Dagur - 28.08.1990, Síða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 28. ágúst 1990
Þriðjudagur 28. ágúst 1990 - DAGUR - 9
fþróttir
2. deild:
Nýr völlur dugði Leiftri ekki
- tapaði fyrir ÍR og er í mjög slæmri stöðu fa
rjuð
ÍR-
Leiftursmenn eru í mjög alvar-
legri stöðu eftir 0:1 tap á heima-
velli gegn IR á föstudagskvöld-
ið. Liðið er í næst neðsta sæti
deildinnar með 13 stig og á
mjög erfiða leiki eftir, þ. á m.
útileiki gegn Víði og Keflvík-
ingum.
Leikurinn fór fram á nýjum
grasvelli þeirra Ólafsfirðinga og
var töluvert fjölmenni á leiknum
og stemmning í betra lagi. Þrátt
fyrir það var leikurinn daufur og
var ekki að sjá að Leiftursmenn
væru að berjast fyrir sæti sínu í
deildinni.
Þeir byrjuðu reyndar þokka-
lega enda IR-ingar mjög daufir í
fyrri hálfleik og fengu aðeins eitt
umtalsvert færi. Leiftursmenn
fengu lítið af færum fyrr en í lok
hálfleiksins en þá má segja að
þeir hafi fengið tækifærin til að
gera út um leikinn. Á 35. mínútu
komst Þoriákur Árnason í gott
færi en markvörður ÍR varði
laust skot hans. 4 mínútum síðar
fékk Hörður Benónýsson annað
færi en aftur var markvörður ÍR á
réttum stað og hann bjargaði í
þriðja sinn í röð þegar Þorlákur
átti skot eftir mikla pressu Leift-
ursmanna.
í seinni hálfleik hresstust ÍR-
ingar mikið og þeir skoruðu eina
mark leiksins á 58. mínútu. Þá
kom stungusending fram á
Tryggva Gunnarsson sem skoraði
af öryggi. Eftir það léku ÍR-ingar
skynsamlega, einbeittu sér að
vörninni og Leiftursmenn náðu
ekki að ógna marki þeirra eftir
þetta.
Baráttuleysi Leiftursmanna
kom nokkuð á óvart. Friðrik Ein-
arsson var þeirra besti maður en
hjá ÍR-ingum barðist þjálfarinn
Njáll Eiðsson vel. KH/JHB
3. deild:
Þróttur upp - Einherji niður
í þriðju deildinni bar það helst
til tíðinda um helgina að Þrótt-
arar úr Reykjavík tryggðu sér
sæti í 2. deild er þeir sigruðu
ÍK-inga 3:1. Þá féll Einherji í
4. deild þegar liðið tapaði 3:4 á
Neskaupstað því á sama tíma
sigraði BÍ Reyni 1:0 á ísafirði.
Þá unnu Dalvíkingar auðveld-
an sigur á TBA, 8:0, og Hauk-
ar unnu Völsung 4:0 í Hafnar-
firði.
Fjörugt á Neskaupsstað
7 mörk voru skoruð þegar Ein-
herji og Þróttur mættust á Nes-
kaupstað. Þróttara náðu foryst-
unni með marki Árna Freysteins-
sonar en Örnólfur Oddsson jafn-
aði fyrir Einherja og þannig var
staðan í hléi.
í seinni hálfleik byrjuðu Vopn-
firðingarnir vel og náðu foryst-
unni með marki Arnars Gests-
sonar. Skömmu síðar fékk Ein-
herjamaðurinn Björn Sigur-
björnsson að líta rauða spjaldið
og Bjarni Freysteinsson jafnaði
fyrir Þrótt í framhaldinu. Einherj-
ar voru ekki af baki dottnir og
Örnólfur bætti við sínu öðru
marki þegar um 15 mínútur voru
til leiksloka. Birkir Sveinsson
jafnaði þá fyrir Þrótt og var mikil
rangstöðulykt af því marki. Þá
var einum Norðfirðingi vikið af
leikvelli og loks lauk þessum
sögulega leik með því að Eysteinn
Kristinsson skoraði sigurmark
Þróttar og sendi Einherja í 4.
deild.
Úrslitakeppni 4. deildar:
Stórsigur Hvatar
- á Víkverja
Hvöt vann stórsigur á Víkverja
í 1. umferð úrslitakeppni 4.
deildar á Blönduósi á laugar-
dag. Lokatölurnar urðu 4:1 en
þrátt fyrir það var leikurinn
jafn lengst af.
Víkverjaliðið er léttleikandi og
skemmtilegt en virðist skorta
samæfingu og úthald. Hvatar-
menn voru reyndar ívið sterkari
framanaf en náðu aðeins að
skora einu sinni í fyrri hálfleik og
staðan í hléi var 1:0.
Það var svo ekki fyrr en í lokin
sem Hvatarmenn náðu afgerandi
forystu en þá virtust gestirnir
vera búnir. Hvöt „keyrði" yfir þá
og sigraði eins og fyrr segir 4:1.
Hermann Arason og Bjarni
Gaukur Sigurðsson skoruðu báð-
ir tvívegis fyrir Hvöt og félagi
þeirra Ásgeir Valgarðsson sýndi
gestrisni sína í verki með því að
skora markið fyrir Víkverja.
Nóg af færum á ísafirði
Leikurinn á ísafirði var einnig
opinn og fjörugur en þar gekk
mönnum þó ekki jafn vel að
skora. Eina mark leiksins skoraði
Jóhann Ævarsson þegar 15
mínútur voru liðnar af seinni
hálfleik. Fram að því höfðu bæði
lið átt ágæt færi sem öll fóru í
súginn. I byrjun seinni hálfleiks
var einum manni úr hvoru liði
vísað af velli fyrir slagsmál og við
það opnaðist leikurinn upp á gátt
og áttu bæði lið m.a. skot í stöng.
Leikurinn var jafn og skemmti-
legur og hefði jafntefli sennilega
verið sanngjarnast.
Völsungar slakir
í Hafnarfírði
Völsungar sáu aldrei til sólar er
þeir mættu Haukum í Hafnar-
firði. Þeir náðu sér aldrei á strik
og virkuðu áhugalausir. Haukar
skoruðu tvívegis í hvorum hálf-
leik og hefðu átt að getað skorað
mun fleiri mörk. Kristján Þór
Kristjánsson skoraði þrjú mörk
og Gauti Marinósson eitt.
Stórsigur Dalvíkinga
Dalvíkingar höfðu mikla yfir-
burði gegn TBA og sigruðu 8:0.
Sigurinn hefði getað orðið stærri
sem sést á því að þrjú mörk voru
dæmd af Dalvík fyrir rangstöðu
og þá áttu þeir nokkur skot í slá
og stangir. Sverrir Björgvinsson
og Birgir Össurarson skoruðu tvö
mörk hvor og Arnar Freyr
Jónsson, Ágúst Sigurðsson, Örv-
ar Eiríksson og Guðjón Antóníus-
son eitt hver.
Sverrir Sverrisson og féiagar voru ekki í mjög kröppum dansi gegn Selfyss-
ingum þó hann taki hér létta sveiflu. Mynd: sbg
Tindastóll nær sigri
- er liðið gerði jafntefli á Selfossi
Tindastóll geröu
Selfoss og
jafntefli, 1:1, þegar liðin mætt-
ust á Selfossi á föstudagskvöld-
ið. Það voru Skagfirðingarnir
sem voru betri aðilinn í Teikn-
um og voru nær sigri. Liðið er
enn ekki laust við falldrauginn
en staða þeirra er þó mun væn-
legri en hinna norðanliðanna
og ætti það ekki að þurfa mörg
stig úr síðustu umferðunum til
að tryggja sér áframhaldandi
2. deild:
Fjörugt hjá KS og Breiðabliki
Breiðablik sigraði KS 2:1 í
fjörugum leik á Siglufírði á
föstudagskvöldið. Lengi vel
leit reyndar út fyrir að leikur-
inn myndi enda með jafntefli
en á síðustu mínútunum skor-
aði Þorsteinn Hilmarsson
umdeilt mark fyrir Blikana og
tryggði þeim sigurinn. KS er í
neðsta sæti deildinnar sem fyrr
en Breiðablik í því þriðja og
heldur enn í vonina um að
komast í 1. deild að ári.
Breiðablik byrjaði leikinn á
föstudagskvöldið af krafti. Þeir
áttu þrjú góð færi áður en þeir
fengu vítaspyrnu á 20. mínútu
þegar Henning Henningsson
bjargaði með hendi á marklínu.
Að sjálfsögðu var dæmd víta-
spyrna og úr henni skoraði Hilm-
ar Sighvatsson.
Blikar voru áfram sterkari en
heimamenn lifnuðu aðeins við
rétt fyrir hlé og voru þá nálægt
því að jafna þegar Hlynur Eiríks-
son og Þorsteinn Þormóðsson
fengu ágæt færi.
Seinni hálfleikur var mun betri
hjá KS-ingum og þeir fengu tvö
þokkaleg færi og eitt dauðafæri á
fyrstu mínútunum. Þeir náðu svo
að jafna á 59. mínútu. Dæmd var
hendi á markvörð Breiðbliks fyr-
ir utan teig og Þorsteinn Þor-
móðsson skoraði beint úr auka-
spyrnunni.
Eftir markið jafnaðist leikur-
inn en Blikar voru þó heldur
hættulegri og náðu að tryggja sér
sigurinn á síðustu mínútunum.
Þorsteinn Hilmarsson fékk þá
stungusendingu inn fyrir vörn
KS, línuvörðurinn lyfti flagginu
en lét það svo falla aftur og Þor-
steinn þakkaði fyrir sig með því
að skora sigurmarkið.
Leikurinn var opinn og
skemmtilegur en miðað við
færi hefði jafntefli ekki verið
ósanngjarnt. Sigurður Sigurjóns-
son var bestur KS-inga en Will-
um Þór Þórsson var bestur hjá
Blikum. Dómari var Egill Már
Markússon og var hann ekki
sannfærandi.
2. flokkur:
Slæm víka hjá norðlenskum liðum
Nokkrir leikir hafa farið fram í
2. flokki að undanförnu. KA
tapaði tvívegis í síðustu viku,
KS tapaði fyrir Aftureldingu á
fímmtudaginn og um helgina
töpuðu Þórsarar tvívegis fyrir
sunnan.
Sl. þriðjudag léku Fram og KA
í Reykjavík en leiknum var flýtt,
átti að fara fram 6. september.
Framarar höfðu mikla yfirburði
og sigruðu með sex mörkum gegn
engu.
Á fimmtudag mættu KA-menn
Breiðabliki á Menntaskólavellin-
um á Akureyri og töpuðu 2:3.
Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik
en Blikar nýttu færin og skoruðu
tvivegis.
f seinni hálfleik voru KA-
menn mun betri en náðu ekki að
minnka muninn fyrren 15 mínút-
ur voru til leiksloka en þá skoraði
Þórður Guðjónsson. Hann hafði
áður látið verja frá sér víta-
spyrnu. Blikar bættu þriðja
markinu við algerlega gegn gangi
leiksins en Þórður minnkaði
muninn fyrir leikslok. KA-menn
sóttu stíft í lokin en náðu ekki að
jafna.
Sama kvöld mættust Siglfirð-
ingar og Afturelding á Siglufirði
og sigruðu gestirnir 1:0. KS-ingar
voru meira með boltann í leikn-
um en Afturelding fékk betri
færi.
Á laugardaginn léku Þórsarar
við Breiðablik og töpuðu 1:3.
Blikar skoruðu tvívegis í fyrri
hálfleik en Steindór Gíslason
minnkaði muninn fyrir Þór í upp-
hafi seinni hálfleiks. Þórsarar
sóttu síðan án afláts en það voru
Blikar sem bættu þriðja markinu
við, algerlega gegn gangi leiksins.
Daginn eftir mættu Þórsarar
Frömuruni og biðu stóran ósigur,
5:0. Staðan var 1:0 þegar 20
mínútur voru eftir en í lokin
brotnaði Þórsliðið algerlega og
Framarar gengu á lagið. Með
þessum sigri tryggðu Framarar
sér íslandsmeistaratitilinn.
veru í deildinni.
Selfyssingar byrjuðu betur í
leiknum en Stólarnir lifnuðu
fljótlega við. Þeir náðu foryst-
unni á 17. mínútu þegar Guð-
brandur Guðbrandsson fékk
stungusendingu inn fyrir vörn
Selfoss, lék á Anton Hartmanns-
son markvörð og skoraði af
öryggi. Tindastóll sótti meira eft-
ir markið og fékk ágæt færi,
Hólmar Ástvaldsson átti t.a.m.
skot yfir mark Selfyssinga og
Guðbrandur átti skalla sem
Anton varði vel.
í seinni hálfleik jafnaðist
leikurinn og það voru ekki nema
5 mínútur liðnar þegar heima-
menn jöfnuðu. Páll Guðmunds-
son sendi þá stungusendingu á
Júgóslavann Porca sem skoraði
örugglega. Hann átti síðan aftur
á ferðinni í lokin en skaut yfir úr
góðu færi.
Tindastólsmenn börðust mjög
vel í leiknum og voru nær sigri
eins og fyrr segir. Sverrir Sverris-
son var mjög frískur og náðu
hann og Hólmar Ástvaldsson vel
saman á vængnum. Þá var Ólafur
Adólfsson traustur í vörninni og
Guðbrandur hættulegur frammi.
Hjá Selfyssingum voru Páll
Guðmundsson og Porca bestir.
Opna Sauðárkróksmótið í golfi:
Þórleifur fékk Amsterdamferðina
- metþátttaka og ágætur árangur
Metþátttaka var í opna Sauð-
árkróksmótinu í golfí um helg-
ina á Hlíðarendavelli. AIIs
voru 93 kylfíngar skráðir til
leiks og 87 luku keppni. Kylf-
ingarnir komu úr 10 golfklúbb-
um, en eðlilega voru Norð-
lendingar fjölmennastir. Akur-
eyskir kylfíngar voru sigursælir
í karla- og kvennaflokki. Þór-
leifur Karlsson stóð uppi sem
1. deild kvenna:
ÍA burstaði KA
IA vann stórsigur á KA þegar
liðin mættust í síðasta leik 1.
deildar kvenna á Menntaskóla-
vellinum á sunnudag. Lokatöl-
urnar urðu 7:1 eftir að staðan í
hléi var 4:0.
Leikurinn bar þess nokkur
merki að hann skipti engu máli
og virkaði KA-liðið áhugalaust.
ÍA liðið sótti mun meira allan
leikinn og var aldrei spurning
hvorum megin sigurinn myndi
lenda. Júlía Sigursteinsdóttir
skoraði þrjú mörk fyrir ÍA, Anna
Lilja Valsdóttir tvö og Sigurlín
Jónsdóttir og Elín Davíðsdóttir
eitt hvor. Linda Hersteinsdóttir
skoraði mark KA.
2. deild kvenna:
KS tapaði
báðum leikjunum
Úrslitakeppni 2. deildar
kvenna fór fram í Vestmanna-
eyjum um helgina. KS frá
Siglufírði átti lið í keppninni og
töpuðu þær báðum leikjum
sínum.
Fyrri leikur KS var gegn Þrótti
N. og sigraði Þróttur 3:1. Sigur-
björg Elíasdóttir skoraði mark
KS. Daginn eftir léku KS-ingar
við Tý og töpuðu 0:4.
Þróttarar urðu sigurvegarar í
deildirini en liðið sigraði Tý 3:1.
Eins og áður hefur komið fram
í blaðinu hefur enn ekki verið
ákveðið hversu mörg lið verða í
1. deild að ári og þ.a.l. ekki
hversu mörg fara upp. Er þó ekki
búist við að KS leiki í 1. deild.
Úrslitakeppni 4. deildar:
Magni byijaði á sigri
Magni sigraði Gróttu 4:3 í
fyrstu umferð úrslitakeppni 4.
deildar Islandsmótsins í knatt-
spyrnu á laugardaginn. Leikur-
inn, sem fram fór á Grenivík,
var fjörugur og fyrir utan 7
mörk sem voru skoruð var
rauða spjaldið tvisvar á lofti.
Gróttumenn byrjuðu af krafti
og sóttu meira en án færa. Á 30.
mínútu fékk einn leikmanna liðs-
ins að líta rauða spjaldið og í
framhaldi af því skoruðu þeir
tvívegis. Bæði mörkin voru af
ódýrari gerðinni en þau gerðu
Sverrir Herbertsson og Gísli
Jónasson.
í seinni hálfleik skaut Kristján
Kristjánsson, þjálfari Magna,
þrumuskoti að Gróttumarkinu
sem markvörðurinn varði en hélt
ekki og Bjarni Áskelsson náði
boltanum og skoraði. Magna-
menn sóttu nær látlaust en þrátt
fyrir það náði Sverrir Herberts-
son að bæta þriðja marki Gróttu
við eftir skyndisókn.
Magnamenn minnkuðu strax
muninn eftir að Kristján átti skot
í stöngina úr aukaspyrnu og bolt-
inn barst til Ingólfs Ásgeirssonar
sem skoraði. Ingólfur var aftur á
ferðinni skömmu síðar og jafnaði
með rosalegu skoti í vinkilinn.
Kristján Kristjánsson átti svo síð-
asta orðið þegar hann skoraði
glæsimark með viðstöðulausi
skoti í bláhornið, en áður hafði
annar Gróttumaður fengið að líta
rauða spaldið.
Sigur Magnamanna var
sanngjarn og voru þeir nær því að
bæta við mörkum í lokin en
Gróttumenn að jafna.
sigurvegari í karlaflokki eftir
mjög svo spennandi keppni og
Árný L. Árnadóttir sigraði í
kvennaflokki. Sveinn Bjarna-
son GH varð hlutskarpastur
unglinga.
Veðurguðir voru kylfingum
ekki til armæðu á Hlíðarenda-
velli um helgina, ef undan eru
skildar regnslettur síðustu þrjá
klukkutímana. Ágætis árangur
náðist hjá keppendum, sér í lagi
á laugardag.
í karlaflokki luku 63 kylfingar
keppni. Þar var mikil spenna á
toppnum og úrslit réðust ekki
fyrr en í síðustu höggum. I
kvennaflokki voru 9 keppendur
og 15 í unglingaflokki. Eini
bráðabani mótsins var um þriðja
sætið í unglingaflokki. Þar hafði
Auðunn Einarsson GÍ betur í
viðureign við Guðjón B. Gunn-
arsson GSS.
Styrktaraðilar Sauðárkróks-
mótsins voru OLÍS og Bókabúð
Brynjars á Sauðárkróki. Gefend-
ur aukaverðlauna voru Ylrún,
Golfbúð Davids Barnwells, Sauð-
árkróksbær, Flugleiðir, fslensk-
ameríska og Mjólkursamlag
Skagfirðinga. Næst holu á 3.
braut bæði laugardag og sunnu-
dag var Örn Arnarsson GA.
Næst holu á 6. braut á laugardag
var Árný L. Árnadóttir GA og á
sömu braut á sunnudag var Val-
gerður Sverrisdóttir GSS næst
holu. Fæst pútt notaði Magnús
Hreiðarsson GH í karlaflokki,
Jónína Pálsdóttir GA í kvenna-
flokki og Sveinn Bjarnason GH í
unglingaflokki. Lengsta upphafs-
högg á 9. braut átti Sigurður H.
Ringsted GA. Þá fékk Atli Björn
Þorbjörnsson GSS 5 kílóa ost frá
Mjólkursamlaginu fyrir að fara 8.
braut á flestum höggum! Aðal-
verðlaun mótsins hlaut síðan
Þórleifur Karlsson, eða ferð til
Amsterdam með Arnarflugi.
Úrslit Sauðárkróksmótsins í
golfi urðu þessi:
Karlaflokkur án forgjafar högg
1. Þórleifur Karlsson GA 155
2. Sigurpáil Sveinsson GA 156
3. Björn Axelsson GA 157
Karlaflokkur með forgjöf
1. Þröstur Sigvaldason GÓ 125
2. Sigurður Hreinsson GH 133
3. Jón Jóhannsson GÓ 136
Kvennaflokkur án forgjafar
1. Árný L. Árnadóttir GA 175
2. Jónína Pálsdóttir GA 177
3. Andrea Ásgrímsdóttir GA 182
Kvennaflokkur með forgjöf
1. Jónína Pálsdóttir GA 145
2. Valgerður Sverrisd. GSS 150
3. Árný L. Árnadóttir GA 151
Unglingaflokkur án forgjafar
1. Sveinn Bjarnason GH 164
2. Halldór Halldórsson GSS 166
3. Auðunn Einarsson GÍ 170
4. Guðjón B. Gunnarsson GSS 170
Unglingaflokkur með forgjöf
1. Ásgeir Gunnarsson GÖ
2. Þorsteinn Jónsson GSS
3. Steinþór Karlsson GSk
Vcrðlaunahafar á Sauðárkróksmótinu samankomnir fyrir utan Hlíðarendaskála, hlaðnir verðlaunagripum.
Mynd: -bjh
2. deild
Fylkir-Víðir 1:4
KS-UBK 1:2
ÍBK-Grindavík 2:1
Leiftur-ÍR 0:1
Selfoss-Tindastóll 1:1
Víðir 15 10-4-1 30:16 34
Fylkir 15 9-2-4 32:16 29
ÚBK 15 7-4-4 19:13 25
ÍBK 15 7-2-6 15:15 23
ÍK 15 7-1-7 17:21 22
Selfoss 15 6-3-6 31:25 21
Tindastóll 15 5-3-7 17:24 18
Grindavík 15 4-2-9 16:29 14
Leiftur 15 3-4-8 12:21 13
KS 15 4-1-10 17:27 13
Markahæstir:
Kristinn Tómasson, Fylki 11
Grétar Einarsson, Víði 10
Salih Porca, Selfossi 10
Guðbrandur Guðbrundsson, Tindastól 8
l/.udin Dervic, Selfossi 8
3. deild
Þróttur R.-ÍK 3:1
Haukar-Völsungur 4:0
Þróttur N.-Einherji 4:3
Dalvík-TBA 8:0
BÍ-Reyuir 1:0
Þróttur R. 16 14-1- 1 50:13 43
Haukur 16 12-1 - 3 39:17 37
ÍK 16 11-1 - 4 39:24 34
Dalvík 16 7-2 - 7 36:25 23
Þróttur N. 16 7-2 - 7 46:36 23
Völsungur 16 5-5 - 6 24:26 20
Revnir 16 6-2 - 8 28:35 20
BÍ 16 5-2 - 9 28:34 17
Einherji 16 2-4-10 25:42 10
TBA 16 1-0-15 11:78 3
Markahæstir:
Jóhann Ævarsson, BÍ 16
Olafur Viggósson, Þrótti N. 12
Sigurður Hallvarðsson, Þrótti R. 12
Þráinn Haraldsson, í»rótti N. 12
Garðar Níelsson, Reyni 10
Júlíus ÞorHnnsson, ÍK 10
Óskar Óskarsson, Þrótti R. 10
4. deild
- úrslitakeppni
1. uniferð:
Magni-Grótta 4:3
Hvöt-Víkverji 4:1
Sindri-Skallagriniur 1:2
Hvöt 1 1-0-0 4:1 3
Magni 1 1-0-0 4:3 3
Skallagrímur 1 1-0-0 2:1 3
Grótta 1 0-0-1 3:4 0
Sindri l 0-0-1 1:2 0
Víkverji 1 0-0-1 1:4 0
Allir sem 1 = íþróttavörubúð fyrir alla aldurshópa.
Allir sem 1
Ný íþróttavöruverslun
að Strandgötu 6
Mikið úrval af göllum á börn og fullorðna.
Rucanor innanhússkórnir komnir.
Nike Air utanhússkór.
Bolir og stuttbuxur í miklu úrvali.
Adidas snyrtivörur fyrir dömur og herra.
Opið kl. 9.30 til 18.00 - Laugardaga kl. 10.30 til 12.30.
AHir sem 1
Strandgötu 6 * Akureyri • Sími 27771
Allir sem 1 = íþróttavörubúð fyrir alla aldurshópa.