Dagur - 19.09.1990, Side 12
BYGGINGAVÖRUR LÓNSBAKKA
Akureyri, miðvikudagur 19. september 1990
Bifhjólaslys á Akureyri:
Hjólið lenti á tveimur
gangandi piltum
LEIÐIN ERGREIÐ!
Seint á mánudagskvöld missti
ökumaöur bifhjóls vald á öku-
tæki sínu á Akureyri, meö
þeim afleiðingum að hann ók á
tvo sextán ára pilta, sem voru á
leið yfir Kaupvangsstræti. Þeir
slösuðust báðir, og annar
þeirra beinbrotnaði illa.
Ingimar Skjóldal, varðstjóri,
segir að atvikið hafi orðið rétt
fyrir klukkan 23.00. Bifhjóli var,
að sögn sjónarvotta, ekið á mikl-
um hraða upp Kaupvangsstræti.
Ökumaðurinn fór framúr tveim-
ur bifreiðum, og lenti að því
búnu á tveimur gangandi vegfar-
endum sem voru á leið yfir göt-
una. Þeir voru fluttir á Fjórð-
ungssjúkrahúsið til rannsóknar,
og reyndist annar mjaðmargrind-
arbrotinn. en hinn var minna
slasaður. Ökumaður bifhjólsins
marðist, en slapp við alvarlegri
áverka.
Biflijólið lenti ekki á bílunum
sem ekið var framúr. Sjónarvott-
ar að slysi þessu vitna að hjólið
hafi verið á miklurn hraða, enda
kastaðist það tugi metra upp eftir
götunni, sem er mjög brött á
þessum stað, eftir að ökumaður-
inn féll af því. EHB
Félagsstofnun stúdenta á Akureyri:
Sækir um lán til bygg-
ingar námsmannaíbúða
óvíst hversu margar verða byggðar
Stjórn Félagsstofnunar stúdenta
á Akureyri hyggst sækja um
lán til Húsnæðisstofnunar
ríkisins til byggingar náms-
mannaíbúða á næsta ári, en
umsóknarfrestur rennur út 1.
október nk.
Sigurður P. Sigmundsson, for-
maður stjórnar Félagsstofnunar.
segir að þrátt fyrir að Félags-
stofnun sæki um lán til Húsnæðis-
stofnunar sé óvíst hversu stórtæk
stofnunin verði í byggingji náms-
mannaíbúða á næsta ári. Pað fari
allt eftir ástandi húsnæðismark-
aðarins á Akureyri á næsta ári.
Verði nægilegt framboð haldi
menn að sér höndum og byggi
hugsanlega eitt 4-5 íbúða hús. en
3-4 slík hús ef mikil þörf verði
fyrir húsnæði.
Sigurður segir það mat for-
svarsmanna Félagsstofnunar og
Háskólans á Akureyri að á næstu
árum verði aukin þörf fyrir hús-
næði fyrir nemendur háskólans.
Til rnarks um það nefnir hann að
nemendur skólans í vetur séu um
120 en 80 á síðasta ári. óþh
Jón Óðinn Óöinsson og sonur að koma sér fyrir í nýju íbúðinni.
Mvnd: Golli
Helgamargrastræti 53:
Fyrstu íbúamir fluttir inn
Fyrstu íbúarnir eru fluttir inn
í íbúðir sínar að Helgamagra-
stræti 53, „Grænu blokkina,“
en í húsi þessu eru 22 íbúðir.
Tíu eru seldar á almennum
kaupleigusamningi, fimm á
félagslegum kaupleigusamn-
ingi og sjö á frjálsum mark-
aði. Byggingasaga húsins er
orðin nokkuð sérstæð.
„Við erum loksins flutt inn,
en afhending íbúðarinnar hefur
dregist verulega," sagði Jón
Óðinn Óðinsson, lögreglumað-
ur. en hann er nýfluttur inn með
fjölskyldu sína, nýkvæntur.
Að sögn Jóns er íbúðin björt
og hin vistlegasta í alla staði og
fjölskyldan mjög ánægð yfir að
vera flutt inn. „Og ekki sakar
að stutt er í vinnuna," sagði
Jón. ój
Álafoss hf. heldur áfram að tapa:
Skuldimar á þriðja hundrað milljónir umfram eignir
A aðalfundi Alafoss hf., sem
haldinn var á mánudag, kom
fram að fyrirtækið hefði tapað
um tveimur milljörðum króna
á þeim þrjátíu mánuðum sem
Unnið að nýjungum og markaðssetningu
á Sjávarnasli:
Fiskmar í samstarf
við breska aðila
„Rangt er að við séum hættir
störfum og framleiðslu á Sjáv-
arnasli,11 sagði Sigurður Björns-
Snjókoma á
Norðurlandi
í gærmorgun vöknuðu íbúar á
Norðurlandi við að fyrsti snjór
haustsins hafði fallið um nótt-
ina. í gær var slydda eða
snjókoma á öllum norðurhluta
landsins, frá Húnaflóa austur á
Langanes.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu fslands á vindur að
snúast til norðvestlægrar áttar
sem á að haldast í dag. Úrkomu-
lausu veðri er spáð næsta sólar-
hringinn á Norðurlandi, og vind-
ur verður hægur. Áfram mun
verða fremur kalt í veðri. EHB
son, framkvæmdastjóri Fisk-
mar í Olafsfirði, en nú er unnið
að nýjungum og markaðssetn-
ingu hjá fyrirtækinu.
„Rétt er að Sjávarnaslið var
tekið af markaðinum á Reykja-
víkursvæðinu fyrr á árinu, en síð-
an höfum við unnið að frekari
þróun á framleiðslunni jafnt sem
við höfum verið að leita markaða
á erlendri grundu. Markaðshlut-
deild Sjávarnaslsins á íslandi var
10% og okkur þótti hún ekki
nægileg og þvt var farið í að finna
ný bragðefni og þróa vöruna.
Markaðsfræðingur er í fullu starfi
hjá Fiskmar og við höfum verið í
viðræðum við erlenda söluaðila í
Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakk-
landi og Japan og nú er ákveðið
að hefja samstarf við bresku aðil-
ana. Þessi framleiðsla er nýmæli
og hana þarf að þróa og auglýsa
og ég efast ekki um að við náum
árangri," sagði Sigurður. ój
liðnir eru frá samruna Iðnaðar-
deildar Sambandsins og gamla
Álafoss í eitt fyrirtæki. Eigið fé
Álafoss hf. var neikvætt um
267 milljónir króna um ára-
mótin, og staða fyrirtækisins
því ekki góð.
Framkvæmdasjóður íslands og
Sambandið eiga Álafoss sameig-
inlega. Eignirnar voru metnar á
2,1 milljarð króna um áramót,
en skuldir fyrirtækisins voru þá á
þriðju hundrað milljón umfram
eignir.
Tap Álafoss fyrstu sex mánuði
þessa árs er mun minna en var á
sama tíma í fyrra, og bendir til að
nokkuð hafi áunnist við að rétta
stöðuna. Þó var tapið 165 millj-
ónir króna frá 1. janúar til loka
júnímánaðar í ár, en á sama
tímabili í fyrra var hallinn 391
milljón kr. Heildartap Álafoss
árið 1989 varð 747 milljónir.
Til að sporna við hallarekstrin-
um hefur verið gripið til margvís-
legra aðhaldsaðgerða undanfarin
tvö ár. Starfsfólki hefur fækkað,
skuldbreytingar hafa farið fram
og þær eignir seldar eða settar á
söluskrá sem ekki hefur verið
þörf á vegna rekstursins. í bígerð
er að lánadrottnar yfirtaki fast-
eignir fyrir um hálfan milljarð
króna upp í skuldir næstu mán-
uðina.
Mikið af viðskiptum Álafoss
hefur farið fram í formi vöru-
skipta við Sovétríkin undanfarin
ár. Sovétmenn eru stærsta við-
skiptaþjóð Álafoss, en vegna
vaxandi erfiðleika í efnahagslífi
sovétlýðveldanna hafa greiðslur
fyrir ullarvörur dregist nokkuð.
Einnig er ljóst að viðskiptin við
Sovétríkin verða talsvert minni
en gert var ráð fyrir í fyrra. Fall
bandaríkjadollars hefur auk þess
gert sitt til að auka tapið hjá
Álafossi á þessu ári, þar sem
samið er um greiðslur í þeirri
mynt við Sovétmenn. EHB
99
Náttúrugripasafnið á Akureyri:
Óskaplega lítið og þröngt
- aðsókn eykst stöðugt milli ára
Aösókn að Náttúrugripasafn-
inu á Akureyri hefur á síðustu
þremur árum aukist um 20-
30% milli ára, en miðað við
aðsóknina það sem af er þessu
ári virðist aukningin ætla að
verða um 10% frá síðasta ári.
Hörður Kristinsson, forstöðu-
maður Náttúrufræðistofnunar
Norðurlands, sagði að á árinu
1989 hefðu 4480 gestir komið á
Náttúrugripasafnið en 4691 hafa
komið í heimsókn á þessu ári,
eða fram til 15. september. Þessi
aukna aðsókn á síðustu árum
hefur m.a. verið skýrð með rýmri
opnunartíma safnsins svo og
fjölgun ferðamanna, enda aukn-
ingin mest hjá erlendum ferða-
mönnum á gestalista safnsins.
Sumarvertíðin er nú búin á
safninu og er það aðeins opið á
sunnudögum yfir vetrarmánuð-
ina, en það er einnig opnað á
öðrum tímum fyrir hópa.
Aðgangseyrir að Náttúrugripa-
safninu er aðeins 80 krónur og
var Hörður inntur eftir því hvort
ekki mætti hækka gjaldið aðeins
og auka þar með tekjurnar af
starfseminni.
„Þetta er ekki hátt gjald og
margir hafa bent á það. Við verð-
um hins vegar að gæta að því að
safnið er óskaplega lítið og
þröngt og af þeim sökunt er ég
ragur við að hækka aðgangseyr-
inn. Náttúrugripasafnið er t.a.m.
mun minna en Minjasafnið og
varla hægt að krefjast sama
aðgangseyris,“ sagði Hörður.
Hann bjóst ekki við að safnið
kæmist í rýmra húsnæði á allra
næstu árum, en sem kunnugt er
hafa menn viðrað hugmyndir um
að byggja veglega yfir Náttúru-
fræðistofnun Norðurlands. SS