Dagur - 20.02.1991, Síða 12
Umboð og þjónusta
Skálafell sf.
Draupnisgötu 4 • Akureyri • Sími 22255
Kaupfélag Langnesinga:
Þrír sækja um stöðu
kaupfélagsstjóra
Þrír sækja um stöðu kaupfé-
lagsstjóra Kaupfélags Lang-
nesinga, en umsóknafrestur
rann út 7. febrúar sl. Viðræður
eru hafnar við einn umsækj-
enda og vonast Sigtryggur Þor-
láksson, stjórnarformaður KL,
til að í næstu viku skýrist hvort
hann verði ráðinn.
Sigtryggur vildi á þessu stigi
ekki gefa upp nöfn umsækjenda.
Hann sagði að einn umsækjenda
þætti áiitlegastur og vonast væri
til þess að samningar tækjust við
hann. Pað myndi væntanlegast
ráðast í næstu viku.
Kristján Karl Kristjánsson,
núverandi kaupfélagsstjóri, hefur
sagt upp störfum og er gert ráð
fyrir að hann láti af störfum um
mánaðamótin aprfl-maí. óþh
Húsmóðir á Akureyri:
Fékk 7 millj. í lottóinu
- „mér varð voðalega mikið um“
Skýrslur tveggja nefnda um byggðamál kynntar í gær:
Stefiit að auknu jafiivægi
í byggð landsins
- róttækar tillögur um aukið vald sveitar-
félaga og breytingar á Byggðastofnun
Forsætisráöherra kynnti í gær
skýrslur tveggja nefnda um
byggðamál á Islandi. Þar er að
finna róttækar tillögur, m.a.
um breytingu á starfsemi
Byggðastofnunar og aukið
vald til sveitarfélaga á lands-
byggðinni og viðkomandi kjör-
dæma. TiIIögurnar miða að því
að sporna við hinum umfangs-
miklu þjóðflutningum af lands-
byggðinni til höfuðborgar-
svæðisins, eins og nefndar-
menn komast að orði.
Önnur nefndin hóf störf í des-
ember 1989 undir forsæti Stefáns
Guðmundssonar, alþingismanns.
Henni var gert að gera tillögu um
skipulag Byggðastofnunar og
fyrstu aðgerðir í byggðamálum.
Fram koma eftirfarandi tíu til-
lögurfrá nefndinni: 1. Meira vald
verði fært til héraða og samstarf
sveitarfélaga aukið. 2. Komið
verði á fót héraðsmiðstöðvum í
öllum kjördæmum á landsbyggð-
inni. 3. Stefnumótandi áætlana-
gerð með virkri þátttöku heima-
manna verði tekin upp á sviði
byggðamála. 4. Meirihluti nýrra
starfa í opinberri þjónustu verði
til á landsbyggðinni. 5. Sveitar-
félög verði sameinuð. 6. Atvinnu-
þróunarfélög verði efld og
atvinnuþróunarsjóðir styrktir í
kjördæmum landsbyggðarinnar.
7. Jöfnun raforkuverðs og sam-
eining orkufyrirtækja. 8. Skipu-
lag farþegaflutninga verði endur-
skoðað og samræmt. 9. Byggða-
sjónarmiða verði gætt í almennri
efnahagsstjórn. 10. Fjárhagur
Byggðastofnunar verði efldur.
Byggðanefnd forsætisráðherra
hét hin nefndin og hefur hún
starfað í rúmt ár undir for-
mennsku Jóns Helgasonar, al-
þingismanns. Megintillaga nefnd-
arinnar er að breyta lögum um
hlutverk og störf Byggðastofnun-
ar. Þar er lagt til að Byggðastofn-
un geri byggðaáætlun til fjögurra
ára í senn. Einnig er kveðið á um
aukinn stuðning stofnunarinnar
við atvinnuþróun. Lagt er til að í
hverju kjördæmi verði starfandi
atvinnuráðgjafi og eitt eða fleiri
atvinnuþróunarfélög sem Byggða-
stofnun veitir stuðning við ráð-
gjöf og þróunarstarf.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, lét í ljós ánægju
sína með störf nefndanna tveggja
á blaðamannafundi í gær og sagði
að fljótlega myndi hann leggja
fram frumvarp á Alþingi um
Samningur um sölu Sjálfs-
bjargar á Akureyri á fyrirtæk-
inu Ako hf., sem framleiðir
plastpoka undir vörumerkinu
Akopokinn, er að sögn
Ásgeirs Péturs Ásgeirssonar,
formanns Sjálfsbjargar, fyrsta
skrefið í endurskipulagningu á
Á dögunum varð vart við tvær
óþekktar kindur í fjárhópi'
Ágústar Guðröðarsonar,
bónda á Sauðanesi í Norður-
Þingeyjarsýslu.
Þarna voru þá komnar tvær ær
frá Saurbæ á Langanesströnd,
sem ekki höfðu verið heimtar af
fjalli sl. haust og hafa því gengið
breytingar á lögum um Byggða-
stofnun. Þá sagði hann að áhersla
yrði lögð á að tilllögur nefndanna
fengju afgreiðslu fyrir þingiok í
vor. „Með þessari vinnu stefnum
við að jafnvægi í byggðum
landsins. Fiutningar hafa verið
afar miklir til höfuðborgarsvæðis-
ins síðasta áratug þrátt fyrir mikl-
ar samgöngubætur og bætur í
fjarskiptum. Það verður aldrei
hjá breytingum komist á lands-
byggðinni, en þær þurfa að gerast
þannig að við vitum að hverju við
stefnum og hvað við viljum,"
sagði Steingrímur. bjb
fjárhag félagsins. Fyrirtækið
verður að líkindum selt fimm
einstaklingum á Akureyri og
er gert ráð fyrir að þeir taki við
rekstrinum þann 1. mars næst-
komandi.
Sjálfsbjörg hefur rekið plast-
pokafrantleiðsluna frá árinu
úti í allan vetur.
Ágúst sagði í samtali við Dag
að ærnar væru báðar veturgamlar
og hafi önnur þeirra verið tölu-
vert aflögð. „Þær voru ekki mikið
styggari en ærnar mínar. Ég
smalaði þeim 20. desember og
hélt þeim og svo hurfu þær jafn-
harðan aftur.“ óþh
Guðlaug Jóhannsdóttir, hús-
móðir á Akureyri, datt heldur
betur í lukkupottinn sl. laugar-
dag. Hún var ein með fimm töl-
ur réttar í lcttóinu og fékk að
launum rétt um sjö milljónir
króna, nánar tiltekið 6.993.607
krónur.
Guðlaug sagðist í samtali viö
Dag hafa keypt sjálfvalsmiða á
vinnustað sínum, kjörbúð KEA
við Byggðaveg á Akureyri. Hún
fylgdist ekki með útdrættinum á
laugardagskvöldið og það var
ekki fyrr en að morgni sl. mánu-
dags sem hún uppgötvaði að hún
hefði verið ein með fimm réttar
tölur.
„Mér varð voðalega mikið um.
Þetta skeði allt svo snöggt á mánu-
dagsmorguninn. Ég tók miðann
minn með mér í vinnuna og ætlaði
að athuga á lottókassanum hvort
ég hefði unnið eitthvað. Þá kom
þetta í Ijós og allt fór upp í loft,"
sagði Guðlaug.
Hún sagði að þessir peningar
kæmu í góðar þarfir. „Ég er nú
ekki búin að ákveða hvort ég fer
1986. Á þessum tíma hefur hluti
véla verið endurnýjaður. Þegar
ákvörðun var tekin um að selja
fyrirtækið var starfsmönnum sagt
upp og byrjar þriggja mánaða
uppsagnarfrestur þeirra að líða
þegar nýju eigendurnir taka við.
Framleiðslan er í húsi Sjálfs-
bjargar við Bugðusíðu og verður
þar til næstu áramóta.
Salan á plastpokaframleiðsl-
unni er, að sögn Ásgeirs Péturs
Ásgeirssonar, formanns Sjálfs-
bjargar, fyrsta skrefið í endur-
skipulagningu á fjárhag félagsins.
„Meginmálið er að losna úr þess-
um rekstri því við erum að
endurskipuleggja alla starfsemi
Sjálfsbjargar. Þetta er fyrsti leik-
ur í þessari endurskipulagningu
sem við reiknum með að sjáist
fyrir endann á um mitt ár. Þá ætti
félagið að vera komið á lygnan
sjó,“ sagði Ásgeir Pétur. JÓH
út í íbúðaskipti eða nota pening-
ana í annaö," sagði Guölauu.
óþh
Sauðárkrókur:
Viðræðurumsölu
á heitu vatni
Mikill áhugi virðist vera í ná-
grannahreppum Sauðárkróks
að ná samningum um kaup á
heitu vatni frá Hitaveitu Sauð-
árkróks. Fyrir skömmu sóttist
Rípurhreppur eftir viðræðum
við bæjarstjórn á Sauðárkróki
um kaup á vatni og nú hafa
Staðar- og Skarðshreppur fylgt
í kjölfarið.
Hreppsnefndir Skarðs- og
Staðarhrepps hafa skipað nefndir
til að eiga viðræður við bæjaryfir-
völd og Hitaveitu Sauðárkróks
um kaup á heitu vatni af Hita-
vcitu Sauðárkróks. Á næstunni
verður haldinn viðræðufundur og
verður þá rædd gerð fjárhags-
áætlunar fyrir hugsanlega lagn-
ingu hitaveitu í Borgarsveit og
áfram á næstu bæi í Staðar-
hreppi.
Bæjarstjórn og bæjarráð Sauð-
árkróks hafa samþykkt að taka
upp þessar viðræður við Staðar-
og Skarðshrepp og ákveðið er
hverjir munu vera í viðræðu-
nefnd fyrir hönd Sauðárkróks.
Líklegt er að könnun á heim-
taugagjöldum og rekstrarkostn-
aði við lögn heita vatnsins verði
framkvæmd. Hvort Hitaveita
Sauðárkróks treystir sér til að
leggja hitaveitu og selja íbúum
Borgarsveitar vatn á sama verði
og íbúum Sauðárkróks kemur
væntanlega í ljós á næstu misser-
um. kg
Byggingarvísitalan:
Arshækkunin 5,3%
Hagstofan hefur reiknað út vísi-
tölu byggingarkostnaðar eftir
verðlagi um miðjan febrúar 1991
og gildir hún fyrir marsmánuð.
Reyndist hún vera 177,1 stig eða
0,2% hærri en í janúar. Síðustu
tólf mánuði hefur byggingarvísi-
talan hækkað um 5,3%, en síð-
ustu þrjá mánuði um 1,7% og
samsvarar það 7,1% árshækkun.
-ÞH
Sjálfsbjörg:
Plastpokaframleiðslan í hendur
nýrra eigenda um næstu mánaðamót
Langanes:
Tvær kindur koma fram