Dagur - 28.08.1990, Side 1
73. árgangur Akureyri, þriðjudagur 28. ágúst 1990 163. tölublað
LACOSTE
Peysur • Bolir
HERRADEILD
Ciránutélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Hótel Blönduós:
Fólki sagt
upp og um-
fangið minnkað
„Við erum að framkvæma hluti
sem við hefðum þurft að vera
búnir að fyrir löngu, að
minnka umfangið og rekstur-
inn yfir veturinn í samræmi við
notkunina. Án þess að segja
upp starfsfólki er ekki hægt að
breyta neinu og sú er ástæðan
fyrir uppsögnum núna,“ segir
Ragnar Tómasson, einn af
stjórnarmönnum Hótel
Blönduóss.
Starfsfólkinu hefur nú verið
sagt upp á hótelinu og er þar um
að ræða sex stöður fyrir utan
stöður sem eru einungis yfir
sumarmánuðina. Ragnar sagði
að ekki væri ljóst hve margar
stöður yrðu yfir veturinn eftir að
breytingin hefði átt sér stað, en
það kæmi í ljós á næstu vikum.
„Við erum ekki komnir alveg
niður á það hvað gert verður í
rekstrinum og ekkert hægt að
segja um það þessa stundina. Það
er staðreynd að þessi íandsbyggð-
arhótel eru í ákaflega mikilli
klemmu. Ég skal ekki segja til
um hvernig það er á Akureyri, en
ég hygg að á flestum öðrum stöð-
um sé þetta mjög erfitt. Veturinn
gerir það að verkum að við sitj-
um alltaf uppi með tap af þessu
og það gengur ekki. Ég hygg að
kannski verði okkar niðurstaða
sú, fyrst og fremst að draga úr
öllu umfangi og halda rekstrinum
í algjöru lágmarki,“ sagði Ragnar
Tómasson.
Hingað til hefur Hótel Blöndu-
ós verið rekið af jafnmiklum
krafti jafnt sumar sem vetur, en
nú er ljóst að þar verður breyting
á sökum tapreksturs. SBG
Siglfirðingur SI:
Á sfld í haust
Frystitogarinn Siglfirðingur er
nú að veiða það síðasta af
kvóta skipsins á þessu ári. Eftir
þessa veiðiferð verður skipið
bundið við bryggju en mun
frysta sfld á vertíðinni í haust
líkt og gert var í fyrra.
f fyrravetur var Siglfirðingur
við síldarfrystingu frá nóvem-
bermánuði til jóla og hluta úr
janúarmánuði. Ragnar Ólafsson,
skipstjóri á Siglfirðingi, sagði í
samtali við Dag að frystingin hafi
gengið þokkalega og óhætt sé að
segja að þetta sé betra en láta
skipið liggja verkefnalaust við
bryggju.
„Að vísu vantaði meiri síld í
fyrra. Við frystum um 700 tonn
og um 500 tonn af því fóru á
Japansmarkað en annað á Eng-
landsmarkað og í beitu,“ sagði
Ragnar.
í fyrra aflaði vélbáturinn Haf-
steinn í frystinguna hjá Siglfirð-
ingi en þessi skip eru gerð út af
sömu aðilum. Ragnar segir að
haldið verði til veiðanna strax og
síldin fer að láta á sér bera. JÓH
Oft er rætt uni nauðsyn þess að fækka mávum og hér má sjá að bílar eru
stundum notaðir til slíkra aðgerða. Mynd: Goiii
Borun holu nr. 25 í Kröflu lofar góðu:
Frekari borun næsta sumar
Borun á holu nr. 25 við Kröflu
miðar vel og er áætlað að Ijúka
henni í septembermánuði.
Þegar á mánuðinn líður kemur
í Ijós hve kraftmikil þessi hola
er en þau jarðefni sem úr hol-
unni koma gefa góðar vonir og
fullvíst er að þarna er mikill
hiti í jörðu. Hola nr. 25 er
aðeins um 120 m frá Sjálf-
skaparvíti sem myndaðist þeg-
ar borhola nr. 4 sprakk en sú
liola var mjög aflmikil. Ákveð-
ið hefur verið að tvær holur
verði boraðar á Kröflusvæðinu
næsta sumar enda þarf aukinn-
ar orku við ef helmingsstækk-
un verður á virkjuninni árið
1995 eins og ráð er fyrir gert.
Héðinn Steingrímsson, stöðv-
arstjóri í Laxárvirkjun, hefur
eftirlit með boruninni í Kröflu og
sagði hann að þeim jarðefnum sem
koma úr nýju holunni svipi mjög
til borunar á holu nr. 4 þegar hún
var boruð. Hvort hún vcrði jafn
kraftmikil sé ekki unnt að segja
til um fyrr en borun verður lokiö.
Nú hefur verið borað niður á um
1800 metra dýpi en borað verður
niður á rúmlega 2000 metra dýpi.
,.Við völdum þessari nýju holu
stað til að reyna að endurtaka
söguna með holu nr. 4 að öðru
leyti en því að nú erum við í öllu
betri stellingum til að taka við
öflugri holu. Þetta er það svæði
sem menn vonuðust til að gæti
gefið ntikla gufu í framtíðinni
fyrir virkjunina. Hins vegar varð
frá að hverfa vegna þess hve
mengunin í holu 4 var mikil en
vonir eru bundnar við það nú að
hún sé mun minni," sagði
Héöinn.
Sú hola sem nú er verið að
bora er á svokölluðu Efra-Leir-
botnasvæði en nokkru neðar er
verið að ljúka undirbúningi á
borun á tveimur holum fyrir
næsta sumar. Héðinn segir að
með þessum borununt sé Lands-
virkjun að afla sér betri vitneskju
um svæðið og hvernig staðan sé
gagnvart stækkun á virkjuninni
um helnting árið 1995.
Héðinn segist reikna með að
nýja holan veröi látin blása í
vetur, reynist hún góð, og hún
síðan tengd inn á virkjunina
næsta sumar. Þá gæti komið til
álita að hvíla önnur virkjunar-
svæði í staðinn. JÓH
Lögreglan á Dalvík beitt ofbeldi:
Ölvaðir menn siguðu Scháfer-
hundi á tvo lögregluþjóna
- ekki unnt að handtaka mennina við þessar aðstæður
Sá ógnvekjandi atburður átti
sér stað á Dalvík sl. sunnu-
dagskvöld að tveir Iögreglu-
þjónar voru bitnir af Scháfer
hundi sem var sigað á þá. Tveir
menn sem sátu við drykkju ■
Sæluhúsinu beittu hundinum
fyrir sig þegar lögreglan ætlaði
að fjarlægja þá og vegna þessa
framferðis var ekki hægt að
handtaka mennina. Lögreglu-
þjónarnir særðust nokkuð í
átökunum og voru þeir báðir
sprautaðir eins og vant er í til-
vikum sem þessum.
Tómas Viðarsson var á vakt
þennan sunnudag er beiðni kom
frá Sæluhúsinu um að koma
tveimur mönnum út sem sátu þar
að sumbli. Þetta var skömmu fyr-
ir klukkan átta. Mennirnir voru
með Scháfer hund með sér og
þannig lýsir Tómas framhaldinu:
„Þegar ég bað mennina að yfir-
gefa staðinn þá sigaði annár
þeirra hundinum á mig. Ilann
stökk fyrst á hcndina á mér cn ég
náði aö kippa henni áð mér. Þa
glefsaði hann í lærið á mér og
fékk ég fleiður og mar. Ég kom
mönnunum niður í anddyri og
þar settust þeir niður með
hundinn. Ég kallaði á aðstoð og
Björn Víkingsson og Sævar Freyr
Ingason komu skömmu seinna.
Þeir gátu fengið mennina út en
þá skipti engum togum að eig-
andi hundsins sleppti honum
lausum og sigaði á Björn. Hund-
urinn bcit Björn í handlegginn,
lærið og kálfana áður en hann
náði að forða sér inn í Sæluhúsið.
Eigandinn kallaði þá hundinn til
sín og hann settist hjá honum
eins og ekkert hefði í skorist."
Tómas sagði að hundurinn
hefði hlýtt eiganda sínum í
blindni og greinilega litið á þetta
eins og hvern annan leik. Sökin
var því eigandans. Ekki var hægt
að handtaka mennina undir þess-
um kringumstæðum því þeir not-
uðu hundinn sem vopn og hindr-
uðu þannig lögregluna að
störfum.
Mennirnir voru gestkomandi á
Dalvt'k og er málið nú í rannsókn
hjá rannsóknarlögreglunni á
Akureyri. í gær voru vitni yfir-
heyrð en rannsóknarlögreglan
hafði ekki haft hendur í hári
mannanna og því ekkert hægt að
segja um framhaldið. SS
Vinnueftirlitsmenn könnuðu vélakost bænda á Norðurl. vestra:
„Ástandið ekki meira en sæmilegt“
„Ástandið í sveitum hér er
sæmilegt, en ekki meira en það
þegar á heildina er Iitið,“ segir
Stefán Stefánsson, eftirlits-
maður Vinnueftirlitsins á
Norðurlandi vestra. I ár á
fjögurra ára hringurinn í skoð-
un á hverju býli á svæðinu að
lokast og telur Stefán að það
takist næstum því.
Á þessu ári er búið að skoða í
Skagafirði á bæjunum frá Sauð-
árkróki og út Skaga, í Fljótun-
um, Rípurhreppi og hluta Lýt-
ingsstaðarhrepps. Ætlunin er síð-
an að skoða einnig hjá bændum í
Staðarhreppi. í Húnavatnssýsl-
um er búið að skoða í Sveins-
staðahreppi og Hrútafirði og ætl-
unin að klára Þorkelshólshrepp
svo svæðið vestan Vatnsdals sé
frá.
Að sögn Stefáns eru til þeir
bændur sem nánast engar athuga-
semdir þarf að gera hjá, en þeir
séu samt alltof fáir. Hann segir
að algengasta athugasemdin sé
vegna þess að hlíf vanti á drif-
skaft dráttarvéla, en veltigrindur
á dráttarvélar séu að koma hægt
og sígandi.
„Ætlunin ér .að endurskoða í
haust það sem skoðað var í sum-
ar og innsigla þá þær vélar sem
ekki hafa verið lagaðar í sam-
ræmi við athugasemdir. Það er
samt erfitt að banna mönnum að
nota t.d. dráttarvélar án velti-
grindar þar sem ekki þarf að hafa
grind á staðbundnum aflgjöfum
eins og við blásara. Manni heyrist
samt á bændum yfirleitt að þeir
séu mjög sáttir við þessar
skoðanir og að veltigrindarlausar
dráttarvélar séu teknar úr
umferð. Þessar vélar eru líka að
detta út sjálfkrafa með meiri
rúllubaggahirðingu þar sem færri
vélar þarf í verkið," sagði Stefán.
í hans umdæmi hafa á síðustu
þremur árum orðið þrjú banaslys
við vinnu og þar af tvö við land-
búnaðarstörf.
Stefán segir að hann geti talið
þau skipti á fingrum sínum sem
ekki hefur verið tekið vel á móti
honum þegar hann hefur komið
til að skoða á sveitabæjum. Þetta
sveitaeftirlit er samt eiginlega
aukagrein hjá Vinnueftirlitinu og
aðaltíminn fer í að skoða vinnu-
vélar og fyrirtæki. Að sögn
Stefáns er aðbúnaður hjá fyrir-
tækjum á Norðurlandi vestra
nokkuð góður, sé tekið mið af
því hvernig hann er víðast hvar.
„Þó að kröfurnar séu orðnar
þannig að langt sé í land hjá sum-
um fyrirtækjum að fullnægja
þeim, þá eru til þau fyrirtæki á
svæðinu sem eru til algjörrar
Tyrirmyndar," sagði Stefán
Stefánsson. SBG