Dagur - 18.12.1990, Side 12

Dagur - 18.12.1990, Side 12
12 - DAGUR - Þriðjudagur 18. desember 1990 íþróttir í i Arsenal mlssti af sigri í - Liverpool eykur forskotið - 10 mörk hjá Derby og Chelsea Það voru miklar sviptingar í leikjum laugardagsins í 1. deild ensku knattspyrnunnar. Leik- menn liðanna voru á skotskón- um og margir fjörugir leikir á dagskrá. I tveim leikjanna tókst aðkomuliðinu að jafna leikinn alveg í lokin þegar heimaliðið virtist vera komið með öll stigin í höfn. En lítum þá nánar á leiki laugardagsins. Það var magnaður leikur hjá Derby og Chelsea þar sem skor- uð voru tíu mörk og áhorfendur fengu því mikið fyrir sinn snúð. Mörkin voru góð, en þrátt fyrir það hefðu liðin hæglega gelað skorað meira í þessum opna leik. Derby hóf leikinn betur, en það var Kerry Dixon sem náði foryst- unni fyrir Chelsea. Sú forysta entist í 4 mín., þá jafnaði Dean Saunders fyrir Derby með góðum skalla. Chelsea náði síðan 3:1 forystu með tveim mörkum á tveim mín. rétt fyrir hlé, Dixon og Gordon Durie skoruðu mörkin. En Derby lét ekki slá sig út af laginu, Trevor Hebberd lag- aði stöðuna í 3:2 á 15. mín. síðari hálfleiks, Saunders jafnaði 3:3 á 75. mín. og Gary Mickelwhite náði síðan 4:3 forystu fyrir Derby. Þá var aftur komið að Chelsea, Dennis Wise jafnaði 4:4, Durie náði forystu 5:4 fyrir Chelsea er 5 mín. voru til leiks- loka og á lokamín. bætti Graeme Le Saux sjötta marki Chelsea við. Liverpool fór ekki eins létt með Sheffield Utd. á heimavelli sínum eins og margir bjuggust við. í markalausum fyrri hálfleik Staðan 1. deild Liverpool 16 13-2- 1 34:12 41 Arsenal 17 11-6- 0 33: 9 37 Crystal Palace 17 9-6- 2 26:17 33 Tottenham 17 8-6- 3 31:19 30 Leed? Utd. 17 8-6- 3 28:17 30 Man. City 16 6-8- 2 26:22 26 Chelsea 17 7-5- 5 29:29 26 Wimbledon 17 6-7- 4 27:22 25 Man. Utd. 17 7-5- 5 22:19 25 Norwich 17 7-2- 8 23:28 23 Nott. For. 16 5-6- 5 22:22 21 Luton 17 5-5- 7 19:27 20 Aston Villa 16 4-6- 6 17:18 18 Southainpton 17 4-4- 9 22:32 16 Derby 16 4-4- 8 16:28 16 Everton 17 3-6- 8 19:23 15 Sunderiand 17 3-6- 8 20:26 15 Covenlrv 17 3-5- 9 15:22 14 Q.P.R. 17 3-3-11 21:34 12 ShefHeld Utd. 16 0-4-12 7:30 4 2. deild West Ham 21 13-8- 0 33:12 47 Oldham 20 13-5- 2 42:19 44 Sheffield Wed. 2010-8- 240:2238 Middlesbrough 2011-4- 536:1837 Notts County 20 8-6- 6 29:25 30 Wolves 20 7-8- 5 30:24 29 Millwall 20 7-7- 6 30:24 28 Port Vale 20 8-4- 8 31:30 28 Bristol City 19 8-4- 7 28:29 28 Brighton 19 84- 7 30:37 28 Ipsvvich 21 6-9- 6 27:32 27 Barnsley 20 6-8- 6 28:22 26 Bristol Rovers 19 7-5- 7 25:23 26 Newcastle 19 6-6- 7 21:22 24 W.B.A. 21 5-8- 8 25:28 23 Swindon 21 5-8- 8 26:31 23 Blackburn 21 6-4-1124:3122 Plymouth 21 5-7- 9 22:31 22 Leicester 20 6-4-10 29:45 22 Charlton 20 5-6- 9 25:29 21 Portsmouth 21 5-6-10 23:33 21 Hull City 21 5-6-10 33:49 21 Oxford 20 4-7- 9 29:38 19 Watford 21 4-6-11 18:28 18 átti Ian Bryson skot í þverslána á marki Liverpool og meistararnir léku undir getu í leiknum. Shef- field liðið lagði mesta áherslu á varnarleikinn og reyndi lítið að sækja. Það var ekki fyrr en á 61. mín. að John Barnes náði foryst- unni fyrir Liverpool eftir undir- búning Peter Beardsley. 15 mín, síðar sendi David Burrows háa sendingu inn í vítateig Sheffield Utd., Simon Tracey markvörður lét boltann fara framhjá sér til Ray Houghton sem skallaði til Ian Rush sem skallaði í markið. Staða Sheffield Utd. er þvf að verða vonlaus á botni dcildarinn- ar og það þarf fleiri en eitt krafta- verk til að bjarga liöinu frá falli í 2. deild. Arsenal fór illa að ráði sínu gegn Wimbledon og missti leik- inn niður í jafntefli eftir aö hafa komist í 2:0. Það voru komnar 3 mín. fram yfir venjulegan leik- tíma er Wimbledon fékk auka- spyrnu á eigin vallarhelmingi. Há sending inn að marki Arsenal þar sem 20 leikmenn voru í teignum til að berjast um boltann, en það var John Fashanu miðherji Wimbledon sem stökk hæst og skallaði boltann í netið framhjá David Seaman markverði Arsen- al og jafnaði 2:2. Margir vildu þó meina að brotið hefði verið á Seaman í látunum, en dómarinn var á öðru máli. Það virtist sem öruggur sigur Arsenal væri í upp- siglingu er Paul Merson gaf þeim forystuna eftir góða sendingu Alan Smith og Tony Adams skallaði síðan inn eftir horn- spyrnu. Á síðustu mín. fyrri hálf- leiks náði Detzi Kruszniski að laga stöðuna fyrir Wimbledon með góðu marki, en Arsenal virt- Tveir leikir fóru fram í 1. deild á sunnudaginn og urðu úrslit þeirra samkvæmt bókinni. Leikur Leeds Utd. gegn Ever- ton var sýndur beint í breska sjónvarpinu og Crystal Palace fékk Luton í heimsókn. Crystal Palace var aldrei í hættu með að tapa leik sínum ist þó ætla að halda fengnum hlut í síðari hálfleiknum, þar til Fas- hanu tók til sinna ráða. Sunderland og Norwich léku vel í sínum leik þar sem Gordon Armstrong náði forystunni fyrir Sunderland með skalla á 14. mín. Eitthvað virtust leikmenn Sund- erland slaka á við markið og leik- menn Norwich gengu á lagið og náðu undirtökunum í leiknum. Ekki tókst þó Norwich að jafna fyrr en eftir klukktíma leik, mest vegna frábærra markvörslu Tony Norman í marki Sunderland. Tim Sherwood jafnaði fyrir Norwich með lúmsku skoti og Dale Gordon skoraði síðan sigur- mark liðsins eftir að Robert Ros- ario hafði skallað boltann fyrir fætur hans. Sunderland fékk þó færi á að jafna, en Bryan Gunn í niarki Norwich varöi vel lrá Paul Bracewell undir lok leiksins. Manchester Utd. mátti þakka fyrir jafntefli gegn Covcntry, lið- ið lék ekki vel og var heppið að ná stigi. Danny Wallace jafnaði 2:2 fyrir Utd. þegar mín. vareftir af Iciknum. Utd. tók þó forystu snemma í leiknum með marki Mark Hughes, en Kevin Gallach- er náði að jafna fyrir Coventry rétt fyrir hlé. Cyrille Rcgis náði síðan forystunni fyrir Coventry í síðari hálfleik þegar hálftími var eftir af leiknunt Bryan Robson kom inn á sem varamaður hjá Utd. er 20 mín. voru til leiksloka, en hann hafði engin áhrif á leik liðsins og markið frá Wallace í lokin kom eins og köld vatnsgusa framan í leikmenn Coventry. Leikur Manchester City og Tottenham var sýndur í Sjón- varpinu. Spennandi og opinn leikur þar sem Paul Gascoignc gegn Luton þó að liðið hafi oft leikið betur. Heimamenn höfðu leikinn ávallt í hendi sér og John Humphrey hélt Lars Elstrup aðal-markaskorara Luton í skefj- um þannig að lítið sást til hans. Eina mark leiksins kom á 22. mín., Mark Bright skallaði niður í markhornið og leikmenn Palace voru ekki í vandræðum meö að John Fashanu stal sigrinum af Arsenal er hann jafnaði fyrir Wim- bledon í lokin. náði forystunni fyrir Tottenham á 25. mín. með góðu marki. Lið City var sterkari aðilinn í leikn- um, en lengi vel lék lánið ekki við liðið og svo virtist sem mark Gas- coigne ætlaði að duga til sigurs fyrir Tottenham. En á 77. mín. náði Wayne Clarke að jafna fyrir City með skoti sem straukst við Steve Redmond á leiðinni í markið. Clarke var nýkominn inn á sem varamaður fyrir Adrian halda forystunni. lan Wright átti mjög góðan leik fyrir Palace, ávallt hættulegur í sókninni og kom mjög vel aftur til aö hjálpa vörninni. Við sigurinn færðist Palace upp í þriðja sæti deildar- innar. Framkvæmdastjórinn Steve Coppell var ánægður eftir leik- inn. en undraðist að Luton léki með „sweepcr,, gegn Palace og bætti við „það kerfi er eins og kommúnisminn, það virkar ekki." Leikmenn Lceds Utd., fullir sjálfstrausts, tóku á móti Everton á Elland Road og áttu ekki í vandræðum með að sigra. Liðið hefur eina bestu miðvallarmenn- ina í deildinni og Gordon Strach- an átti stórleik. Haldi hann áfram að leika eins og að undanförnu ætti hann að verða valinn knatt- spyrnumaður ársins í Englandi. Það var Strachan sem skoraði fyrir Leeds Utd. úr vítaspyrnu á 18. mín. eftir að John Ebbrell hafði brotið á Gary McAllister í teignum. Aðeins 8 mín. síðar gerði Leeds Utd. út um leikinn er hornspyrna Strachan var skölluð áfram af Mel Sterland og Carl Shutt afgreiddi boltann í netið hjá Neville Southall. Leikur Everton lagaðist nokkuð í síðari hálfleik er Pat Nevin og Tony Cottee komu inn á sem vara- menn, en Nevin misnotaði besta tækifæri Everton undir lok leiks- ins og nú er talið að Everton ætli sér að kaupa leikmenn á næst- unni. Þ.L.A. Gordon Strachan átti enn einn stórleikinn fyrir Lecds Utd. gegn Everton og skoraði fyrra mark liðsins úr vítaspyrnu. Öruggt hjá C. Palace og Leeds Utd. lokin Heath sem meiddist og hann skoraði með sinni fyrstu snert- ingu viö boltann. City gerði síðan út um leikinn á 81. mín með marki Mark Ward úr vítaspyrnu sem dæmd var á hendi eins varnarmanna Tottenham. Peter Reid framkvæmdastjóri City lék mjög vel fyrir lið sitt og var einn besti maður vallarins. Southampton varð að sjá af stigum í leik sínum gegn Aston Villa þegar dómarinn dæmdi mjög umdeilda vítaspyrnu á liðið. Matthew Lc Tissier hafði náð forystu fyrir Southampton á 41. mín með skalla og liðið hafði undirtökin í leiknum og virtist ætla að innbyrða öruggan sigur. En 11 mín. fyrir leikslok braut Barry Hornc á Tony Daley útherja Villa sem féll inn í teig- inn, en brotið mun hafa verið fyr- ir utan. Dómarinn var á öðru máli og dæmdi vítaspyrnu sem David Platt skoraði úr af öryggi og tryggði liði sínu jafntefli. Enn tapar Q.P.R., nú á hcima- velli gegn Notlingham For. og staða liðsins er að verða slæm. Ekkert var skorað í fyrri hálfleik, cn Roy Wegerle náði forystu fyr- ir Q.P.R. snemma í þeim síðari með marki úr vítaspyrnu. Nigel Clough jafnaði fljótlega fyrir Forest og sigurntark Forest skor- aði síðan bakvörðurinn Stuart Pearce. 2. deild • West Ham er enn efst í 2. deild eftir markalaust jafntefli gegn Middlcsbroúgh. • Oldham er í öðru sæti, Andy Ritchie og Roger Palmer ntcð sín tvö mörkin hvor gegn Wolves sem hafði komist yfir með marki Andy Thompson. • Sheffield Wcd. cr í þriðja sæti eftir 2:2 jafntefli gegn Ipswich. Trevor Francis og Nigel Pearson gerðu mörk liðsins, en þeir Ian Rcdford og Simon Milton skor- uðu fyrir Ipswich. • Paul Mortimcr kom Charlton yfir gegn Swindon, en Mike Haz- ard jafnaði fyrir Swindon. • Watford vann góöan sigur úti gegn Millwall með mörkum Paul Wilkinson og Gary Penrice. Þ.L.A. Úrslit 1. deild Arsenal-Wimblcdon 2:2 Coventry-Manchester Utd. 2:2 Derby-Chelsea 4:6 Liverpool-Sheffield Utd. 2:0 Manchester City-Tottenham 2:1 Q.P.R.-Notthingham For. 1:2 Southampton-Aston Villa 1:1 Sunderland-Norwich 1:2 Crystal Palace-Luton 1:0 Leeds Utd.-Everton 2:0 2. deild Bluckburn-Bristol City 0:1 Brighton-Barnsley 1:0 Bristol Rovers-Leicester 0:0 Millwall-Watford 0:2 Notts County-Hull City 2:1 Oldham-Wolves 4:1 Port Vale-Oxford 1:0 Shcfficld Wed.-Ipswich 2:2 Swindon-Charlton 1:1 W.B.A.-Portsmouth 0:0 West Hain-Middlesbrough 0:0 Plymouth-Newcastle 0:1 Úrslit í vikunni Deildabikarinn endurtekinn jafntcfiisleikiir úr 4. umferð. Derby-Sheffield Wed. 1:2

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.