Dagur - 09.01.1991, Síða 7

Dagur - 09.01.1991, Síða 7
Miðvikudagur 9. janúar 1991 - DAGUR - 7 Björgunarsveitin Garðar: ísingin orðin eins og postulín - segir Árni Logi Sigurbjörnsson Björgunarsveitin Garðar á Húsavík var ræst út er járn- plötur voru farnar að fjúka í óveðri sem gerði miðvikudags- kvöldið 2. janúar sl. og síðan hefur sveitin verið að störfum, aðstoðað við að koma raf- magnsmálum í héraði í lag. í fyrstu voru 20-30 félagar kall- aðir út og voru menn á vakt nótt og dag. Og á mánudags- morgun er Dagur leit við í skýli björgunarsveitarinnar á Húsa- vík voru enn 14 félagar að störfum, 13 að berja ísingu af raflínum suður í sveitum en Árni Logi Sigurbjörnsson var á vakt við fjarskiptatækin. Árni Logi sagði að hann hefði lítið aðstoðað aðra á miðviku- dagskvöldið því nóg hefði verið að gera heima hjá sér. Hann hefði þurft að fá félaga sína úr björgunarsveitinni til hjálpar er veröndin við húsið var að fjúka og allt lauslegt umhverfis húsið hreinsaðist burtu í rokinu. Petta kvöld fór rafmagnið af og er dísel- stöðin var gangsett var afl hennar notað til götulýsingar svo björg- unarsveitarmenn og lögregla sæju betur til við að handsama járnplötur og annað lauslegt sem var að fjúka. Þeir aðstoðuðu fólk sem rúður brotnuðu hjá og fólk sem lenti í öðrum erfiðleikum vegna veðursins. Einnig var farið meðfram rafmagnslínunni við bæinn til að kanna ástand hennar. „Það sem verið er að gera núna er að brjóta af línum. Ég frétti rétt áðan að allt frá Klambraseli og suður væri ástandið mjög slæmt og mikið að gera. Þar væri allt alveg loðið af ís. ísnum hefur verið náð af línun- um með því að kasta upp á þær tógum og þar til gerðum lásum, síðan hafa endarnir verið hengdir aftan í snjósleða og keyrt á fullri ferð þannig að kólfurinn eða bandið á línunni sker ísinguna af henni. Meðan þetta hefur verið krapi hefur þetta gengið en snjór- inn utan á vírunum er orðinn harður eins og postulín þannig að það vinnst ekki á honum á þenn- an hátt nema slíta línurnar niður og þverslárnar á staurunum vilja brotna. ísingin næst því ekki af nema hún sé barin af með barefl- um. Núna var farið með rör og stangir til að berja ísinguna af eins og þegar verið er að berja ísingu af skipum. Aðstaðan við þetta verk er mjög misjöfn, sumsstaðar geta menn gengið við línurnar og 2-3 metrar eru upp í þær en þetta er öllu verra þegar hátt er upp í línurnar og þar sem þær eru slitnar og draga þarf þær upp úr snjónum og berja af þeim. Það eru mikið sömu mennirnir sem verið hafa við þetta þessa daga en það hafa komið köll víða að til að biðja um aðstoð. Þetta hefur verið feikilega erfitt, sérstaklega í hálfan annan sólarhing í fyrstu en þá var nán- ast illviðri, eitt alversta veður sem hægt var að fá. Það er nánast ekki hægt að fá föt sem halda þessari bleytuhríð og menn hafa verið í verulegri vosbúð. Ég fór fram að Fosshóli í gær og þar var farin staurasamstæða með spennum í. Það er alveg ótrúlegt hvernig þetta kubbast niður, mannvirki sem á sumar- degi, þegar ekkert á reynir, virð- ist voldugt að sjá, lekur núna nið- ur og ekkert virðist halda þessu. Það sem skeður er að þegar þessi mikla bleyta klessist svona á lín- urnar verður þetta svo þungt og mikið að ummáli og sveigjan til að bera línurnar með allri ísing- unni er búin, og svo kemur þessi mikli vindur og brýtur allt niður. Það virtist vera þannig með Húsavíkurlínuna að þegar ein staurasamstæða fór kom svo mik- ill slingur á þá næstu að þær brotnuðu hver af annarri þar til svo mikill slaki kom á línuna að hún var hætt að toga. Ég held að menn hafi aldrei ímyndað sér að þeir yrðu svona sambandslausir eins og þegar fjarskiptin fóru úr skorðum. Það var einn og hálfur sólarhringur sem heimilin í bænum heyrðu svo til ekkert í útvarpi. Það datt út FM sendirinn og miðbylgjusend- irinn og fæstir hafa orðið loftnet til að ná langbylgju. Sem betur fer varð aldrei nein ófærð, úr- koman var það blaut að aldrei hlóð niður neinum verulegum snjó svo alltaf voru flestar leiðir færar á bílum. Hér í skýlinu hefur verið heitt á könnunni og brauð með, bæði úr verslunum og heimahúsum. Það hefur verið alveg óhemju- mikið að gera og vakt hérna nán- ast allan sólarhringinn. Mér hefur fundist þetta ganga með ólíkindum vel. Mér vitan- lega hafa ekki orðið slys á mönn- um og allir hafa verið boðnir og búnir til að rétta fram hjálpar- hönd, enda hefði ekki verið hægt að vinna þetta nema með öllum þessum höndum. Mér finnst allir hafa staðið sig mjög vel, hafa gert það sem þeir gátu og jafnvel meira,“ sagði Árni Logi, en reiknað er með að björgunar- sveitarmenn muni vinna við að lagfæra rafmagnslínurnar nokkra næstu daga. IM raforka flutt frá Brennimel í Hvalfirði vestur og norður um til Vestfjarða og vesturhluta Norðurlands. Öryggisþjónusta í rafmagnsleysinu nyrðra hefur umræða manna beinst að röskun á þjónustu ýmissa stofnana. Því er rétt að taka fram, að þrátt fyrir að þungamiðja varaafls raforku verði ætíð hjá raforkufyrirtækj- um, hefur verið lögð á það áhersla, að stofnanir séu hver um sig ábyrgar fyrir sínu varaafli. Þannig er það í verkahring Pósts og símamálastofnunar að sjá um varaafl sem nauðsynlegt er fyrir útvarp, fjarskipti og síma. Á sama hátt er það sjúkrahúsa, flugmálastjórnar, hitaveitna og vatnsveitna að sjá fyrir því varaafli sem þarf til að halda uppi nauðsynlegri þjónustu þessara aðila í neyðartilvikum. Ljóst er að rafmagn er á flestan hátt undirstaða velferðar í þjóð- félagi nútímans. Gæði rafork- unnar og þjónusta skipta því miklu máli fyrir notendur. Þetta er staðreynd sem Rafmagnsveit- ur ríkisins gera sér grein fyrir enda er þeim kappsmál að veita eins góða þjónustu og unnt er á sem lægstu verði. Má í þessu sambandi benda á að öryggi orkudreifingar hér er svipað og á hinum Norðurlöndunum, en þar er orkudreifing talin á við það sem best gerist í heiminum. Samt sem áður má alltaf búast við áföllum í harðbýlu landi eins og ísland er. Starfsmenn Raf- magnsveitnanna leggja sig frarn um að stytta þann tíma sem raf- magnslaust er eins og frekast er unnt, en þó er aldrei hægt að koma í veg fyrir að einstaka not- endur verði rafmagnslausir um einhvern tíma. Rafmagnsveitur ríkisins biðja notendur á Norðurlandi, sem og aðra, að sýna þolinmæði og skiln- ing á þessum málum, jafnframt því sem þeir eru beðnir velvirð- ingar á umtalsverðum óþægind- um. aLaus staða yfirlæknis er heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra veitir. Staða yfirlæknis við fyrirhugaða réttargeðdeild er laus til umsóknar. Læknirinn skal hafa sérfræðiviðurkenningu í geð- lækningum og sérþekkingu eða reynslu á sviði réttargeðlækninga. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og störf sendast heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116,150 Reykjavík, fyrir 5. febrúar 1991. Allar nánari upplýsingar eru veittar í ráðuneytinu. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 4. janúar 1991. Málmiðnaðarmenn! Slippstöðin h.f. óskar að ráða stálsmiði til starfa nú þegar eða síðar. Mötuneyti á staðnum. Upplýsingar gefur starfsmannastjóri í síma 96-27300. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI MATARFRÆÐINGUR eða starfsmaður með starfsreynslu í eldun sjúkrafæðis, óskast strax eða eftir nánara sam- komulagi í eldhús F.S.A. Upplýsingar um starfið veitir Valdemar í síma 96- 22100 (283). Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Óskum eftir að ráða starfsfólk við rakgrind og yfirferð á voðum í vefdeild. Einnig vantar starfsfólk í saumadeildir. Upplýsingar hjá starfsmannastjóra í síma 21900 (220). Álafoss hf. Akureyri Norðlendingar! Opnið augun! Okkur vantar sölufólk og kannski ert það ein- mitt þú sem við leitum að? Hefur þú: ☆ Jákvæðni og drift? ☆ Bíl og síma? ☆ Aldur 20-45 ára? ☆ Hreint sakavottorð? ☆ Áhuga á góðum launum? ☆ Metnað fyrir velgengni? ☆ Góðan stuðning heiman frá? ☆ Vilja til aö vinna á kvöldin og um helgar? ☆ Getu til að vera skipulagður í starfi? ☆ Vilja og getu til að vinna í hópvinnu? Við bjóðum: ☆ Frítt sölunámskeið. ☆ Góða framtíðarmöguleika. Vekur þetta áhuga þinn: Hringdu þá í síma 96-11116 og fáðu viðtalsíma hjá Antoni Magnússyni, þriðjudag, mið- vikudag og fimmtudag frá kl. 09.00-16.00.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.