Dagur - 08.06.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Föstudagur 8. júní 1990
Iitskrúðus sumarfót
itsKruoug s
fyrir karlm
enrnna
Hafa karlmenn nokkuð með
tískustrauma að gera? Er
eitthvað til sem heitir sumar-
tíska? Skiptir yfirleitt nokkru
máli hverju maður klæðist?
Þetta eru áleitnar spurningar í
byrjun sumars og til að fá svör
við þeim ákváðum við að
skreppa í gamalgróna herra-
fataverslun á Akureyri, JMJ,
þar sem Ragnar Sverrisson og
hjálparkokkar hans matreiddu
nýjustu sumarfötin.
í JMJ gat að líta bómullarboli
eða háskólaboli í ýmsum skraut-
legum litum. Einnig voru þarna
svokallaðir pólóbolir og stutt-
ermabolir, svo og hefðbundnar
peysur. Bolirnir voru gjarnan
marglitir, kannski appelsínugult,
fjólublátt og grænt í sama bol,
a.m.k. voru litasamsetningar æði
líflegar.
„Litirnir eru ljósari í sumar en
í vetur og líka meira lifandi,"
sögðu félagarnir í JMJ.
Punnir stakkar taka við af úlp-
um vetrarins og eru kakíjakkar
injög vinsælir yfir sumarið.
Gallabuxur ganga allan ársins
hring en sala á Ijósum kakíbux-
um eykst yfir sumarið.
í jakkafötum fara sumir yfir í
tískuliti en Ragnar Sverrisson
sagði að flestir keyptu þó svört
eða dökk jakkaföt. Pá má ekki
gleyma skræpóttu skyrtunum og
gríðarlega skrautlegum bindum
sem nú prýða verslunina.
Fórnarlamb í fötin klætt
Föt í rekkum og á herðatrjám eru
dapurt myndefni og því var leitað
að manni til að gerast sýningar-
gripur um stundarsakir. Ragnar
valdi fórnarlambið, sem nauðugt
var látið máta alls kyns sumar-
flíkur. Lambið maldaði í móinn:
„Ég er hæstánægður með fötin
sem ég er í. Þetta eru sumarfötin
mín. Gallabuxurnar eru fimm ára
gamlar og mátulega upplitaðar.
Skyrtuna keypti ég á útsölu í
Danmörku fyrir tveimur árum og
jakkinn er það sem eftir var af
jakkafötum sem eyðilögðust í
þvotti. Skórnir eru reyndar orðn-
ir sjö ára gamlir en standa fyrir
sínu,“ sagði fórnarlambið.
Mótþrói reyndist tilgangslaus
og var maðurinn drifinn í nýjustu
flíkurnar við mikinn fögnuð
Ragnars Sverrissonar og kump-
ána. Ljósar gallabuxur, skræpótt
skyrta, rúskinnsjakki og kúreka-
stígvél; þannig var ein samsetn-
ingin. Ljósgræn jakkaföt, skræp-
ótt bindi og ljós rykfrakki fengu
fórnarlambið til að líða eins og
ungum manni á uppleið.
Fórnarlambið í eigin fötum. Samanlagður aldur á Ljósar gallabuxur, skræpótt skyrta og vígaleg kúreka-
skyrtu, skóm, jakka og buxum er 17 ár. stígvél.
Hinn raunverulegi sumarfatnaður. Hnébuxur og pólóbolur. Sólgleraugun
ómissandi. Myndir: KL
Fleira tók við: Afskaplega ljós-
ar buxur, skrautleg peysa og
þunnur stakkur. Síðan fínlegar
buxur með uppbroti, æpandi
skyrta eða bolur og kakíjakki.
Og til að kóróna allt saman var
maðurinn drifinn í einhvers kon-
ar hnébuxur og pólóbol, en fékk
þó loks sólgleraugu til að hylja
gretturnar.
Islendingar engir
eftirbátar í tískunni
Niðurstaða fórnarlambsins: „Er
ætlast til að maður gangi í svona
fötum? Jú, vissulega eru þetta
falleg föt og samsetningarmögu-
leikarnir ótæmandi. Pað er senni-
lega ekki erfitt að fá fatadellu."
- En hvað segir Ragnar sjálf-
ur? Hugsa íslenskir karlmenn
eitthvað um fatatískuna?
„Já, já, þeir hugsa mikið um
tískuna. Það þýðir ekkert að
bjóða þeim annað en það sem
gengur í Evrópu. íslendingar eru
engir eftirbátar hvað tískuna
varðar. Við byrjum að fá sumar-
fötin strax í febrúar eða mars,
þannig að tískan er komin hingað
á sama tíma og erlendis. Hins
vegar þykir ekki vænlegt að
bjóða Islendingum sumarföt á
þessum árstíma þegar allt er á
kafi í snjó og því eru fötin yfir-
leitt geymd þar til fer að vora.“
- Hvenær taka menn síðan við
sér?
„Við förum að stilla sumar-
fötunum út í apríl og maí. Pað er
greinilegt að maí er besti mánuð-
urinn fyrir sölu á sumarfötum.
Pegar haustið nálgast kemur síð-
an ný tíska og þá eru ekki eins
mikil skil milli landa. Haustfatn-
aðurinn gengur út á sama tíma
hér og erlendis þótt sumarfötin
séu seinna á ferðinni vegna
veðurfarsins,“ sagði Ragnar.
Látum þá þessu innliti í sumar-
tísku karlmanna lokið. Ef okkur
tekst að finna fyrirsætu verður
sumartíska kvenna næst á
dagskrá. SS
Ungur maður á uppleið, í Ijósgrænum jakkafötum og með
Ijósan frakka á öxlinni.
Ljósar buxur, lífleg peysa og þunnur stakkur.
Kakíjakki, skræpóttur bolur og fínlcgar buxur.