Dagur - 18.12.1990, Page 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 18. desember 1990
Spegia-súlur • Spegla-flísar • Speglar í plaströmmum •
Speglar með myndum • Smellurammar •
Speglar skornir eftir óskum • Plexygler
ISPAN HF.
Norðurgötu 55
Símar: 96-22688 og 96-22333.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
SLYSADEILD
Starfsfólk í heilbrigðisþjónustunni.
Við þörfnumst ykkar við uppbyggingu nýrrar Slysadeildar
sem tekur til starfa 1. apríl 1991. Auk þess að flytjast í nýtt
húsnæði verður aukning og breyting á starfssviði deildar-
innar. Við leitum eftir áhugasömu og hressu fólki til þess
að undirbúa og síðan annast bráðamóttöku allan sólar-
hringinn á Slysadeild FSA.
Hjúkrunarfræðingar:
Lausar eru nokkrar stöður til umsóknar. Boðið verður upp
á fræðslu í bráðahjúkrun og einstaklingsbundna aðlögun.
Deildarstjóralaunaflokkur fyrir 60% næturvaktir.
Upplýsingar gefa Svava Aradóttir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri og Birna Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri í síma 96-
22100.
Aðstoðarlæknir:
Starf aðstoðarlæknis við Bæklunardeild FSA er laust til
umsóknar frá og með 01.04.1991.
Starfinu fylgir vinnuskylda við nýja Slysadeild FSA á móti
öðrum aðstoðarlækni Bæklunardeildar og aðstoðarlækn-
um Handlækningadeildar.
Ráðningartími er 6-12 mánuðir, styttri tími kæmi þó til
greina.
Nánari upplýsingar gefur Júlíus Gestsson, yfirlæknir
Bæklunardeildar, í síma FSA 96-22100 eða heimasíma
96-21595.
Starfsstúlkur:
Til umsóknar eru stööur í almennum ræstingum og stöður
aðstoðarfólks á næturvaktir.
Til greina kemur að ráða sérstaklega á 40-60% nætur-
vaktir. Starfsfólk fær fræðslu og einstaklingsbundna aðlög-
un.
Upplýsingar gefa Svava Aradóttir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri og Birna Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri í síma 96-
22100.
Móttökuritari:
Til umsóknar eru tvær 50% stöður í móttöku. Æskilegt er
að umsækjendur hafi reynslu af tölvunotkun.
Upplýsingar gefur Svava Aradóttir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri í síma 96-22100.
Umsóknarfrestur um ofantalin störf er til 15.
janúar 1991.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.