Dagur - 22.05.1990, Blaðsíða 1

Dagur - 22.05.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur Akureyri, þriðjudagur 22. maí 1990 95. tölublað LACOSTE Peysur • Bolir HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599^ Handklæði geta stunduin verið nauðsynleg hjálpartæki í fjárhúsum þegar sauðburður stendur sem hæst. Þetta litla lamb á bænum Vatnsleysu í Fnjóskadal naut umhyggju heimilisfólks og var vafið í handklæði meðan það náði sér eftir burðinn. Mynd Kl. Staðsetning álvers: Verkfræðistofnun Háskólans mælir loftmengun í Evjafirði Hraðfrystihús Ólafsijarðar: Rækjan er að rúlla af stað Rækjuvinnsla hefst að öllu óbreyttu í dag hjá Hraðfrysti- húsi Ólafsfjarðar hf., en hún hefur legið niðri í nokkra mán- uði. Að sögn Þorsteins Ásgeirssonar, skrifstofustjóra HO, hefur ekki verið unnt að hefja rækjuvinnsluna fyrr vegna manneklu. „Það hefur einfaldlega vantað fólk, en skólakrakkarnir eru að koma núna,“ sagði Þorsteinn. Gert er ráð fyrir að um 15 manns vinni við rækjuna og verð- ur reynt að keyra vinnsluna stíft áfram í sumar og helst fram að áramótum, að sögn Þorsteins. Til að byrja með verður unnin erlend frosin rækja, en miðað er við að nokkrir heimabáta og ein- hverjir aðrir leggi upp hjá HÓ. óþh Skíðadalur: Árarekkifyrir fjárbændur Sauðburðurinn er í hámarki hjá bændum, en ekki er svo í öllum sveitum. Víða hefur riðuveikin markað sín spor. „Hér er allt á kafi. Snjó tekur mikið upp, en nú sést best hve magnið hefur verið mikið. Margir þakka sínum sæla fyrir að vera fjárlausir og því lausir við sauðburðinn. Hér var niður- skurður vegna riðu. Þegar ég var með sem flest, voru 550 á fóðrum hjá mér. Ég hefði ekki viljað það nú, því hér er varla hægt að setja fé út nema á snjóinn. Nær autt er í miðsveitinni, en niður við Dal- vík er mikill snjór og hér í Skíðadal og Svarfaðardalsbotni einnig. Hér árar ekki fyrir fjár- bændur," sagði Ingvi Eiríksson, bóndi að Þverá í Skíðadal. ój Tæplega 40 milljóna króna tap varð á rekstri Slippstöðvarinn- ar á Akureyri á síðasta ári. Þetta er annað árið í röð sem stöðin er rekin með halla en tapið á síðasta ári var þó mun meira en á árinu 1988. Aðalfundur Slippstöðvarinnar var haldinn síðastliðinn laugar- dag þar sem þessar niðurstöður voru kynntar. Nýsmíðaskip stöðvarinnar, sem enn er óselt, er stöðinni þungur baggi því fjár- magnskostnaður vegna þess á síðasta ári nam um 25 milljónum króna. Gerðir voru tveir sölu- samningar á þessu skipi sem báð- ir gengu til baka, eins og kunnugt er. A síðasta ári var öllum starfs- mönnum stöðvarinnar sagt upp Á næstunni mun Verkfræði- stofnun Háskóla íslands fram- kvæma loftmengunarmælingar á Eyjafjarðarsvæðinu. Þessar mælingar verða eingöngu framkvæmdar í Eyjafirði, af þeim stöðum sem til greina koma fyrir nýtt álver, þar sem um er að ræða landbúnaðar- hérað og að mörgu leyti við- kvæmara svæði en annars staðar. Andrés Svanbjörnsson, yfir- verkfræðingur markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Lands- virkjunar segir að það sem gera þurfi sé að kanna áhrifin inni í Hörgárdal, sem og á svæðinu fyr- ir austan Eyjafjörð. Gera þurfi ýmsar mælingar annars staðar við störfum og komu uppsagnirnar til framkvæmda í febrúar sl. Starfs- menn stöðvarinnar eru nú unt 30 færri en í árslok 1989. Gripið hef- ur verið til ýmissa skipulagsbreyt- inga til að mæta þyngri rekstri og segir Sigurður Ringsted, forstjóri Slippstöðvarinnar, ekki frekari breytingar á döfinni. Hann segir árangur af þessum aðgerðum ekki kominn fram að fullu. „Við höfum verið að skera niður ýms- an kostnað í fyrirtækinu en árangur af því mælist ekki í rek- strarafkomu strax,“ sagði Sigurö ur. Fyrirtækið hefur nú gengið í gegnum erfiðan tíma hvað varðar verkefni en Sigurður segir horfa þokkalega fram á næsta ár, ef samningur um nýsmíði fyrir Ósk- ar Matthíasson gangi eftir. JÓH Eyjafjörð, einnig með aðra staði við Eyjafjörð í huga en Dysnes. Rætt hafi verið um að gera svo- kallaða snefilefnamælingu þar sem snefilefnum yrði sleppt á þeim stöðum sem til greina þykja koma og mæling síðan gerð á dreifingunni á nokkrum stöðum við fjörðinn. Andrés segir hins vegar ekki ákveðið hvort þessi mælingar verði gerð. Só breyting verður á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri frá 1. júní n.k. að Gauti Arn- þórsson, núverandi yfirlæknir á handlækningadeild, fær leyfl frá störfum til eins árs til að sinna vísindastörfum í fagi sínu. Samkvæmt upplýsingum blaðs- ins var nú um helgina gegnið frá samningi milli stjórnar sjúkra- hússins og Gauta þess efnis að hann sinni vísindastörfum í fagi Síðastliðið föstudagskvöld stöðvaði lögreglan í Ólafsfirði bíl á Aðalgötunni en í radar- mælingu mældist hann á 99 km hraða á klukkustund. Þetta brot varðar ökuleyfis- missi. Lágmarkið til ökuleyfissvipt- ingar á staðnum er 100 km hraði og því hélt ökumaðurinn skír- Fram kom á almennum fundi um álver við Eyjafjörð á dögun- um að fleiri staðir eru inni í myndinni en Dysnes. Andrés segir þetta rétt og nefnir að t.d. hafi Árskógsströnd uppá að bjóða ýmsa kosti. „Ef ákveðið verður að byggja álverið við Eyjafjörð þá hlýtur besti kostur- inn að verða fyrir valinu. Það er ljóst,“ segir Andrés. JÓH sínu á áðurnefndu tímabili. Gauti er í hópi þeirra lækna hér- lendis sem gert hefur hvað flestar skurðaðgerðir og mun stjórn sjúkrahússins, senr og embætti Landlæknis, hafa áhuga á að Gauti taki saman upplýsingar um þessar lækningar og birti niður- stöður þeirrar athugunar sinnar. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það enn hvort auglýst verður eftir starfskrafti í yfir- læknisstöðuna við handlækninga- deild. JÓH teininu á meðan mál hans fer í gegnum dómskerfið. Þessi utan- bæjarmaður var meðal fjögurra ökumanna sem stöðvaðir voru fyrir of hraðan akstur í bænum á föstudagskvöldið en hinir þrír voru á minni hraða. Að öðru leyti var rólegt hjá lögreglumönnum á svæðinu um nýliðna helgi. JÓH Dalvík: Eigendaskipti í útgerðinni staðfest um helgina Um helgina var gengið form- lega frá sölu Kaupfélags Ey- firðinga á 63,5% hlut þess í Söltunarfélagi Dalvíkur hf. til Samherja hf. Ennfremur var formlega staðfest sala á hlut Dalvíkurbæjar í Utgerðar- félagi Dalvíkinga hf. til Kaup- félags Eyfirðinga. Fljótlega verður boðað til hlut- hafafund'ar í Söltunarfélaginu þar sem væntanlega verður kjörin ný stjórn fyrirtækisins, en sæti í henni eiga nú Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri KEA, Rögnvaldur Skíði Frið- björnsson, útibússtjóri KEA á Dalvík og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Dalvík. Á aðalfundi Söltunarfélags Dalvíkur hf., sem haldinn var sl. föstudag, var samþykkt að auka hlutafé í fvrirtækinu í allt að 33,5 milljónir króna. Gerðar voru breytingar á samþykktum félags- ins er lúta að því að opna það. Þá var samþykkt að fækka stjórn- armönnum úr fimrn í þrjá. Fram kom á aðalfundinum að tap á rekstri fyrirtækisins á sl. ári nam 34,9 milljónum króna. Rekstrartekjur voru 182 milljónir króna. Söluverðmæti afurða verksmiðjunnar var 103,8 milljónir og aflaverðmæti Dal- borgar EA 94,6 milljónir. óþh Stangveiðiklær setja í eldis- lax í innan- verðum Ejjaflrði Lax á stöng hefur veiðst úr sjó með fjörum við innan- verðan Eyjafjörð á þessu vori. Þetta er nokkuð sérstakt, en á sér eðliiegar skýringar. í Rauðuvíkinni út með Eyja- firði eru tvær flotkvíar í eigu Rauðuvíkur hf., sem stundar þar laxeldi í sjónum. Fyrir viku, þegar starfsmenn unnu að slátruaxins, komu í ljós skemmdir á annarri flotkvínni og að lax hafði sloppið. Að sögn Jóns Inga hjá Rauðuvík hf. er ekki ljóst hve mikið af laxi hef- ur sloppið, en það er þó tölu- vert. „Við vorum með þrjú þús- und fiska þarna í upphafi. Nokkru hefur verið slátrað og við höldum áfram slátrun á næstu vikum. Mér er sagt að lax fáist á stöng hér við fjörurnar við innanverðan Eyjafjörð og trúlega er laxinn frá okkur,“ sagði Jón Ingi. ój Slippstöðin á Akureyri: 40 milljóna tap Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri: Gauti Amþórsson sirrnir vísindastörfum í eitt ár Ólafsijörður: Ökufantur á Aðalgötunm

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.