Dagur - 28.08.1990, Page 16

Dagur - 28.08.1990, Page 16
Kodak Express Gæóaframköllun ★ Tryggðu filmunni þinni Jbesta ^Pedíomyndir \» Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324. ..................................... Jökulsá á Fjöllum: MMvægari markalína en áður vegna sauðfjárveikivama Jökulsá á Fjöllum hefur veriö markalína fyrir sauöfjárveiki- varnir í Þingeyjarsýslum og eftir að ákveðið var að slátra á Kópaskeri í haust verður sú lína enn mikilvægari en áður. Mikill áhugi er fyrir því hjá bændum á svæðinu að fé verði ekki flutt yfir ána til slátrunar, þannig að sauðfé vestan Jökuls- ár fari ekki til Kópaskers og sauðfé austan árinnar fari ekki til Húsavíkur til slátrunar. Sigurður Sigurðarson, dýra- læknir á Keldum og sérfræðingur í sauðfjárveikivörnum, fundaði nýlega með bændum beggja vegna Jökulsár þar sem flutningur á sauðfé vegna kaupa eða til slátr- unar bar m.a. á góma. „Með til- liti til smitsjúkdóma finnst mér skynsamlegt að halda sig við Jökulsá á Fjöllum og hafa þá markalínu sem allra virkasta. Það styrkir línuna mjög að þurfa ekki að flytja fé yfir ána til slátr- unar,“ sagði Sigurður í samtali við blaðið. Sigurður sagði að flutningur á lifandi fé yfir varnarlínur væri óheimill án sérstaks leyfis, hvort heldur er vegna fjárskipta eða til slátrunar. Svæðið austaii Jökuls- ár á Fjöllum hefur sloppið við riðuveiki, ef undan eru talin til- felli í Jökuldalshreppi og Hlíðar- hreppi norðan Jökulsár á Brú fyr- ir 10 árum. Vestan við Jökulsá á Fjöllum kom sl. vetur upp eitt riðutilfelli í Aðaldal og ekki eru mörg ár síðan riða var nokkuð útbreidd í Kelduhverfi. -bjb Fiskiðjusamlagið á Húsavík: Kannar kaup á Sæborgu Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf. hefur að undanförnu verið að leita eftir bát til kaups, og m.a. munu óformlegar viðræður eða samningaumleitanir hafa farið fram um kaup á bát frá Eyrarbakka seint í júlímánuði Tryggvi Finnsson fram- kvæmdastjóri segir að ekkert hafi Sjallinn: Orðrómur um lokun ósannur enn gerst í þessum málum en segja megi að ýmislegt sé í skoð- un og öll spjót úti í bátakaupa- málum. Samningaumleitanir hafa staðið yfir að undanförnu milli Fiskiðjusamlagsins og Aðalsteins Karlssonar, eiganda Sæborgar ÞH-55 um hugsanleg kaup Fisk- iðjusamlagsins á bátnum. Aðalsteinn Karlsson segir það í deiglunni að selja bátinn en hugmyndir þar að lútandi séu á algjöru byrjunarstigi, en vissu- lega hafi hann rætt við Fiskiðju- samlagið um möguleika á því að hún keypti bátinn. Aðalsteinn segist ekki ætla að kaupa annan bát, hann sé einfaldlega að hætta í útgerð. Sæborg er 40 tonna eik- arbátur, og er kvóti bátsins ríf- lega 240 þorskígildi. GG Vígsla sundlaugarinnar á Grenivík: „Ég vildi að ég væri aðeins yngri“ „Ég vildi að ég væri aöeins yngri,k‘ sagði hinn síungi átta- tíu og eins árs gamli Jóhann Stefánsson, eftir að hafa synt fyrsta sprettinn í nýju sund- lauginni á Grenivík, sem formlega var vígð sl. laugar- dag að viðstöddu miklu fjöl- menni. Vígslu sundlaugarinnar var skotið inn í dagskrá Magna- dagsins, sem má segja að hafi verið fyrsti liður í 75 ára afmælis- hátíö félagsins. Magni hélt ríku- lega upp á daginn með sigri á Gróttu í úrslitakeppni fjórðu deildar og síðan leiddu saman hesta sína Old boys lið heima- manna og Þórs frá Akureyri. Grýtubakkahreppur bauð við- stöddum upp á kaffiveitingar að leikjunum loknum og að því búnu var sundlaugin formlega vígð, eins og áður segir. Magna- deginum lauk með veglegum dansleik. Að sögn Guðnýjar Sverris- dóttur, sveitarstjóra Grýtu- bakkahrepps, verður nýja sund- laugin opin þessa viku frá kl. 10-12 og 15-20. Ekki hefur verið ákveðið hvenær laugin verði opin frá 1. september nk. óþh Dagvistir Akureyrarbæjar: Ófaglært fólk er sólgið í - betra ástand í fóstrumálum en oft áður I kjölfarið á því að Sjailinn hefur verið auglýstur til sölu hafa ýmsar sögur komist á kreik um rekstur hans. Um nýliðna helgi gekk það fjöllun- um hærra á Akureyri að Sjall- inn yrði lokaður í vetur að miklu eða öllu leyti. Sigurður Thorarensen framkvæmdastjóri segir þetta vera alrangt. Sjall- inn verði rekinn af fullum krafti í vetur. „Ég var að heyra þetta líka. Starfsfólk hefur verið að koma til mín og spyrja hvort þetta er rétt. Það væri auðvitað fráleitt að loka Sjallanum nú þegar helsti keppi- nauturinn hefur hætt störfum í bili a.m.k. og ég get fullvissað fólk um að Sjallinn verður á fullu í vetur,“ sagði Sigurður. Sigurður segir að þetta sé ekki eina kjaftasagan sem hann hafi heyrt að undanförnu um sín mál og Sjallans. Meðal annars hafi hann heyrt að hann hafi keypt Sjallann en líka að hann væri hættur í Sjallanum og fluttur suður. „Þetta er allt rangt,“ sagði hann. Hann sagði ennfremur að sér vitanlega hefðu engin kauptil- boð borist í Sjallann ennþá. ET Árviss fóstruskortur hrellir höfuðborgarbúa um þessar mundir en á Akureyri virðist það ekki erfiðleikum bundið að fá fóstrur til starfa og er Róleg helgi var hjá lögreglu- mönnum á Norðurlandi vestra. Keyrt var á hross í Hrútafirði og maður fótbrotnaði við að falla ofan af toppi vöruflutn- ingabfls á Sauðárkróki. Dans- leikir og tónleikar voru haldnir, en allt fór vel fram. Að morgni laugardags var ver- staðan í þessum málum betri en undanfarin ár. Þó má segja að ef allar stöður við dagvistir bæjarins ættu að vera full- skipaðar þá væri hægt að bæta ið að losa vörur úr flutningabíl frá Magnúsi Svavarssyni úti á bryggjunni við Sauðárkrókshöfn og maður sem var uppi á toppi bílsins féll niður af honum og brotnaði við það á báðum fótum. Hann var fluttur á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri. Keyrt var á hross á þjóðvegi hátt í 10 fóstrum við. Þessar upplýsingar fengust hjá Sigríði M. Jóhannssdóttur, dag- vistarfulltrúa. Hún var tiltölulega ánægð með stöðuna í dag, fóstru- númer eitt nálægt Reykjaskóla í Hrútafirði um helgina og drapst það við áreksturinn. Bíllinn skemmdist mikið en meiðsl á fólki urðu engin. Þetta er fjórða umferðaróhappið sem á sér stað nálægt Reykjum í sumar og vor að sögn lögreglunnar á Blöndu- ósi. SBG Sauðárkrókur: Maður brotnaði á báðum fótum Norðurland eystra: Enn óráðið í aJlt að 10 stöður kennara - staðan svipuð og undanfarin ár Staðan í kennararáðningum til skóla á Norðurlandi eystra um þessar mundir er mjög svipuð og undanfarin ár. Reiknað er með að nú vanti um 10 kennara til starfa. Hlutfall á milli rétt- indakennara og leiðbeinenda hefur ekki breyst mikið. Helst er það í smærri skólum í Þing- eyjarsýslum sem vantar kenn- ara. Katrín Ragnarsdóttir, fulltrúi hjá Fræðsluskrifstofu Norður- lands eystra, sagði í samtali við blaðið að erfitt væri að segja nákvæmlega til um hvað vanti marga kennara í kjördæmið þar sem umsóknir liggja hjá skóla- nefndum. Katrín sagðist reikna með að vanti í kringum 10 kennara. Hlutfallslega er mest af rétt- indakennurum á svæðinu starf- andi á Akureyri og síðan fer hlut- fallið minnkandi eftir því sem fjær dregur, einkum austast í kjördæminu. Katrín sagði að yfirleitt væru réttindakennarar búnir að ráða sig til starfa þannig að þar til skólar hefjast verða það aðallega leiðbeinendur sem verða ráðnir. Eins og kom fram í blaðinu sl. laugardag þá er óvenjuntikið um barnsburðarleyfi hjá fastráðnum kennurum á Akureyri en aðspurð sagði Katrín að það virtist vera eini staðurinn á Norðurlandi eystra sem svo væri ástatt um. „Þannig er staðan núna, eins og við best vitum, en það er aldrei að vita nema að hún breytist," sagði Katrín. -bjb vinnu menntaðir forstöðumenn eru á öllum dagvistum og hvergi er bagalegur fóstruskortur. í sumar hafa sex nýjar fóstrur tekið til starfa á Akureyri. „Ástandið hér er betra en oft áður, en það má náttúrlega ekki mikið út af bera og ef eitthvað verður um forföll þá gætum við lent í erfiðleikum. Hins vegar er enginn skortur á ófaglærðu starfs- fólki sem vill vinna hjá okkur og við erum með óheyrilegan bið- lista af fólki sem sækir um vinnu," sagði Sigríður. Hún taldi að þessi aukna ásókn í störf á dagvistum bæjarins endurspeglaði atvinnuástandið almennt. Laun ófaglærðs starfs- fólks hafa a.m.k. ekki verið talin sérstaklega há þannig að skýring- in er varlafólgin í þeim þætti. SS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.