Dagur - 28.05.1990, Page 5
Mánudagur 28. maí 1990 - DAGUR - 5
------------------------------------------
Plöntusala
Þú ert á grænni grein með plöntur frá Rein
Við höfum mikið úrval af
sumarblómum, dalíum o.fl.
Nú er tíminn fyrir limgerðis-
plönturnar.
Víðiplöntur og Aspir.í miklu
úrvali.
Garðyrkjustöðin Rein
Isstaðahreppi.
Opið virka daga frá kl. 09.00-20.00.
Laugard. og sunnud. frá kl. 10.00-20.00.
Sími 31327.
Húseigendur athugið!
Tek að mér pappalögn á þök einnig kústun með
Aquaseal 40.
Upplýsingar í síma 23076.
Sigurður Hannesson, byggingameistari,
Austurbyggð 12, Akureyri.
Afrakstur erfiðisins. Gengið út úr Akureyrarkirkju mót sól og sumri, með hvítan koll á höfði.
„Ögurstund
í önn hversdagsins“
Ávarp nemenda flutti Friðrik
Magnússon, nýstúdent, og ávarp
5 ára stúdenta flutti Anna María
Blöndal. Að ávörpunum loknum
fluttu Jón Michael Clarke, fiðla,
og Jóhann Baldvinsson, orgel,
Sónötu í f-dúr eftir Georg
Friedrich Handel.
í lok skólaslitaræðu sinnar,
sagði Bernharð Haraldsson,
skólameistari, m.a.:
„Góðir nemendur! Nú fer senn
að líða að lokum samvista okkar
að þessu sinni, því þessari athöfn
fer brátt að ljúka. Hún er aðeins
ögurstund í önn hversdagsins,
stutt spor á lífsins göngu. Sagt
hefur verið, að það að kveðjast
sé að deyja dálítið og víst er að
það verður tómlegra þegar þið
eru farin. En maður kemur í
manns stað og í lífi ykkar bíða ný
verkefni, þau eru óþrjótandi,
margbreytileiki þeirra á sér engin
takmörk. Þið róið nú einskipa,
takið hvert sína stefnu, án þeirrar
aðstoðar sem við reyndum að
veita ykkur. Þið skuluð hlakka til
að takast á við ný viðfangsefni,
að leita eftir þeim þroska, sem
felst í því að heyja baráttu, að
kunna bæði að taka sigri og
ósigri.
Nú skiptir öllu að þið kunnið
að nota það veganesti sem þið
fenguð á heimilum ykkar og í
skólanum, að þið vinnið úr því
sem ykkur hefur verið sagt og
Akureyrar fyrir ágætan árangur á
stúdentsprófi af viðskiptasviði.
Friðrik fékk einnig viðurkenn-
ingu frá Felli sf. fyrir ágætan
árangur í reikningshaldi.
Sigríður Pálrún Stefánsdóttir
fékk viðurkenningu frá Félagi
verslunar- og skrifstofufólks fyrir
ágætan árangur á stúdentsprófi af
viðskiptasviði.
Lúðvík Gunnlaugsson fékk
viðurkenningu frá Vélstjórafélagi
Islands fyrir ágætan árangur í 2.
stigi vélstjórnar.
Muggur Matthíasson fékk
viðurkenningu frá Félagi málm-
iðnaðarmanna fyrir ágætan
árangur í vélvirkjun.
Jónas Jónsson (vélvirkjun) og
Sigurður Rúnar Sigþórsson
(málun) fengu viðurkenningu frá
Landssambandi iðnaðarmanna
fyrir ágætan árangur í faglegu
námi iðnaðarmanna, hinum
verklega þætti. Sigurður Rúnar
fékk einnig viðurkenningu frá
Stefáni og Birni sf., málarameist-
urum, fyrir ágætan árangur í
málun.
Anna J. Guðmundsdóttir fékk
viðurkenningu frá Kaupmanna-
félagi Akureyrar fyrir ágætan
árangur á almennu verslunar-
prófi.
Loks fengu tveir skiptinemar,
þær Alisha Phealan og Karisa
Lynn Terry viðurkenningu frá
VMA.
kennt, dragið lærdóm af dýrri
reynslu annarra. Launið upp-
alendum ykkar með því að geta
ykkur gott orð, því gott mannorð
er dýrmætara en mikill auður.
Farið víða og leitið hamingj-
unnar, vitið þó að hún er ekki
glitrandi málmur eða glóandi
gull, hana finnið þið aðeins í
hjarta ykkar, hún er hin innri
gleði yfir vel unnu verki, hrein
samviska góðs manns."
Það var bjart yfir hinum föngu-
lega hóp sem gekk út úr Akur-
eyrarkirkju að athöfninni lok-
inni. Veðrið var eins og best
verður á kosið, sólskin og blíða,
og hátíðahöldin stóðu langt fram
á kosninganótt, enda tilefnið
ærið.