Dagur - 22.05.1990, Blaðsíða 16

Dagur - 22.05.1990, Blaðsíða 16
Kristjana F. Amdal valin bæjarlistamaður Akureyrar fimmta árið í grafíkdeild. Kristj- ana lauk m.a. önnum í myndmót- un, múrvinnu (fresco, secco o.fl) og glermyndagerð. Þá stundaði hún framhaldsnámskeið 1982 við Monumentalskolan í Stokkhólmi og sótti ’82-83 námskeið í kopar- grafík og litógrafíu á Konstnar- ernas Kollektivverkstad í Stokk- hólmi. Kristjana hefur hlotið ýmsa styrki og ein starfslaun áður á listamannsferli sínum. Hún fékk styrk við útskrift úr Lista- háskólanum 1980, frá Konstars- namden í Stokkhólmi 1980 og 1984, menningarstyrk Huddinge- bæjar 1980, aðalstyrk Svenska Byggnadsarbetareforbundet 1983 og styrk frá Svensk-Norsk Sam- arbetesfond 1986. „Ég er ákaflega ánægð vegna þessarar viðurkenningar, hún er mér mjög mikils virði. Nú finnst mér loksins að ég sé komin heim, eftir langa dvöl erlendis," sagði Kristjana, eftir að hafa fengið starfslaunin. EHB Kristjana Finnbogadóttir Arndal, myndlistamaður, hef- ur hlotið starfslaun bæjarlista- manns Akureyrar 1990. Starfs- launin, sem eru til sex mánaða, voru veitt í fyrsta sinn í Lax- dalshúsi á laugardaginn. Menningarmálanefnd Akur- eyrar auglýsti eftir umsóknum um starfslaun bæjarlistamanns fyrir nokkru, og sóttu fimm um. Kristjana F. Arndal er fædd í Hafnarfirði árið 1939. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1959-63, nam teikningu í London 1969-70, aftur við Myndlista- og handíða- skólann 1970-75 í teiknun, málun og myndmótun, lauk 200 eininga háskólanámi við Listaháskólann í Frá afhendingu starfslaunanna í Laxdalshúsi. F.v.: Ingólfur Ármannsson skóla- og menningarfulltrúi, Þórey Stokkhólmi árið 1980, en þar var Eyþórsdóttir, Kristjana F. Arndal, Rut Hansen og Gunnar Ragnars. Mynd: ehb jjún fjögur ár í málaradeild og Aðalfundur Steinullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki í gær: Mikill lmlli en bjart fnumtndan Aðalfundur Steinullarverk- smiðjunnar hf. á Sauðárkróki var haldinn á Sauðárkróki í gær. Halldór J. Kristjánsson stjórnarformaður Steinullar- verksmiðjunnar flutti skýrslu stjórnar. í ræðu hans kom fram að stjórn verksmiðjunnar sæi fram á tryggari rekstrar- grundvöll fyrirtækisins heldur en undanfarin ár. Sem fyrr er fjármagnskostnað- ur fyrirtækisins mjög hár. Rúm- lega 101 milljón var netto fjár- magnskostnaður verksmiðjunnar á seinasta ári. Áður en fjármagnskostnaður er reiknaður skilar verksmiðjan um 8,3 milljónum í hagnað. Veruleg framleiðsluaukning var milli ára eða um 18%. Veltu- fjármunir jukust einnig verulega, úr rúmum 86,6 milljónum í um 153 milljónir. í skvrslu Einars Útboð Vegagerðarinnar vegna 8,8 km vegarkafla í Öxnadal: Jarðverk sf. í Fnjóskadal lægst - tilboð þess 70% af kostnaðaráætlun í gær voru opnuð tilboð í fyll- ingu og burðarlag á vegarkafla Norðurlandsvegar frá Bægisá að Þverá í Öxnadal. Lægsta til- boðið kom frá Jarðverki sf. í Fnjóskadal. Röð tilboðanna var þannig: Jarðverk sf. Fnjóskadal bauð kr. 44.435.300 (69,9%), Fylling hf. Vestur-Húnavatnssýslu kr. 44.977.000 (70,7%), Arnarfell bauð kr. 45.268.581 eða71,2% af kostnaðaráætlun, Ræktunarsam- band Flóa og Skeiða Selfossi 45.600.000 (71,7%), Bifreiða- stjórafélagið Valur, Akureyri, kr. 48.754.300 (76,7%), Hilmar Magnússon Vopnafirði kr. 49.385.650 (77,7%), G. Árnason Akureyri kr. 50.101.000 (78,8%), Grefill hf. Breiðdaísvík kr. 52.656.280 (82,8%), Halldór Baldursson Akureyri kr. 53.330.700 (83,9%), Suðurverk hf. Hvolsvelli kr. 56.238.000 (88,4%), Klæðning hf. Garðabæ 57.920.500 (91,1%), Króksverk hf. Sauðarkróki 59.257.500 (93,2%), Möl og Sandur hf. Akureyri 64.863.600 (102%), og Jóhann Bjarnason Hellu 82.772.700 (130,1%). Kostnaðaráætlun verkkaupa var kr. 63.600.000. Útboðið var auglýst í byrjun maí, lengd umrædds vegarkafla er 8,8 km, fyllingar 127 þúsund rúmmetrar og burðarlag 51 þúsund rúm- metrar. Verkinu skal að fullu lokið 15. september. EHB Einarssonar framkvæmdastjóra kom fram að vaxandi samstarf við finnska fyrirtækið Partek AB tryggði verulega rekstur Steinull- arverksmiðjunnar hf. Nokkur breyting varð á hluta- fjáreign í Steinullarverksmiðj- unni hf. Samband íslenskra sam- vinnufélaga seldi eignarhlut sinn til BYKO og Húsasmiðjunnar hf. SÍS hefur verið hluthafi í verk- smiðjunni frá upphafi og þakkaði framkvæmdastjóri sambands- mönnum gott samstarf. í ræðu framkvæmdastjóra kom fram að framtíð fyrirtækisins væri bjartari nú en nokkru sinni áður. Aukning veltufjár frá rekstri hefði því sem næst þrefaldast milli ára og sýndi glöggt bættan rekstur fyrirtækisins. í lok ræðu sinnar vék fram- kvæmdastjóri að mengunarmál- um og þeirri neikvæðu umræðu sem Steinullarverksmiðjan fékk að ósekju. kg/SBG Útilistaverk Jóns Gunnars Árnasonar: Verkinu fundinn nýr staður og sett upp á næstu vikum Á hundrað ára afmæli Kaup- félags Eyfirðinga, fyrir nokkr- um árum, var samþykkt í bæjarstjórn Akureyrar að reisa útilistaverk í tilefni afmælisins. Jón Gunnar Arna- son, myndlistamaður, var fenginn til verksins. Nú er verkið fullsmíðað og ákveðið er hvar á að reisa það. Fræðsluskrifstofa Norðurlandsumdæmis eystra: Góð viðbrögð við auglýsingum Övenju góð viðbrögð hafa fengist við auglýsingum á laus- um kennara- og skólastjóra- stöðum í Norðurlandsumdæmi eystra. Sex skólastjórastöður voru auglýstar og hefur þegar verið mælt með umsækjendum í fimm þeirra en frá einni ráðn- ingu verður gengið síðar í sumar. Katrín Ragnarsdóttir, á Fræðsluskrifstofu Norðurlands- umdæmis eystra sagði að telja verði viðbrögðin góð miðað við að hvað fengist hefði af umsókn- um eftir fyrstu auglýsingu. Þetta á líka við um almennar kennara- stöður en svipaður fjöldi þeirra var laus milli ára eins og verið hefur að undanförnu. Skólanefndir á hverjum stað hafa mælt með umsækjendum í skólastjórastöður en endanlega er gengið frá ráðningum með afgreiðslu menntamálaráðuneytis sem afgreiðir málið á næstu dögum. JÓH Útilistaverk Jóns Gunnars er nú fullgert og á næstu vikum verður það sett upp og afhjúpað. Upp- haflega var ætlunin að setja lista- verkið upp syðst í Göngugöt- unni, en frá því var horfið. í samráði starfsmanna Akureyrar- bæjar, Kaupfélags og höfundar- réttar listaverksins, erfingja Jóns Gunnars, en hann lést fyrir ári síðan, var nýr staður valinn á milli Skipagötu og Glerárgötu norðan Kaupvangsstrætis. „Þar mun listaverkið njóta sín, en hvað það heitir veit ég ekki. Listamaðurinn hafði ekki gefið því nafn þegar hann féll frá. Listaverkið er bátslíkan þannig að þetta er nokkurskonar sigling,“ sagði Valgarður Bald- vinsson, bæjarritari Akureyrar- bæjar. ój Styrktarlína frá Akureyrarbæ í blaði SUS: Reikninguriim ekki greiddur - segir Sigfús Jónsson Það hcfur vakið mikla athygli að í blaði frá Samhandi ungra sjálfstæðismanna sem er gef- ið út í 17 þúsund eintökum og dreift til ungra kjósenda er nafn Akureyrarbæjar að finna efst á blaði yfir þá aðila sem aðstoðuðu við útgáfuna. Samkvæmt þessu er bærinn að styrkja pólitískan flokk í kosningabaráttu fyrir kom- andi sveitarstjórnarkosning- ar. Sigfús Jónsson, bæjarstjóri, sagði í samtali við Dag að þarna hefði annað hvort verið um mis- skilning að ræða eða þá að þeir sem söfnuöu styrktarlínum fyrir blað SUS hefðu hreinlega villt á sér heimildir. Akureyrarbær myndi aldrei styrkja stjórn- málaflokk í kosningabaráttu eða blanda sér í útgáfu áróðurs- rita flokkanna. „Ég hef gengiö úr skugga um að þessi rcikningur hefur ekki verið greiddur og hann veröur ekki greiddur. Málið er því auð- leyst,“ sagði Sigfús. Hann sagði að mikiö væri hringt til Akureyrarbæjar og beðiö um styrktarlínur í hin ýmsu rit. Bærinn hefði stutt afmælisblöð, jólablöð, sjó- mannadagsblöð o.s.frv. en hann myndi aldrci styðja útgáf- ur frá stjórnmálaflokkum. „Málið er það að Samband ungra sjálfstæðismanna fékk auglýsingasafnara fyrir sig til að safna auglýsingum í blaðið, menn sem eru á prósentum. Þessir rnenn hafa sennilega ekki sagt rétt frá þegar hringdu til að fá styrktarlínu frá bænum,“ sagði Sigfús. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.