Dagur - 09.01.1991, Blaðsíða 11
fþróttir
Miðvikudagur 9. janúar 1991 - DAGUR - 11
Handknattleikur:
Alíreð með heimsliðinu
Alfreð Gíslason lék með heims-
liðinu í handknattleik gegn
Svíum í Stokkhólmi í gærkvöld
og leikur með því gegn Norð-
urlandaúrvalinu í Osló í kvöld.
Vafi lék á hvort Alfreð yrði
með i leikjunum eftir að mis-
skilningur kom upp milli HSÍ
og alþjóða handknattleikssam-
bandsins en það mál leystist
farsællega og Alfreð ákvað að
taka þátt í leikjunum.
Misskilningurinn milli IHF og
HSÍ fólst í að HSÍ átti að tilkynna
að Alfreð myndi þiggja sæti í lið-
inu en sú tilkynning komst ekki
til skila á réttum tíma. Því máli
var hins vegar kippt í liðinn og
eftir nokkra umhugsun ákvað
Alfreð að slá til og taka þátt í
leikjunum.
Meðal leikmanna í Norður-
landaúrvalinu verður Víkingur-
inn Guðmundur Guðmundsson
en hann kom í stað Þorgils Óttars
Mathiesen sem var upphaflega
valinn í liðið. Heimsliðið er
þannig skipað:
Markverðir:
Lorenzo Rico Diaz Spáni
Mirko Basic
Aðrir leikmenn:
Jochen Fraatz
Frank Wahl
Alexander Karsakevits
Alexander Tútsjkín
Veselin Vujovic
Mihaly Ivancsik
Jaime Puig
Ioan Mocanu
Abigniev Tluczynski
Alfreð Gíslason
Júgóslavíu
Þýskalandi
Þýskalandi
Sovétríkjunum
Sovétríkjunum
Júgóslavíu
Ungverjalandi
Spáni
Rúmeníu
Póllandi
íslandi
Stjórnandi liðsins er Ioan
Kunst-Ghermanescu frá Rúmen-
Freyr Gauti Sigmimdsson
íþróttamaður KA1990
Júdómaðurinn Freyr Gauti I mjög gott tímabil á síðasta ári
Sigmundsson var útnefndur og náði ágætum árangri, jafnt
íþróttamaður KA 1990 sl. innanlands sem utan. Skíða-
sunnudag. Freyr Gauti átti maðurinn Valdimar Valde-
Freyr Gauti Sigmundsson íþróttamaður KA.
Myndir: JHB
íþróttamaður
Norðurlands 1990
Nafn íþróttamanns:
1.
íþróttagrein:
Nafn:
Sími:
Heimilisfang:
Sendið til: íþróttamaður Norðurlands 1990
c/o Dagur, Strandgötu 31, 600 Akureyri.
Skilafrestur til 18. janúar 1991.
marsson varð annar í kjörinu
og knattspyrnumaðurinn Orm-
arr Örlygsson þriðji.
Freyr Gauti varð íslandsmeist-
ari í unglingaflokki og flokki full-
orðinna á síðasta ári. Hann vann
silfurverðlaun í opnum flokki
karla yngri en 21 árs og brons-
verðlaun á Norðurlandamótinu
og varð framarlega í mörgum
öðrum alþjóðlegum mótum.
íþróttamaður KA var fyrst
kjörinn á afmælisdegi félagsins
árið 1989 en þá var júdómaður-
inn Guðlaugur Halldórsson kjör-
inn íþróttamaður KA fyrir árið
1988. í fyrra hreppti knattspyrnu-
og handknattleiksmaðurinn
Erlingur Kristjánsson titilinn.
Um leið og íþróttamaður KA
var útnefndur notaði knatt-
spyrnudeild félagsins tækifærið
og hciðraði leikmenn sem náð
höfðu markverðum áföngum á
árinu. Erlingur Kristjánsson fékk
viðurkenningu fyrir að leika 250.
leik sinn en hann er langleikja-
hæsti knattspyrnumaður félagsins
frá upphafi. Til samanburðar má
geta þess að Haraldur Haralds-
son kemur næstur með 212 leiki.
Þá fékk Ormarr Örlygsson viður-
kenningu fyrir að leika 100. leik
sinn en þeir Gauti Laxdal og
Haukur Bragason, sem einnig
náðu þeim áfanga, voru fjarver-
andi.
Skíði:
Vilhelm Þorsteinsson
x með besta árangur
íslendinga frá upphafi
Vilhelm Þorsteinsson, skíöa-
maöur frá Akureyri, náði
besta árangri Islendings frá
upphafi á alþjóðlegu skíða-
móti í Austurríki milli jóla og
nýárs. Hann hafnaði í 27. sæti
og hlaut fyrir það 57 fis-stig.
Örnólfur Valdimarsson átti
besta árangur íslendings fram
að því, 60 stig.
Vilhelm hefur verið við
æfingar og keppni í Austurríki
ásamt Örnólfi og Hauk Arnórs-
syni frá því 21. desember. Er
þetta þriðja utanferð Vilhelms í
vetur en hann hefur verið að
undirbúa sig fyrir HM sem nú
hefur verið hætt við að taka þátt
í eins og fram kernur annars
staðar á síðunni. Þess má geta
að.Valdimar Valdemarsson er á
leið til Austurríkis og mun hann
dvelja þar með þeim félögum
fram í lok janúar og Guðrún H.
Kristjánsdóttir og María Magn-
úsdóttir halda utan um miðjan
mánuðinn.
Skíðamaðurinn Valdimar Valdemarsson varð í 2. sæti og tekur hér við verð-
launum úr hendi Sigmundar Þórissonar, formanns KA.
Sveinn Brynjóifsson, formaður knattspyrnudcildar KA, afhendir Erlingi
Kristjánssyni viðurkenningu fyrir 250 leiki.
Engir íslenskir skíðamenn á HM:
Akureyringar óhressir
með vinnubrögð SKÍ
Skíðasamband íslands hefur
ákveðið að senda ekki kepp-
endur á HM í alpa- og norræn-
um greinum sem fram fer í
Saalbach í Austurríki í febrú-
ar. Stjórn SKÍ telur að kepp-
endur á mótinu verði of sterkir
til að íslendingar eigi þar
heima og nær sé að senda
keppendur á veikari mót til að
bæta punktastöðu þeirra. Ak-
ureyringar eru óhressir með
þessa ákvörðun og hafa sent
stjórninni mótmæli sín.
Akureyringar eiga fjóra fasta
landsliðsmenn í alpagreinum,
þau Vilhelm Þorsteinsson, Valdi-
mar Valdemarsson, Guðrúnu H.
Kristjánsdóttur og Maríu Magn-
úsdóttur. Jón Ingvi Árnason var
einnig valinn í liðið en gefur ekki
kost á sér og Harpa Hauksdóttir
hefur verið viðloðandi það.
Landsliðsmennirnir hafa æft af
kappi að undanförnu og hefur sá
undirbúningur miðast við HM í
febrúar. Þeir hafa m.a. farið allt
upp í þrjár ferðir til útlanda og
þrátt fyrir að SKÍ hafi greitt
stærstan hluta kostnaðarins hafa
skíðamennirnir borið hluta hans
sjálfir.
Skíðaráð Akureyrar hefur sent
stjórn SKÍ mótmæli við þeirri
ákvörðun að hætta við þátttöku í
mótinu og telur þetta óviðunandi
vinnubrögð. Óðinn Árnason hjá
SRA sagði í samtali við Dag að
það væri rétt að Akureyringar
væru óhressir yfir þessu en tekin
hefði verið ákvörðun um að ræða
málið ekki frekar við fjölmiðla.
Blak:
Völsungur-KA
íkvöld
í kvöld mætast Völsungur og KA
í 1. deild kvenna í blaki. Leikur-
inn fer fram á Húsavík og hefst
kl. 19.