Dagur - 19.06.1990, Síða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 19. júní 1990
Stefán Valgeirsson:
Opið bréf til Eyfirðinga
- Vegna áhuga sumra þeirra fyrir álverksmiðju við Eyjafjörð
Hvað gæti það þýtt fyrir byggðir
Eyjafjarðar ef allt að 400 þús.
tonna álbræðsla yrði byggð þar?
Allar þessar tölur (sjá niðurlag 2.
hluta) eru miðaðar við fullkom-
inn hreinsibúnað. Ef eitthvað út
af ber margfaldast mengunin t.d.
flúor.
Það var haft eftir forsætisráð-
herra hér um daginn, að sumir í
Atlantalhópnum vildu ekki
byggja álver hjá Straumsvík því
ef yrði mengunarslys þá þyrfti
það að liggja Ijóst fyrir hvorum
aðilanum væri um að kenna.
betta sýnir að báðir aðilar eru
þess meðvitaðir að engin leið er
að útiloka að slíkt slys geti gerst
enda eru þau alltaf að gerast.
3. hluti
Sautján læknar frá Norður-
löndum fóru til Póllands í byrjun
apríl s.l. til að kynna sér ástandið
þar og þó fyrst og fremst ástand
vegna mengunar. Þeir komu m.a.
á sjúkrahús og á fæðingardeild
þess. Þar var þeim sagt, að um
15% af börnum sem fæddust þar
væru vansköpuð. Þeim skildist að
læknar þar álitu að vansköpunin
stafaði af kjarnorkuslysinu í
Sovétríkjunum, Tsjernóbíl.
Norrænu læknarnir fengu upplýs-
ingar um að geislamengun hefði
ekki verið meiri en t.d. sums
staðar í Svíþjóð, en þar hafa eng-
in vansköpuð börn fæðst. Álit
þcirra var að vansköpunin stafaði
frá koparnámum og málmbræðsl-
um.
I síðari hluta inarsmánaðar s.l.
kom eftirfarandi frétt í ríkis-
útvarpinu.
„Kanadísk stjórnvöld hafa
fyrirskipað opinbera rannsókn á
því, hvers vegna óvenju mörg
vansköpuð börn hafa fæðst nærri
kjarnorkuveri í iðnaðarbænum
Bentilill í Quebeck á síðustu
tveimur árum. Bændur í sveitum
nærri kjarnorkuverinu greina
einnig frá því, að mikið hafi fæðst
af vansköpuðum skepnum á
sama tíma. Kjarnorkuverið í
Bentilill hóf starfsemi 1982. Hóp-
ur sérfræðinga mun rannsaka
hugsanlega geislun frá verinu,
mengun frá álverinu og öðrum
verksmiðjum í Bentilill."
Það koma nú víða fram grun-
semdir um mjög skaðlega meng-
un frá álverum og fara fram rann-
sóknir vegna þeirra grunsemda.
Iðnþjóðirnar leggja kapp á að
byggja álbræðslur utan síns
heimalands og þróunarríkin eru
orðin í stórhættu vegna þessarar
þróunar og ásóknar álbræðslu-
auðhringa. Fólk er varað við að
setja ílát úr áli í þvottavélar
vegna útfellingar álsins. Grun-
sentdir eru uppi um hvort ekki sé
varasamt að nota álílát undir
matvæli. Rannsóknir fara nú
fram á því og einnig fleiri
málmunt. í Svíþjóð og fleiri
Evrópulöndum eru menn orðnir
hræddari við aðra mengun en frá
kjarnorkuverum. Þrátt fyrir þetta
allt erum við íslendingar að sækj-
ast eftir að byggt verði hér risa-
stórt álver og sumir vilja að það
verði staðsett í blómlegasta land-
búnaðarhéraði landsins við til-
tölulega þröngan fjörð, um-
kringdan háum fjöllum þar sem
landslag og veðurfar er með þeim
hætti, að síst ætti að setja niður
álver þar eða aðra mengunarríka
framleiðslu.
Er okkur íslendingum ekki
sjálfrátt eða er kæruleysið orðið
svo yfirþyrmandi að menn ana út
í hvaö sem er án þess að gera sér
grein fyrir afleiðingunum? Getur
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 2 5.177.203.-
O éí. 4af5^jf/P 15 58.318.-
3. 4af5 416 3.627.-
4. 3af 5 10.680 329.-
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
16.251.728.-
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Netvíðir Grámispili Loðkvistur
Myrtuvíðir Skógartoppur Bjarkeyjarkvistur
Grænlenskur grávíðir Blátoppur Sunnukvistur
Orravíðir Glótoppur Fjallarifs
Viðja Bergtoppur Rifs
Tröllavíðir Runnamura, gul og hvít Geislasópur
Sirena „Elínóra" Snækóróna Fjalldrapi
Reyniblaðka Síberíukvistur Drekabroddur
Himmalæjaeinir Japanskvistur Sólbroddur
Fjallafura Perlukvistur Heggur
Starfafura Heiðarkvistur Blóðheggur
Blágreni Lensukvistur Fjallagullregn
Hvítgreni Dögglingskvistur Laxaber
Rauðgreni Garðakvistur Birki
Snjóber Birkikvistur Alaskaösp
Skrúðmispill Rósakvistur Lerki
Gljámispill Stórkvistur Skógarplöntur af birki og ösp
Sumarblóm, fjölær blóm, matjurtir, RÓSIR: Hjónarós ★ Þyrnirós ★ Meyjarrós
áburður, acryldúkur og jarðvegsdúkur. Þokkarós ★ Fjallarós ★ Pólstjarnan
Ath. nýr afgreiðslutími: Mánudaga til föstudaga kl. 10-12 og
13-19. Laugardaga og sunnudaga kl. 13-18
Stefán Valgeirsson.
verið að minnimáttakenndin eða
þjónkunin við erlenda auðhringa
ráði ferðinni? Ég get a.m.k. ekki
séð eða skilið að heilbrigð skyn-
semi ráði í þessu máli.
I bráðabirgðaáliti Þjóðhags-
stofnunar kemur fram, að hag-
vöxturinn veröi rúmlega 5%
meiri en ella fram til áranna 1997
ef álver verður reist. Hins vegar
kemur ekki fram hvað hagvöxt-
urinn mundi aukast ef við færum
í fjársterkar framkvæmdir vegna
annarrar framleiðslu. Ál skal það
vera hvað sem það kostar og
hverjar sem afleiðingarnar verða.
Sagt er að álver mundi kosta
a.m.k. 31/2 milljörðum meira væri
það byggt við Eyjafjörð en á
Reykjanesi. Væri nú ekki ráð fyr-
ir íbúa Eyjafjarðar að sameinast
um að falla frá öllum þrýstingi á
að fá álver en í stað þess krefjast
þess að fá þessa upphæð til at-
vinnuuppbyggingar við fjörðinn.
Áhugi fyrir álveri er vegna
nauðsynjar á að auka atvinnu-
möguleika á svæðinu. Það er
hægt með ýmsu móti, en til þess
þarf fjármagn.
Þið ráðamenn sem sýnt hafið
skilning á þörfinni fyrir atvinnu-
uppbyggingu þar sem atvinnu
skortir, er ekki fýsilegri kostur að
nýta og styrkja hugvit og krafta
kvenna og karla en halda áfram
þessum blindingsleik sem hefur
ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir
það byggðarlag, sem það verður
staðsett í og þjóðina alla? Það er
ekki einu sinni sannað mál að
álver sé „þjóðhagslega hag-
kvæmt“ eins og það heitir,
þ.e.a.s. skapi okkur betri efna-
hagsleg lífskjör, en önnur upp-
bygging.
Úr því að hægt er að fá fjár-
magn til að byggja álver, getum
við þá ekki sameinast um að nýta
þá fjármagnsmöguleika til
skynsamlegri atvinnuuppbygg-
ingar bæði hér og á landinu öllu?
Eða er álver orðið átrúnaðar-
goð íslenskra ráðamanna.
Niðurstaða
1. Álver er ekki hagkvæmur
kostur fyrir okkur íslendinga.
2. Við höfum mjög takmark-
aða hagkvæma virkjunarkosti og
verðum að hafa það í huga við
verðlagningu orkunnar.
3. Við íslendingar eigurn fyrst
og fremst að framleiða matvæli:
Mengunarfyrirtæki, eins og álver
og framleiðsla á matvælum fara
ekki saman.
4. Við eigum ekki að fara eftir
atvinnustefnu, sent verður þess
valdandi að þjappa þjóðinni sam-
an á 2-3 staði.
5. Við verðum að byggja at-
vinnulífiö upp á þann veg, að það
henti jafnt fyrir konur sem karla,
það gerum við ekki með bygg-
ingu álbræðslu.
6. Eyjafjörður kemur ekki til
greina að mínu mati, undir ál-
smiðju, vegna landslags, gróðurs
og veðurfars.
7. Norsku sérfræðingarnir sem
Staðarvalsnefnd fékk tii að mæla
hvernig mengun myndi dreifast
um byggðir Eyjafjarðar frá álveri
á Dysnesi, komust að þeirri
niðurstöðu að það færi eftir
magni þeirra efna sem færu út í
andrúmsloftið og þeir gætu
ekkert um það sagt hver dreifing-
in yrði um Hörgárdal og innan
við Akureyri.
8. Tvö hundruð þúsund tonna,
hvað þá tvöfalt stærra álver,
mundi verka sem krabbamein í
eyfirskum byggðum. Vilt þú les-
andi góður bera ábyrgð á slíku?
Að minnsta kosti vil ég það ekki.
9. Ég hygg að Akureyri og ey-
firskar byggðir muni ekki lengur
hafa aðdráttarafl fyrir ferðamenn
ef álver rís þar og blámóða byrgir
sýn.
10. Ég hygg að landbúnaðar-
framleiðslu verði stefnt í veru-
lega hættu ef álbræðsla rís við
fjörðinn.
11. Risastórt álver er ekki
byggðamál, hvar sem það verður
sett niður heldur andhverfa þeirr-
ar byggðastefnu, sem flestir
flokkar, ef ekki allir, hafa þóst
berjast fyrir.
12. Nú eru 90% líkur fyrir því
að álverið verði sett niður á
Vatnsleysuströnd ef það verður
byggt og dregið verði úr öllum
framkvæmdum á byggingartíma
þess. Telja landsmenn slíka upp-
byggingu æskilega, og munu þeir
styðja þá stefnu?
13. Það er kátbroslegt að vera
að setja á stofn umhverfisráðu-
neyti á sama tíma og rætt er um
að byggja 400 þúsund tonna álver
við Éyjafjörð.
Ég er tilbúinn að mæta á fundi
norðan fjalla, til að rökræða við
hvern sem er um byggingu álvers
við Eyjafjörð.
Fyrsta sumardag 1990.
Með bestu kveðju,
Stefán IValgeirsson.
Höl'undur er alþingismaður Samtaka
jafnréttis og félagshyggju.
Grein þessi hefur áður birst í
Morgunblaðinu en var send
Degi til birtingar miðviku-
daginn 16. maí sl. ásamt 1. og
2. hluta.
Heimildir:
1. Hollustuvernd ríkisins,
mengunarvarnir. Mælingar í
Straumsvík 1986.
2. Hollustuvernd ríkisins og
Siglingamálastofnun. Mengunar-
hætta vegna förgunar kerbrota.
3. Mengun frá álveri og áhrif
hennar á umhverfið eftir Ólaf
Pétursson forstöðumann Holl-
ustuverndar ríkisins.
4. Spredningsberegninger for
et planlagt Aluminiumverk nord
for Akureyri, Island eftir Jörgen
Svhjoldager og Frederick Gram.
5. Leiðir álver til lakari lífs-
kjara, eftir Jóhann Rúnar Björg-
vinsson hagfræðing.
6. Þjóðhagsstofnun. Þjóð-
hagsleg áhrif nýs 200 þús. tonna
álvers.
7. Áhrif stóriðju á búsetu og
vinnumarkað, Byggðastofnun.
á veginn!
Flestir slasast
í umferðinni á sumrin.
Þá er enn meiri þörf á
að halda athyglinni
vakandi en ella.
Látum ekki of hraðan
akstur eða kæruleysi
spilla sumarleyfinu.
Tökum aldrei
áhættu! iJumferciar