Dagur - 08.06.1990, Blaðsíða 5

Dagur - 08.06.1990, Blaðsíða 5
 Föstudagur 8. júní 1990 - DAGUR - 5 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Blönduóss: Hafnarmálin réðu úrslitum - litlar breytingar á málefnasamningi Að sögn Péturs A. Pétursson- ar, væntanlegs forseta bæjar- stjórnar Blönduóss, eru ekki miklar breytingar á málefna- samningi þeim sem H-listi og D-listi komu sér saman um nýlega fyrir næsta kjörtímabil og frá málefnasamningi síðasta meirihluta H- og K-lista. Svip- uð mál eru sett á oddinn en að öðru Ieyti vildi Pétur ekki tjá sig um samninginn fyrr en að loknum fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar Blönduóss nk. þriðjudag, þar sem hann verð- ur kynntur formlega. Það voru hafnarmálin sem urðu þess valdandi að meirihluti síðasta kjörtímabils náði ekki saman á ný. H-listi vill áfram- haidandi uppbyggingu hafnarinn- ar á Blönduósi, m.a. með bygg- ingu grjótvarnargarðs í huga, en K- listamenn eru með aðrar og breyttar áherslur og benda m.a. á samstarf við Skagstrendinga varðandi hafnarmál. En fulltrúar Sjálfstæðisflokks voru sammála hugmyndum H-listans og það réð úrslitum um myndun nýs meiri- hluta á Blönduósi. -bjb Skagaijörður: Laugardagskvöldið 9. júní Hin frábæra hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir dansi. Borðapantanir í síma 22200. ★ Úrtöku á hcstum fyrir Lands- mót hestamanna er nú lokið í Skagafirði. Sl. laugardag var sýning frammi á Vindheima- melum á kynbótahrossum og var þar fjöldi manna og hrossa í dásamlegu veðri. Þar voru sýnd öll þau kynbótahross skagiirsk sem náðu lágmarks- einkunn inn í ættbók. Af þeim fara síðan þau allra hæstu á landsmót. Af stóðhestum fjögurra vetra fara á landsmót: Aðaleinkunn Sokki frá Sólhei' lum 8.08 Kveikur frá Miösitju 7.97 Aðall frá Aðaibóli 7.92 Enginn fimm vetra stóðhestur náði lágmarkseinkunn inn á landsmót, en af sex vetra og eldri fara þessir: Aðaleinkunn Tvistur frá Kríthóli 8.20 Dökkvi frá Fagranesi 8.02 Smári frá Borgarhóli 8.01 Margar fallegar hryssur voru sýndar og af fjögurra vetra fara á landsmót: Aðaleinkunn Eining frá Hólum 7.92 Melrós frá Miðsitju 7.86 Póra frá Hólum 7.84 Eva frá Miðsitju 7.81 Af hryssum fimm vetra göml- um náði aðeins ein lágmarkseink- unn til að komast á landsmót og var það jafnframt eitt glæsilegasta1 hrossið á sýningunni. Það var Þrenna frá Hólum með 8.26 í aðaleinkunn og er hún fyrstu- verðlaunahryssa. Óhemjufjöldi var af hryssum sex vetra og eldri og fara af þeim sjö skagfirskar á landsmót: Aðaleinkunn Kóróna frá Sigríðarstöðum 8.22 Tinna frá Kjartansstöðum 8.10 Gæfa frá Gröf 8.05 Hreyfing frá Húsey 8.02 Roðadís frá Y.-Skörðugili 8.01 Drottning frá Asi 1 8.00 Tinna frá Varmalæk 8.00 Ein afkvæmahryssa úr Skaga- firði kemst á landsmót og er það Perla 4119 frá Reykjum og hlaut hún 1. verðlaun fyrir afkvæmi. Gæðingaúrtöku er einnig lokið hjá skagfirskum hestamannafé- lögum, en þar gildir sú regla að einn hestur í hverjum tlokki kemst á landsmót fyrir hverja 100 félaga sem eru í hestamannafé- laginu og eins er það með ungl- ingaflokkana. Frá Hestamanna- félaginu Svaða fara: í A-flokki gæðinga: Trix frá Vogum. I B-flokki gæðinga: Flosi frá Langhúsum. í eldri flokki unglinga (13-15 ára): Hilmar Símonarson á Barði í yngri flokki unglinga (12 ára og yngri): Kristín Loftsdóttir, Mel- stað. Frá Hestamannafélaginu Stíg- anda fara á landsmót: í A-flokki gæðinga: Leistur frá Flugumýri og Þróttur frá Tungu- hálsi. í B-flokki gæðinga: Flosi frá Hjaltastöðum og Sýn frá Haf- steinsstöðum. í eldri flokki unglinga: Alma Ágústsdóttir á Hólum, og Eyþór Einarsson á Syðra- Skörðugili. í yngri flokki unglinga: Sveinn Friðriksson á Varmalæk, og Rusl brennt í Sauðárkróksfjöru í síðustu viku var hrcinsunarátak hjá bæjarbúum á Sauðárkróki. Tóku íbúar höndum saman um að hreinsa rusl í íbúöahverfum og sópa götur. Gekk þetta vel fyrir sig og veður var hið ákjósanlcgasta til útiveru. Lokapunktur- inn í þessari hreinsun var á föstudagskvöldið, en þá var fjaran hreinsuð og logaöi glatt í ruslinu þar fram eftir nóttu eins og sjá má. SBG Steinbjörn Skaftason á Haf- steinsstöðum. Fjölmennasta félagið er Létt- feti og þeir sem fara fyrir þess hönd eru: í A-flokki gæðinga: Blær frá Sauðárkróki, Prins frá Flugumýri og Sporður frá Sauðárkróki. I B-flokki gæðinga: Glampi frá Syðra-Skörðugili, Dökkvi frá Fagranesi og Draumur frá Holts- koti. í eldri flokki unglinga: Anna Sif Ingimarsdóttir, Ingi B. Kristjáns- son og Hanna Dóra Björnsdóttir. í yngri flokki unglinga: Agnar Gíslason, Inga Vala Magnúsdótt- ir og Örvar Pálmason. Allt þetta lið hesta og knapa ntun verja heiður Skagfirðinga á Landsmóti hestamanna tyrstu helgina í júlí sem haldið er á Vindheimamelum í Skagafirði. Þar mun eflaust verða margt um ntanninn og er vonandi að veður- guðirnir veröi hestamönnum hliðhollir eins og á sýningu kyn- bótahrossa sl. laugardag. SBG SÚLNABERG í sumar er opið frá kl. 08.00 til kl. 22.00. ★ HÖFÐABERG veitingasalur II. hæð. NÝ SÉRRÉTTASEÐILL Hótel KEA fyrir ve/ heppnaöa veislu HEIMIUSTÆKI A AKUREYRI Ágæti Akureyringur! í sumarbyrjun upphófst samstarf Heimilistækja hf. og Radionausts, sem er í því fólgið að Radionaust gerðist söluaðili allra vöruflokka sem Heimilis- tæki hf. hafa umboð fyrir s.s. PHILIPS - Whirlpool, PHILCO, BOSE ofl. ofl. í tilefni þessara tímamóta býður Radionaust —söluaöili Heimilistækja hf. á Akureyri, ykkur ýmsar vörur á kynningarverði dagana 7.-8. júní n.k. - Fulltrúi Heimilistækja hf. verður á staðnum, viðskiptavinum til halds og trausts. Verið velkomin. Heitt á Philips könnunni. Radion II SÖLUAÐIU HEIMILISTÆKJA HF. Á AKUREYRI Glerárgötu 26 - Akureyri - Sími 96-21300 Alltþað besta á einum stað

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.