Dagur - 19.06.1990, Blaðsíða 7

Dagur - 19.06.1990, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 19. júní 1990 - DAGUR - 7 Golf: Öm og Þórleifur í drengjalandsliðshópinn - Örn tryggði sér efsta sætið í stigakeppninni með sigri um helgina Örn Arnarson frá Akureyri sigraði í síðasta stigamóti ungl- inga sem fram fór á golfvellin- um að Jaðri á Akureyri um helgina. Örn lék 36 holur á 156 höggum en Þórleifur Karlsson, einnig frá Akureyri varð annar á 157 höggum. Þessi sigur Arn- ar tryggði honum efsta sætið í stigakeppninni og sæti í drengja- landsliðshópnum sem tekur þátt í Evrópumeistaramóti drengjalandsliða sem fram fer í Reykjavík í júlí. Agæt frammi- staða Þórleifs Karlssonar tryggði honum einnig sæti í hópnum og fær hann tækjfæri til að tryggja sér sæti í liðinu á næstu vikum. Það voru flestir bestu ungling- ar landsins sem leiddu sarnan hesta sína á Jaðarsvelli um helg- ina. Leiknar voru 36 holur á ein- um degi en upphaflega stóð til að klára mótið á sunnudeginum. Örn sigraði eins og fyrr segir en hann lék á 156 höggum, Þórleifur varð annar á 157 höggum og Rúnar S. Gunnarsson varð þriðji á 160 höggum. Rúnar vann einn- ig aukaverðlaun sem Lacoste gaf fyrir að vera næstur holu á 4. braut, 1,50 m. Stigakeppni unglinganna sam- anstóð af fjórunt mótum sem fram fóru í Reykjavík, á Suður- nesjum, í Vestmannaeyjum og á Akureyri. Árangur úr þremur bestu mótunum taldi ti! stiga og þegar upp var staðið reyndist Þórleifur Karlsson þykir mikið efni í holum, 35 höggum. Örn Arnarson í efsta sæti með 593 stig. Júlíus Hallgrímsson, GV, varð annar með 591 stig, Ástráður Sigurðsson, GR, þriðji með 559 stig, Kjartan Gunnars- son, GOS, fjórði með 526 stig, Sturla Ómarsson, GR, fimmti með 521 stig, Ólafur Þ. Ágústs- son, GK, sjötti með 473 stig og Haukur Óskarsson sjöundi. Því rniður vantaði upplýsingar um stigatölu hans. Sjö efstu menn, ásamt Hjalta Nielsen, íslandsmeistara frá í fyrra, áttu að skipa drengjaiands- liðið sem tekur þátt í Evrópu- meistaramótinu. Einvaldur landsliðsins, Hannes Þorsteins- son, hreifst liins vegar svo af frammistöðu Þórleifs og Þórðar Ólafssonar, GL, að hann ákvað að velja þá einnig í hópinn og fá þeir á næstu vikum tækifæri til að tryggja sér sæti í liðinu. golfínu. Hann lék mjög vel um helgina og náði m.a. besta „skorinu" á níu Mynd: KL ■'*W4 3* ' Örn Arnarson sigraði í stigamótinu um helgina og var cinnig með besta árangurinn úr mótunum fjórum. Mynd: JHB Meistaramótið í frjálsum íþróttum: Ágætur árangur Eyfírðinga unnu til 13 verðlauna, þar af fernra gullverðlauna Eyfiröingar náöu ágætum árangri á Mcistaramóti Islands í frjálsum íþróttum sem fram fór í Mosfellsbæ um helgina. Þeir unnu alls til 13 verðlauna, hlutu fern gullverðlaun, fern silfurverðlaun og fimm brons- verðlaun. Fleiri Norðlendingar Handknattleikur: Lfldegt að útlendingur leflá með KA í vetur - ódýrara en að fá íslenskan landsliðsmann segir Einar Jóhannsson Handknattleiksdeild KA hef- ur að undanförnu kannað möguleika á því að fá erlend- an leikmann til að leika með liðinu á næsta keppnistíma- bili. Að sögn Einars Jóhanns- sonar, formanns deildarinn- ar, hefur verið leitað til sendi- ráða Tékkóslóvakíu, Pól- lands og Sovétríkjanna og virðist enginn hörgull á leik- mönnum sem hingað vilja koma. Einar segir þetta vel koma til greina enda sé Ijóst að þetta sé mun ódýrara held- ur en að fá t.d. íslenskan landsliðsmann í liðið. „Það er ákveðið vandamál við að velja leikmann. En ef við getum fengið mann sem hentar okkur vel þá reikna ég með að af þessu verði. Viö höfum þó ekki fengið augastað á neinum ákveðnum leikmanni ennþá," sagði Einar. Aðspurður um aðrar breyt- ingar á liðinu sagði Einar að lík- lega yrðu þær einhverjar en ekkert væri ákveðið í því sam- bandi. „Það hafa engin félaga- skipti átt sér staö ennþá og þangað til þau hafa gengið í gegn er best að segja sem minnst," sagði Einar Jóhanns- son. komust á verðlaunapall um helgina en það var skarð fyrir skildi hversu fáir Skagfirðingar tóku þátt í mótinu að þessu sinni. Veðrið var í aðalhlutverki um helgina og setti stóran svip á mótið. Vindur var mikill, sér- staklega fyrri daginn, en þá var svo hvasst að vindmælirinn fauk um koll! Þetta spillti mikið fyrir, sérstaklega í hlaupa- og stökk- greinum. Aðstæður voru að öðru leyti til fyrirmyndar, völlurinn í Mosfellsbæ er stórglæsilegur og heimamönnum þar til mikils sóma. Þátttaka í mótinu var góð. Gullverðlaunin sem Eyfirðing- ar unnu, komu í hlut Aðalsteins Bernharðssonar, sem vann 400 m grindahlaup karla, Birgittu Guð- jónsdóttur, sem vann spjótkast kvenna, Sigurðar Matthíassonar, sem vann spjótkast karla, og boðhlaupssveitar karla sem vann óvæntan sigur í 4x100 m hlaupi. Þóra Einarsdóttir hlaut silfur- verðlaun í hástökki og sveit UMSE varð í 2. sæti í 4x100 m hlaupi kvenna. Þá fékk Hjörtur Gíslason tvenn silfurverðlaun, í 200 m hlaupi og 110 m grinda- hlaupi. Bronsverðlaun Eyfirðinga ihlutu Valdís Hallgrímsdóttir í 400 m grindahldupi, Aðasteinn Bernharðsson í 400 m hlaupi, Birgitta Guðjónsdóttir í kúlu- varpi og langstökki og Gunnar Sigurðsson í spjótkasti. Skagfirðingar voru óvenju fáir á mótinu enda margir keppendur þeirra við æfingar erlendis. Gísli Sigurðsson vann 110 m grinda- hlaup karla og Gunnlaugur Skúlason varð 2. í 5000 m hlaupi. Sigurður P. Sigmundsson var eini keppandi UFA á mótinu og hann vann til verðlauna, varð þriðji í 5000 m hlaupi eftir mikla keppni við Gunnlaug. Einn keppandi frá HSÞ komst á verðlaunapall á mótinu, Ágústa Pálsdóttir varð 3. í 400 m hlaupi. HSÞ átti 10 keppendur á mótinu en þeir voru flestir mjög ungir að árum. Þá eru aðeins ótaldir Húnvetn- ingarnir í USAH. Þar kom korn- ung og stórefnileg hlaupakona, Sunna Gestsdóttir, á óvart þegar hún náði 3. sæti í 200 m hlaupi. Daníel Guðmundsson varð annar í 1500 m hlaupi og Helgi Þ. Helgason varð annar í kringlu- kasti. Þá náði karlasveit USAH þriðja sæti í 4x 100 m hlaupi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.