Dagur - 28.08.1990, Page 4

Dagur - 28.08.1990, Page 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 28. ágúst 1990 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (Iþróttir), SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SIMFAX: 96-27639 Aðild að EB er fullveldisafsal Hver er afstaða þjóðarinnar til Evrópubandalagsins og þeirra miklu breytinga sem eiga sér stað í Evrópu um þessar mundir? Hver verður staða íslands í samfélagi þjóðanna þegar Evrópa verður eitt efnahagssvæði árið 1992? Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör. Sú er því miður raunin þegar þetta gífurlega hagsmunamál íslensku þjóðarinnar er annars vegar. Ýmsir fjölmiðlar hafa síðustu mánuði gert skoðanakannanir til að reyna að fá fram afstöðu þjóðarinnar til Evrópubandalagsins, með þá spurningu að vopni hvort viðkomandi er fylgjandi eða andvígur fullri aðild að Evrópubandalaginu. Sannast sagna eru niðurstöður þessara kannana marklausar með öllu, því stærstur hluti þjóðarinnar hefur ekki myndað sér skoðun um málið. Fólk veit ekki hverju það á að svara þegar spurt er um afstöðu þess til Evrópubandalagsins; það veit hreinlega ekki um hvað málið snýst. Fáfræði íslensks almennings um Evrópubandalagið og eðli þess er ótrúlega mikil. Þessi fáfræði á sér þó eðlilegar skýringar. Staðreyndin er sú að stærstu og áhrifamestu fjölmiðlarnir hafa vanrækt upplýsingaskyldu sína í þessu máh. Þeir hafa lítið sem ekkert fjallað um kosti þess og galla fyrir okkur íslendinga að ganga í Evrópubandalagið og þess vegna hefur þorri þjóðarinnar engar forsendur til að mynda sér sjálfstæða skoðun um málið. Fullyrða má að skortur á upplýsingum um Evrópu- bandalagið sé vatn á myllu þeirra sem vilja að íslending- ar sæki um fulla aðild að bandalaginu. Sá hópur virðist því miður fara stækkandi. Margt bendir til þess að stærsti stjórnmálaflokkur landsins, Sjálfstæðisflokkurinn, muni innan skamms taka eindregna afstöðu með því að íslendingar sæki um aðild að Evrópubandalaginu, en eins og flestir muna komst svonefnd aldamótanefnd Sjálf- stæðisflokksins að þeirri niðurstöðu fyrr á þessu ári að aðild að EB væri æskileg. Innan Alþýðuflokksins á sú skoðun einnig talsverðu fylgi að fagna. Framsóknarflokk- urinn hefur á hinn bóginn marglýst því yfir að aðild að ríkjabandalagi eins og Evrópubandalaginu, sem felur í sér stórkostlegt fullveldisafsal, komi ekki til greina. Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokks- ins og forsætisráðherra, lagði þunga áherslu á þessa ein- dregnu afstöðu framsóknarmanna í viðtali við Morgun- blaðið fyrir skemmstu. Við það tækifæri sagði forsætisráð- herra að ísland ætti ekkert erindi í Evrópubandalagið: Gagnvart EB yrði landið ekkert annað en lítill útkjálki og íslenska þjóðin myndi glata sjálfsforræði sínu og sjálf- stæði. Á hinn bóginn lægi það verkefni fyrir að ná viðun- andi samningum við Evrópubandalagið og tryggja sjálf- stæði og fullveldi íslendinga. Ekki er ólíklegt að þessi skoðun eigi nokkurn hljómgrunn innan Alþýðubandalags og Kvennalista einnig. Ljóst er að íslenskt flokkakerfi mun að verulegu leyti mótast eftir afstöðu stjórnmála- flokkanna til þessa stórmáls í náinni framtíð. Það er mjög brýnt að íslenskir fjölmiðlar vakni af Þyrni- rósarsvefninum og hefjist handa við að kynna þá kosti sem þjóðin stendur óhjákvæmilega frammi fyrir í þessu máli. Hún þarf að taka afstöðu með eða á móti aðild íslands að Evrópubandalaginu áður en langt um líður. Þá ákvörðun má ekki undir nokkrum kringumstæðum byggja á fáfræði og þekkingarskorti. BB. Áliðnaður í gjölulu landbúnaðarhéraði Margir hafa orðið til þess að vara við því að reisa álver í Eyjafirði á þeim forsendum að jjar væri blómlegur landbúnaður. Minna hefur borið á umfjöllun um þá kosti sem landbúnaðurinn í Eyja- firði gæti haft af sambýli við áliðnaðinn. Landbúnaðinum er talin stafa hætta af mengun frá álverinu. í þeirri umræðu er það áberandi að hugmyndir manna um rekstur álversins virðast byggjast á upp- lýsingum um áratuga gömul iðju- ver. Nútíma álver eru búin fuli- komnum hreinsibúnaði. Nýlega kom það fram að Bandaríkja- mennirnir í Atlantal-hópnum telja sig ráða yfir tækni, sem gerir þeim kleift að ná betri árangri en þeim, sem lagður var til grund- vallar í útreikningum NILU um dreifingu mengunarefna frá álveri við Dysnes. Nútíma áliðnaður býr víða í friðsamlegu sambýli við landbún- að. Mér cr kunnugt um það að í Bandaríkjunum (í Suður-Karo- línufylki) og í Kanada hefur áliðnaðurinn reynst falla vel að aðstæðum í landbúnaðarhéruð- um. Langar þriggja daga vakta- tarnir með þriggja daga frívökt- um hafa hentað vel, þar sem bændur kjósa að stunda bústörf sem aukastarf. Menn hafa því getað stundað vel launuð störf við áliðnaðinn en nýtt jafnframt jarðir sínar með ýmsum hætti. Því hefur verið haldið fram að áliðnaðurinn stefni í hættu afkomu bænda, sem hafa tekjur af ferðamönnum. Ekki fæ ég séð að það hafi við rök að styðjast. Þórarinn E. Sveinsson. Nútímalegt álver er forvitnilegur heimur tröllslegrar tækni, sem fjöldi fólks vill skoða. Með til- komu álvers í Eyjafirði bætist við enn einn staður. sem ferðamenn geta haft áhuga á að kynna sér. Það er staðreynd að margir ferðamenn hafa ánægju af að skoða vinnustaði eins og frysti- hús, skipasmíðastöðvar og aðra stóra vinnustaði. Sú staðreynd gildir í enn ríkari mæli fyrir nútímalegt álver, enda er svo víða í slíkum verum að gert er ráð fyrir því að þangað komi margir gestir árlega til að svala forvitni sinni. Flestir tengja saman fólks- fjölda og mengun. Ef þéttbýlið við Eyjafjörð vex, fylgir því óhjákvæmlega einhver mengun. Við megum ekki gleyma því að mikið af þeirri starfsemi sem við rekum í firðinum í dag er ekki með öllu laust við mengun. Það kemur alltaf að því að við verð- um að velja eða hafna. Sú mengun, sem af álverum stafar, er ekki meiri en af ýmsum öðrum atvinnurekstri. Stöðnun, sam- dráttur og atvinnuleysi skapar líka andrúmsloft, sem vissulega má líkja við mengun. Og sú mengun leikur mannfólkið grátt. En mestu máli skiptir, þegar sambýli álvers við landbúnaðinn er til umræðu, að menn geri sér grein fyrir hvert meginvandamál landbúnaðarins í Eyjafirði er. Eyfirskur landbúnaður er of sterkur fyrir of lítinn markað. Hann á mikilla hagsmuna að gæta í því að þéttbýli vaxi og eflist. Aukið þéttbýli og fleira fólk í einu blómlegasta landbún- aðarhéraði landsins, getur ekki annað en styrkt landbúnaðinn. Hvernig sem mál þróast með Evrópubandalagið og breytt við- skipti með búvöru í Evrópu, verður sterkur heimamarkaður fyrir ferskar ófrystar afurðir land- búnaðar ávallt af hinu góða. Ef til vill er það sá trausti grunnur sem skiptir sköpum í harðri sam- keppni við búvöruframleiðslu annarra landa. Álver getur haft þær afleiðing- ar að mjólkurframleiðslu verður að hætta á nokkrum býlum. En það hefur ekki nokkur áhrif á framleiðslugetu héraðsins í heild, sem er meiri en leyfilegt er að nýta í dag. Tilfærsla framleiðslu innan svæðis á því aðeins að auka hagkvæmni þeirrar frámleiðslú sem fyrir er og renna þannig styrkari stoðum undir sérhæfðan og hagkvæman landbúnað. Sá landbúnaður og stærri heima- markaður er ef til vill forsenda þess að við stöndumst nágrönn- um okkar snúning í harðnandi samkeppni opinna viðskipta. Þetta vita margin bændur og skilja að tilkoma álversins mun hleypa nýju lífi í þetta hérað. Nútímalegt álver mun því verða til þess að styrkja landbúnaðinn í heild, þótt það muni eflaust valda því að einhverjar breytingar verða á búháttum í næsta ná- grenni við iðjuverið. Þórarinn E. Sveinsson. Höfundur er mjólkursamlagsstjóri og bæjarfulltrúi á Akureyri. Nútíma áliðnaður býr víða í friðsamlegu sambýli við landbúnað segir grein- arhöfundur m.a. I sakleysislegri frásögn í frétt leyndist banvæn setning „Ég las fréttina í Degi frá 9. ágúst um vatnsaga í Ólafsfjarðargöng- um með áhuga en í jafnvægi hvíldar. Þar til undir lok fréttar- innar: Þá kom höggið! „Hins vegar mun Krafttak hf. væntanlega bjóða í Vestfjarða- jarðgöng og Fljótdalsvirkjun, sem byggð verður ef álver rís á íslandi burtséð frá staðarvalf'. Leturbreyting mín! Strjálbvlismálin flugu urn huga minn. Umráðin yfir orkunni í hverri byggð eru grundvallar- atriði. Landsvirkjun eins og hún nú er orðin er hættulegasta land- eyðingaraflið. Það er þyngra en tárum taki að verða æ ofan í æ að reka sig á hve steinblind samtíðin virðist vera á hina raunverulegu ástæðu þess hve vel hinum fjandsamlegu öfluni strjálbýlisins miðar í tilganginum. í krafti fjár- magns og valds! Að í blaðinu Degi sé það hæfilegt rými í frétt út af vatnsaga í Múlanum að orka Fljótsdalsvirkjunar sé eins og frímerki á bréfi. Guð hjálpi okkur! Ég hefi vonað að smám saman færurn við að skilja - við sem telj- um okkur Islendinga með byggð um allt land - að orka Fljótsdals- virkjunar, að siðrænum lögum mennskrar lífssýnar, skal streyma um Austur- og norðausturland. Undir engum kringumstæðum burt af þessum landsvæðum. Það er striðsyfirlýsing valds og pen- inga til fólksins um þessar byggðir, að orka Fljótsdals- virkjunar sé óskyld þeirra byggðagrunni. Hvað hugsið þið? Jafnvel kötturinn lítur bak við spegilinn!" 12. ágúst 1990, Jónas Pétursson.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.