Dagur - 19.09.1990, Page 1

Dagur - 19.09.1990, Page 1
Eyjaijörður: Kartöflubændur kepptust við að taka upp í hríðinni uppskeran sögð með allra mesta móti „Við erum að taka upp í dag og það gengur ennþá, en um leið og kemur einhver snjór að ráði ganga vélar ekki yfir og ekkert hægt að gera. Við erum með það stórar og þungar vél- ar að ef garðarnir blotna að ráði ganga þær ekkert um þá,“ sagði Finnur Sigurgeirsson hjá kartöflufyrirtækinu Öngli hf. á Staðarhóli í Öngulsstaðahreppi í samtali við Dag í gær. Norðanhretið í fyrrinótt kont kartöflubændum sem öðrum opna skjöidu. Samkvæmt upplýs- ingum Dags eru kartöflubændur við Eyjafjörð mjög misjafnlega langt á veg komnir með að taka upp. Sumir eru ekki nema rétt byrjaðir að taka upp, en aðrir komnir vel á veg og jafnvel búnir. Eiríkur Sigfússon á Síla- stöðum í Glæsibæjarhreppi sagði að þar á bæ væri kartöfluupptaka iangt komin. Hann sagði að út af fyrir sig væri snjórinn ekki albölvaður því hann myndi hlífa grösunum fyrir frostinu næstu sólarhringa, ef á annað borð færi að frjósa. Þeim Finni og Eiríki bar saman um að uppskeran væri með almesta móti í ár. Eiríkur taldi að hægt væri að bera þetta haust saman við haustið 1984, sem er með allra bestu kartöflusprettu- árum. Finnur sagðist reikna með að hjá Öngli yrðu tekin upp um 300 tonn í haust og uppskeran væri á að giska fimmtán- til sextánföld. óþh Einar Bendiktsson hjá Síldarútvegsnefnd um síldarsölusamninga við Sovétmenn: „Verður sjálfsagt tvísýnna en oft áður“ - síldarvertíðin hefst 7. okt. og verður 1100 tonna kvóti á bát „Þetta verður sjálfsagt tví- sýnna en nokkru sinni áður,“ sagði Einar Benediktsson, hjá Síldarútvegsnefnd þegar Dag- ur innti hann eftir gangi við- ræðna við Sovétmenn um kaup á saltsíld. Einar sagði að full- trúar Síldarútvegsnefndar hafi hitt fulltrúa sovésku síldar- kaupendanna nýverið, en ekk- ert hafi þar skýrst frekar með kaup á saltsíld héðan. Hann sagði ómögulegt að segja fyrir um árangur samningaviðræðn- anna, en ætla mætti að ekki yrði síður erfitt að ná samning- um við Sovétmenn í ár en í fyrra. Síldarsölusamningar við Sovétmenn náðust þann 23. nóvember í fyrra eftir mikið og strangt samningaþóf. Einnig náð- ust viðbótarsamningar um sölu á 50 þúsund tunnum af saltsíld um jólaleytið og upp í þann kvóta verður byrjað að salta á þessari vertíð, sem hefjast mun 7. októ- ber nk. Þær upplýsingar fengust í sjáv- arútvegsráðuneytinu að ákveðinn hefði verið sami kvóti á hvern bát og í fyrra, eða 1100 tonn, og munu tæplega 90 bátar fá úthlut- að kvóta. Á þessari vertíð verður tekin upp sú nýbreytni að úthluta ákveðnum söltunarkvóta á hverja vinnslustöð. Söltunar- stöðvarnar hafa komið sér saman um að hafa þennan háttinn á í ár til þess að fyrirbyggja að barist verði um hráefnið í jafn miklum mæli og á síðustu vertíð. Þessa dagana er verið að útfæra reglur fyrir úthlutun vinnslukvóta og er búist við að hann liggi fyrir á næstu dögum. Einar Benediktsson sagði að þessa dagana væru að berast leyf- isumsóknir frá saltendum. Þeir voru 44 að tölu í fyrra og bjóst Einar við að fjöldinn yrði svipað- ur í ár. Engin síldarsöltun verður á Norðurlandi í haust fremur en á sl. hausti og verður Vopnafjörð- ur nyrsta söltunarstöðin fyrir austan. Að sögn Einars er nú unnið að því að ganga frá samningum um sölu á saltsíld til Norðurland- anna, Finnlands, Svíþjóðar og Danmerkur. Undanfarin ár hefur verið seld saltsíld á þennan markað, þó í litlum mæli sé. í fyrra voru seldar 150 þúsund tunnur af saltsíld til Sovétríkj- anna og því liggur nú þegar fyrir samningur um sölu á þriðjungi af því magni. óþh Busavígsla í Verkmenntaskólanum fór fram í snjókomu í Kjarnaskógi í gær. Mynd: Golli íslenska sjávarútvegssýningin hefst í dag: 450 aðilar frá 21 landi taka þátt - af 69 íslenskum fyrirtækjum eru 6 af Norðurlandi Islenska sjávarútvegssýningin hefst í dag í Laugardalshöllinni og stendur fram á sunnudag. Þetta er í þriðja skiptið sem sýning af þessu tagi er haldin í Reykjavík og hafa þátttakend- ur aldrei verið fleiri eða 450 frá 21 landi. Alls taka 69 íslenskir aðilar þátt í sýningunni þar af 6 norðlensk fyrirtæki. Bæjarstjórn Akureyrar: Tillaga um að lagfæra Iðavelli Öxnadalsheiði rudd í gær Færð þyngdist í gær á nokkr- um Qallvegum á Norðurlandi og á Öxnadalsheiði unnu Vegagerðarmenn að mokstri í gær. Veður var slæmt á Öxna- dalsheiði og í Öxnadal og setti töluverðan snjó á veginn, einkum í Bakkaselsbrekkuna. Þá var þar mikil hálka og ráð- lögöu vegaeftirlitsmenn veg- farendum að fara mjög var- lega. Færð var tekin að þyngjast í gær í bæði Ólafsfjarðarmúla og á Lágheiði. Um miðjan dag í gær var þar ckki talið fært fyrir fólksbíla. óþh Málefni leikskólans Iðavalla komu til umræðu á fundi í bæjarstjórn Akureyrar í gær. Það álit kom fram hjá nokkr- um bæjarfulltrúum að fljót- færni hefði gætt þegar ákvörð- un var tekin um að loka leik- skólanum í sumar. Sigurður J. Sigurðsson reifaði málefni leikskólans og sagði að engar endanlegar ákvarðanir hefðu enn verið teknar í málinu. Gísli Bragi Hjartarson flutti þá tillögu ásamt Ulfhildi Rögnvalds- dóttur um að bæjarstjórn sam- þykkti að veita þegar í stað fjár- magni til þess að endurnýja og gera við Iðavelli, samkvæmt kostnaðaráætlun Ágústs Berg, en hún hljóðar upp á 2,8 milljón- ir króna. Auk þess kostaði um 600 þús. að gera við þakið. Hönnunarkostnaður yrði sparað- ur með því að fela iðnaðarmönn- um að gera við húsið samkvæmt forskrift, auk þess sem Itúsið myndi nýtast næstu árin. Gísli Bragi og Úlfhildur sögðu aðalatriði málsins hafa gleymst; nauðsyn þess að fjölga dagvist- arplássum í bænum. Þórarinn E. Sveinsson tók undir þetta, og Sigurður J. Sigurðsson kvaðst einnig vera efnislega sammála til- lögunni. Henni var vísað til bæjarráðs. EHB Hólanes hf. á Skagaströnd: Kaupir bát með rækjukvóta Nýr bátur er væntanlegur til Skagastrandar í dag. Fyrirtæk- iö Hólanes hf. festi nýlega kaup á bátnum af fyrirtækinu Skinney hf. á Hornafirði. Þetta er 103 tonna bátur, útbúinn sem almennur vertíð- arbátur og er ekki búið að taka ákvörðun um hvaða veiðum hann sinnir. Haukafell SF 40 heitir hann, en að sögn Lárusar Guðmunds- sonar, framkvæmdastjóra Hóla- ness, mun nafninu trúlega verða hreytt fljótlega. Rækjukvóti er á bátnum og Lárus sagði aö svo gæti farið að sá rækjukvóti sem Hólanes á fyrir á öðrum báti verði fluttur yfir á þennan. Kaupin hafa ekki farið hátt og Lárus vildi ekki gefa kaupverðið upp þegar Dagur talaði við hann í gær. Menn frá Hólanesi fóru austur á Hornafjörð til að ná í bátinn og von var á þeim til hafn- ar á Skagaströnd að morgni þessa dags. SBG Islenska sjávarútvegssýningin hefst með opnunarathöfn kl. 9.30 þar sem meðal annars verða við- stödd frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti ísiands, Halldór Ásgríms- son, sjávarútvegsráðherra og Davíð Oddsson, borgarstjóri Reykjavíkur. Sýningin sjálf hefst kl. 10 alla þá daga sem hún stend- ur yfir og stendur til kl. 18.00 um kvöldið. Sýningunni lýkur á sunnudaginn eins og áður sagði. Aðstandendur sýningarinnar héldu blaðamannafund í gær og þar kom fram að von er á 16000 sýningargestum þar af 1000 erlendis frá. John Legate, for- stjóri íslensku sjávarútvegssýn- ingarinnar sagðist eiga von á vel- heppnaðri sýningu enda hafi undirbúningur gengið mjög vel. Boðið verður uppá meiri þjón- ustu við sýnendur og gesti en áður og má þar nefna póst- afgreiðslu, bankaviðskipti með gjaldeyri, góða veitingaaðstöðu og fleira. Á meðan sýningin stendur yfir verða ýmsar uppákomur. Má þar nefna kynningu og fyrirlestra á vegum verkefnisins Virkni, Hag- ræðingarfélags íslands og Út- flutningsráðs. Þau norðlensku fyrirtæki sem taka þátt í sýningunni eru Trefja- plast frá Blönduósi, Sæplast frá Dalvík og frá Akureyri eru DNG, Vélsmiðjan Oddi, Hafspil og Slippstöðin hf. -bjb

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.