Dagur


Dagur - 22.06.1990, Qupperneq 5

Dagur - 22.06.1990, Qupperneq 5
Föstudagur 22. júní 1990 - DAGUR - 5 Vitastofnun íslands og Hafnamálastofnun ríkisins hafa nú flutt í nýtt aðsetur og fengið nýtt símanúmer. Nýja heimilisfangið er: Vesturvör 2 - pósthólf 120 202 KÓPAVOGUR Sími: 60 00 00 - Telefax: 60 00 60 9- VITA-OG HAFNAMALa|1B| SKRIFSTOFAN VH ELÍTE SÝNING Á GARÐSTDFUM Bjóðum ykkur velkomin á garðstofusýningu okkar að Óseyri 8 Akureyri helgina 23.-24. júní kl. 13:00-18:00. Gróður- og sumarsæla allt árið. SINDRI BORGARTÚNI 31 • SÍMI 91-627222 ÓSEYRI 8 • SÍMI 96-21800 Sund er ein fjölmargra íþróttagreina sem keppt verður í á Íþróttahátíð Í.S.Í. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, setur íþróttahá- tíð ÍSÍ 1990 og forseti ÍSÍ, Sveinn Björnsson, flytur ávarp. Síðan fara fram ýmis sýningaratriði, mörg þúsund börn af leikskólum á Stór-Reykjavíkursvæðinu dansa og syngja, karatemenn verða með hópsýningu, knatt- spyrnu- og handboltabörn hlaupa inn á völlinn, fimleikafólk sýnir listir sínar og flugeldum verður skotið á loft. Ókeypis aðgangur er að opnunarhátíðinni. Fjöldi erlendra gesta Af mörgu er að taka hvað íþróttir snertir á Íþróttahátíð ÍSÍ 1990 og má geta þess að á Stór-Reykja- víkursvæðinu eru keppni og sýn- ingar í 78 íþróttamannvirkjum og um allt land er t.d. keppt á um 30 golfvöllum samtímis. Fer sú keppni fram föstudaginn 29. júní kl. 18.00. Tennismót verða á Akureyri, Stöðvarfirði og í Ólafsfirði auk keppni sem verður á Stór- Reykj avíkursvæðinu. Öll sérsambönd ÍSÍ taka þátt í íþróttahátíðinni og eru mörg hver með fjölda erlendra þátttak- enda. Af þeim sem eru með erlenda keppnis- og sýningargesti má t.d. nefna handknattleiks- sambandið, sem er með fjögurra þjóða mót í handknattleik þar sem þátttökulið verða frá Ku- wait, Danmörku og Noregi auk íslands. Pá mun norskt hjól- reiðapar sýna í dagskrá íþrótta- sambands fatlaðra. Blaksamband íslands mun m.a. halda blakmót smáþjóða í kvennaflokki. Fjórar þjóðir munu senda lið til keppninnar: Luxemborg, Færeyjar, San Mar- ino ásamt Islendingum. Badmintonsamband íslands fær sterka unglingaspilara í badminton frá Danmörku, Sví- þjóð og Ungverjalandi. Fimleikasamband íslands verður með Landsleik, svokall- aða Tromp-keppni, milli íslands og Danmerkur og heimsfrægar fimleikastjörnur frá Sovétríkjun- um og A.-Þýskalandi ásamt íslensku fimleikafólki munu sýna. Þá verður einstaklings- keppni í áhaldafimleikum með keppendum frá Tékkóslóvakíu, Skotlandi og írlandi. Frjálsíþróttasamband íslands verður með landskeppni í frjáls- um íþróttum milli íslands og írlands. Pá er boðið upp á ýmis sér- verkefni og eru þessi m.a.: Æskuhlaupið Æskuhlaupið fer fram á Mikla- túni sunnudaginn 1. júlí kl. 14.00. Æskuhlaupið er fyrir allar stelpur og stráka á aldrinum 7rl4 ára. Hlaupið verður í hring á Miklatúni í Reykjvík en hringur- inn er 1.3 km. Hlaupið er kyn- skipt í hverjum árgangi. 7-9 ára hlaupa 1000 metra og eru stúlkur ræstar á undan drengjum, 10 mínútur eru á milli hlaupa í 1000 m, en 15 mín á milli hlaupa í 1500 metrum sem eru fyrir 10-14 ára. Þátttaka er ókeypis. Kvennahiaupið Kvennahlaupið fer fram á nokkr- um stöðum á landinu; í Garða- bæ, á ísafirði, Grundarfirði, Egilsstöðum, Laugum og á Akur- eyri. Markmiðið með hlaupinu er að leggja áherslu á íþróttaiðkun kvenna og holla lífshætti sem konur fá gegnum þátttöku í íþróttum. í kvennahlaupinu verður ekki keppt um verðlauna- sæti. Allir þátttakendur fá viður- kenningarskjal fyrir þátttökuna. Hlaupa má vegalengdina, ganga eða skokka. Á Akureyri verður kvennahlaupið í Kjarnaskógi laugardaginn 30. júní og hefst kl. 15.30. Konur eru beðnar að koma kl. 15.00, skrá sig á staðnum og hita upp undir dynjandi tónlist. Eftir hlaupið verða veitingar í boði Mjólkursamlags KEA. Undirbúningsnefndin á Akureyri hvetur konur til að mæta í kvennahlaupið. Sú stærsta í sögunni Íþróttahátíð þessi er sú stærsta sem haldin hefur verið hér á landi Tónlistarskólinn á Akureyri: Tónleikar á laugardag Sigurður S. Þorbergsson, básúnu- leikari, og Judith P. Porbergsson, píanóleikari, halda tónleika í sal Tónlistarskólans á Akureyri, laugardaginn 23. júní kl. 17.00. Á efnisskrá verða m.a. verk eftir Cesare, Telemann, Bach, Saint-Saens, Faure, Pryor o.fl. Sigurður og Judith námu bæði við Guildhall tónlistarháskólann í London. Sigurður starfar með Sinfóníuhljómsveit íslands og hélt einleikstónleika í Reykjavík og London sl. vetur við mjög góðar undirtektir gagnrýnenda á Morgunblaðinu, The Times, og Siguröur S. Þor- Judith P. Þor- bergsson. bergsson. The Independent. Judith starfar sem undirleikari við Söngskólann í Reykjavík og hefur komið fram með Sinfóníuhljómsveit íslands. fram til þessa. Tilgangur hennar er að íþróttahreyfingin komi fram sem ein heild með nokkurra ára millibili og gefi landsmönnum kost á að kynnast því fjölbreytta æskulýðs- og íþróttastarfi sem fram fer innan vébanda hennar. Einnig er það von forráðamanna ISI að þessi hátíð hvetji almenn- ing til frekari þátttöku í íþróttum og hollri hreyfingu, sem gæti orð- ið fastur liður í daglegu lífi hvers manns í viðleitni hans til betra mannlífs. Hermann Sigtryggsson. Höfundur er æskulýðs- og íþróttafulltrúi Akur- eyrar og á sæti í íþróttahátíðarnefnd. MEISTARAFÉLAG BYGGINGAMANNA NORÐURLANDI Geislagötu 12 P.o. box 711 602 Akureyri Simi 11222 Fax: 26722. GEYMSLUSVÆÐI Meistarafélag byggingamanna auglýsir eftir aðilum sem áhuga hafa á að vera með í að koma upp „geymslusvæði" - Porti - fyrir hluti sem þeir þurfa að geyma um lengri eða skemmri tíma, og hafa ekki stað fyrir. Geymslusvæðið yrði afgirt og vaktað. Geymslusvæðið verður í landi Akureyrar- bæjar. Þeir sem áhuga hafa, vinsamlega hafið samband við skrif- stofu Meistarafélagsins Geislagötu 12 eða í síma 11222, fyrir miðvikudaginn 27. júní 1990. Stjórn M.B.N.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.