Dagur - 01.06.1990, Page 4
4 - DAGUR - Föstudagur 1. júní 1990
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
KÁRI GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
‘ INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
1 JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON,
’ ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
I VILBORG GUNNARSDÓTTIR. LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
I ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
I AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
I . DREIFINGARSTJÓRI:
; HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
, PRENTUN: DAGSPRENT HF.
> SÍMFAX: 96-27639
TiMýðileg virð-
ing fvrir lýðræðinu?
Það er hægt að túlka tölur með ýmsum hætti. Formaður
og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þorsteinn Pálsson
og Davíð Oddsson, túlkuðu úrslitin í bæjar- og sveitar-
stjórnakosningunum um síðustu helgi á þann veg að í
þeim fælist skýlaus krafa kjósenda til ríkisstjórnarinnar
um að hún segði af sér án tafar og boðað yrði til nýrra
kosninga. Þessa „kröfu kjósenda" settu þeir fram í fjöl-
miðlum skömmu eftir að kosningaúrslit lágu fyrir. Það ber
út af fyrir sig vott um nokkurn kjark eða jafnvel óskamm-
feilni að túlka kosningaúrslitin með þessum hætti, því
sjálfstæðismenn voru alls ekki ótvíræðir sigurvegarar
þessara kosninga. Það er að vísu staðreynd að í Reykjavík
og nokkrum nágrannabæjum vann Sjálfstæðisflokkurinn
glæstan kosningasigur svo og á nokkrum stöðum úti á
landsbyggðinni. Hitt er jafnaugljós staðreynd að víða úti
um land tapaði Sjálfstæðisflokkurinn fylgi eða stóð í stað.
Af þessu má sjá að vinsældir Sjálfstæðisflokksins á lands-
vísu eru málum blandnar. Af því má aftur draga þá álykt-
un að stefna núverandi forystu flokksins sé þeim sem á
landsbyggðinni búa ekki mjög hugleikin. Á þetta er
minnt hér ef einhver kynni að hafa gleymt því að í
Alþingiskosningum hafa allir landsmenn 18 ára og eldri
kosningarétt, óháð búsetu.
í annan stað er ástæða til að minna formann og vara-
formann Sjálfstæðisflokksins á þá staðreynd að Fram-
sóknarflokkurinn kom mjög sterkur út úr kosningunum
um síðustu helgi. Hann jók fylgi sitt mjög víða um land,
sérstaklega á Norður- og Austurlandi og reyndar einnig í
höfuðvígi Sjálfstæðisflokksins, Reykjavík, þótt í minna
mæli væri. Framsóknarflokkurinn vann t.d. sinn stærsta
kosningasigur á Akureyri í rúm 20 ár á sama tíma og sjálf-
stæðismenn töpuðu þar fylgi. Það er nokkuð langsótt að
túlka þessa niðurstöðu sem svo að Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknar-
flokksins, eigi að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt
án tafar! A-flokkarnir töpuðu reyndar talsverðu fylgi í
kosningunum og þá sér í lagi Alþýðubandalagið. Alþýðu-
flokkurinn vann á hinn bóginn glæstan sigur í Hafnarfirði
og náði þar hreinum meirihluta. Á sama tíma tapaði
Kvennalistinn umtalsverðu fylgi nær alls staðar þar sem
hann bauð fram, og er flokkurinn þó í stjórnarandstöðu á
Alþingi með Sjálfstæðisflokknum. Af þessu sést að túlk-
un formanns og varaformanns Sjálfstæðisflokksins á
kosningaúrslitunum er afar vafasöm, svo ekki sé meira
sagt.
Síðast en ekki síst felst í þessari túlkun þeirra ákveðin
lítilsvirðing á lýðræðislegum rétti kjósenda. Leikreglur
lýðræðisins veita landsmönnum vald til að kjósa bæjar-
og sveitarstjórnir á fjögurra ára fresti og landsstjórn með
sama millibili, alla jafna. Um er að ræða tvennar, aðskild-
ar kosningar. Úrslitin í öðrum kosningunum geta vissu-
lega haft áhrif á úrslit hinna og gera það oftast. En úrslit
sveitarstjórnakosninga ómerkja aldrei það umboð sem
kjörnir fulltrúar á Alþingi hafa áður fengið frá umbjóð-
endum sínum, kjósendum, í landsstjórnarkosningum.
Það sama gildir auðvitað um úrslit alþingiskosninga
hverju sinni. Ef sú væri ekki raunin, væri grundvöllur lýð-
ræðisins brostinn. Það er vart til of mikils mælst að kjörnir
fulltrúar í bæjar- og sveitarstjórnum sýni það í verki að
þeir beri tilhlýðilega virðingu fyrir lýðræðinu. BB.
hvaðeroð gerast
Dalvík:
Vorkoma Lionsmanna um helgina
Lionsmenn á Dalvík efna til
Vorkomu á Dalvík um helg-
ina, en hún er orðin fastur lið-
ur í menningarlífi á Dalvík. Að
vanda verður dagskrá Vor-
komunnar fjölbreytt og ætti
fólk að fínna eitthvað við sitt
hæfí. Vorkoma Lionsmanna
verður sett í gamla skólahúsinu
á morgun kl. 14.
Af einstaka dagskrárliðum má
fyrst nefna sýningu Sigurlaugar
Jóhannesdóttur, Sillu, í Ráðhús-
inu á Dalvík. Sýningin verður
opin frá kl. 14 til 20 2., 3., 4. júní.
Sigurlaug er fædd 24. septem-
Til fjölda ára hefur verið siður í
Akureyrarsókn að kalla til eldri
fermingarbarna á hvítasunnunni
og hvetja til kirkjugöngu. Margir
hafa tekið þeim tilmælum vel og
fjölmennt til hátíðarguðsþjón-
ustu í Akureyrarkirkju á hvíta-
sunnudag kl. 11 og notið þess að
eiga helga stund í fermingarkirkj-
unni. Nokkrir afmælisárgangar
hafa einnig átt saman ánægjuleg-
ar stundir á eftir þar sem ýmislegt
hefur verið rifjað upp og gömul
kynni endurnýjuð. Hafa sumir
jafnvel komið langt að og átt
ógleymanlega endurfundi við
gamla félaga og vini.
Að þessu sinni eru eldri sem
yngri enn minntir á að nota hvíta-
sunnuhátíðina til að minnast
fermingar sinnar og hugleiða
mikilvægi þeirrar viljayfirlýsingar
sem gefin var á fermingarstund-
inni. En sérstaklega er vænst
þátttöku þeirra sem eiga tíu, tut-
tugu, þrjátíu og fjörutíu ára ferm-
ingarafmæli en það eru árgang-
arnir fæddir 1936, 1946, 1956 og
1966.
Akureyrarkirkja verður 50 ára
síðar á þessu ári en kirkjan var
vígð 17. nóv. 1940. Af því tilefni
hafa miklar framkvæmdir átt sér
Steingrímur Sigurðsson, listmál-
ari, opnar sína 69. einkasýningu í
Staðarskála laugardaginn 2. júní
kl. 17.00. Áætlað er að sýning-
unni ljúki 14. júní.
Á sýningu Steingríms eru 40-
50 verk og eru t.a.m. rnargar
myndir úr Vestur- og Austur-
Húnavatnssýslu. Þetta mun vera
þriðja sýning Steingríms í Húna-
vatnssýslum.
Magnús og Eiríkur Gíslasynir í
Staðarskála eiga 30 ára afmæli
Hápunktur þessarar helgar í
menningarlegu tilliti er án efa
tónleikar Vínardrengjakórsins
í Akureyrarkirkju á morgun
kl. 16.
Forsala aðgönguntiða hefur
gengið vel síðustu daga og má
fastlega gera ráð fyrir að uppselt
verði í kirkjuna.
ber 1945. Hún stundaði nám í
Myndlista- og handíðaskólanum
og sótti frekara nám við Instituto
Allende Mexico árið 1972. Sigur-
laug hefur á sl. vetri starfað sem
myndmenntakennari við Grunn-
skólann á Dalvík, en áður hefur
hún kennt við Laugaskóla, Mynd-
lista- og handíðaskólann, Institu
Ambar í Montreal í Kanada og
Vestlands Kunstakademi í Berg-
en í Noregi.
Silla hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga og hún hefur haldið
fimm einkasýningar hér á íslandi,
Finnlandi og Danmörku. Árið
stað bæði við kirkjuna sjálfa sem
og umhve.fi hennar. En stærsta
verkefnið er þó bygging hins nýja
safnaðarheimilis í brekkubrún-
inni sunnan og austan við kirkj-
una og hefur það þegar verið tek-
ið í notkun að hluta til.
Á hvítasunnudag kl. 15 sýnir
Leikklúbburinn Saga í Dyn-
heimum ævintýragrímuleikinn
„Prinsessan og seiðskrattinn",
sem er unninn upp úr einu af
ævintýrum H.C.Andersen.
Leikverkið er lokapunktur á
grímunámskeiði hjá leikklúbbn-
um þar sem kennt var að búa til
grímur og leika með þær.
Leiðbeinandi og leikstjóri er
Sigurþór A. Heimisson, leikari
hjá Leikfélagi Akureyrar.
Þrátt fyrir að verkið sé byggt
á dæmigerðu ævintýri er útfærsl-
an kannski ekki dæmigerð en
fram koma kóngur og drottning,
sem veitingamenn 9. júní og var
það þegar ákveðið á síðasta ári
að Steingrímur yrði með sýningu
í kringum þessi tímamót.
í spjalli við Dag sagðist Stein-
grímur hafa fengið nýja vinnu-
stofu við Hallveigarstíg í Reykja-
vík og honum hefði orðið mikið
úr verki eftir að hann komst þar
inn. En hann var líka á ferð um
Norövesturland og greip fyrir-
myndir úr umhverfinu. SS
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um Vínardrengjakórinn.
Hann er heimsfrægur, hefur enda
skapað sér sérstöðu í tónlistarlíf-
inu. Kórinn kemur hingað á
Listahátíð í Reykjavík, en sem
betur fer fyrir unnendur góðrar
tónlistar tókst að fá hann norður
til að syngja á einum tónleikum.
óþh
1981 og 1986 hlaut hún starfslaun
listamanna, 1982 fékk hún fimm
mánaða dvöl í Nordisk Kunst-
centrum í Sveaborg í Finnlandi og
1987 hlaut hún styrk úr Menning-
arsjóði Finnland-ísland.
Af öðrum liðum á Vorkomu
Lionsmanna um helgina má
nefna sýningu safnara í gamla
skólanum. Þar verða einnig sýnd-
ar myndir í samkeppninni „Líf og
friður“ og þá sýnir Valgerður
Guðmundsdóttir bútasaum.
Þessar sýningar verða opnar á
morgun, sunnudag og mánudag
frá kl. 14 til 20 alla dagana.
Kvikmyndasýning verður á
annan í hvítasunnu kl. 15 og 17.
Sýnd verður myndin „Beint á
ská“.
Að kvöldi annars í hvítasunnu
kl. 21 syngur Kirkjukór Dalvíkur
undir stjórn Hlínar Torfadóttur í
Dalvíkurkirkju innlend og erlend
lög. Þá syngur Oskar Pétursson,
tenór, einsöng og séra Jón Helgi
Þórarinsson syngur með honum
dúett. Undirleikari er Guðrún A.
Kristinsdóttir. óþh
prinsessa, seiðskratti, vonbiðill
og bjargvættur.
Þetta verður eina sýningin á
grímuleiknum og er aðgangur
ókeypis og öllum heimill. Eins og
áður segir er verkið sýnt í Dyn-
heimum kl. 15 nk. sunnudag, 3.
júní.
Gamli-Lundur:
Sýning
Ingvars
Þorvaldssonar
Ingvar Þorvaldsson, listmálari,
opnar málverkasýningu í Gamla-
Lundi á Akureyri, laugardaginn
2. júní kl. 14.00.
Á sýningunni eru 40 verk, olíu-
málverk og vatnslitamyndir.
Málverkasýning Ingvars er sú
tuttugasta í röð einkasýninga, en
hann hefur sýnt list sína á Akur-
eyri fyrr og ætíð hlotið góða
dóma.
Sýningin er opin kl. 14.00-
20.00 daglega, en henni Iýkur
þriðjudaginn 5. júní.
Hrísey:
Galloway-mót í
briddsámánudag
Svokallað Galloway-mót í
bridds verður haldið í Hrísey á
annan hvítasunnudag og stend-
ur frá kl. 10 til 18 síðdegis.
Mótið fer fram á veitinga-
staðnum Brekku og verður
spilað um vegleg verðlaun sem
Einangrunarstöð holdanauta
gefur.
Sex sterkar sveitir mæta til
leiks, sveit Þorsteins Friðriksson-
ar frá Ungmennafélaginu
Dagsbrún, sveit Gylfa Pálssonar
frá Ungmennafélagi Skriðu-
hrepps, sveit Eiríks Helgasonar
Dalvík, sveit Sparisjóðs Hríseyj-
ar Hrísey, sveit Jóns Sigurbjörns-
sonar Siglufirði og sveit Grettis
Frímannssonar frá Akureyri.
Fermingarafmæli
í Akureyrarkirkju
Myndlist:
Steingrímur sýnir
í Staðarskála
Tónleikar helgarinnar á Norðurlandi:
Vínardrengjakórinn
í Akureyrarkirkju
Dynheimar:
„Prinsessan og seiðskrattinn“
á fjölunum á hvítasunnudag