Dagur - 09.01.1991, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 9. janúar 1991
Húsbréf
Kaupum og seljum húsbréf
Ávöxtun við kaup 7,25%
Ávöxtun við sölu 7,05%
Sölugengi verðbréfa þann 9. jan.
Einingabréf 1 ............ 5.272,-
Einingabréf 2 ............ 2.854,-
Einingabréf 3 ............ 3.466,-
Skammtímabréf ............ 1,769
Auðlind hf ............... 1,01
MjKAUPMNG
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700
r
Aðkeyrsla og þess háttar hentar vel fyrir sjoppu
með söluopi fyrir bíla.
Stærð 602 að Móasíðu 1 (núverandi starfsemi er
videoleiga og sjoppa).
Laust frá 20. janúar.
Eitthvað af innréttingum getur fylgt.
Húsnæðið hentar einnig undir myndbandaleigu eða
sérvöruverslun.
Skammtímaleiga - langtímaleiga.
Einnig til leigu á sama stað ódýrt húsnæði fyrir
léttan iðnað eða sem geymslur.
Nánari upplýsingar í síma 26979.
fréffir
Fagráð bleikjuframleiðenda stofnað:
Mikilvægt er að samræma
útflutningsverð á bleikju
- segir Ingimar Jóhannsson, sem sæti á í stjórn félagsins
f.h. Silfurstjörnunnar hf. í Öxarfirði
„Mikilvægt er að samræma
útflutningsverð á bleikjunni og
miða við ákveðið lágmarks-
verð og koma þannig í veg fyrir
verðstríð framleiðenda,“ segir
Ingimar Jóhannsson, fujltrúi
Silfurstjörnunnar hf. í Öxar-
firði í stjórn Fagráðs bleikju-
framleiðenda, en það var
stofnað á dögunum.
Framleiðsla á eldisbleikju hef-
ur farið vaxandi hér á landi á
liðnum árum og í ár má ætla að
verði töluverð aukning. Silfur-
stjarnan hf. í Öxarfirði var stærsti
framleiðandinn á síðasta ári í
eldisbleikju og að sögn Ingimars
stefnir í 300 tonna framleiðslu hjá
fyrirtækinu á þessu ári.
Stærstur hluti bleikjunnar fer á
Bandaríkjamarkað, en einnig
hefur hún verið seld á Evrópu-
markað, einkum Frakkland.
Ingimar segir mikilvægt að fylgj-
ast vel með þróun á markaðnum
með það að markmiði að hindra
offramboð með tilheyrandi verð-
! falli. Verð fyrir bleikjuna hefur
enn haldist hátt, en það helgast
fyrst og fremst að því að varan er
ný og framboðið hóflegt.
Ingimar segir ekki ljóst hvernig
staðið verði að útflutningi á
bleikju héðan í framtíðinni.
Hann segir að til greina komi að
stofna sérstakt útflutníngsfélag
um bleikju, ellegar að ráða verk-
taka, sem unnið hefur að fisk-
útflutningi. „Báðar leiðir hafa
kosti og galla. Menn eru að velta
fyrir sér hvor þeirra sé hyggi-
legri,“ sagði Ingimar. óþh
Yfirvofandi Persaílóastríð:
Friðarstund
í Laugalandsskóla
- menntamálaráðuneytið fagnar þessu framtaki
og hvetur æskufólk til að taka undir friðarákall
nemenda og starfsfólks Laugalandsskóla
Að frumkvæði Garðars Karls-
sonar, skólastjóra Laugalands-
skóla í Eyjafirði, munu
nemendur og starfsfólks
Laugaiandsskóla efna til tíu
mínótna iangrar friðarstundar í
matsal skólans í dag kl. 9
árdegis þar sem beðið verður
fyrir friði í heiminum.
Garðar sagði í samtali við Dag
að vitanlega væru ófriðarblikur
við Persaflóa tilefni þessarar
bænastundar. „Við ætlum að
koma öll saman í borðsalnum
okkar klukkan níu. Friðarkerti
verða utandyra og kveikt verður
á kertum innan dyra. Síðan verð-
ur friðarbæn og að lokum sam-
einast allir í Faðir vorinu," sagði
Garðar.
Þessi táknræna friðarstund í
Laugalandsskóla hefur vakið
mikla athygli og hefur mennta-
málaráðuneytið séð ástæðu til að
senda frá sér fréttatilkynningu
þar sem þessu framtaki er fagnað
og æskufólk um land allt hvatt til
að taka undir friðarákall Lauga-
landsskóla með umfjöllun um
frið og á hvern hátt megi ’bæta
samskipti þjóða í milli.
Þá er Degi kunnugt um að hr.
Ólafur Skúlason, biskup íslands,
hefur beint því til presta landsins
að þeir biðji fyrir friði með
söfnuðum landsins í messugjörð-
um næsta sunnudag. óþh
Bátakjarasamningur LÍÚ og SSÍ samþykktur:
„Togarasamningurinn var felldur“
- segir Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjaíjarðar
Atkvæðagreiðsla vegna kjara-
samninga, er Sjómannasam-
band Islands og Landssam-
band íslenskra ótvegsmanna
gerðu seint á liðnu ári, fór
fram dagana 10.-30. desember
sl. Hjá Sjómannafélagi Eyja-
fjarðar voru atkvæði greidd á
félagsfundi 28. desember og
jafnframt fengu sjómenn á hafi
óti tækifæri til atkvæðagreiðslu.
„Síðastliðinn mánudag voru
síðan atkvæðin talin hjá sátta-
semjara þ.e. atkvæði greidd í
bátakjarasamningi og atkvæði
greidd vegna stóra togara-
samningsins. Bátakjarasamn-
ingurinn var samþykktur en
stóri togarasamningurinn var
felldur,“ sagði Konráð
Alfreðsson, formaður Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar.
Að sögn Konráðs hafði Guð-
laugur Þorvaldsson, ríkissátta-
semjari, lagt til við samninga-
nefndir Sjómannasambands
íslands og Landssambands
íslenskra útvegsmanna, að tillaga
að samningum þeirra í milli verði
samþykkt og sameiginleg
atkvæðagreiðsla verði um hana í
félögum innan sambandanna.
„I bátakjarasamningunum
greiddu 601 atkvæði. Þrjú hundr-
uð og sextíu sögðu já, tvö hundr-
uð þrjátíu og fjórir sögðu nei og
sjö atkvæði voru ógild. Kjara-
samningurinn var því samþykkt-
ur. Stóri togarasamningurinn var
hins vegar felldur. Þrjátíu og
einn greiddi atkvæði. Sjö sögðu
já, en 24 sögðu nei. Samninga-
menn sjómanna skrifuðu með
fyrirvara undir tvo samninga og
nú hefur annar þeirra verið sam-
þykktur en hinn ekki. Stóri tog-
„Samkvæmt tólkun Sjómanna-
sambandsins var stórtogara-
samningurinn felldur með 7
atkvæðum gegn 24, en Lands-
samband íslenskra ótvegs-
manna telnr samninginn sam-
þykktan með 367 atkvæðum
gegn 258. Aldrei var samið sér-
staklega fyrir þessa sjö stóru
togara og gengið var frá því hjá
sáttasemjara að báðir samn-
ingarnir skyldu skoðast sam-
þykktir eða felldir eftir taln-
ingu og að talið yrði upp ór
einum hatti,“ sagði Sverrir
Leósson, formaður Utvegs-
arasamningurinn, sem var
felldur, nær yfir sjö togara og við
hjá Sjómannafélagi Eyjafjarðar
vitum hvar óánægjan liggur. Allt
tal útgerðarmanna um að samn-
ingurinn sé aðeins einn og að
hann hafi hlotið samþykki á ekki
við rök að styðjast,“ sagði Kon-
ráð Alfreðsson. ój
mannafélags Norðurlands.
Að sögn Sverris greinir menn á
um hvort skoða eigi þessa samn-
inga sem einn eða hvort um tvo
samninga sé að ræða. „Ákveðið
var að greiða atkvæði um báta-
kjarasamninginn og samninginn
við undirmenn á stóru togurun-
um í sameiginlegri atkvæða-
greiðslu. Nú hefur talning farið
fram og samningarnir voru sam-
þykktir að mati okkar innan
LÍÚ. Hvert framhaldið verður
veit ég ekki og skil ekki málflutn-
ing Sjómannasambands íslands,“
sagði Sverrir Leósson. ój
Sverrir Leósson, formaður Útvegs-
mannafélags Norðurlands:
„Sammngar LÍÚ og
SSÍ voru samþykktir“