Dagur - 22.06.1990, Síða 3
Föstudagur 22. júní 1990 - DAGUR - 3
Mývatnssveit:
Náttúruveradarsjónannid verða leiðandi
Listi framfarasinnaðra Mý-
vetninga varð sigurvegari síð-
ustu kosninga í Mývatnssveit
og í lok síðustu viku komu
kosnir fulltrúar saman til fyrsta
fundar. „Þetta var hefðbund-
inn fundur, starfsfundur,“
sagði nýkjörinn oddviti Sigurð-
ur Rúnar Ragnarsson,
„Dagskráin var nokkuð hefð-
bundin, skipa þurfti í nefndir og
oddviti og varaoddviti voru
kjörnir og sfðan ræddum við
þessi almennu rekstrarmál, fram-
kvæmdatíminn er að hefjast.
Sigurður er oddviti eins og
áður sagði en Þuríður Snæbjörns-
dóttir er varaoddviti. Ákveðið
var að auglýsa eftir sveitarstjóra,
en umsóknarfrestur rennur út 30.
júní.
Atvinnulífið hér um slóðir er
fábreytt og viðvarandi atvinnu-
leysi kvenna yfir vetrarmánuðina
Flugvél skall niður á Öxnadalsheiði
„Petta var sann-
kölluð magalending
- segir sjónarvottur að slysinu
66
Á miðvikudaginn magalenti
fimm manna flugvél í mýri
skammt frá Sesseljubúð á
Öxnadalsheiði. Þrír menn
voru í vélinni og sluppu þeir
ómeiddir frá þessari lendingu
en flugvélin er mikið skemmd.
Dagur náði sambandi við sjón-
arvott að slysinu, en hann var
aðeins í um 100 metra fjarlægð
frá slysstað. Hann segir að vélin
hafi flogið inn í þoku yfir Öxna-
dalsheiðinni og flugmaðurinn því
ákveðið að snúa við. I beygjunni
missti vélin afl og annar vængur
hennar rakst í jörðu þannig að
hún stakkst á nefið, lenti á
maganum og rann aftur á bak í
mýrinni.
„Petta var sannkölluð maga-
lending og alveg óvænt. Ég tel
það mikla mildi að hjólin skyldu
ekki hafa verið niðri því þá hefði
vélin örugglega farið á hvolf. Þeir
voru líka heppnir að lenda ein-
mitt þarna í mýrinni," sagði sjón-
arvotturinn.
Mennirnir í vélinni voru á leið
frá Reykjavík til Akureyrar. Eft-
ir magalendinguna fengu þeir far
með bíl til Akureyrar og fóru síð-
an með kvöldflugi til Reykjavík-
ur. SS
er vandamál. Að vinnumarkað-
urinn sé svona þröngur veikir
þetta byggðarlag. Við leitum eftir
öllum tiltækum ráðum til að auka
fjölbreyttni atvinnulífsins, en
Mývetningum eru settar vissar
skorður. Við búunt í þessari sveit
og hér eru kröfur um náttúru-
vernd, sem eru mun strangari en
víðast hvar annars staðar.
Reyndar gilda viss lög um vernd-
un Laxár og Mývatns.
Ég ber þá von í brjósti að úrslit
kosninganna leiði til þess að
Mývetningar geti staðið samhent-
ir og Mývatnssveit styrkist bú-
setulega, en þrátt fyrir það verði
náttúruverndarsjónamið leiðandi
í öllum ákvörðunum. Spurningin
er. Eigum við að skilja algjörlega
í milli starfsemi mannsins og
náttúrunnar? Eigum við að líta á
þetta svæði sem algjört verndar-
svæði? Geta breytingar af völd-
um mannsins ekki haft sínar
góðu hliðar, sem og þær vondu?“
sagði Sigurður Rúnar, oddviti.
ój
Sauðárkrókur:
Pósthúsið fær
andlitslyftingu
Nú standa yfir lagfæringar á
pósthúsinu á Sauðárkróki að
utan og er verið að gera við
steypuskemmdir og annað
áður en málað verður og einn-
ig er verið að klæða þakrennu-
kantinn af.
Að sögn Reynis Kárasonar,
stöðvarstjóra á Sauðárkróki,
hafa þessar lagfæringar staðið til í
nokkurn tíma, en þó ekki það
lengi að hlutirnir séu orðnir ónýt-
ir, aðeins illa farnir.
í fyrra var öllu umbylt inni í
pósthúsinu og öll aðstaða fyrir
viðskiptavini bætt til muna. Þó er
fólki í hjólastólum ókleift að
komast á pósthúsið eins og er, en
í þessum framkvæmdum sem nú
standa yfir verður gerð hjóla-
stólabraut hjá tröppunum og
dyrnar gerðar þannig úr garði að
í gegnum þær megi fara á hjóla-
stólum. SBG
hvað er að gerast
F
Melgerðismelar:
Flugkoma að amerískri fyrirmynd
Ef að líkum lætur verður ys og
þys á Melgerðismelum í Eyjafirði
um helgina en þar stendur Flug-
klúbbur íslands fyrir svokallaðri
flugkomu. Hér er um að ræða
samkomu flugáhugamanna að
amerískri fyrirmynd þar sem
miðpunkturinn er flugvélarnar og
áhugamálið.
Kristján Víkingsson hjá Flug-
klúbbi Islands segir að ekki sé um
eiginlega flugsýningu að ræða
heldur komi flugáhugamenn víðs
vegar að á vélum sínum með fjöl-
Næstkomandi sunnudag bjóða
Ferðaþjónusta bænda og Lands-
samband stangveiðifélaga ókeyp-
*Skákfélag Akureyrar:
Hraðskákmót
Skákfélag Akureyrar stendur fyr-
ir hraðskákmóti í kvöld, föstu-
dagskvöld, kl. 20.00 í félagsheim-
ilinu við Þingvallastræti. Allir eru
velkomnir. Lítið er um að vera
hjá Skákfélaginu yfir sumarmán-
uðina og er þetta mót kærkomið
fyrir þá sem vilja halda sér í
formi eða rifja upp kunnáttuna.
skylduna og dvelji saman um
helgina. Menn ræða síðan sín á
milli um áhugamálið og vélarnar
og fá að bregða sér í flugferð
hver á annars vélum.
Álíka fjölskylduhátíð er haldin
um verslunarmannahelgi ár hvert
í Múlakoti en ætlunin er að þessi
hátíð á Melgerðismelum verði
eftirleiðis um Jónsmessu ár
hvert. Síðast var haldin svipuð
samkoma á Melgerðismelum fyr-
ir sex árum og þá mættu 45 flug-
vélar á staðinn. Veðurguðirnir
ráða nokkru um hve margir
is veiði á 22 stöðum um land allt.
Þessi veiðidagur fjölskyldunnar
hefur notið vaxandi vinsælda
meðal almennings.
Af veiðistöðum sem boðið
verður uppá norðan heiða má
nefna Miklavatn í Fljótum og
Ljósavatn í Ljósavatnshreppi. A
Brekkulæk í Miðfirði er í boði
veiði í Torfastaðavatni, Vatn á
Höfðaströnd býður veiði í
Höfðavatni og Bláhvammur við
Mývatnsveg býður til veiði í
Langavatni. Veiði í Ljósavatni er
í boði ferðaþjónustubæjarins
Arnarstapa í Ljósavatnshreppi
og Stangveiðifélagsins Flúða á
Akureyri.
koma nú en verði þeir hliðhollir
gætuvélarnarskipttugum. ’
Syngjandi
Landsbankamenn
40 manna blandaður kór, skipað-
ur starfsmönnum Landsbankans í
Reykjavík, kemur til Akureyrar
um helgina og mun syngja á
Ráðhústorginu á laugardeginum.
Landsbankakórinn er skipaður
starfsmönnum úr ýmsum deild-
um og útibúum Landsbankans í
Reykjavík, og er fyrirhugað að
syngja á Ráðhústorginu fyrir
framan Landsbankann á laugar-
dagsmorguninn kl. 11.00. Eftir
hádegið er svo áætlað að syngja
við Fjórðungssjúkrahúsið og
Dvalarheimilið Hlíð.
Sjallinn:
Grillað „úti“
Nú um helgina verður bryddað
upp á skemmtilegri nýbreytni í
Sjallanum, boðið verður upp á
ekta „úti“grillstemmningu. Grill-
barinn verður opnaður á laugar-
daginn kl. 20.00. Þar verður boð-
ið upp á ekta Bar-B-Q steikur
ásamt ýmsu öðru smærra ljúfmeti
og ntun Gunnar Páll matreiðslu-
meistari grilla af ntiklum móð
þangað til dansleikur hefst ríflega
22.
Á dansleiknum á laugardag
sem og á föstudag leikur hljóm-
sveitin KARMA fyrir dansi.
Veiðidagur íjöl-
skyldunnar á sunnudag
Hólssandur:
Sandbleyta tefur för
Hólssandur hefur verið lokað-
ur umferð í vor vegna snjóa og
bleytu, en nú er búið að opna
hann fjórhjóladrifnum bflum.
„Þetta er í góðu lagi, þið kom-
ist niður sandinn, enda á fjór-
hjóladrifnum bíl," sagði Bragi á
Grímsstöðum. Það stóð heima,
en smáræðis sandbleyta tafði för.
Vísast lagast færðin á örfáum
dögum, ef veður verður þurrt og
þá verður Hólssandur fær öllum
bílum. ój
Aðalfundur
Félags sauðfjárbænda við Eyjafjörð
verður haldinn í Hlíðarbæ mánudagskvöld 25. júní
kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Framsöguerindi flytur Eysteinn Sigurðsson stjórnar-
maður í Landssamtökum sauðfjárbænda.
Stjórnin.
----------------------------------------^
Hryssu-
eigendur!!
Stóðhestar okkar verða til notkunar í sumar frá 23.
júní '90.
í Hvassafelli: Örvar 856 frá Hömrum (1. v.).
í Litla-Dal: Bjartur f. '88, m: Bjóla 3655 (1. v.), f: Léttir
84157002 (1. v.).
Dalur f. '88, m: Salía 81265014 (1. v.), f: Ófeigur 802 (1. v.).
Koma má með hryssurnar fyrir kl. 21.00 á laugardag.
Kristín og Jónas.
V_________________________________________/
TILBOÐ!
Vátryggingafélag fslands hf. Akureyri, óskar eftir til-
boðum í eftirtaldar bifreiðar, skemmdar eftir umferð-
aróhöpp.
Subaru Justy ...................árg. 1990
Lada 2105 ......................árg. 1989
Lancer GLX .....................árg. 1988
Lancer 1500 GLS......................árg. 1988
Nissan Sunny 1300 ..............árg. 1987
Citroen BX 16 TRS ..............árg. 1987
Mazda 323 ......................árg. 1987
Saab 99 GL...........................árg. 1983
BMW 518 ........................árg. 1980
Daihatsu Charade ...............árg. 1981
Range Rover ....................árg. 1974
Bílarnir verða til sýnis, mánudaginn 25. júní nk.
í geymslu við Glerárósa, frá kl. 12 til 3.30.
Tilboðum sé skilað til Vátryggingafél. íslands hf. fyrir
kl. 16.00 þriðjudaginn 26. júní 1990.
VÁTRYGGINGAFÉLAG
ÍSLANDS HF
Glerárgötu 24 • Akureyri ■ símar 23812, 24142.