Dagur - 06.11.1990, Síða 16

Dagur - 06.11.1990, Síða 16
DACKJR Akureyri, þriðjudagur 6. nóvember 1990 Kodak Express Gæóaíramköllun ★ Persónuleg jólakort með þínum myndum. növtmZLénuöi^Pedíomyndir Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, simi 23324. Saurbæjarhreppur: Bann við lausagöngu búíjár á vegsvæðum - „viljum koma þessum málum í gott horf ‘ Aldís Einarsdóttir tók á móti vinum og vandamönnum á 106. afmælisdegi sínum og á borðum var að sjálfsögðu afmælisterta. Frá vinstri: Arndís Baldvinsdóttir, Kamilla Þorsteinsdóttir, Edda Eiríksdóttir, Aldís og Auður Eiríksdóttir. Mynd: JÓH Afinæliskaffl elsta íslendingsins Elsti núlifandi íslendingur- inn, Aldís Einarsdóttir frá Stokkahlöðum í Hrafnagils- hreppi, fagnaði nú á sunnu- daginn, þann 4. nóvember, 106 ára afmæli sínu. Fimm íslenskar konur hafa náð þessum aldri en aðeins ein þeirra hefur náð 107 ára aldri en það var Halldóra Bjarna- dóttir en hún varð 108 ára og 43 daga og dó 27. nóvember 1981. Aldís tók á móti vinum og vandamönnum á Kristnesspít- ala á sunnudaginn en þar hefur hún verið frá því í september 1985 þegar hún lagðist þar inn sökum lungnasjúkdóms. Aldís hefur daglega fótavist og er fyllilega skýr og fylgist vel með, lesið er fyrir hana upp úr blöðum, nema Degi sem hún les sjálf. Aldís prjónar hjálparlaust og hefur nokkuð góða sjón þó að hún þurfi að nota gleraugu. Heyrn hennar hefur þó hrakað á síðustu árum og eins er jafn- vægið mun óstöðugra svo að hún treystir sér ekki til að ganga nema með stuðningi. JÓH Nú um mánaðamótin tók gildi í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði bann við lausagöngu búfjár á vegum og vegsvæðum. Með þessu nýtti hreppsnefnd Saur- bæjarhrepps sér heimild í lög- um frá 1989 til að banna lausa- göngu búfjár á vegsvæðum en tekið er þó fram í samþykkt hreppsnefndarinnar að fresta ótímabundið gildistöku banns- ins á vegsvæðum Sölvadalsveg- ar. Saurbæjarhreppur er eini ffluthafafimdur hjá Fiskeldi Ejjafjarðar Síðastliðinn sunnudag var haldinn hluthafafundur hjá Fiskeldi Eyjafjarðar hf. en fyrirtækið hefur vakið athygli fyrir lúðueldi á Hjalteyri. Á fundinum var m.a. rætt um hugsanlega hlutafjáraukningu. Að sögn Ólafs Halldórssonar hjá Fiskeldi Eyjafjarðar hf. fékk stjórn félagsins rýmkaða heimild til hlutafjáraukningar en engar ákvarðanir voru teknar í því sambandi. Ólafur sagði að menn hefðu farið yfir það starf sem unnið hefði verið hjá Fiskeldi Eyja- fjarðar og spáð í framhaldið, en hann bjóst ekki við neinum tíð- indum fyrr en eftir næsta klak sem verður vorið 1991. SS hreppurinn framan Akureyrar sem sett hefur bann sem þetta og raunar einn af fáum hreppum á landinu sem sett hafa slíkt bann. Sigurgeir Hreinsson, oddviti, segir þessa samþykkt ekki þýða að ástand í þessum málum sé verra í hreppnum en öðrum. „Þetta er vandamál sem bænd- um er legið á hálsi fyrir, í sumum tilfellum ranglega því meirihluti bænda gætir þess vel að búfé sé ekki á vegum. Með þessu sýnum við að að hjá okkur er mikill vilji til að koma þessum málum í gott horf,“ sagði Sigurgeir. Hvað snýr að tryggingamálum ef óhöpp verða sagði Sigurgeir að hér eftir verði aðilar að bera tjón sín sjálfir. Hingað til hafa bíleigendur verið krafðir um bæt- ur fyrir skepnur ef þeir aka á þær á vegum en með til komu banns- ins verður bóndinn sjálfur að bera skaðann ef hann missir skepnu á þennan hátt og öku- maður verður að bera tjón á öku- tæki sínu. Sigurgeir segir að með samein- ingu sveitarfélaganna þriggja í Eyjafjarðarsveit breytist þetta bann ekki hvað varðar Saurbæj- arhrepp. Ný sveitarstjórn verði að taka afstöðu til þess hvort hún vill láta þetta bann einnig gilda fyrir aðra hluta sveitarfélagsins- ins nýja. JÓH Samningur LÍÚ og FFSÍ felldur: „Ákvörðunin er stór en tekin af fáum“ - segir Sverrir Leósson, formaður Útvegsmannafélags Norðurlands Blönduvirkjun: Línaní gegnum land Höllustaða - Páll heimilaði lögnina Þeir verktakar sem unnu aö lögn vegarslóöa og uppsetningu undirstaöna við tengilínu í Blöndudal, eru nú aftur teknir til við verkið. Að sögn Olafs Jenssonar, yfirstaðarverkfræð- ings, heimilaði Páll Pétursson lögnina í landi sínu að Höllu- stöðum og formaður bygginga- nefndar í Svínavatnshreppi samþykkti það. Lagning þessarar línu, sem tengir Blönduvirkjun við Byggða- línuna, stöðvaðist nær alveg fyrir tæpum hálfum mánuði vegna þess að bygginganefnd Svína- vatnshrepps fór fram á að línan yrði tekin fyrir sem skipulagsmál. Meðal þess sem nefndin setti fyr- ir sig var að ekki væri búið að semja við landeigendur. Nú held- ur lagningin hins vegar áfram í gegnum land Höllustaða og þá er einungis eftir að leggja í gegn hjá Löngumýrarbændum. SBG Kjarasamningur Landssam- bands íslenskra útvegsmanna og Farmanna- og fiskimanna- sambands íslands var felldur af félögum í FFSÍ. Atkvæðisrétt höfðu 2800 félagsmenn en aðeins 37% kusu. Samningur- inn var felldur með 505 Fyrsti vinnsludagur í innfjarða- rækju hjá rækjustöðvum á Hvammstanga, Blönduósi og Skagaströnd var í gær. Að sögn framkvæmdastjóranna er rækjan smá og útlitið ekkert skárra en í fyrra með sölu á henni. Þó að magnið sé mikið er stærðin alveg í lágmarki og allt fer í ódýrasta fiokk. „Mér líst ekkert á þetta, rækj- an er smá, fer öll í ódýrasta flokk og er nær óseljanleg," sagði Kári Snorrason, framkvæmdastjóri hjá Særúnu hf. á Blönduósi. Einn atkvæðum gegn 415 og til verkfalls kemur 20. nóvember náist ekki samningar. „Málið er hjá sáttasemjara og það er hans verk að boða til fundar. Ekki verður boðað til slíks fundar nema báðir aðilar fari fram á það. Mér líst þung- bátur er í innfjarðarækju hjá Særúnu og sagði Kári að hann myndi halda áfram út þessa viku, en ef ástandið batnaði ekki yrði veiðinni hætt og haldið áfram að vinna fryst hráefni svo lengi sem það entist. Hjá Lárusi Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Rækju- vínnslunnar hf., var sömu sögu að segja. Þar koma fimm bátar til með að leggja upp og rækjan er litlu betri en hún var í fyrra. „f*að er mikið magn af smárri rækju og þetta er vara sem kemur lega á málið allt og trúlega stefnir í verkfall," sagði Guðmundur Steingrímsson, skrifstofustjóri Skipstjórafélags Norðlendinga. Að sögn Jóns Jóhannessonar, skipstjóra á Harðbaki EA-303, togara Útgerðarfélags Akureyr- inga, er útlitið afar svart. „Bæði er að illa fiskast og nú stefnir í lítið út úr,“ sagði Lárus. „Við sjáum til í nokkra daga, en ef við þurfum að hætta veiðinni þá kemur það verst niður á sjó- mönnunum." Hjá Meleyri á Hvammstanga eru þrír bátar í innfjarðarækj- unni og allt við sama heygarðs- hornið og hjá hinum stöðvunum. Þetta er þriðja árið í röð sem rækjan er svona smá í Húna- flóanum og telja menn það vera vegna þess að hún fær ekki tíma til að vaxa. í ár er búið að gefa út leyfi fyrir 2000 tonnum, en í fyrra voru þau einungis 1300. SBG verkfall. Vonandi fara menn fljótlega til viðræðna til að forða að verkfall skelli á. Verkfalli sem þjóðin þolir ekki.“ „Allur íslenski fiskiskipaflot- inn fer í land og þjóðlífið mun lamast strax eftir 20. nóvember verði ekki samið. Ef hið boðaða verkfall skellur á, þá verður það langt og svartnætti verður ríkj- andi í þjóðlífi okkar íslendinga. Já, málið er alvarlegt. Menn geta alltaf deilt um kaup og kjör. Sé litið til ársins 1990, þá hefur það verið hagstætt. Afurðaverð á botnfisktegundum hefur verið gott og sjómenn hafa notið góðs af. Afurðaverð hjá sjómönnum hefur liækkað um 30% síðan um síðustu áramót. Þess vegna skýt- ur það skökku við að blásið sé til verkfalls með þessari hörku. Eins þykir mér ekki rétt að boða til verkfalls þar sem kosningaþátt- takan var ekki meiri og samning- urinn var felldur með svo litlum mun. Þegar verkfallsvopninu er beitt þyrftu að vera lágmarkskröf- ur um kosningaþátttöku, segjum 60%. Þessi ákvörðun er stór en tekin af fáum,“ sagði Sverrir Leósson, formaður Útvegs- mannafélags Norðurlands. ój Innijarðarækja á Húnaflóa: „Smárækja sem er óseljanleg“ - segir Kári Snorrason

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.