Dagur - 20.02.1991, Page 11
Miðvikudagur 20. febrúar 1991 - DAGUR - 11
-4
íþróttir
íþróttafélagið Akur á Akureyri:
Fjórir keppendur tóku
þátt í Malmö Open
Slelán Thorarensen, Jón Stcfánsson, Elvar Thorarcnscn og Sigurrós Karlsdóttir voru fulltrúar ÍFA á stórinóti í
Svíþjóð. MymJ: SS
íslandsmót íþróttasambands fatlaðra í frjálsum íþróttum:
Ágætur árangur náðist á mótinu
Dagana 9.-10. febrúar si. tóku
fjórir félagar í íþróttafélagi
fatlaðra á Akureyri þátt í
miklu íþróttamóti í Svíþjóð,
Malmö Open ’91. Akureyrsku
keppendunum gekk vel og
komu heim reynslunni ríkari.
Dagur ræddi við þá skömmu
eftir heimkomuna.
Þeir sem tóku þátt í mótinu frá
ÍFA voru Elvar Thorarensen,
sem keppti í borðtennis, og Jón
Stefánsson, Sigurrós Karlsdóttir
og Stefán Thorarensen, en þau
kepptu í sveitakeppni í boccia.
Alls fóru 37 manns frá íslandi og
eru þá fararstjórar og aðrir fylgd-
ármenn meðtaldir.
- Hvernig gekk ykkur í keppn-
inni?
Elvar: „Ég var settur í rangan
flokk, með þeim sem voru minnst
fatlaðir. Ég fékk því breytt en
lenti aftur í röngum flokki og
reyndar var allt borðtennisliðið
frá íslandi flokkað bandvitlaust.
Ég náði ekki að vinna neinn leik
en hékk þó í andstæðingunum."
Stefán: „Það voru fjórar sveitir
í riðlinum og víð urðum efst
ásamt annarri sveit en töpuðum í
oddaleik."
Þau sögðust ekki hafa keppt á
slíkum stórmótum áður, nema
Sigurrós, og.sögðu að þaö væri
nauðsynlegt að keppa viö aðra.
ekki bara hvert við annað. Þátt-
taka í stærri mótum gæfi þeim
góða reynslu og væri jafnframt
mikilvæg hvatning.
Við vikum að aðstæðum til
æfinga hér heima. Jón sagði að
þær væru nokkuð góðar. Elvar
Þegar einni umferð er ólokið í
1. deild karla á íslandsmótinu í
handknattleik, er Ijóst hvaða
sex lið leika til úrslita um
Islandsmeistaratitilinn og
hvaða sex leika í fallkeppninni.
Víkingur hefur þegar tryggt
sér deildarmeistaratitilinn en lið-
in fimm sem leika í úrslitakeppn-
inni til viðbótar, eru Valur,
Stjarnan, Haukar, FH og ÍBV.
Víkingar fara með 4 stig í úrslita-
keppnina, Valsmenn 2 og Stjarn-
an 1 stig.
sagðist æfa þrisvar í viku og það
væri full lítið. Þau æfa borðtenn-
is, boccia og sund. „Ég fer nú
bara í pottinn," sagði Elvar, en
Sigurrós hefur unnið mörg afrek í
sundi en segist hafa dregið mjög
úr sundiðkun.
„Ég er farin að minnka það
mikið. Það er ekki hægt að vera í
öljum greinunum, maður verður
að velja," sagði Sigurrós.
„Ég hef líka verið að hlaupa og
keppt í hlaupum," sagði Stefán.
Næstu mót sem íþróttafólkið
stefnir á eru íslandsmót og
Hængsmótið. Hvað varðar mót á
erlendri grundu gátu þau ekkert
sagt um en þau vonuðust til að
komast aftur á slíkt mót.
„Þetta gekk mjög vel í Svíþjóð
og við komum heim reynslunni
ríkari," sögðu þau.
Elvar, Stefán, Jón og Sigurrós
vildu koma á framfæri þakklæti
til fyrirtækja sem styrktu þau í
mtiraþonkeppni í boccia sem
haldin var á Bjargi í vetur eh þar
söfnuðu þau fé til fararinnar.
Þröstur Guðjónsson, íþrótta-
kennari, fór með íþróttafólkinu á
Malmö Open. Hann var mjög
ánægður með ferðina og frammi-
stöðu sinna manna.
„Þetta var í fyrsta sinn sem þau
tóku þátt í slíku stórmóti og þeim
gekk mjög vel. Þarna þurfa kepp-
endur að leggja mikið á sig til að
komast áfram í keppninni.
Krakkarnir voru óheppnir, boccia-
sveitin var alveg við þaö að kom-
ast áfram og Elvar stóð sig vel
þótt hann hefði lent í röngum
flokki. Ég er nijög ánægður með
ferðina," sagði Þröstur. SS
I fallkeppninni leika KR, KA,
Grótta, ÍR, Selfoss og Fram. KR
og KA berjast um 7. sætið í
deildinni, sem tryggir fjögur stig í
fallkeppnina. Liðið í 8. sæti fer
rneð 2 stig í keppnina. KR er
með 18 stig en KA 17. KR leikur
gegn Víkingi í síðustu umferð-
inni en KA sækir Gróttu heim.
Grótta fer hins vegar í keppnina
mcð 1 stig.
2. deild:
HK varð deildarmeistari í 2.
íslandsmót íþróttasambands
fatlaðra í frjálsum íþróttum
innanhúss fór fram um síðustu
helgi. Keppt var í flokkum
þroskaheftra 1. og 2. flokki,
flokki sjónskertra og flokki
hreyfihamlaðra, sitjandi og
standandi flokki. Þessi röðun í
flokka er ekki sambærileg við
það sem gerist erlendis en
vegna fámennis þarf t.d. að
sameina alla flokka hreyfi-
hamlaðra í tvo flokka, sitjandi
og standandi.
Mikilvægt er að gera sér grein
fyrir þessu þegar árangur er
deild og fer með 4 stig í úrslita-
keppnina. Þórsarar urðu í 2. sæti
og fara með 2 stig og UBK með
1. stig. Hin þrjú liöin sem keppa
um sætin tvö í 1. deild að ári, eru
UMFN. ÍBK og ÍH eða Völsung-
ur.
Völsungar eiga tvo leiki eftir í
deildinni en ÍH hefur lokið sínum
leikjum. Vinni Völsungur annað
hvort Ármann eða UBK um
næstu helgi, tryggir liðið sér þátt-
tökurétt í keppninni um 1. deild-
arsætin tvö á kostnað ÍH. -KK
skoðaður. Þar sem mjög fáir
keppa ennþá á Islnndi í frjálsum
íþróttum, flokki hreyfihamlaðra,
er besti árangur hvers einstakl-
ings oft íslandsmet, samkvæmt
norrænu og alþjóðlegu flokkun-
arkerfi.
Árangur varð ágætur á mótinu
og kornu fram efnilegir íþrótta-
nienn úr rööum þroskaheftra og
hreyfihamlaðra sem þarna tóku
þátt í íslandsmóti í fyrsta skipti.
Þátttakendur í þessu móti voru
53 frá 8 félögum. Fulltrúar
Kiwanisklúbbsins Esju afhentu
verðlaun í mótslok en klúbburinn
hefur styrkt íslandsmót ÍF í mörg
ár.
Urslit í einstökum greinum og
flokkum uröu þessi: 1‘roskaheltir: 511 m hlaup ka. 1. fl. Aðalsteinn Fríðjónssun, Eik 7.3 sek.
5(1 m hlaup ka. 2. fl. Jón Guövarðarson. Ösp 8.1) sek.
511 m Irlaup kv. 1. fl. Bára B. Erlingsclóttir. Ösp 8.3 sek.
511 m hlaup kv. 2. 11. Steinunn Indriöadóttir, Suðra 8,8 sek.
2(1(1 m hlaup ka. Aöalsteinn Friðjónsson, Eik 30.4 sek.
2(1(1 m hlaup kv. Bára B. Erlingsdóttir. Ösp 38.0 sek.
Langst. ka. 1.11. Aðalsteinn Friðjónsson, Eik 4.84 m
Langst. ka. 2. ti. Jón E. Guðvarðarson, Ösp 3,74 m
Langst. kv. 1. tl. Bára. E. Erlingsdóttir, Ösp 3.77 m
Langsl. kv. 2. 11. Anna Ragnarsdóttir. Eik 3.09 m
Langst. án atr. ka. 1. tl. Kristóíer Astvaldsson. Viljanum 2.47 m
Ltingst. án atr. ka. 2. 11. Sævar Bergsson. Eik 2,10 m
Langst. án atr. kv. 1. tl. Bára B. Erlingsdóttir. Ösp 2.19 m
l.angst. án atr. kv. 2. 11. Guðrún Ólafsdóttir. Eik 2.10 m
Hást. ka. 1. fl. Aðalsteinn Friðjónsson. Eik 1,38 m
Hást. ka. 2. 11. Valdimar Sigurösson, Eik 1,15 m
Hást. kv. 1. 11. Sigrún H. Hrafnsdóttir. Ösp 1,25 m
Ktilus. ka. 1. fl. Haukur Stefánsson. Ösp 10.55 m
Kulm. ka. 2. 11. Gunnar J. Halldórsson, Suöra 10.50 m
Kúluv. kv. 1. fl. Bára B. Erlingsdótlir. Ösp 7.81 m
Kúluv. kv. 2. 11. Steinunn Indriðadóttir. Suðra 4,80 m
Hreyfihamlaðir: 50 m hlaup ka. Geir Sverrisson. UMFN 6.5 sek.
50 m hjólast. akstur ka. Arnar Klemensson. Viljanum 10.5 sek.
Kúluv. ka. standandi Geir Sverrisson. UMFN 11.95 m
Kúlu\ ka. sitjandi Rcynir Kristófersson. ÍFR 7.35 m
Sjónskertir: 50 m lilaup kv. Svava Sigurðarsdóttir. ÍFR 7.9 sek.
200 m hlaup kv. Svava Sigurðardóttir. IFR 35.7 sek.
Langst. án atr. Svava Sigurðardóttir, ÍFR 1,89 m
Handbolti 1. deild:
KA-merai leika í fallkeppninni
Handknattleikur:
Jakobi Jónssyni gengur vei í Noregi
- skrifaði á dögunum undir nýjan tveggja ára samning við Viking
Fyrir skömmu undirritaði
handboltamaðurinn Jakob
Jónsson nýjan tveggja ára
samning við norska liðið Vik-
ing frá Stavanger. Jakob er
Akureyringur sem hefur leikið
með Viking sl. tvo vetur en
áður lék hann með KA eins og
menn muna. Jakob kann vel
við sig í Noregi og hefur átt
góðu gengi að fagna í íþrótt
sinni en hann segist þó reikna
með að koma heim að tveimur
árum liðnum.
Vikingliðinu hefur reyndar
ekki gengið sem skyldi í vetur og
er nú í 5.-6. sæti, fjórum stigum
frá 4. sætinu sem gefur sæti í úr-
slitakeppni um titilinn. Sjö
umferðir eru eftir og þar af á Vik-
ing eftir fimm útileiki.
„Þetta hefur ekki gengið alveg
nógu vel hjá liðinu. Prógrammið
sem er eftir er óneitanlega nokk-
uð strembið en það getur allt
gerst. Árangur okkar í fyrra var
heldur ekki nægilega góður. Við
erum með danskan þjálfara sem
að nær að mínu mati ekki nægi-
lega mikið út úr þessum
mannskap. Hins vegar gæti orðið
breyting á þessu næsta ár. Þá
verður skipt um þjálfara þar sent
sá danski þarf að fara heim og
forráðamenn liðsins eru að vinna
í að fá örvhenta skyttu frá Júgó-
slavíu eða Sovétríkjunum og
góðan línumann. Það á að byggja
upp sterkt lið og það var meðal
annars þess vegna sem mig lang-
aði til að vera hérna lengur,1'
sagði Jakob.
Annar markahæstur
í liðinu
Honum sjálfum hefur hins vegar
gengið flest í haginn eftir nokkuð
erfitt tímabil í fyrra. „Ég spilaði
minna í fyrra en ég er vanur að
gera. Það er danskur spilari
vinstra megin fyrir utan og hann
var notaður og ég verð að viður-
kenna að ég var ekki sáttur við
það. Hann getur skotið en ekkert
annað og ég tel mig vera betri
spilara. En þjálfarinn hefur auð-
vitað trú á sínum manni. Seinni
hlutann í fyrra fór ég síðan að
spila í vinstra horninu og hef gert
það í vetur."
Jakob hefur átt gott tímabil í
vetur og hann skoraði t.d. átta
mörk gegn nágrannaliðinu Sta-
vanger á dögunum. „Já, mér
persónulega hefur gengið ágæt-
lega í vetur og ég kann vel við
mig í horninu. Reyndar er sá
danski við hliðina á mér og hann
er með leppa fyrir augunum og
sér eitthvað lítið. Maður fær nán-
ast enga bolta frá honum og þarf
því að gera hlutina upp á eigin
spýtur. Það hefur gengið vel og
ég er núna annar markahæstur í
liðinu. Þá er þetta besta árið mitt
hingað til sem varnarmaður. í
síðustu fimm leikjum hafa horna-
mennirnir á móti mér skorað tvö
inörk."
Heim eftir tvö ár
Jakob segist kunna vel við sig í
Noregi. Hann býr í stóru einbýl-
ishúsi fyrir utan Stavanger og
kona lians rekur snyrtivörubúð
sem þau keyptu fyrir nokkru.
Jakob er í svokallaðri hálf-
atvinnumennsku, vinnur 24 tíma
á viku auk þess að æfa og spila
handbolta. Eins og fyrr segir
skrifaði hann nýlega undir
tveggja ára samning við félagið
en hefur möguleika á að fara eftir
eitt ár.
„Við reiknum með að vera
hérna næstu tvö árin en ég held
að það sé alveg öruggt að við
komum heim þá. Það er auðvitað
fullsnemmt að segja hvað maður
gerir þá en það er sennilegast að
rnaður fari norður og spili með
KA,“ sagði Jakob Jónsson.