Dagur - 22.06.1990, Blaðsíða 12

Dagur - 22.06.1990, Blaðsíða 12
Haldið veisluna eða fundinn í elsta húsi bæjarins Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★ ★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★ Fundi og hvers konar móttökur. Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818. Álaborgarháskólanemar í heimsókn: Sjávarútvegsverkfræðinemar kynna sér Hópur nemenda frá Háskólan- um í Álaborg hefur ferðast um ísland að undanförnu. Hér eru á ferð sex Danir og fjórir Islendingar sem leggja stund á verkfræðinám með rekstur fiskvinnslufyrirtækja og ýmis- legt tengt sjávarútvegi sem framhaldsgrein. Þessir verð- andi sjávarútvegsverkfræðing- ar eiga allir eitt ár eftir i námi. Verkfræðinemarnir hafa skoð- að fjölmörg fyrirtæki í sjávarút- vegi hérlendis, enda er ferðin fyrst og fremst í tengslum við námið. í síðustu viku heimsótti hópurinn m.a. sjávarútvegsráðu- neytið, Hafrannsóknastofnun, Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins, íslandslax, Lindarlax, Þor- björn í Grindavík, frystitogara í Hafnarfirði, Marel, Hampiðj- una, söludeild Sambandsins og fiskvinnslu Ríkismat sjávarafurða. Að sögn Bjarna Kristinssonar, sem er einn af íslendingunum í hópnum, hefur dagskráin verið þétt alla daga, enda margt sem verkfræðinemarnir hafa áhuga á að kynna sér. Að morgni mið- vikudags kynnti hópurinn sér starfsemi Útgerðarfélags Akur- eyringa og leist þeim mjög vel á fyrirtækið. Formlegri námsferð er nú að ljúka og hittum við nemana á Akureyri í gær þegar þeir voru að leggja upp í skoðunarferð til Mývatnssveitar. Gott hljóð var í mannskapnum og voru menn sammála um að íslandsferðin hefði verið vel heppnuð og ánægjuleg. Leiðin liggur síðan aftur til Danmerkur aðfaranótt laugardags. SS I hopnum fra Haskolanum í Alaborg eru sex Danir og fjorir Islendingar. Hopurinn bra ser 1 Mývatnssveitma i gær. Mynd: KL Gamla skólahúsið á Siglufirði í niðurníðslu: Lagastofnun HÍ: Útvarpsráð út fyrir vaidsvið Lagastofnun Háskólans tel- ur að útvarpsráð og útvarps- stjóri hafi farið út fyrir valdsvið sitt með afskiptum sínum af fréttaflutningi fréttastofu útvarps, eins og þau birtust 28. apríl sl. Þetta kemur fram í álitsgerð Lagastofnunar dagsettri 20. júní, sem kynnt var í gær. Félag fréttamanna óskaði eftir áliti Lagastofnunar á ýmsu er varðaði valdsvið útvarpsstjóra og útvarpsráðs. Leitað var eftir þessu áliti í kjölfar árekstra er urðu milli útvarpsráðs annars vegar og fréttastofunnar hins vegar um fréttaflutning af svokölluðu VT-teiknistofumáli. Meðal annars kemur fram í ítarlegu áliti Lagastofnunar að útvarpsráð hafi hvorki sam- kvæmt útvarpslögum, reglu- gerð eða fréttareglum vald til þess að úrskurða eftir á að frétt sem samin er af frétta- manni og lesin hefur verið í Ríkisútvarpinu sé ómerk. Af þvf leiðir, að mati Lagastofn- unar, að útvarpsráð hefur ekki vald til þess að úrskurða að yfirlýsing fréttastofu útvarps þess efnis að fréttastofan standi við ákveðna frétt, sé ómerk. Þá kemur ennfremur fram í áliti Lagastofnunar að hvorki útvarpsráð né útvarps- stjóri hafi vald til þess að banna birtingu fréttar. óþh Heilbrigðisfiilltrúi krafðist lokunar - skólplagnir og gluggar þarfnast endurbóta Fyrrum skólanefnd Siglufjarð- ar samþykkti áskorun á síðasta fundi sínum til nýrrar bæjar- stjórnar um að setja byggingu nýs skólahúss framarlega í röð forgangsverkefna á kjörtíma- bilinu. Áskorunin kom í kjöl- far bréfs heilbrigðisfulltrúa þar sem hann krefst lokunar skóla- hússins þegar sterk norðanátt er ríkjandi og sjávarstaða há. Þá vellur skólp upp úr niður- föllum á jarðhæð barnaskól- ans, aðallega í íþróttaaðstöðu. Björn Valdimarsson, bæjar- stjóri, segir að áhersla verði lögð á endurbætur, frekar en að byggja nýtt skólahús. Þráinn Sigurðsson, tæknifræð- ingur bæjarins, er um þessar mundir að hanna tillögur til úrbóta í gamla skólahúsinu og mun leggja þær fyrir nýja skóla- nefnd Siglufjarðar til kynningar á hennar næsta fundi. Björn Valdimarsson sagði í samtali við blaðið að sökum fjár- skorts væri ekki raunhæft að hefja byggingu nýs skólahúss fyr- ir Grunnskóla Siglufjarðar. „Það er verið að kanna hvort hægt sé að fá fjármagn í nauðsynlegar endurbætur á gamla skólahúsinu, það er fyrst- og fremst vandamál- ið,“ sagði Björn. Björn sagði að það væri fleira en skólplagnir sem þyrfti að laga í skólahúsinu, það væru gluggar og margt fleira. „Það eru ýmsir svona hlutir sem við verðum að fara að takast á við. Þegar fjár- hagsstaðan batnar má svo fara að tala um annað og meira,“ sagði Björn. -bjb Fjölgun gæsa er geigvænleg - segir Sigurður Þórisson, bóndi á Grænavatni „Eg er uppalinn hér í sveit og hér hef ég búið alla mína tíð,“ sagði Sigurður Þórisson, bóndi að Grænavatni. „Ég þekki mig betur, en það nýja fólk sem komið er í sveitina og þykist allt vita betur. Fjölgun gæsa á norðuröræfunum er vegna flótta frá athafnasvæðum á Heilbrigðiseftirlit: Alfreð til starfa í Ejjafirði Staða framkvæmdastjóra heil- brigðiseftirlits Norðurlands eystra hefur verið auglýst laus til umsóknar. Alfreð Schiöth, sem gegnt hefur starfinu frá 1. maí 1986, hefur verið ráðinn til starfa hjá heilbrigðiseftirliti llafur H. Oddsson, héraðs- læknir, segir að nokkrar fyrir- spurnir hafi komið varðandi starf framkvæmdastjóra heilbrigðiseft- irlits Norðurlands eystra en engin umsókn borist enn. Umsóknar- frestur rennur út þann 1. júlí. Staða sú sem Alfreð tekur við hjá embætti heilbrigðisfulltrúa Eyjafjarðar er í raun ný. Hingað til hefur verið starfandi einn full- trúi fyrir allt svæðið og á álags- tímum hafa verið ráðnir starfs- menn tímabundið. Með ráðningu Alfreðs verða heilbrigðisfulltrú- arnir tveir en Valdimar Brynj- ólfsson veitir skrifstofunni áfram forstöðu JÓH Slasaður sjómaður til Sigluíjarðar Snemma í gærmorgun kom rækjuskipið Arney KE með slasaðan sjómann til Siglu- fjarðar. Hann var lagður inn á sjúkrahúsið á Siglufirði og reyndist vera rófubeinsbrotinn. Slysið bar að með þeim hætti að maðurinn, sem er 2. vélstjóri á skipinu, var að fara af millidekki niður í lest en missti fótanpa og datt á krók sem heldur stiga nið- ur í lestina. Haldið var með hann til hafnar og kom skipið til Siglu- fjarðar um kl. 8 í gærmorgun. Hann liggur nú á sjúkrahúsinu á Siglufirði. Arney KE var á veiðum á rækjuslóðinni fyrir Norðurlandi þegar slysið varð. JÓH suðuröræfum og ágangurinn er svo mikill að hægt er að líkja þessu við engisprettufarald- ur.“ „Aukning gæsa er geigvænleg og gróðureyðing af völdum henn- ar einnig. Ekki veit ég hvað mörg egg voru tekin í Krókárbotnum og í raun skiptir það ekki máli, en að mínu viti væri eðlilegra að nýta varpið á sama hátt og eyja- bændur nýta varp sjófugla. Þegar búið er að gefa út tilskipun um að gæsavarpið skuli vera friðað, verðum við að leita eftir varpinu á annan hátt. Við verðum að fá leyfi til að nytja það og því lét ég Þórodd hjá Náttúruverndarráði vita af fyrirhugaðri ferð í varpið. Ég hef ekkert leyfi til að kæra. Það er ekkert varið í að brjóta lög aðeins til að brjóta þau, eins og sumir halda. Við þurfum á náttúruvernd að halda og að taka egg undan gæsinni er vissu- lega hluti náttúruverndar. Þegar svo er komið að gæsin er um allt, henni hefur fjölgað úr 20.000 fuglum í 130.000 fugla á norður- svæðinu, þá er þetta orðið vanda- mál vegna gróðureyðingar. Nátt- úruverndarráð' ætti að beita sér fyrir reglum um nýtingu gæsa- varps á íslandi í samvinnu við landeigendur," sagði Sigurður bóndi á Grænavatni. ój Rásin á Fiðlaraþaki Rás 2 fékk sannkallaða sólar- útrás í gær á svölum veitinga- hússins Fiðlarans á Akureyri. Þau Margrét Blöndal og Stefán Jón Hafstein voru við stjórnvöl- inn, fengu til sín gesti og spjöll- uðu við fólk um veðurblíðuna og mannlífið. Veðurblíðan var mikil og margir notuðu tækifær- ið til sólbaða. Ljósmyndari Dags heilsaði upp á þau Stefán og Margréti í sólarútsending- unni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.