Dagur - 06.11.1990, Side 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 6. nóvember 1990
U.M.F. Skriðuhrepps
Fundarboð
Almennur félagsfundur verður haldinn að Melum
Hörgárdal miðvikudaginn 7. nóvember nk. og hefst
kl. 20.30 stundvíslega.
Stjórnin.
Þeir físka sem róa
ef þeir eiga síid
Til sölu nýfryst beitusíld
Uppl. hjá Fiskiðju Sauðárkróks hf. í síma 95-35207
(Magnus).
«=15*
Afskorin blóm
Blómaskreytingar og gjafavaravið öll
tækifæri.
Akureyri
og 24830
AKUR
Kaupangi •
Símar 24800
kvikmyndarýni
j
I' Umsjón: Jón Hjaltason
Snotra konan
Borgarbíó sýnir: Snotru konuna
(Pretty Woman)
Aðalhlutverk: Richard Gere og
Julia Roberts.
Touchstone Pictures 1990.
Snotra konan er stæling á My
Fair Lady, karlmaður í efri þrep-
um þjóðfélagsstigans lýtur niður
og grípur upp af götu sinni kven-
persónu úr því lægsta. Ólíkur
uppruninn leiðir af sér hnyltileg-
ar kringumstæður þar sem konan
reynir hvað hún getur að aðlaga
sig nýju umhverfi og nýtur til
þess dyggilegrar aðstoðar
karlsins. I fyrra tilvikinu var
uppalandinn Rex Harrison og
prófessor Higgins, í þvf síðara
Richard Gere.
Snotra konan segir frá milljóna-
mæringi (Gere), sem hefur
auðgast á því að kaupa illa stæð
fyrirtæki, hluta niður og selja.
Hann er í raun vondi maðurinn
og í nákvæmlega sama starfi og
Michael Douglas í Wall Street.
Þó er sá munur á að Gere er
greinilega ekki allskostar ánægð-
ur með lífið og tilveruna og ein-
mitt vegna nagandi óánægjutil-
finningarinnar leyfir hann sjálfum
sér að leita hins nýja og óvænta í
faðnti gleðikonu, Juliu Roberts.
Óvænt kynnin leiða til þess að
Gere ræður portkonuna í vinnu
um vikutíma. Snotra konan segir
frá viðburðum þessarar viku,
hvernig auðkýfingurinn mokar
peningum í konuna og breytir
Ítenni að lokum úr óheflaðri
sveitastúlku í fágaða yfirstéttar-
dömu. Það er létt yfir myndinni,
góður húmor - og rétt eins og
fyrri daginn höfðar sagan um
stóra lottóvinninginn til okkar
óbreyttra. Það má þó auðveld-
lega finna að myndinni, þar
hangir ýmislegt á bláþræði og ég
er alls ekki sannfærður um að
Roberts ráði fyllilega við hlut-
verkið - hana vantar hina nátt-
Gere játar Roberts ást sína.
úrulegu glaðværð og barnslega
einfeldnina sem hún þó reynir að
koma til skila. Takið til dæmis
eftir fyrstu viðbrögðunt hennar í
óperuhúsinu. Fyrir vikið kem ég
aldrei auga á náttúrubarnið sem á
að heilla alla heilsteypta karl-
menn upp úr skónum. Hins vegar
tekst Roberts ágætlega upp þegar
glaðværðinni er vikið til hliðar.
Konur eiga næsta leik
- ályktun landsft .ndar Kvennalistans
á Hrafnagili 3. og 4. nóvember 1990
Aðalfundur
Krabbameinsfélags Akureyrar
og nágrennis
veröur haldinn mánudaginn 12. nóvember kl. 20.30
í samkomusal Dvalarheimilisins Hlíöar, Austur-
byggö 17.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Önnur mál.
3. Fræðsluerindi um heimahlynningu.
Fyrirlesari er Lilja Þormar, hjúkrunarfræöingur.
Allir velkomnir.
Félagar eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Stjórnin.
Nauðungaruppboð
á eftirtalinni eign fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Öldugötu 1, Litla Árskógssandi,
þingl. eigandi Anton Harðarson,
föstud. 9. nóv., ’90, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Tryggingastofnun ríkisins.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
HJÓLBARDAR
þurfa að vera með góðu mynstri allt árlð.
Slitnir hjólbarðar hafa mun minna veggrip
og geta verið hættulegir - ekki síst
í hálku og bleytu.
DRttGUM ÚR HRAÐA!
UUMFERÐAR
RÁÐ
Það er kominn tími til áð skapa á
íslandi þjóðfélag jafnréttis,
öryggis og velsældar. Til þess
höfum við allar forsendur. Konur
eiga næsta leik og Kvennalistinn
ætlar að taka til í stjórnkerfinu.
Með þátttöku sinni í stjórn-
málum er Kvennalistinn að leita
eftir umboði frá kjósendum til að
vinna að gagngerum breytingum,
konum og þjóðfélaginu til hags-
bóta. Af því leiðir að Kvennalist-
inn sækist eftir þátttöku í ríkis-
stjórn. Hins vegar viljum við vera
ábyrgar gagnvart kjósendum
okkar og sýna þeim þá virðingu
að láta ekki af grundvallarstefnu-
miðum okkar þó að í boði séu ráð-
herrastólar.
Kvennaiistinn vill sækja fram
og leysa konur undan kúgun,
launamisrétti, of miklu vinnu-
álagi fyrir of lág iaun, og marg-
faldri ábyrgð. Kvennalistinn vill
tryggja atvinnuöryggi kvenna og
fjölbreytt störf fyrir konur um
land alít. Ennfrentur vill Kvenna-
listinn lögbinda eða tryggja með
öðrum hætti lágmarkslaun fyrir
dagvinnu sem nægja til fram-
færslu.
Þau drög að framboðslistum
fyrir næstu alþingiskosningar
sem nú liggja fyrir sýna að hefð-
bundnu stjórnmálaflokkarnir eru
1 ekki tilbúnir að veita konum
brautargengi. Fjöldi kvenna hef-
ur ekki gert upp við sig hvernig
þær verja atkvæði sínu í komandi
alþingiskosningum. Kvennalist-
inn er kostur þeirra sem vilja sjá
konur á Alþingi.
Þjóðfélagið vanrækir börnin
sín, og konum er ranglega kennt
um. Stytting vinnuviku og það að
hægt sé að lifa af dagvinnúlaun-
um eru forsendur þess að foreldr-
ar geti annast börn sín svo viðun-
andi sé. Kvennalistinn vill lengja
fæðingarorlof og breyta skipan
þess þannig að vinnuveitendur
beggja foreldra greiði jafnstóran
hluta fæðingarorlofs miðað við
laun hvors unt sig. Ennfrentur vill
Kvennalistinn að allir eigi kost á
dagvistun fyrir börn frá því að
fæðingarorlofi lýkur og tryggum
samastað fyrir skólabörn á með-
an foreldrar þeirra sinna störfum
sínum.
Stöðnun ríkir í atvinnumálum
íslendinga og hrun blasir víða
við. Kvennalistinn vill reka þjóð-
félagið af skynsemi og með hags-
muni heildarinnar í huga, á sama
hátt og fólk reynir að reka heimili
sín. Það verður best gert með
nýsköpun atvinnuveganna, sem
tekur tillit til íslenskra hráefna og
mannafla. Það er longu komið í
ljós að aðfengnar lausnir henta
sjaldan óbreyttar á íslandi. Mál
sjávarútvegs, iðnaðar og land-
búnaðar þarf að taka til rækilegr-
ar endurskoðunar og hafa
umhverfisvernd að leiðarljósi á
öllum sviðum atvinnulífsins.
íbúar í dreifðum byggðum
landsins kalla eftir félagslegri
þjónustu, menntun, heiisugæslu
og menningarlífi sem er sambæri-
legt við það sem býðst í þéttbýli.
Kvennalistinn vill byggðastefnu
sem eflir byggðakjarna, svo þeir
geti staðið undir kröfum nútím-
ans. Kvennalistinn vill leita allra
leiða til að finna hæft fólk í þau
störf í dreifbýli sem illa gengur að
ráða í, svo sem við kennslu og
heilsugæslu.
Fiskintiðin eru ein helsta auð-
lind íslendinga, og það kemur
ekki til greina að veita öðrum
aðgang að þeim. Miðstýrt og
þungt fyrirkomulag Evrópu-
bandalagsins er andsnúið smá-
þjóðurn og kann auk þess að
veikja stöðu kvenna verulega.
Þess vegna hentar aðild að EB
ekki.
Kvennalistinn er að hefja
kosningabaráttu. Við ætlum að
sækja fram djarfar og gagnrýnar
á okkar stöðu og annarra.
íslenskt þjóðfélag kallar á breyt-
ingar, og við munum svara því
kalli.