Dagur - 20.02.1991, Qupperneq 7
Miðvikudagur 20. febrúar 1991 - DAGUR - 7
(F
Húsavík:
Gríimiball í barnaskóla
Öskudagurinn byrjaði snemma
á Húsavík samkvæmt venju,
því á þriðjudagskvöld voru
haldin grímuböll, bæði í barna-
skólanum og Framhalds-
skólanum. Dagur leit við á
grímuballi barnaskólans þar
sem aldeilis var stuð á liðinu og
dansað af miklu fjöri.
Nokkrir foreldrar höfðu
brugðið sér í búninga í tilefni
dagsins, bökuðu vöfflur og seldu
grimmt inn í kennslustofum.
Búningar barnanna voru margir
mjög skemmtilegir og í sumum
tilfellum var ekki vinnandi vegur
að þekkja vini sína innan í
umbúðunum, en við skulum leyfa
myndunum að tala sínu máli. IM
Myndir:
Ingibjörg
Magnúsdóttir
Séra Magnús Bjömsson
með fyrirlestra
Séra Magnús Björnsson, for-
maður Kristilegs félags heil-
brigðisstétta, verður staddur á
Akureyri dagana 20.-22.
febrúar og mun halda fyrir-
lestra sem hér segir:
Á Fjórðungssjúkrahúsinu mið-
vikudaginn 20. febrúar mun hann
fjalla um vandamál þjáningarinn-
ar, í Háskólanum sama dag og
Kristnesspítala verður efnið trú-
arlegar þarfir sjúkra tekið fyrir,
fimmtudaginn 21. febrúar verður
almennur fundur í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju kl. 20 og
þar mun séra Magnús halda fyrir-
lestur urn lífsviðhorf og giídis-
mat.
Umræður og kaffiveitingar
verða eftir fyrirlesturinn. Allir
eru hjartanlega velkomnir.
Konudagurinn
er nk. sunnudag
Blómin og konfektið
fáið þið hjá okkur
Blómabúðin
Laafás
Opið:
Hafnarstr.
Sunnuhlíð
laugardag
10-18
10-18
sunnudag
9-18
Ávallt betri og betri búð
Framsóknarvist
Spilakvöld
Þríggja kvölda keppni
Annað spilakvöld.
Framsóknarvist að Hótel KEA
fimmtudaginn 21. febrúar kl. 20.30.
Kvöldverðlaun fyrir hvert kvöld.
Góð heildarverðlaun fyrir öll þrjú kvöldin.
Ath. Mætið tímanlega.
Síðast var nálægt því fullt hús.
Allir velkomxiir.
Framsóknarfélag Akureyrar.
HLÍÐARLUNDI 2
Ný og glæsileg verslun í Lundarhverfi
Fimmtudaginn 21. febrúar
frá kl. 16-19
Kynning á vörum frá Kjarnafæði
Kynning á RC-Cola
★
LUNDARKJÖR er staðsett austan
við „stóru gulu blokkina“