Dagur - 22.06.1990, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 22. júní 1990
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI. 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H, BRAGASON
BLAÐAMENN:
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (Iþróttir),
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Of lítill stofii
og þarf að stækka
Fiskifræðingar telja líkur til þess að von sé á
stórri göngu Grænlandsþorsks á miðin hér við
land á næsta ári, einu til tveimur árum fyrr en
fræðingarnir höfðu áður gert ráð fyrir. Þótt þeir
hafi jafnframt tekið það fram að óráðlegt sé að
vekja of bjartar vonir vegna hugsanlegrar
göngu Grænlandsþorsks á íslandsmið, hafa þeir
látið hafa eftir sér að gangan gæti orðið allt að
100 þúsund tonnum. Um leið og fréttir bárust af
hugsanlegri þorskgöngu af Grænlandsmiðum
tóku að heyrast raddir um að rétt væri að
stækka þorskkvótann. Þeir sem það vilja rök-
styðja mál sitt með því að þar sem fyrirsjáan-
lega verði um stærri þorskstofn að ræða en ráð
var fyrir gert, sé óhætt að veita auknar veiði-
heimildir.
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra,
hefur lýst því yfir að hann sjái ekki ástæðu til að
auka þorskkvótann, þrátt fyrir fregnir af hugs-
anlegri Grænlandsgöngu. Sjávarútvegsráðherra
bendir á að þorskstofninn hér við land sé of lítill
og þurfi að stækka. Þess vegna eigi fyrst og
fremst að nota Grænlandsgönguna til þess að
stækka stofninn en ekki til að auka veiðarnar.
Ráðherrann hefur einnig minnt á að mjög margt
er óljóst í þessu máli, til dæmis er engan veginn
ljóst á þessari stundu hversu stór gangan verð-
ur í raun og veru.
Óhætt er að fullyrða að afstaða sjávarútvegs-
ráðherra til þessa máls er mjög skynsamleg og í
fullu samræmi við álit fiskifræðinga. Þá er
ánægjulegt að Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegsmanna, hefur
opinberlega tekið undir sjónarmið ráðherrans
og sagst vera honum hjartanlega sammála.
„Við hljótum að nota þetta [þ.e. Grænlands-
gönguna] til að styrkja stofninn og jafna veiði-
möguleikana í framtíðinni vegna þess að við
erum að fá mjög slaka árganga í veiðina á næstu
árum. Ef við fáum þessa búbót, sem við allir
vonum, er sjálfsagt að nota hana til þess að
styrkja og jafna þá árgangasveiflu sem fyrir-
sjánleg er, “ var haft eftir Kristjáni í DV sl. þriðju-
dag.
Fiskistofnanir í hafinu kringum landið eru sú
auðlind sem við byggjum afkomu okkar á. Við
verðum að umgangast þá auðlind með ítrustu
varkárni og forsjálni og umfram allt fyllstu virð-
ingu. Við verðum að lifa af þeim vöxtum sem
auðlindin gefur af sér en forðast að ganga á
höfuðstólinn. Nú er tækifæri til að auka höfuð-
stólinn, sem því miður er ekki nógu digur. Það
tækifæri eigum við að nýta en láta hugleiðingar
um skammvinnan hagnað lönd og leið. BB.
Á 10 ára fresti efnir íþróttasam-
band íslands til íþróttahátíðar og
hátíðin í ár er sú þriðja í röðinni.
Fyrsta hátíðin fór fram 1970.
Íþróttahátíðinni er skipt í
tvennt, vetrarhátíð sem ávallt
hefur farið fram á Akureyri og
sumarhátíð sem verið hefur í
Reykjavík hingað til, en vegna
umfangs hátíðarinnar að þessu
sinni fer hluti hennar einnig fram
í nágrannabyggðum höfuðborg-
arinnar. Pá verður keppt á
nokkrum stöðum úti á landi og
tengist sú keppni íþróttahátíð-
inni.
Fyrri hlutinn í mars
Íþróttahátíð ÍSÍ 1990 hófst á
Ákureyri 23. mars sl. með keppni
og þátttöku ýmissa aðila í vetrar-
íþróttum. Stóð hátíðin til 1. apríl
og var keppt í hefðbundnum
greinum skíðaíþrótta, ísknatt-
leik, listhlaupi á skautum, vél-
sleðaakstri, hestaíþróttum,
vetrarþríþraut, skátaíþróttum
o.fl. Almenningi var boðið upp á
vetrartrimm, fyrirlestra og sýn-
ingar og skátar sáu um fjallaferð-
ir og útilegur. Þótti vel til takast
með þennan þátt íþróttahátíðar-
innar.
Mikill undirbúningur
Sumarhátíðin verður formlega
sett á íþróttaleikvanginum í
Laugardal í Reykjavík 28. júní.
Markvisst hefur verið unnið að
undirbúningi hátíðarinnar að
undanförnu undir stjórn íþrótta-
hátíðarnefndar, en formaður
hennar er Sveinn Björnsson,
forseti ÍSÍ. Framkvæmdastjóri
hátíðarinnar er Stefán Konráðs-
son og hefur undirbúningur og
skipulag hátíðarinnar hvílt mikið
á hans herðum. Fjölmargar aðrar
nefndir hafa starfað að undirbún-
ingi hátíðarinnar og m.a. hafa 20
sérsambönd ÍSÍ verið með starf-
andi nefndum til að sjá um og
annast framkvæmd móta og sýn-
inga, hvert í sinni sérgrein. Nýjar
íþróttagreinar, sem enn eru ekki
með sérsamband, eru einnig með
starfandi nefndir, sem vinna að
undirbúningi keppni og sýninga í
sínum íþróttagreinum. Má þar
nefna fallhlífarstökk, veggtennis,
ruðning (amerískur fótbolti)
skylmingar, þríþraut og keilu-
keppni.
Útvarpsstöð og
myndlistarsýning
Ákveðið hefur verið að starf-
rækja útvarpsstöð meðan á hátíð-
inni stendur sem nær til hlust-
enda á Stór-Reykjarvíkursvæð-
inu en með góðri samvinnu við
fjölmiðla verður fréttum og
myndefni komið til allra lands-
manna bæði um leið og sum
atriði hátíðarinnar fara fram og í
fréttatímum. Ríkisútvarpið,
sjónvarp mun sjónvarpa beint frá
opnunarhátíðinni.
Gisting fyrir aðkomuhópa
verður í þrem skólum í Reykja-
vík: Álftamýraskóla, Laugarnes-
skóla og Laugalækjarskóla. Gist-
ing verður þátttakendum að
kostnaðarlausu. Lagðar eru til
dýnur en þátttakendur verða að
koma með sængur eða svefn-
poka.
Pósthús verður starfrækt í and-
dyri Laugardalshallarinnar hátíð-
ardagana og mun Póstur og sími
gefa út tvö íþróttafrímerki í
tilefni Íþróttarhátíðarinnar.
Myndlistarsýning í samvinnu
við íþróttadeild Sjónvarpsins,
stendur yfir í anddyri Laugar-
dalshallar alla hátíðardagana. Á
sýningunni eru myndir sem bár-
ust Iþróttaspeglinum, íþrótta-
þætti unga fólksins.
Verðlaunaafhendingar verða á
hverjum degi mótsdagana við úti-
taflið á Lækjartorgi kl. 17.30 og
er þetta gert í samvinnu við Mið-
bæjarsamtökin í Reykjavík.
Þátttaka yngri
kynslóðarinnar
Yfirskrift íþróttahátíðar að þessu
sinni er „Æskan og íþróttir" og
verður lögð áhersla á þátttöku
yngri kynslóðarinnar í þessari
hátíð. Þá verður einnig lögð
mikil áhersla á þátttöku almenn-
ings og er stefnt að því að þátt-
takendur í hátíðinni verði yfir 20
þúsund.
Glæsileg opnunarhátíð
Opnunarhátíðin fer fram eins og
fyrr er sagt 28. júní á Laugar-
dalsvellinum í Reykjavík. Hóp-
ganga hefst við T.B.R.-húsið við
Glæsibæ kl. 18.30. Þar ganga
íþróttamenn og forystumenn
íþróttahreyfingarinnar undir sín-
um félags- og héraðafánum
fylktu liði og koma á Laugardals-
völlinn kl. 20.00.
Laxá í Aðaldal yfir
100 laxa markið
Veiðin hefur verið ágæt í ánum
síðustu daga en flestar eru árn-
ar vatnsmiklar. Sólin hefur líka
gert veiðimönnum gramt í geði
en víðast hvar virðist laxinn
tregur að taka og því er algengt
að menn missi flska. Þannig
var t.d. um veiðimann á bökk-
um Vatnsdalsár í gærmorgun
en hann taldi sig hafa glímt við
um 20 punda físk sem slapp frá
viðureigninni.
Gott í Húseyjarkvísl
Byrjunin lofar góðu í Húseyjar-
kvísl í Skagafirði. Þar hófst veið-
in þann 16. júní og veiddust 4
laxar fyrsta daginn. Svo var einn-
ig þann 19. en á þjóðhátíðardag-
inn kom einn lax á land. Húseyj-
arkvísl gaf af sér 113 laxa í fyrra
og ef svona heldur áfram næst sú
tala auðveldlega í ár.
Veiði hófst í Mýrarkvísl í Þing-
eyjarsýslu í fyrradag og þá komu
3 laxar á land. Um þessa byrjun
er sama að segja og Húseyjar-
kvísl, allt lofar þetta góðu fyrir
sumarið.
Komnir 63 úr Ásunum
„Núna um hádegið voru komnir
63 laxar úr ánni,“ sagði Sólborg
Pálsdóttir veiðivörður í Laxá á
Ásum síðdegis í gær. „Áin var
opnuð um mánaðamótin og veiði
var góð fyrstu dagana en síðan
hafa komið dagar sem ekkert
hefur veiðst. En annað slagið
koma góð skot í veiðina. Fiskur-
inn hefur verið á bilinu 10-12
pund en við erum komin með
einn 19 pundara,“ sagði Sólborg.
100 físka markið í Laxá
„Núna eru komnir 110 laxar á
land en sem stendur er rólegt yfir
veiðinni," sagði Þórarinn Sveins-
son, læknir, en hann var í holli í
Laxá í Aðaldal í gær. „í morgun
komu 5 laxar á neðra svæðinu en
þetta eru engar stórar sögur. Við
höfum verið að sjá talsvert af
fiski og missa nokkuð líka. En
veiðin í ánni á þessum fyrstu dög-
um þykir góð miðað við árstím-
ann þannig að við erum ánægðir.
Nú bíðum við eftir göngum,“
sagði Þórarinn.
Róleg byrjun
í Vatnsdalnum
„Það er skemmst frá því að segja
að hér gerðist nánast ekkert fyrr
en á miðvikudaginn. Þá var fyrst
veiðandi,“ sagði Gylfi Ingason
við Vatnsdalsá. „Núna eru
komnir 28 laxar en fiskurinn tek-
ur mjög naumt. En það er nóg af
honum og það lifnar yfir þessu
þegar vatnið minnkar í ánni.“
JÓH