Dagur - 22.05.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 22.05.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 22. maí 1990 Góohestakeppni Kappreiðar og úrtaka Funa, Léttis og Þráins fyrir landsmót verður á Melgerðismelum 2. og 3. júní. Keppt veröur í: A og B flokki gæðinga. Yngri og eldri fl. unglinga, 150 og 250 m skeiði, 250, 350 og 800 m stökk, 300 m brokk. Skráning fer fram í Hestasporti og lýkur henni föstu- daginn 25. maí kl. 19.00. Funi, Léttir, Þráinn. r ÚTBOÐ Vegagerð ríkisins óskar eftir tii- boðum í eftirtalin verk: 1. Klæðingar á Norðurlandi vestra 1990. VEGAGERÐIN Magn: Tvöföld klæðing 67.000 fermetrar, einföld klæðing 115.000 fermetrar. Verki skal lokið 1. september 1990. 2. Efnisvinnsla á Norðurlandi vestra 1990. Magn: 22.000 rúmmetrar. Verki skal lokið 15. ágúst 1990. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðal- gjaldkera) frá og með 21. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 28. maí 1990. Vegamálastjóri. ^ Menntamálaráðuneytið Laus staða Við Kennaraháskóla Islands er laus til umsóknar staða lektors á sviði upplýsingatækni og tölvunotkunar í námi og kennslu. Umsækjandi skal hafa lokið viðurkenndu háskólanámi á sviði tölvunarfærði, upplýsingatækni eða kennslu- tækni, ásamt háskólaprófi í uppeldis- og kennslufræð- um, t.d. kennaraprófi. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af kennslu og skólastarfi og hafi starfað að verkefnum tengdum upp- lýsingatækni og tölvunotkun. Laun sámkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjandi skal láta fylgja umsókn sinni ítarlega skýrslu um ritsmíðar sínar og rannsóknir, svo og upp- lýsingar um námsferil sinn og störf. Þau verk, sem umsækjandi óskar að dómnefnd fjalli um, skulu einniq fylgja. Umsóknir skulu hafa borist til menntamálaráðuneytis- ins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 20. júní n.k. Menntamálaráðuneytið, 17. maí 1990. fréftir Hluti fundarmanna á fundi sem Alþýðuflokkurinn á Akureyri boðaði til sl. laugardag með iðnaðarráðherra. Árni Gunnarsson, alþingismaður, var annar frummælenda á fundinum. Á innfelldu myndinni er Jón Sigurðsson, iðnað- arráðherra. Myndir: kl Jon Sigurðsson, iðnaðarráðherra, um álversmálið: Olíklegt að ákvörðun um staðar- val liggi fyrir í lok júní Ólíklegt er að tekin verði endanleg ákvörðun um stað- setningu álvers á Islandi á fundi fulltrúa Atlantsáls og íslenskra stjórnvalda í Reykja- vík 25.-26. júní nk. Á fundi iðnaðarráðherra með forsvars- mönnum Alumax í Atlanta í Bandaríkjunum 10. þessa mánaðar var ákveðið að á fundinum í Reykjavík eftir rúman mánuð yrði val um staðsetningu álversins þrengt í tvo til þrjá líklegustu staðina. Iðnaðarráðherra mun hafa til- kynnt þetta í ríkisstjórn í lið- inni viku. Jón Sigurðsson, iðnaðarráð- herra, fjallaði ýtarlega um stöðu álviðræðnanna á fundi sem Alþýðuflokkurinn á Akureyri boðaði til á Hótel KEA sl. laug- ardag. Hann sagði þann orðróm ekki réttan að búið væri á bak við tjöldin að ákveða staðsetningu álversins. Mikil vinna væri eftir, m.a. hvað varðaði mengunarmál- in, til þess að hægt væri að taka ákvörðun um staðsetninguna. Iðnaðarráðherra lagði áherslu á að ákvörðun um staðsetningu álversins hér á landi væri ekki í valdi eins aðila í Atlantsál- hópnum. Þetta væri sameiginleg ákvörðun allra aðila innan Atl- antsál og íslenskra stjórnvalda. Jón sagðist geta fullyrt að eng- in fordæmi væru fyrir jafn ýtar- legri forvinnu og rannsóknum vegna stórframkvæmdar hér á landi. Hann sagði að allir þeir aðilar sem að málinu kæmu teldu nauðsyn á mjög nákvæmum upp- lýsingum um allar hliðar málsins, ekki síst umhverfisþættinum, áður en ákvörðun um byggingu álvers yrði tekin. „Við erum ekki að tala um taugagasfabrikku,“ sagði iðnaðarráðherra. Hann kvaðst í heimsókn sinni í höfuð- stöðvar Alumax hafa sannfærst um að þar á bæ væri gífurlega mikið lagt upp úr umhverfis- þættinum við staðarval fyrir álver. Á áðurnefndum viðræðum iðn- aðarráðherra við forsvarsmenn Alumax kom fram að þeir leggja áherslu á áður en ákvörðun um staðsetningu verði tekin liggi fyr- ir niðurstöður rannsókna á útblástursdreifingu og áhrifum álverksmiðju með hliðsjón af staðháttum og ríkjandi vindátt. Fram kom í máli Sigfúsar Jóns- sonar, bæjarstjóra á Akureyri, að einnig hafi verið kannað með staðsetningu álvers á Árskógs- strönd. Lóð norðan við Árskógs- sand þyki álitleg. fyrir álver, en hins vegar sýnist ljóst að þar beint fram af sé ekki hægt að byggja höfn. Hafnarmannvirki yrðu að koma sunnan við Árskógssand. Iðnaðarráðherra staðfesti að Dysnes væri alls ekki eini staður- inn við vestanverðan Eyjafjörð sem til greina kæmi fyrir álver. Um stöðu viðræðna við hina erlendu aðila sagði iðnaðarráð- herra að í þeim væri góður andi og vel miðaði í átt til samkomu- lags. Á fundi viðræðunefndar íslenskra stjórnvalda með full- trúum Atlantsáls í Bandaríkjun- um í síðustu viku voru skattamál meðal annars á dagskrá. Fulltrúar íslenskra stjórnvalda munu hafa viðrað hugmynd um 35% virkan tekjuskatt en aðilar í Atlantsál hafa óskað eftir 25% virkum tekjuskatti. Hugmynd íslenska ríkisins samsvarar nú- gildandi tekjuskatti fyrirtækja með 50% formlegu skatthlutfalli og frádráttarheimildum og fríðindum. Menntamálaráðuneytið Lausar stöður Við Raunvísindastofnun Háskólans eru lausar til umsóknar eftirtaldar rannsóknastöður, sem veittar eru til 1-3ja ára: a) Ein staða sérfræðings við eðlisfræðistofu. b) Ein staða sérfræðings við jarðfræðistofu. Sér- fræðingnum er einkum ætlað að starfa á sviði til- raunabergfræði. c) Ein staða sérfræðings við reiknifræðistofu. Gert er ráð fyrir að stöðurnar verði veittar frá 1. sept- ember n.k. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi eða til- svarandi háskólanámi og starfað minnst eitt ár við rannsóknir. Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsóknastarfa, en kennsla þeirra við Háskóla íslands er háð samkomu- lagi milli deildarráðs raunvísindadeildar og stjórnar Raunvísindastofnunar Háskólans, og skal þá m.a. ákveðið, hvort kennsla skuli teljast hluti starisskyldu viðkomandi starfsmanns. Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum um menntun og vísindaleg störf, auk ítarlegrar lýsingar á fyrirhuguðum rannsóknum skulu hafa borist menntam- álaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 12. júní n.k. Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnirfrá 1-3 dómbær- um mönnum á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og vísindaleg störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umsalgi sem trúnaðarmál og má senda þær beint til menntamálaráðuneytisins. -f* Menntamálaráðuneytið, 14. maf 1990. Svæðisútvarp Norðurlands: Niðurskurði mætt með samþjappaðri dagskrá Útvarpsráð hefur ákveðið að stytta útsendingartíma svæðis- útvarpsstöðva síðdegis vegna óska hlustenda um að fá að hlýða á Þjóðarsálina á Rás 2. Útvarpsráð klofnaði í afstöðu sinni en meirihluti var fyrir breytingunni sem taka mun gildi 1. júní næstkomandi. Oskir íbúa á Norðurlandi og undirskriftalistar munu hafa vegið þungt í þessu máli. forstöðumanns Ríkisútvarpsins á Akureyri, mun Svæðisútvarp Norðurlands mæta þessum niður- skurði með samþjöppun í dag- skrárgerð. Síðdegisútsendingin verður helguð fréttum, frétta- tengdu efni og auglýsingum, en búast má við að auglýsingatekjur skerðist nokkuð. Tónlist verður felld niður. Erna sagði að ekki væri stefnt að því að nota sjö mínúturnar í hádeginu fyrr en næsta vetur og þá fyrir fréttir af veðri og færð og tilkynningar. Hún sagðist vonast til að þjónusta Svæðisútvarpsins yrði svipuð og verið hefur þrátt fyrir þessar breytingar. SS Ferðaskrifstofan Nonni/Saga reisen: Svæðisútvarp Norðurlands er öflugasta staðbundna útvarps- stöð Ríkisútvarpsins og verður niðurskurðurinn kannski mest áberandi þar. Síðdegisútsending styttist um röskan helming og verður frá kl. 18.35-18.57. Sem fyrr verður útvarpað á morgnana frá kl. 8.10-8.30 og einnig fá svæðisútvarpsstöðvarnar leyfi til að útvarpa í 7 mínútur fyrir hádegisfréttir. Að sögn Ernu Indriðadóttur, Beint flug í sumar frá Akureyri til Sviss í sumar gefst Norðlendingum í fyrsta skipti tækifæri til að fljúga beint frá Akureyri til Zurich í Sviss. Það er Ferða- skrifstofan Nonni og sviss- neska ferðaskrifstofan Saga reisen sem bjóða þessar ferðir. Flogið verður á mánudögum til Sviss í júlí og ágúst. Einnig verð- ur boðið upp á sérstaka helgar- ferð 5. til 8. júlí. Verð fyrir þessa ferð er 26.500 krónur. Innifalið er flug og bíll í viku fyrir fjögurra manna fjöl- skyldu. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.