Dagur - 22.05.1990, Blaðsíða 11

Dagur - 22.05.1990, Blaðsíða 11
tónlist i Karlakórstónleikar - Geysir og Karlakór Akureyrar í Skemmunni Karlakórarnir tveir á Akureyri hafa átt í miklum erfiðleikum undanfarin ár. Mannfæð hefur hrjáð báða kórana svo mjög, að þeir hafa ekki verið starfhæfir hvor um sig. Á þessum vetri hef- ur mikið verið starfað að samein- ingarmálum þeirra. Þau eru ekki enn að fullu komin í höfn, en þó hefur sem betur fer náðst. sá árangur, að sunnudaginn 20. maí héldu kórarnir tveir, Karlakórinn Geysir og Karlakór Akureyrar, tónleika sem einn kór í íþrótta- skemmunni á Akureyri. Söngstjóri var Michael Jón Clarke, en undirleikari á flygil var Guðrún A. Kristinsdóttir. Yfirleitt var söngur kórsins styrkur og hljómurinn hreinn. Sérstaklega athyglisvert var vald hans á ljúfum, hóglátum söng, sem féll vel að stærð hans og getu raddanna. Þó kom fyrir, að ekki var nóg fylling í röddunum - einkum tenórunum - þegar veikt var sungið. Þetta var talsvert áberandi til dæmis í veikum hlut- um Fangakórsins úr óperunni Nabucco, en kom einnig fyrir víðar. Þegar meira þurfti að taka á, gætti þess, að kórinn var kominn að mörkum sínum og jafnvel, að honum var ætlað meira en hann réði við. Þessa gætti mest í Brennið þið vitar, sem náði eng- an veginn flugi, og einnig nokkuð í fleiri verkum á efnisskránni. Söngskrá tónleikanna var fjöl- breytt og sýndi verulegan og lofs- verðan metnað. Slíkt er afar ánægjulegt. Ekki svo að skilja, að gömlu, góðu karlakórslögin eigi að leggja fyrir róða að fullu og öllu, heldur er ætíð þörf endurnýjunar; þess að brotnar séu nýjar leiðir og reynt við nýtt efni. Slíkt er jafnt kórfélögum sem tónleikagestum nauðsynlegt. Það heldur andanum vakandi og áhuganum lifandi. Einkum voru það þrjú verk á efnisskránni, sem vöktu verulega forvitni. Þau voru Þakkargjörð- arlag, hollenskt þjóðlag við texta í þýðingu Óskars Ingimarssonar, Göngulag eftir Matyas Seiber byggt á ungversku þjóðlagi við texta eftir Atla Guðlaugsson og Hermannalag eftir Zoltán Kodály við texta eftir óþekktan höfund. í því síðastnefnda var undirleikur aukinn með trompet- leik Atla Guðlaugssonar og sner- iltrommuleik Ingva Rafns Ingva- sonar. Því er ekki að neita, að þessi þrjú verk hefði öll mátt æfa nokkru lengur. Góðir þættir voru þó í þeim. Þannig sýndi kórinn allgott vald á stígandi styrk í Þakkargjörðarlaginu og Her- mannalaginu og stóð sig mjög sæmilega í Göngulaginu. Kórinn sýndi eftirbreytniverða dirfsku í því að brjóta upp á þess- um verkum og þá sérstaklega Hermannalaginu, sem er talsvert snúið tónverk. Það er gott að geta sagt, að hann komst í heild- ina litið vel frá viðureigninni við þau. Á tónleikum karlakóranna söng Ingibjörg Marteinsdóttir, söngkona, fimm lög úr söngleikn- um My Fair Lady og gerði það snyrtilega. Kórinn söng með Ingibjörgu í nokkrum laganna og söngstjórinn, Michael Jón Clarke, aðstoðaði hana af glæsi- brag í nokkrum tvísöngslögum. Þá söng kvintettinn Galgopar nokkur lög við undirleik Nigels Lillicraps. Húsfyllir var í íþróttaskemm- unni á tónleikum karlakóranna 20. maí og var þeim að verðugu vel þakkað í lokin. Vonandi verður framhald á samstarfi kór- anna. Það væri ekki vansalaust fyrir Akureyrarbæ, sem til skamms tíma gat státað af tveim öflugum karlakórum, ef ekki reynist unnt að halda uppi ein- um. Til þess þarf nokkuð enn. Hinn sameiginlegi kór Karlakórs Akureyrar og Karlakórsins Geys- is sannaði reyndar á tónleikunum í Skemmunni að hann er umtals- vert hljóðfæri. Það má þó bæta verulega. Til þess þarf fleiri söngmenn. Þeir hljóta að vera til í þessum bæ. Haukur Ágústsson. Jazz í Skemmtinm - tónleikar Léttsveitar Tónlistarskólans á Akureyri Síðasta atriðið starfsárslokatón- leikaröð Tónlistarskólans á Ak- ureyri á þessu vori voru tónleikar Léttsveitar skólans í íþrótta- skemmunni á Akureyri föstudag- inn 18. maí. Hljómsveitin er skipuð nemendum skólans, en auk þeirra leika nokkrir kennarar skólans í hljómsveitinni og fáein- ir utanskólamenn. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Robert Thomas. Verkefnaskrá hljómsveitarinn- ar á þessum tónleikum var fjöl- breytt. Fluttir voru gamlir „jazz- standardar“, svo sem Don’t Get Around Much Anymore, Sweet Georgia Brown og Misty, en í bland lítt þekktari jazzlög og lög frá seinni tímum. Leikur hljómsveitarinnar var yfirleitt hreinn. Eins var ljóst að flestir höfðu gott vald á hljóðfær- um sínum og nokkrir hljóðfæra- leikararnir sýndu af sér verulega færni. Þar má nefna slagverks- leikarann Ingva Rafn Ingvason, altsaxafónleikarann Óskar Ein- arsson og Finn Eydal, sem tók að vanda fallega tóna á baritónsaxa- fóninn sinn - það er að segja það, sem heyrðist af leik hans fyrir hljómsveitinni sjálfri, en hún var gjarnan of sterk í leik undir sóló- um. Sér í lagi hefði hún þurft að vera mun ljúfari í sólóköflum baritónsaxafónsins. Annars einkenndist leikur hljómsveitarinnar því miður mest af annars vegar firna sterkum köflum, þar sem leikur hennar varð gjarnan of agalaus og ein- ungis hávær, og hins vegar köflum, sem lágu lítið eitt neðan við meðalstyrk og náðu of sjald- an ljúfleika. „Markerað" samspil var of sjaldgæft og mjúkur og fín- legur leikur kom varla fyrir. í stórsveitarjazzi er sveifla eitt af því, sem mestu skiptir. Því miður gætti þessa mikilvæga atriðis of lítið í leik hljómsveitar- innar á tónleikunum í íþrótta- skemmunni 18. maí. Þó náðist góð stemmning í til dæmis Sam- bita, þar sem Ingvi R. Ingvason knúði taktinn áfram af ákveðni og þrótti, og í Hayburner, en í því lagi lék Óskar Einarsson all- lipurlega sóló. „Impróvisasjón“ eða „spuni“ er ríkur þáttur í jazzi. Til að ná góðum árangri í honum er engan veginn nóg að hafa náð tækni- legri færni á hljóðfærið, þó að það sé vissulega æskilegt og mjög gagnlegt eigi verulega vel að gera. Framar öðru er spuni byggður á lagrænni tilfinningu, innlifun og því, að hljóðfæra- leikarinn hafi eitthvað að gefa. Spuni krefst líka þess, að tónlist- armaðurinn þori að gefa túlkun- argleði sinni lausan tauminn. Loks er mikilvægt, að unnið sé af agaðri og þroskaðri smekkvísi, ella verður spuninn litlausar upp- hrópanir eða oflilaðinn og lítið annað en innihaldslitlar fingra- æfingar. Þessi atriði eru í fullu gildi þó að um skrifaðan spuna sé að ræða. Léttsveit Tónlistarskólans er nauðsynlegur þáttur í tónlistarlífi Akureyrarbæjar. Án hennar vildi væntanlega enginn sannur tón- listarunnandi vera. Þrátt fyrir þá galla, sem voru á tónleikunum í Iþróttaskemmunni, er full ástæða til að þakka fyrir þá. Haukur Ágústsson. Karlakór Akureyrar og Karlakórinn Geysir Tonleikar verða haldnir í Hlíðarbæ, fimmtudaginn 24. maí kl. 16.00 og Víkurröst, Dalvík sama dag kl. 21.00. Fjölbreytt dagskrá. Karlakórarnir. Útvegsmenn! Til sölu er lítið notuð rækjutroll, 1100 möskva spútnik, í góðu ástandi. Fæst á góðu verði. Einnig höfum við fyrirliggjandi dragnætur. Nótastöðin Oddi hf. Símar 24466 og 23922. íMðjíiímgöf 22P«fejf 5Í09Ö—íTÖÍfMííl -t¥l Höfum opið alla daga vikunnar frá kl. 9-23.30. Alltaf heitt á könnunni. VeriÖ velkomin Steinhólaskáli, Eyjafirði. Ferðafélag Akureyrar Ferðakynning félagsins verður miðvikudaginn 23. maí kl. 20.30 í starfsmannasal Útgerðarfélags Akureyringa. Ferðir sumarsins kynntar. Myndasýning. Kaffiveitingar. Stjórnin. Illl Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins á Húsavík er að Garðarsbraut 5, Garðari (2. hæð) og er opin sem hér segir: Virka daga kl. 20.30-23.00. Laugard. og sunnudaga kl. 15.00-19.00 B-listinn hvetur fólk til þess að líta inn og ræða bæjarmálin og kosningarnar. Kaffi á könnunni. B-listinn minnir stuðningsfólk sitt, sem verðurfjarver- andi úr bænum á kjördegi, á utankjörfundar- atkvæðagreiðsluna. Lítið inn. Leitið upplýsinga. Síminn er 41225. Framsóknarflokkurinn. Kosningaskýrslur 1874-1987 ★ Alþingiskosningar frá 1874 ★ Sveitarstjórnarkosningar frá 1930 ★ Forsetakjör og þjóðaratkvæða- greiðslur Tvö bindi-1.160 bls. Verð 4.800 kr. með vsk. Ómissandi fyrir spámenn og spekúlanta um kosningaúrslit. Hagstofan Skuggasundi 3, 150 Reykjavík Afgreiðsla bóka í síma 609860. Sólhúsgögn Vorum að fá mikið úrval af sólhúsgögnum Bekkir, verð frá kr. 3.820,- Relax-stóiar, verð frá kr. 4.450,- Borð, verð frá kr. 3.220,- Tjaldborð, verð frá kr. 1.900,- Plaststólar, verð kr. 1.165,- Petta er aðeins smásýnishorn. Opið laugardaga kl. 9-12. EYFJÖRÐ Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.