Dagur - 18.12.1990, Síða 14
ar - RUOAG - 069!" -ísdrnoasb .St iug6bui6h<{
14 - DAGUR - Þriðjudagur 18. desember 1990
Þétt setinn Svarfaðardalur í Osló! (íslendingarnir fagna Söngfélaginu.)
- á boðstólum var m.a. flatbrauð með hangikjöti,
skyr, kók og prins póló!
Geirssonar. Mátti þar heyra
Öbbu Löbbu Lá og fleira gott.
Kjartani Ragnarssyni leikara
hafði verið boðið sérstaklega til
fullveldisfagnaðarins í Ósló til að
halda ræðu. sem hann og gerði
öllum til mikillar gleði.
Einn af prestum okkar Norð-
lendinga, séra Þórhallur Hösk-
uldsson, var meðal viðstaddra
(og má geta þess í framhjáhlaupi
að hann messaði fyrir íslendinga
í Ósló í jólaguðsþjónustu þann 9.
desember síðastliðinn).
Að kvöldi fullveldisdagsins var
svo slegið upp balli. Þar var boð-
ið upp á léttar veitingar og jafn-
framt var dregið í happdrætti,
þar sem 1. vinningur var flugmiði
heim til íslands og er ekki að efa
,að sá miði komi sér vel. Nú er
, einmitt að renna upp sú stund
þegar námsmenn og aðrir „flæk-
ingar“ þyrpast heim til íslands í
kæsta skötu og hangikjöt og ég
hef áreiðanlegar heimildir fyrir
því að margir séu farnir að telja
niður dagana.
Sjáumst um jólin!
María Pálsdóttir - Noregi.
Greinarhöfundur stundar nám viö Skjeberg lýö-
háskólann í Noregi, á Ijósmyndabraut.
Þann l. desember síðastliðinn
héldu íslendingar í Noregi upp
á fullveldisafmæli Islands.
Byrjað var árla morguns með
ákaflega íslenskum morgunverði;
á boðstólum var skyr, líatbrauð
með hangikjöti, harðfiskur, ís-
lenskt brennivín og síðast en ekki
síst var sá möguleiki fyrir hendi
að kaupa sér kók og prins póló!
Mætingin var slík að stöðugt
varð að bæta við borðum og stól-
um í salinn sem hafði verið leigð-
ur í þessu tilefni. Undirrituð
jáætlar að á þriðja hundrað
^íslendingar hafi verið þarna sam-
an komnir. Söngfélagið tróð upp
undir borðhaldinu og flutti
íslensk lög undir stjórn Sigurjóns
„Mikið agalega var skyrið nú gott.
Myndir: María Pálsdóttir
Fullyeldisfagnaður
íslendinga
í Noregi
Sjaldséðar kræsingar í Noregi, flatbrauð með hangikjöti, skyr og harðfiskur.
„Við sérstök tækifæri er fyrirgefanlegt að taka eitt brennivínsstaup með morgunverðinum!“ varð
einhverjum að orði að morgni fullveldisdagsins...
Söngfelagið flutti alislcnska tona undir stjorn Sigurjons Geirssonar.