Dagur - 20.02.1991, Blaðsíða 1

Dagur - 20.02.1991, Blaðsíða 1
\ s 1 1 /( 1 1 el klæddur rötum frá BI KNIIAR1)I errobödin 1 1 HAFNARSTRÆTI92 ■ 602 AKUREYRI ■ SÍMI96-26708 BOX 397 Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.: Tilbíiin til loðnu- hrognatöku rnn helgina - verðmæti loðnuafurða frá Þórshöfn stóreykst Starfsmenn Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hf. eru þessa dag- ana að leggja lokahönd á upp- setningu vélasamstæðu til hrognatöku úr loðnu. Vclarnar voru keyptar frá Noregi, og er reiknað með að allt verði til- búið til hrognatöku og hrogna- frystingar á Þórshöfn um næstu helgi. Hilmar Þór Hilmarsson, verk- smiöjustjóri loönubræöslunnar á Þórshöfn, segir aö markmiöiö með kaupunum á þessum búnaði sé að auka verðmæti loðnuafuröa sem unnar eru á Þórshöfn. „Við höfum aldrei áður gert þetta. en verðum tilbúnir með vélarnar um næstu helgi. Uppsetning búnað- arins hefur farið fram í vetur, og þetta er töluverð framkvæmd. Vélarnar keyptum viö notaðar frá Noregi. Eftir aö hrognin hafa veriö tekin úr loðnunni verða þau fryst í frystihúsinu, en loðnan brædd að lokinni hrognatöku," segir Hilmar. Dalvík: Óbundnir öku- raenn kærðir Lögreglan á Dalvík greip til þess í fyrradag aö stöðva ökumenn sem ekki voru með öryggisbeltin spennt. Voru 10-15 manns kærðir og mega þeir eiga von á 1.000 kr. sekt fyrir hirðuleysið. Þá var ökumaður vélsleða stöövaður fyrir of hraðan akst- ur eftir Hafnarbraut í hjarta bæjarins. Mældist hann vera á 76 km hraöa. -ÞH Akureyri: Síðari umræðu um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar lokið: Fjárveiting til fjárfestinga 340 millj. í gær fór fram síðari umræða um frumvarp að fjárhagsáætl- un ársins 1991 fyrir Bæjarsjóð Akureyrar og sjóði og veitu- stofnanir á vegum bæjarins. Á fundi bæjarráðs sl. fimmtudag lauk endurskoðun frumvarps- ins. Færri ferðamenn hafa komið til Akureyrar frá áramótum en undanfarin ár og er snjóleysinu kennt um. Gísli Jónsson, umdæmisstjóri Flugleiða og framkvæmdastjóri Ferðaskrif- stofu Akureyrar, segir að skortur á skíðasnjó hafi greini- lega dregið úr ásókn í helgar- ferðir til Akureyrar. Gísli sagði að þótt Ættarmótið I bókun bæjarráðs 14. febrúar kemur frant aö fjárveitingum til fjárfcstinga er skipt þannig upp aö til nýbygginga og húsakaupa er variö 322 milljónum króna, til véla og tækja 18 milljónum, samtals 340 milljónir. væri með vinsælustu sýningum hjá Leikfélagi Akureyrar þá næði sýningin ekki að vega upp á móti áhrifum snjóleysisins. Ættarmót- ið væri mjög vinsælt meðal Akur- eyringa og íbúa í nágrannasvcit- arfélögum en höfuðborgarbúar virtust ekki hafa mikinn áhuga á leikritinu. Aðspurður sagði Gísli aö straumurinn hina leiðina væri eölilegur. Akureyringar kaupa Verkmenntaskólans á Akureyri 25 milljónir. til Menntaskólans á Akureyri 1 milljón, til Fjórð- ungssjúkrahússins 11 milljónir, til Síðuskóla 20 millj.. til þjón- ustukjarna við Víðilund 46,5 millj., til kjallara viö Víöilund sama mæli og áður enda hetur skemmtanalífiö í höfuðborginni alltaf sama aðdráttarafl hvað sem öllum snjó líöur. „Annars þurfum viö ekkert aö örvænta. Þetta fer oft ekki í gang fyrr en í byrjun mars og ef við fáum snjó kemur fölk á skíði. Ég hef líka trú á því að söngleikur- inn Kysstu niig, Kata slái í gegn," sagði Gísli. SS j húseigna 70 millj., til menningar- , mála 20 millj., til íþróttamála 20 millj., til ýmissa framkvæmda 3,9 millj. og til leiguíbúða 70 milljón- ir króna. I ramlög bæjarins til fram- haldsskóla og sjúkrahúss taka mið af framlögum ríkisins. Hvað Síðuskóla snertir er fjárveiting miðuð við aö Ijúka hönnun og hefja framkvæmdir við byggingu næsta áfanga, meö þaö að mark- miðiö að kennsla geti hafist haustið 1992. Frtimlag til þjónustukjarnans við Víðilund miðast við að hann verði tekinn í notkun á þessu ári. Fjárveitingin til kjallara við Víði- lund 20 greiðir eftirstöðvar kaup- verðs þess hluta húseignarinnar, en engar framkvæmdir eru á dagskrá í kjöllurum Víöilundar 20 og 24 á árinu. 30 milljóna króna framlag til dagvista rennur til kaupa á stofn- búnaði í Hólakot og til að hefja byggingu nýrrar dagvistarstofn- unar. Þetta fe skiptist þannig: Til 4,5 m111.|.. til dagvista 30 millj., til Innlendir ferðamenn: Fáir koma norður í snjóleysið - eðlilegur straumur til höfuðborgarinnar helgarpakka til Rcykjavíkur í Að sögn Hilmars eiga menn von á að fá nóg af loðnu til Þórs- hafnar á næstunni. Húnaröst AR 150 frá Þorlákshöfn landaði 700 tonnum hjá bræðslunni í gærkvöld, en þá eru komin 2.700 tonn til Þórshafnar eftir að loðnu- veiöibanni lauk. „Við erurn bjartsýnir á að töluverð vinnsla sé framundan. Menn verða aö vísu að borga meira hjá verk- smiðjum sem eru fjarri miðun- um, og svo er borgað hærra verð fyrir loðnu til hrognatöku," segir Hilmar. EHB Hve glöð er vor œska. Mynii: (Jolli Atvinnuástandið í janúar: Mikið atvmnuleysi á Húsavík og Siglufirði - Akureyri og Ólafsfjörður líka ofarlega á blaði Súlan EA fer á rækjuveiðar í gær var verið að gera Súl- ana EA 300 klára til rækju- veiða, en skipið á svo lítinn loðnukvóta eftir að ekki tekur því að fara á loðnu- veiðar. Sverrir Leósson, útgerðar- maður, segir aö ekki hafi tek- ist að kaupa viðbótarkvóta, þrátt fyrir tilraunir í þá átt. Súlan var í gær við bryggju í Krossanesi, þar sem verið var að þvo lestarnar með heitu vatni og undirbúa skipið að öðru leyti fyrir rækjuveiðar. Sverrir segir útilokað aö Súlan fari á loðnu nema ein- hver mikil breyting veröi. Hvað loðnuverðiö snertir segir hann ánægjulegt fyrir útgerð- irnar að þaö sé eins hátt og raun ber vitni. EHB í janúarmánuði sl. voru skráð- ir 70 þúsund atvinnuleysisdag- ar á Iandinu öllu og skiptust þeir svo til jafnt milli kynja. Þetta jafngildir því að 3.200 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðin- um eða 2,5% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Þetta er heldur betra ástand en spár höfðu gert ráð fyrir en þó hafa aðeins tvisvar verið skráð- ir fleiri atvinnuleysisdagar í janúar. Sem fyrr var atvinnuleysi mest á Norður- og Austurlandi. Að þessu sinni var það mest á Aust- urlandi, 6,2%, þá á Norðurlandi vestra eða 6,1% og 5,8% á Norðurlandi eystra. Minnst var atvinnuleysi á Vestfjörðum eða 0,3% og 1,2% á höfuðborgar- svæðinu. Á Norðurlandi vestra voru 307 án atvinnu í janúar á móti 170 í desember. Flestir voru atvinnu- lausir á Siglufirði eða 112, 65 á Sauðárkróki, 34 á Blönduósi, 29 á Skagaströnd og 20 á Hvamms- tanga. Mesta fjölgun á atvinnu- leysiskrá frá desember var á Siglufirði og Hvammstanga. Á Norðurlandi eystra voru 712 atvinnulausir í janúar á móti 476 í desember. Akureyri var þar efst á blaði en þar voru 293 án atvinnu. Tölur frá Húsavík eru líka sláandi, 173 atvinnulausir í janúar. Síðan kemur Ólafsfjörð- ur með 98, Dalvík með 68, Rauf- arhöfn 23 og Grýtubakkahreppur 21. Aukningin- frá desember er mest á Húsavík og Raufarhöfn. SS 70 milljóna króna framlag til húseigna fer til kaupa á Árstíg 2 undir slökkvistöð og breytinga á því húsnæði. Auk þess rennur hluti fjárveitingarinnar til kostn- aðar við vinnu vegna endurskipu- lagningar skrifstofuhúsnæðis Akureyrarbæjar. Til menningarmála er varið 20 milljónum, og er sú fjárveiting til að hefja framkvæmdir við hús- næði eða fjárntagna húsakaup fyrir stofnanir á sviði menningar- mála. íþróttaráð á að gera tillögur um hvernig spila skuli úr þeim 20 milljónum sem bærinn veitir til framkvæmda á sviði íþróttamála. Ákveðið er að hefja byggingu tíu leiguíbúða á árinu, en lántök- ur til þess verkefnis eru 60 millj- ónir króna. Lánið endurgreiðist á 50 árum með 1% ársvöxtum. Að lokum er fjárveitingu til ýmissa framkvæmda, 3,9 milljón- um, ætlað að mæta ýmsu tilfall- andi sem upp kann að koma á árinu. EHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.