Dagur - 23.02.1991, Page 9
Ljósopið
Ódauðleg listaverk
Akureyri geymir ódauðleg listaverk, minnismerki sem gefa bænum svip.
Sum eru í allra augsýn, önnur á afviknum stað. Ekki er þó víst að listaverk
við umferðaræð veki meiri eftirtekt en verk sem er falið í trjálundi fjarri
skarkala hins daglega lífsmynsturs. Við tökum oft ekki eftir Ijóma perlunnar
sem blasir við á hverjum degi en finnum við perlu eftir dágóða leit þykir okk-
ur hún skína skært. Samt Ijóma þær eins. Og þessar perlur okkar hafa þann
eiginleika að vekja nýjar tilfínningar í hvert sinn sem þær eru skoðaðar því
Ijómi þeirra breytist í samræmi við birtuna hverju sinni, jafnt birtu náttúru
sem sálar. Þannig eru listaverk bæjarins, þau er enn standa. SS
Laugardagur 23. febrúar 1991 - DAGUR - 9
Ljósmyndir: Rikki