Dagur - 27.10.1990, Síða 12

Dagur - 27.10.1990, Síða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 27. október 1990 Svartfuglspottur og kökur - uppskriftir frá Þuríði Schiöth Puríður Schiöth er húsfreyja að Hólshúsum II í Hrafna- gilshreppi og matráðskona í Hrafnagilsskóla. Hún gerir mikið afþví að búa til mat og hefur gaman af og það var ekki erfitt jyrir hana að hrista nokkrar uppskriftir fram úr erminni. Blaðamenn Dags heimsóttu Puríði í vinnuna og tóku hana tali. - Ertu búin að vera lengi matráðskona hér í skólanum? „Já, þetta er tíundi veturinn þannig að ekki er maður alveg nýkomin hingað. Ég er hér aðeins á veturna, en á sumrin er ég bóndakona í sveit og elti beljurassa. Par elda ég líka og ég hlýt að hafa gaman af mat- seld fyrst ég vinn við hana,“ sagði Þuríður. Hún sagði að daglega væru um 100 manns í mat í Hrafna- gilsskóla og það væri dálítið öðruvísi að elda ofan í þann mannskap heldur en fjölskyld- una heima. Auk starfsfólks og nemenda í skólanum sjálfum er barnaskólinn í mat í Hrafnagils- skóla og vinnuflokkur. - Hvað ætlar þú svo að bjóða lesendum Dags upp á? „Ég er með svartfuglspottrétt sem ég smakkaði í Éæreyjum. Þegar ég kom heim reyndi ég að búa til eins rétt og það tókst ágætlega, en ég hef aldrei séð þennan rétt hér á landi. Svo er ég með kanelkökur sem börnin eru sólgin í og loks snúða- köku.“ Svartfuglspottréttur 6 svartfuglsbringur 250 g gulrcetur 200 g sveskjur með steinum 200 g rjómaostur Svartfuglsbringurnar eru lagðar í mjólk í 4 tíma og síðan þerraðar og brúnaðar í lítilli feiti. Pví næst eru bringurnar settar í rúmgóðan pott, vatnið látið fljóta aðeins yfir og saltað eftir smekk. Gulrætur eru brytj- aðar í sneiðar og settar í pottinn ásamt sveskjunum og þetta er látið sjóða vel uns kjötið er laust af beinunum. Pegar kjötið er soðið eru bringurnar veiddar upp úr soðinu og reynt að ná kjötinu heillegu af beininu. Pá er rjómaosturinn settur úr í soð- ið og látinn samlagast og sósan þykkt með hveiti eða sósujafn- ara. Síðan er kjötið sett út í aft- ur og rétturinn er til. Með þessu er best að bera aðeins fram soð- in hrísgrjón. Bestu kökur barnanna 400 g smjörlíki 400 g púðursykur 1 egg 2 msk. sýróp 2 tsk. kanell 2 tsk. negull 2 tsk. vanilludropar 2 tsk. natron 600 g hveiti Setjið smjörlíki, sykur, sýróp, vanillu og egg í skál og hrærið saman í hrærivél. Þurr- efnunum er bætt úr í og deigið hnoðað saman. Síðan eru búnar til litlar kúlur sem eru pressaðar niður með fínmunstruðu hlið- inni á buffhamri. Athugið að deigið er frekar lint. Bakað í ofni. Snúðakaka (2 st.) 500 g smjörlíki 150 g smjör 7 tsk. þurrger + 1 dl vatn 2 egg 7/2 bolli sykur 2 dl mjólk Krem innan í: 2 pk. Royal karamellubúðingur, kaldur 300 g púðursykur mjólk? (þetta á að vera þykk leðja) rúsínur Búið til venjulegt gerdeig og látið það lyfta sér. Breiðið helminginn af deiginu út í einu, 1 sm á þykkt og lengdin meiri en breidd. Berið kremið á og vel út á brúnir og dreifið rúsín- um yfir eftir smekk. Setjið nú deigið upp eins og kanelsnúða- deig og skerið rúlluna niður í 2 sm þykkar sneiðar. Raðið þeim síðan hlið við lilið í vel smurt kringlótt kökuform. Látið lyfta sér í formunum áður en bakað er við 200 gráður. Ef afgangur er af kreminu er gott að setja það ofan á líka og þarf þá alls ekki glassúr þar ofan á. Við þökkum Þuríði fyrir þessar uppskriftir. Hún skorar á Ragnheiði Gunnbjörnsdóttur í næsta matarkrók, en Ragnheið- ur er kennari í barneignarfríi og búsett á Kristnesi. Hún hefur m.a. kennt matreiðslu. SS matarkrókur vísnaþáttur Stúlka mætti manni og sagði hann furðufrétt sem mærin vildi ekki trúa. Þá kvað hann: Pó ég dauður dytti á storð drós við fætur þínar, sögðu aldrei sannara orð syndugar varir mínar. Hér kemur enn vísa fengin frá sama öldungi og nokkrar aðrar: Ósamlyndið elur synd, illsku kyndir brælu. Flekkar yndisfagra mynd, frá þér hrindir sælu. Starri í Garði kvað þegar efnafræðihjón við kísilgúr- inn fluttu burt: Sárt verður leikin sveitin mín er siglir hún burtu héðan köfnunarefnisfrúin fín, fosfosýrubaugalín. Einhvern tímann kvað Þura í Garði: Inn til dala og út við sjó oft var slett úr pönnu. Hér var það sem bóndinn bjó barnið til með Önnu. Pétur Pétursson prófastur orti á heimleið: Ber mig lengra bænum frá beisladýrið móða. Ég vil fara að hátta hjá hjartanu mínu góða. Bólu-Hjálmar orti við kirkju: Ber mjög lítið brúðarskart bærinn Krists á þessum stað. Andlegt drynur inni naut. Ætli Drottinn heyri það? Þá koma tveir gamlir hús- gangar. Gott er að eiga gæðin flest, góða jörð og sauðfé mest, góða konu og góðan prest, góða kú og vakran hest. Gott erað vera í góðum rann, gott er að hafa völdin, gott er að eiga góðan mann, gott er að sofa á kvöldin. Þessar fallegu vísur kvað Gunnlaugur Gíslason bóndi á Sökku til konu sinnar: Þó að sjötug sértu í dag og sól til vesturs halli, hlýjar enn þitt hjartalag hærugráum kalli. Pú hefur margra þerrað tár, þér er tamt að hugga, aldrei vakið öðrum sár, engum þrýst í skugga. Jónas Þorleifsson bóndi í Koti í Svarfaðardal skaut fram vísum við ýmis tækifæri. Hárín kvað svo um ókyrra stúlku: Illa líður auðarbil, iðar hún í skinni. Ætli hún finni eitthvað til í undirvitundinni,- Þetta kvað Jónas um nauts- tollinn: Okkur hjá er allt svo pent, á mér lyftast brýrnar. Pað á að borga 3 prósent af þjónustu við kýrnar. Um Kvennalistann orti Jónas: Kvennalistann kýs ég fús, þær koma á mörgum breytingum, svo hafa þær alltaf opið hús með uppákomu og veitingum. Daníel Kristinsson frá Ker- hóli kvað næstu vísurnar. Hvassviðri: Sunnanátt í Sölvadal sinn fær mátt að reyna. Leikur hátt í hamrasal hörpuslátt við steina. Óveður: Veðra hlakka vættirnar víga blakka teygja. Skýja bakka brimgarðar breiðan makka reigja. Nótt: Lífið rótt um land og vík lausn frá ótta veitir. Lúnum nóttin næðisrík nýjum þrótti heitir. Foringjar vissra samtaka báðu menn að koma að Al- þingishúsinu. Þar áttu þeir að standa þegjandi nokkra stund. Þá kvað Aðalsteinn Ólafsson: Ásmund og Kristján við oft höfum séð eitthvað um kjaramál segjandi. Nú vinna þeir sig út úr vandanum með verklausri kyrrstöðu þegjandi. í góðu húsi færði stúlka Aðalsteini veitingar neðan úr kjallara. Hann kvað: Yls skal njóta alla tíð, ekki þjóta héðan fyrst mér hótin færir blíð fögur snót að neðan. Jón Þorvaldsson kvað er maður féll frá: Gröfin dáinn geymir Teit glögg mér tjáir saga. Heimurinn má nú hefja leit hrygg sér fá að naga. Sigurbjörn á Fótaskinni orti undir sömu kringumstæðum: Muna skulu mærðar þý mannorði sem lágu í, ef eitthvað hverfur enn á ný ekki hefur Kristján stolið því. Næstu vísu orti Sigurður Árnason, Raufarhöfn: Margur orðið betra ber baugs hjá storð og runni, en löngum þorði ég leika mér lífs á sporðagrunni. Markús Jónsson, Borgareyr- um kvað þetta heilræði: Þegar ellin styðst við staf. Stynur þreytt á beði. Veittu henni ylinn af æskugleði þinni. Þá kemur vísa eftir séra Einar Friðgeirsson. Braga oft ég bið um lið brenndur harmi sárum, bara til að banda við bölsýni og tárum. Steindór Sigurðsson kvað í svipuðum dúr: Pegar bítur brjóstið stál beiskra hugrenninga vaka eins og vor í sál vísur íslendinga. Enn eru góðir menn að senda mér vísur. Þessar orti séra Jón Þorláksson á Bægisá: Astin bærist undur skær, elskar hræringuna. Upp þá tærist efei fær eðlisnæringuna. Engu kvíðir léttfætt lund, Ijúft er stríði að gleyma. Blesa ríð ég greitt um grund. Guðný bíður heima. Gæfutjón þá að fer ört, ekki er gott að flýja. Betur hefði guð minn gjört að gelda mig en vígja. Þá koma vísur sem ég veit ekki hverjir hafa ort: Aldrei þótti Einar minn öls á teigi staður. Sagður og í sölum kvinn, sundurgerðarmaður. Nú er bjart í beituskúr, blikar skartið kvenna. Flýja artir fjötrum úr, finnst mér hjartað brenna. Næstu vísur eru heimagerðar og nýortar: Áður lundin ferðafrá flaut á margri heimsku. Hvar hún fór og flæktist þá fallið er í gleymsku. Hégómans á grænni grein gaman var að búa þegar staka ein og ein átti til að fljúga. Mér datt fyrrum margt í hug, mest var það í grini. Nú er sem mér fatist flug, færri stjörnur skíni. Næsta vísa er ný og heima- gerð. Kann að vera í ætt við heimspeki? Pú skilur það, er þú missir mátt og mannlífsins forðast þrefið að þú hefur vinur, aðeins átt það eitt sem þú hefur gefið.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.