins. Ástæður fyrir
hvernig er komið eru vafalaust margþættar.
Erfitt er að segja um eitt sem öðru fremur
hefur valdið hvernig komið er. Sambandið
hefur verið þannig uppbyggt að það er seint
til ákvarðanatöku. í harðri samkeppni hefur
fyrirtækið verið of seint að laga sig að mark-
aðsaðstæðum.
Því er heldur ekki að neita að samdráttur
í dilkakjötsframleiðslunni hefur haft áhrif á
stöðu Sambandsins. Staða ullariðnaðarins
hefur verið slæm. Par hefur Sambandið tap-
að verulegum fjármunum í rekstri og sá tap-
rekstur hefur reynst þungur í skauti og veikt
stöðu þess.
Öruggur rekstrargrundvöllur Sambands-
ins er mjög mikilvægur. Það hefur stóru
hlutverki að gegna gagnvart kaupfélögun-
um.“
Einokun í flutningum til landsins
Að margra áliti væri mjög miður ef sú starf-
semi sem Sambandið heldur uppi á sviði
sölu afurða frá landbúnaði og sjávarútvegi
leggðist af eða færi í hendur annarra aðila.
Vafalítið eru þeir einnig til sem vilja gjarn-
an sjá Sambandið feigt og þætti lítil eftirsjá
í því.
„Þegar grannt er skoðað held ég að það
væri mjög alvarlegur hlutur ef ýmis sú starf-
semi sem Sambandið heldur uppi leggðist
af. Skipadeild Sambandsins er eina skipa-
félgið sem getur veitt Eimskipafélaginu
raunverulega samkeppni og aðhald. Ef
flutningar Skipadeildarinnar leggðust af
væru nokkrir einstaklingar einráðir á öllum
flutningum til og frá landinu. Farmgjöld
hafa verið að lækka undanfarin ár, ég tel
nokkuð víst að þau myndu hækka ef einok-
un Eimskipafélagsins kæmist á. Slíkt mundi
skila sér fljótt í hærra vöruverði til neytenda
og lægra skilaverði til- útflytjenda."
Skagfírskir bændur
munu standa saman
Tali okkar víkur nú aftur að Kaupfélagi
Skagfirðinga. í nefndaráliti um hagræðingu
í rekstri mjólkuriðnaðarins frá ágúst 1989 er
lagt til að Mjólkursamlag Skagfirðinga verði
í framtíðinni lagt niður. Mjólk úr Skagafirði
yrði þá flutt til vinnslu í Mjólkursamlag Ey-
firðinga á Akureyri.
„Ég tek þessa tillögu ekki mjög alvarlega.
Mjólkursamlag Skagfirðinga er mjög rekstr-
arlega öruggt fyrirtæki. Skagfirskir bændur
munu standa fast saman um sitt Mjólkur-
samlag og þá þjónustu sem þar er haldið
uppi. Ég er ekki svartsýnn á framtíð Sam-
lagsins á næstu árum. Auðvitað verðum við
að vera vel vakandi í þeirri vöruþróun sem á
sér stað.
Ég hef ekki minni áhyggjur af því að ekki
tókst að fylla fullvirðisrétt héraðsins á sein-
asta ári, en hann er um 8,3 milljónir lítra.
Samlagsstjórn hefur þó hvatt bændur til að
auka framleiðsluna. Á seinasta ári var
mjólkurframleiðslan minni en neyslan. Það
þýðir að nauðsynlegar birgðir minnka.
Framleiðsluna þarf að auka, því birgðir eru
að sjálfsögðu ekki óþrjótandi. Bændum í
Skagafirði er mjög mikilvægt að fylla sinn
fullvirðisrétt, einfaldlega til að halda honum
þegar fram í sækir.
Rekstrarvandi útibúanna alvarlegur
Kaupfélag Skagfirðinga heldur uppi mikilli
þjónustu við félagsmenn sína í Skagafirði.
Utibú eru í Ketilási í Fljótum, í Varmahlíð
og Hofsósi. Hallarekstur hefur verið á úti-
búunum í Ketilási og Hofsósi undanfarin ár.
í Ketilási minnkaði hallinn þó verulega á
síðasta ári en mikið tap varð á Hofsósi.
„Við urðum fyrir miklum vonbrigðum
með útibúið í Hofsósi. Tapið þar nam um
níu milljónum króna sem er allt of mikið.
Það verður gripið til alvarlegra aðgerða til
að rétta við reksturinn í Hofsósi. Ástæður
fyrir tapinu er minnkun á verslun í Hofsósi.
Með batnandi samgöngum gerir fólk af
svæðinu út að austan innkaup sín í auknum
mæli hér á Sauðárkróki.“
Þessi rekstrarvandi útibúanna er ekkert
einsdæmi hjá Kaupfélagi Skagfirðinga.
Kaupfélag Þingeyinga hefur gripið til þess
ráðs að leigja útibú og sumstaðar hafa þau
verið lögð niður.
„Við höfum farið þá leið að grípa til hag-
ræðingar í rekstri þessara útibúa. Hver
framtíðin verður er ekki ljóst enn þá. Við
erum hins vegar staðráðnir í að tapa ekki
stórum fjárhæðum ár eftir ár á þessum
stöðum.
Takmarkaður tími
til tómstundaiðkana
Starf kaupfélagsstjóra er tímafrekt og krefj-
andi hjá jafn umsvifamiklu fyrirtæki og
Kaupfélagi Skagfirðinga. Tími fyrir áhuga-
mál og tómstundir er því ekki mikill.
- En hvað gerir Þórólfur Gíslason í tóm-
stundum sínum?
„Ég hef haft frekar lítinn tíma til tóm-
stundaiðkana, starfið hefur tekið mikinn
tíma. Ég reyni að bregða mér á skíði til að
hressa mig við þegar stundir gefast á vet-
urna. Á sumrin reyni ég að vera úti og
hreyfa mig og ferðast um nágrennið. Ég hef
lengi ætlað að fara í golf með félögum mín-
um hérna og var staðráðinn í að láta verða
af því í vor. Því miður hefur ekki orðið af
því enn þá. Eitt áhugamál öðru fremur á ég.
nú ekki, mér finnst mjög gott að setjast nið-
ur með góða bók þegar stund gefst.“
„Ég er bjartsýnn á
framtíð Kaupfélags Skagfírðinga“
Á síðasta ári átti Kaupfélag Skagfirðinga
aldarafmæli. Kaupfélagið er rótgróið í sögu
héraðsins og hefur gegnt lykilhlutverki í
atvinnulífi á Sauðárkróki til Iangs tíma. Sem
tákn um samtakamátt og samvinnu bænda
hefur félagið staðið af sér mörg veður og ill.
Á tímamótum sem aldarafmælum er eðli-
legt að litið sé um öxl og einnig til framtíð-
ar.
Ef við lítum á stöðu fyrirtækisins í dag og
reynum að sjá fyrir þróunina á næstu miss-
erum held ég að fiskvinnslan sé sú atvinnu-
grein sem menn líta hvað björtustum aug-
um. Eins og fram hefur komið í þessu spjalli
er fiskvinnslan sú átvinnugrein í dag þar
sem eru möguleikarnir til aukinnar fram-
leiðni eru hvað mestir.
Ég er bjartsýnn á framtíð Kaupfélags
Skagfirðinga í því umhverfi sem við búum
við. Félagsmenn verða að standa fast saman
um sitt félag. Þá gegnir það áfram afgerandi
hlutverki í atvinnulífi héraðsins og Sauðár-
króks. kg
Kaupfélags Skagfirðinga"
Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga.