Dagur


Dagur - 06.11.1990, Qupperneq 1

Dagur - 06.11.1990, Qupperneq 1
73. árgangur Akureyri, þriðjudagur 6. nóvember 1990 213. tölublað HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Hin lukkulega fjölskylda að Fellstúni 15 á Sauðárkróki. Frá vinstri: Þorsteinn, Jón G. Þorsteinsson, Örvar, Katrín og María Ásgrímsdóttir, sem keypti lottómiðann góða sl. föstudag. Sauðárkrókur: Stærsti tilfimm lottóviimmgurimi manna Qölskyldu Hún datt svo sannarlega í lukkupottinn á laugardaginn fjölskyldan að Fellstúni 15 á Sauðárkróki. Húsmóðirin María Ásgrímsdóttir keypti nefnilega á föstudaginn tíu sjálfvaldar raðir í lottó og ein þeirra gaf af sér fyrsta vinninginn, tæpar 14 milljónir króna. Stærsti vinning- ur frá upphafi lottós á íslandi sem ekki hefur skipst á milli margra vinningshafa. Hér sést hin nýorðna millj- ónafjölskylda, þau María, Jón og börnin þeirra þrjú. María segir þau oftast spila með í lottóinu þegar stórir pottar séu, en annars yfirleitt ekki. Hún segir að peningarnir komi sér vel, þau séu að byggja og vafa- laust verði byrjað á að greiða skuldir áður en farið verður að hugsa um annað, annars sagði hún í gær að þau væru ekki búin að gera sér almennilega grein fyrir þessu ennþá. Dagur óskar þeim í Fellstúni 15 til hamingju með vinninginn. SBG Bændur á Héraði að hefja bleikjueldi: „Ég sé enga kjöl- festu í flárbúskap* - sagði Stefán Jóhannsson að Þrándarstöðum en hann er með tvö fiskeldisker í prhúsunum „Búið er að skera svo til allt fé á Héraði. Skriðdalshreppur er einn eftir og því erum við að þreifa fyrir okkur á öðrum sviðuin. I dag er ég með tvö fiskeldisker í fjárhúsunum og er að hefja bleikjueldi og klak á bleikjuhrognum. Ég skar niður fjárstofninn fyrir þremur árum og á rétt til að taka til mín kindur á næsta ári, en það verður ekki gert. Ég sé enga kjölfestu í fjárbúskap eins og málum er háttað í dag á ís- landi. Trúlega hætta margir búskap hér um slóöir,“ sagði Stefán Jóhannsson á Þrándar- stöðum í Eiðahreppi. Að sögn Stefáns er hann að hefja bleikjueldi og klak á bleikju- hrognum. Búnaðarsamband Aust- urlands stendur á bak við þessa starfsemi að Þrándarstöðum sem og í Seldal í Norðfirði og Orms- stöðum í Eiðahreppi. Tuttugu bleikjur voru veiddar í Selfljóti, sem nú er verið að kreista og hrognunum verður klakið út í kerum í fjárhúsinu á Þrándarstöðum. „Bleikja verður veidd í vötnunum hér í kring og hún fóðruð í sláturstærð. Einnig tek ég þátt í tilrauna- verkefni í stofnrannsóknum á 23 bleikjustofnum. 23 bleikjustofn- ar, allir merktir, verða fóðraðir hér á næstu tveimur árum í ker- Aukaþing Alþýðusambands Norðurlands um helgina: Aðildarfélög samþykki stofnun eins lífeyrissjóðs l’yrir Norðurland - óskað eftir svari fyrir 31. mars næstkomandi um sem og hjá hinum bændunum þremur. Skoða á hvernig þeir skila sér við mismunandi aðstæð- ur. Þetta tilraunaverkefni er í gangi víðar á landinu. Á Orms- stöðum eru kerin úti og vatn úr Gilsánni notað. Hér hjá mér hef ég stíflað bæjarlækinn og nota vatniö þaðan og í Seldal er lind- arvatn notað. Við munum fara hægt af stað með sem minnstum til- kostnaði og höfum fengið dálitla styrki til verksins. Vonandi skila þessar tilraunir jákvæðum niður- stöðum þannig að bændur á Hér- aði geti snúið sér að bleikjueldi á þann veg sem þetta er sett upp. Bjargræði veröur að finnast þannig að menn flosni ekki upp,“ sagði Stefán á Þrándarstöðum. ój a bau metraa Frá því klukkan 12.00 á föstudag og til klukkan 18.00 á laugardag voru tíundu bckkingar GagnfræOaskól- ans á Sauðárkróki aö prjóna. Ástæöan var söfnun í feröasjóð og voru áheit i gangi samfara prjónaskapn- uni. Talað var um að setja heims- met og það tókst hvort sem það veröur staðfest eöur ci. Krakkarnir náðu að prjóna á þessum tfma um 80 metra langan trefil að meðaltali 12 sentimetra brciðan. Þessi heimahéraði. Bíði þessi tilraun skipbrot nú, er ekki sjálfgefið að annað tækifæri gefist síðar,“ segir í lokaorðunum. JÓH árangur var framar öllum von- um því að þau stefndu í upp- hafi að 50 metra rnúrnum. SBG Akureyri: Lögreglan gómaði tvo réttindalausa Alþýðusamband Norðurlands samþykkti á aukaþingi sínu á Akureyri nú um helgina að beina því til aðildarfélaga AN að þau samþykki að stofnaður verði einn lífeyris- sjóður á Norðurlandi sem taki til a.m.k. allra þeirra launa- manna sem starfa á samnings- sviði ASÍ. Svar félaganna skal liggja fyrir eigi síðar en 31. mars á næsta ári. í samþykkt aukaþingsins segir að leita skuli eftir góðu samstarfi við stjórnir lífeyrissjóðanna á Norðurlandi í því starfi sem framundan er. Stefnt verði að því að nýr lífeyrissjóður taki til starfa ekki síðar en 1. janúar 1993. í tengslum við aukaþing A.N. á laugardag var haldin opin ráð- stefna um lífeyrismál þar sem lögð var fram skýrsla lífeyris- nefndar sambandsins sem nú hef- ur verið að störfum um eins árs skeið. í skýrslunni er fjallað um stöðu sjóðanna á Norðurlandi, umræðu um sameiningu þeirra og hugmyndir um skipulag samein- ingar. Þá eru í skýrslunni lagðar fram áætlanir um framkvæmd slíkrar sameiningar. í áliti nefndarinnar segir að stefna beri að stofnun sameigin- legs lífeyrissjóðs á Norðurlandi. Stefna beri að sem víðtækastri þátttöku í þessum sjóði. í fyrstu verði leitast. við að sameina þá sem nú greiða til þeirra sjóða sem aðsetur hafa á Norðurlandi (aðra en bæjarstarfsmenn). í framhaldi verði öðrum er nú greiða til almennra sjóða utan svæðisins boðin þátttaka. Þá segir enn- fremur í nefndarálitinu að stefna beri að stofnun þessa sjóðs sem fyrst en nauðsynlegt sé að ákveð- in tímaáætlun verði samþykkt strax í upphafi. Loks segir að ekki beri að sameina núverandi sjóði hinum nýja sjóði fyrr en almenn stefna liggi fyrir um það í landinu, hvernig með fortíðar- vanda sjóðanna skuli farið. Fram að þeim tíma starfi þeir áfram að öðru leyti en því að þeir hætta að taka við iðgjöldum frá sama tíma og hinn nýi sjóður taki til starfa. í lokaorðum skýrslunnar segir lífeyrisnefnd A.N. að enginn verði neyddur til þátttöku í þess- ari sameiningu. Þeir sem standi utan þessa starfs hafi til þess full- an rétt. „Þó verður að minna á að því meiri sem samstaðan verður þeim mun sterkari verður útkom- an. Jafnframt verður að hafa það í huga, að sú tilraun, sem hér er til umræðu, er prófsteinn á það hvort óumflýjanleg uppstokkun á lífeyrissjóðakerfinu er möguleg, með frjálsum samningum í Tveir réttindalausir ökumenn voru stöðvaðir á Akureyri sl. sunnudag. Þeir höfðu áður verið sviptir ökuréttindum, en létu sér ekki segjast og settust undir stýri. Nokkrir árekstrar urðu í bæn- um um helgina. Sá stærsti varð á Hörgárbraut um kaffileytið á laugardag þegar þrjár bifreiðar skullu saman. Töluvert eignatjón varð í þessum árekstri, en engin slys á fólki. Þá skullu tvær bif- reiðar saman að morgni laugar- dags á mótum Skarðshlíðar og Höfðahlíðar. Báða þessa árekstra má trúlega rekja til hálku, en hún var veru- leg á götum bæjarins um helgina. óþh

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.