Dagur - 19.06.1990, Síða 13
Þriðjudagur 19. júní 1990 - DAGUR - 13
Hestamannafélagið Funi
4» AFMÆLIS-
"7M HÁTÍÐ
í tiiefni af 30 ára afmæli Funa verður afmælishátíð
haldin í Laugaborg, laugardaginn 23. júní nk. og
hefst kl. 21.00.
Létt skemmtiatriði, veitingar og dansleikur.
Félagsmenn Funa og gestir þeirra
eru velkomnir.
Miðapantanir í símum 24933 og 31126 í seinasta lagi mið-
vikudaginn 20. júní.
Stjórnin.
AKUREYRARBÆR
Innheimta
fasteignagjalda
í samræmi við ákvæði laga nr. 49/1951 um sölu
lögveða án undangengis lögtaks er hér með birt
almenn áskorun til þeirra sem ekki hafa greitt
fasteignagjöld sín álögð 1990 um að greiða.
Ef ekki verður orðið við áskorun þessari mun
hverjum þeim sem á ógreidd fasteignagjöld settur
30 daga frestur að greiða gjöldin en að þeim tíma
liðnum má beiðast nauðungaruppboðs á viðkom-
andi eign til fullnaðargreiðslu gjaldanna ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði, en innheimtan væntir
þess, að eigi þurfi til slíks að koma.
Bæjargjaldkerinn, Akureyri.
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra sem
glöddu okkur og sýndu okkur vináttu og
hlýhug 8. júní sl.
AÐALBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR
OG HERMANN VILHJÁLMSSON,
Eyrarvegi 1, Akureyri.
J
Mér finnst svo skrítið að Dísa
skuli vera dáin. Ég skil það ekki
enn. Við sem erum heyrnarskert
erum hópur þar sem allir þekkj-
ast svo vel. Við erum eins og ein
stór fjölskylda. Þess vegna miss-
um við svo mikið þegar einhver
úr hópnum hverfur.
Ég kynntist Dísu fyrst þegar
hún kom í „græna húsið" á
heimavistinni. Þá var hún 9 ára,
held ég. Hana langaði svo til að
tala við mig, en hún talaði svo
hratt að ég skildi hana ekki.
Bryndís „húsmóðir" sagði henni
þá að tala hægt. Dísa bað mig að
koma með sér í herbergið sitt og
kenna sér táknmál. Við urðum
góðar vinkonur og Dísa túlkaði
oft fyrir mig, þegar ég þurfti að
tala við fólk, bæði í búðum og
annars staðar, það skildi hana
betur en mig. Dísa var frá Akur-
Hreinsið sjálf.
Leigjum teppahreinsivéiar.
Hjá okkur færðu vinsælu Buzil
hreinsiefnin.
Teppaland - Dúkaland,
Tryggvabraut 22,
sími 25055.
Hreingerningar - Teppahreins-
un - Gluggaþvottur.
Tek að mér hreingerningar á íbúð-
um, stigagöngum og stofnunum.
Teppahreinsun með nýlegri djúp-
hreinsivél sem skilar góðum ár-
angri.
Vanur maður - Vönduð vinna.
Aron Þ. Sigurðsson.
Simi 25650.
Vinsamlegast leggið inn nafn og
símanúmer í símsvara.
Tökum að okkur daglegar ræst-
ingar fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Ennfremur allar hreingerningar,
teppahreinsun og gluggaþvott.
Ný og fullkomin tæki.
Securitas, ræstingadeild, símar
26261 og 25603.
Hreingerningar -
Teppahreinsun.
Tökum að okkur teppahreinsun,
hreingerningar og húsgagnahreins-
un með nýjum fullkomnum tækjum.
Gerum föst verðtilboð ef óskað er.
Inga Guðmundsdóttir,
sími 25296.
Okukennsla
Ökukennsla - Bifhjólakennsla.
Vilt þú læra á bíl eða bifhjól?
Kenni á Honda Accord GMEX
2000. Útvega kennslubækur og
prófgögn.
Egill H. Bragason, ökukennari,
sími 22813.
Ökukennsla - Æfingatímar.
Kenni allan daginn á Volvo 360 GL.
Hjálpa til við endurnýjun ökuskír-
teina.
Útvega kennslubækur og prófgögn.
Greiðslukjör.
Jón S. Árnason,
ökukennari, sími 96-22935.
Náttúrugripasafnið Hafnarstræti 81
sími 22983.
Opið daglega nema laugardaga kl.
13-16.
Takið eftir___________________
Hlífarkonur!
Hlífarkonur minnast 75 ára afmælis
kosningaréttar íslenskra kvenna og
mætum í Naustaborgir þriðjud. 19.
júní kl. 19.00.
Stjórnin.
eyri alveg eins og ég. Þess vegna
hittumst við oft. Við fórum sam-
an á hestbak, í bíltúra, bíó og á
skíði.
Dísa lauk prófi frá Heyrnleys-
ingjaskólanum síðastliðið vor og
ætlaði að vinna í eitt ár og fara
svo í fjölbraut að læra matvæla-
fræði.
Það er svo sorglegt að hún fékk
ekki að lifa lengur og gera það
sem hana langaði til.
Ég sakna Dísu. Hún var svo
skemmtileg og talaði svo mikið.
Hún átti svo auðvelt með að
eignast vini. Hún var rétt að
byrja að lifa lífinu. Farin að vera
með strák, sem hún var
hamingjusöm með.
Guð blessi Sigga, foreldra,
systur, afa og aðra vini og ætt-
ingja.
Anna Óladóttir.
Ég gat ekki trúað að Dísa væri
dáin. Hún dó 3. júní hvítasunnu-
dagsmorgun í bílslysi. Dísa fædd-
ist á Akureyri. Foreldrar hennar
voru Steindór Runeberg Har-
aldsson og Ingibjörg Björgvins-
dóttir, systir hennar er Aðalheið-
ur Marta Steindórsdóttir.
Hún var svo ung stúlka og átti
eftir allt lífið. Hún var alltaf svo
hress, talaði mikið við fólk. mjög
forvitin, lífsglöð, mjög bjartsýn
og hamingjusöm. Hún hafði
gaman af að passa börn. Hún
hafði svo mikinn áhuga á
börnum.
Hún kom oft til mín á sumrin
þegar hún kom til Akureyrar og
spjallaði við mig. Hún flutti til
Skagastrandar fyrir nokkrum
árum.
Minningarnar um Dísu koma
upp í hugann aftur og aftur frá
heimavist, verslunarmannahelgi,
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
og sumrum þegar við höfðum
alltaf hist.
Hún var svo góð við vini sína,
sem heyrðu ekki og fólk skilur
ekki og fólk talar líka svo hratt.
Hún hafði tíma til að túlka fyrir
vini sína.
Ég sá hana síðast 20. maí í
Perlunni v/Öskjuhlíð í Reykja-
vík, sem ég, Lilla og Dísa fórum
að skoða. Og spjalla um hvort
við ættum að prófa einhvern tíma
að borða þar. Þar sá ég hana síð-
ast og við kvöddumst. Hún sagði.
„Við sjáumst í sumar á Akur-
eyri.“ Ég beið eftir að hún kæmi
og segði mér frá ferðalagi með
skólasystkinum í Danmörku.
Hún hlakkaði svo til að fara til
Danmerkur. Hún ætlaði að taka
sér frí frá skólanum í eitt ár og
vera hjá fjölskyldu og kærastan-
um sínum.
Foreldrum, systur, kærasta,
afa, vinum og vandamönnum
sendi ég innilegustu samúðar-
kveðjur. Harpa.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Baldurshagi neðri hæð, Dalvík,
þingl. eigandi Kristbjörn Steinars-
son ofl., föstud. 22. júni ’90, kl.
14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Hróbjartur Jónatansson hdl.
Geislagata 12, hluti, Akureyri, þingl.
eigandi Hringur sf., föstud. 22. júní
'90, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Innheimtumaður ríkissjóðs.
Grundargerði 7 e, Akureyri, þingl.
eigandi Örn Þórsson, föstud. 22.
júní ’90, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Steingrímur Eiríksson hdl.
; llið v/Þórunnarstr., þingl. eigandi
Ingimar Víglundsson, föstud. 22.
júní '90, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar og Gunnar
Sólnes hrl.
Kjalarsíða 14 b Akureyri, þingl. eig-
andi Gunnar Sigtryggsson, föstud.
22. júní '90, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Veðdeild Landsbanka íslands.
Krossar, íbúðarhús, Árskógshreppi,
þingl. eigandi Sveinn Kristinsson,
föstud. 22. júní ’90, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Tryggingastofnun ríkisins og Gunn-
ar Sólnes hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn i Eyjafjaröarsýslu.
Þcssir drengir efndu á dögunum til tombólu til styrktar Barnadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri. Þeir eru (f.v.): Arnar Erlingsson, Ingvar Erl-
ingsson og Mikacl Símonarson. Mynd: kl
Guðrún Helga Sigurðardóttir, Elsa Pétursdóttir, Sólveig Rósa Davíðsdóttir,
Ragnar Örn Davíðsson og Bjarney Sigurðardóttir efndu til hlutaveltu og
söfnuðu kr 3436,10 sem þau afhentu F.S.A. barnadeild.
Biluðum bílum
á að koma út fyrir
vegarbrún!
UMFERÐAR
Irad