Dagur - 21.08.1990, Síða 1

Dagur - 21.08.1990, Síða 1
r v. LACOSTE Peysur • Bolir HERRADEILD Gránutélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599^ Hegranesvegur: Króksverk lægstir Króksverk hf. átti lægsta til- boðið í nýbyggingu á Hegra- nesvegi eystri og vestri hjá Vegagerð ríkisins á Sauðár- króki. Kostnaðaráætlun var 6.450.000 kr, en tilboð Króks- verks hljóðaði upp á 6.387.316. kr. Næstur í röðinni kom Fjörður sf. með 6.845.310 kr og hæsta til- boðið átti Arnarfell, 7.966.826 kr. Áætluð verklok eru 1. nóvember 1990 að undanskilinni lagningu malarslitlags á Hegra- nesveg eystri og frágangi og jöfnun á báðum köflum sem þarf að vera lokið eigi síðar en 15. júlí 1991. ________________________SBG Ólafsíjörður: Kaupa 300 tornia bát frá Noregi „Fyrst um sinn gerum við út á lúðu sem landað verður í gáma til útflutnings. Lúðuslóðin er öll fyrir sunnan og því á ég ekki von á að fyrst um sinn verði báturinn mikið hér heima í Ólafsfirði,“ sagði Asgeir L. Asgeirsson í Ólafs- firði en hann stendur, ásamt Helga Má Reynissyni, að hlutafélaginu Valeik sem fest hefur kaup á 300 tonna línubát í Noregi. Skipið kemur væntanlega til Ólafsfjarðar í lok næstu viku. Valeik hf. keypti Atlanúp t>H frá Raufarhöfn og verður honum siglt til Noregs og veiðiheimildir hans fluttar á nýja skipið. Fyrst og fremst er horft til þess að gera skipið út á lúðu, löngu og keilu. Aflinn verður frystur um borð sem Ásgeir segir lykilinn að þessari útgerð. Línubáturinn er smíðaður í Solstrand í Noregi fyrir fjórum árum. Hann er búinn frystitækj- um og beitingarvél. Skipið var fram til síðustu áramóta gert út frá Færeyjum en þá eignaðist norskur banki skipið. Síðan þá hafa kaup Ásgeirs og Helga Más verið í athugun og eru nú að verða að veruleika, eins og áður segir. Báturinn hefur hlotið nafnið Ásgeir Frímanns. Kaupverð hans mun vera um 150 milljónir króna. Tólf manna áhöfn verður á bátnum. JÓH Konur af vestur-íslensku bergi brotnar voru á ferð á Húsavík sl. föstudag í hópi 22 kvenna frá Winnipeg í Kanada. Hópurinn dvelst í þrjár vikur á íslandi og ferðast hringinn um landið, að Vestfjörðum ógleymd- um. Myndin er tekin á tröppum Húsavíkurkirkju þar sem hópurinn er ásamt fararstjóra sínum og bílstjóra frá Samvinnuferðum-Landsýn. Konurnar sem eru fremstar á myndinni eru allar af vcstur-íslenskum ættum. Á innfclldu myndinni eru fjórar systur og bjuggu forfeður þcirra á Gíslastöðum í Vallarnessókn fyrir 150 árum. Ein systranna er í sinni tíundu ferð til íslands. Myndir: IM Kristnes: Ósamið við verktaka vegna byggingar imða fyrir aldraða Samkvæmt upplýsingum Ólafs Vagnssonar, oddvita Hrafna- gilshrepps, liggur ekki fyrir ákvördun um hvort bygging íbúða fyrir aldraða í Kristnesi verður boðin út í almennu útboði. Hrepparnir þrír framan Akur- eyrar munu sameiginlega standa að byggingu íbúðanna og er fyrir- liugað að í haust verði lokið við uppsteypu á raðhúsi með fjórum íbúðum. Skóflustunga að húsinu var tekin í byrjun mánaðarins og er nú lokið við vinnu í grunni hússins. I síðustu viku var teikn- ingum ekki lokið og því ekki fyrirliggjandi hvort samið verði við verktaka um bygginguna eða verkið boðið út. Raðhúsinu skal skila fullbúnu í ágústmánuði á næsta ári. JÓH Hluthafafundur HK samþykkti kaup ÚA á Aðalvíkinni: Þið eruð einu skipi ríkari Akureyringar - sagði Ríkarð Jónsson stjórnarformaður HK að loknum fundi „Þiö eruö einu skipi ríkari Akureyringar,“ sagði Ríkarð Jónsson stjórnarformaður Hraðfrystihúss Keflavíkur hf. að loknum hluthafafundi í gærmorgun, en fundurinn samþykkti samning við Útgerðarfélag Akureyringa um sölu á togaranum Aðalvík KE. Skipið var afhent hinum nýju eigendum í gær. Fyrir hluthafafundinum lá aðeins eitt erindi, staðfesting á samningi Hraðfrystihússins og ÚA um kaup þess síðarnefnda á frystitogaranum Aðalvík KE. Nokkrar umræður urðu um málið en að lokum var samningurinn, sem gerður var í síðustu viku, staðfestur. Fulltrúar fjögurra stærstu hluthafa fyrirtækisins, Sambands tslenskra samvinnufé- laga, Keflavíkurbæjar, Kaupfé- lags Suðurnesja og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur sam- þykktu samninginn allir, en þess- ir aðilar eiga samtals yfir 99% í fyrirtækinu. Einn minni hluthafi lýsti sig andvígan sölunni en það dugði skammt. Um helgina fréttist af því að bæjarstjórn Keflavíkur væri að reyna með einhverjum hætti að koma í veg fyrir sölu skipsins. Ríkarð staðfesti þetta í gær en sagði að ekkert hefði komið útúr þeim tilraunum sem breytt hefði málinu. KEA á höttunum eftir kvóta: tí tíu tonna bát auð í tvo aðra Kaupfélag Eyfirðinga stendur þessa dagana í kvótakaupum til bæta upp þann kvóta sem seldur var með Baldri og til að afla togurum félagsins aukins kvóta. Fyrir helgina var keypt- ur tæplega tíu tonna bátur og staðfest tilboö í tvo aðra. Óvissa ríkir enn um það hversu mikill kvóti fylgir þessum bátum. Báturinn sem keyptur hefur verið er tæplega tíu tonna bátur frá Breiðdalsvík. Að sögn Rögn- valdar Friðbjörnssonar útibús- stjóra KEA á Dalvík voru einng fyrir helgina staðfest kauptilboð í tvo aðra báta svipaðrar stærðar. Rögnvaldur segir að með kaupum þessum sé verið að bæta félaginu upp þann kvóta sem fór með Baldri, en það voru um 100 þorskígildi, en einnig afla togur- um félagsins kvóta umfram það. Ekki liggur fyrir hversu mikill kvóti fylgir bát af þessari gerð. Nýjar reglur kveða á um að taka skuli meðaltal af veiði tveggja bestu aflaáranna 1987-1989. Samkvæmt þessu verður kvóti hins nýja báts um 90 þorskígildi. Þessi tala getur hins vegar breyst því að loknum þessum útreikn- um á eftir að taka tillit til heildar- innar, en samkvæmt hinum nýju reglum má kvóti smábátanna ekki nema meiru en 12,5% af heildarúthlutun í þorski. ET Að sögn Ríkarðs er mikil vinna eftir við að komast til botns í málefnum fyrirtækisins og ákveða framtíð þess. Rekstur togarans hefur verið eina starf- semin um nokkurt skeið og segir Ríkarð að ákvöröun um áfram- haldandi starfrækslu fyrirtækisins verði tekin þegar staða þess ligg- ur fyrir. I gær fóru menn frá ÚA suður um heiðar til að ná hinn nýja - bak. Skipið er væntanlegt til Akureyrar síðar í vikunni. ET Loðskinn hf.: „Pægilegast að menn hafi frjálsar hendur“ - segir fráfarandi framkvæmdastjóri „Eg reikna ekki með því að koma aftur til starfa eftir það þriggja mánaða sumarfrí sem ég er í núna. Það er verið að gera breytingar og þá er þægi- legast að menn hafí frjálsar hendur,“ segir Þorbjörn Arna- son, framkvæmdastjóri sútun- arverksmiðjunnar Loðskinns hf., um það hvort hann er hættur hjá verksmiðjunni. f síðustu viku varpaði Dagur fram þeirri spurningu hvort Þor- björn væri hættur og þegar blaðið náði tali af honum í gær sagði hann að farið væri að líða að því. Þorbjörn er nú búinn að vera framkvæmdastjóri hjá Loðskinni í fimm ár og sagði að ekki væri Ijóst hvað hann færi að gera núna. En hver tekur þá við af honum? Þessa stundina stjórnar rekstrarstjóri verksmiðjunni og hann heitir Birgir Bjarnason. „Ég er ráðinn hér í þcssa þrjá mánuði sem unt hefur verið talað, aðallega til þess að koma í gegn þeim breytingum sent nú eiga sér stað hjá verksmiðjunni. Síðan er það auðvitað verk nýrr- ar stjórnar sem spinnst út úr því, að ákvarða framhaldið og ég reikna fastlega með því að gefa kost á mér í framkvæmdastjóra- stöðuna eftir þennan tíma,“ sagði Birgir. Birgir er viðskipta- fræðingur frá Háskóla íslands og jafnframt með mastersgráðu frá Boston. Hann kveður stöðu fyrir- tækisins vera slæma núna, enda ekki verið að fara út í hlutafjár- aukningu nema svo væri. Að hans sögn er eingöngu leitað til aðila um hlutafé sem tengjast verkuninni á einhvern hátt. Birg- ir sagðist vonast til þess að línur færu að skýrast á næstu dögum í sambandi við breytingarnar hjá Loðskinni hf. SBG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.