Dagur - 26.05.1990, Side 16
16 - DAGUR — Laugardagur 26. maí 1990
í sauðburði á Vatnsleysu í Fnjóskadal:
Aldrei vikið af vaktinni í fjárhúsunum
Sauðburður var í hámarki í fjárhúsunum á bænum Yatnsleysu
í Fnjóskadal þegar okkur gestina bar að garði á dögunum.
Hjónin Ármann Olgeirsson og Sigrlður Ivarsdóttir, ásamt
börnum sínum Jónu Guðrúnu og Benedikt Geir, höfðu í nógu
að snúast en störfin gengu hávaðalaust fyrir sig enda þarf ekki
lengi að litast um í húsunum á Yatnleysu á sauðburði til að sjá
að þarna er gott skipulag á hlutunum. Ærnar eru allar settar
í sérstök hólf strax eftir burðinn sem þau Ármann og Sigríður
segjast telja að skili sér vel þrátt fyrir mikla vinnu. Þessi dag-
ur var sá frjósamasti fram að þessu á sauðburðinum en í heild-
ina var um 89%, af þeim 270 sem bornar voru, tvílembdar
eða þrílembdar. Frjósemin er því mikil í þessum fjárhúsum.
Rafgeymar
og
hjólbarðar
Bott irerð.
10% afsláttur
Verð:
107 a.h. kr. 8.662,50
133 a.h. kr. 10.296,-
70 a.h. kr. 4.940,10
Frjósemin með meira móti
„Það eiga að bera rösklega 400
kindur og ætli nú séu ekki bornar
um 300. Sauðburðurinn byrjaði
upp úr síðustu mánaðamótum og
það má segja að mesta álagið
gangi yfir á 3-4 vikum,“ sagði
Armann þegar hann var spurður
um sauðburðinn. Ekki komst
spjallið lengra að sinni því úr hin-
um enda fjárhúsanna kom kallið;
burður var hafinn hjá einni til
viðbótar. Sigríður og Ármann
brugðu sér ofan í króna og byrj-
aði Sigríður strax að hjálpa ánni
við burðinn. í þetta sinnið kom
dautt lamb sem ekki tókst að
koma lífi í en á eftir fylgdu tvö til
viðbótar sem byrjuðu fljótlega að
brölta um. Já, þarna var komin
ein þrílemban til viðbótar en það
sem af var sauðburðinum höfðu
16 kindur orðið þrílembdar.
Ármann sagði að alltaf kæmu af
og til dauð lömb en lítið hefði þó
borið á lambadauða þetta vorið.
Pegar Ármann var spurður
nánar um þessa miklu frjósemi
sagði hann ekki skýringar að
leita í góðu heyi. „Nei, ég tel
frekar að þetta sé í stofninum. Ég
gaf stundum hey sem alls ekki
telst gott þannig að ekki held ég
að skýringin liggi þar. Ein skýr-
ing kann þó að vera sú að ég rúði
í fyrsta sinn hluta af fénu í haust
og það líkað mér ágætlega. Hér
er mjög lítið um haustrúning en
ullarverksmiðjurnar eru farnar
að þrýsta á menn að fara meira út
í haustrúninginn þannig að hann
gæti átt eftir að aukast. Ég held
að bændur hafi verið tregir að
fara út í haustrúninginn vegna
þess að féð taki mun meira fóður
en hjá mér munaði ekki svo
miklu að það komi á móti þeim
verðmismun sem er á haust- og
vorullinni. Jú, ætli það geti ekki
verið að þetta sé mest íhaldssemi
hjá mörgum bændum að rýja á
vorin,“ segir Ármann og brosir.
Yakt allan sólarhringinn
Á stóru fjárbúi eins og Vatns-
leysu er sauðburðurinn tími þeg-
ar alltaf er vakt yfir fénu. Sigríð-
ur sér um næturvaktirnar og er í
Fjölskyldan er á stöðugri vakt í húsunum og mikið um að vera þegar sauðburðurinn stendur sem hæst. Hér eru hjón-
in Ármann Olgeirsson og Sigríður ívarsdóttir hjá einni nýborinni. Myndir: kl
húsunum frá 1 á nóttunni til 8 á
morgnana. í*á taka þau Ármann
og Jóna Guðrún við dagvaktinni
og um miðjan daginn er allt
heimilisfólkið við störf í húsun-
um en Ármann og Jóna Guð-
rún skipta með sér kvöldvökt-
unum. Ekki þarf í öllum til-
fellum að hjálpa ánum við burð-
inn en oft stendur þannig á
að lömbin bera ekki rétt að og þá
þarf aðstoðar við. En vinnan í
húsunum felst ekki eingöngu í
eftirliti með burðinum heldur
þarf líka að marka lömbin, setja í
þau númeruð merki og skrá allt
samviskusamlega í bók enda er
þetta bú í fjárræktarfélaginu og
allar upplýsingar þurfa því að
liggja fyrir. Ef lömb eru tekin
undan þrílembum þarf að venja
þær undir einlembur sem í flest-
um tilfellum tekst. Sum Iömb
fæðast líka lítil og máttvana og
þá þarf mannshöndin að veita
þeim sem besta aðhlynningu til
að líf færist í þau. Öll þessi störf
bætast ofan á daglega umhirðu
við féð þannig að vinnuálagið er
mikið en þó er vinnan skemmti-
leg.
„Já, ætli maður verði ekki að
segja það eins og er að þetta er
skemmtilegasti tími ársins.
Reyndar er mikill munur á þessu
þegar vel vorar og fé kemst
snemma út eða þegar vorar seint
og allt fé þarf að vera á húsum á
sauðburðinum eins og nú gerist.
Þrátt fyrir að ég hafi seinkað
burði nokkuð frá því sem var þá
verður sauðburðurinn sennileg-
ast að mestu búinn þegar hægt
verður að setja út að þessu sinni.
En þrátt fyrir að þetta sé mikil
vinna þá er þetta ánægjulegur
tími,“ segir Ármann og um leið
og hann sleppir orðinu kallar
dóttirin á hjálp úr einni krónni.
Enn kallar skyldan og áður en á
löngu líður er fyrra lambið byrj-
að að brölta um og móðirin fær
að sinna lambinu meðan beðið
eftir því síðara.
Vanið undir með
legvatni og borðsalti
Sigríður segir að þau gangi alltaf
úr skugga um það strax hvort
Sonurinn á bænum, Benedikt Geir, með tvö af lömbunum í fjárhúsunum á
Vatnsleysu.
Garðyrkjustöðin á Grísará
Sími
96-31129.
Rósir, tré, skrautrunnar, sumar-
blóm, fjölærblóm og matjurtir.
Einnig mold og áburður.
Akrfl-dúkur og jarðvegsdúkur.
Opið virka daga frá kl. 08.00-12.00 og 13.00-21.00
og um helgar frá kl. 10.00-12.00 og 13.00-18.00.
E
En það þarf fleira að gera en taka á móti lömbunum. Þegar færi gefst þarf
að marka lömbin og setja í þau númeruð merki.