Dagur - 23.02.1991, Síða 13
Laugardagur 23. febrúar 1991 - DAGUR -13
The Cult byrjaðir að
vinna að nýrri plötu
- Vandræöi meö trommu- og bassaleikara
gætu þó tafið fyrir henni
Breska rokksveitin The Cult hef-
ur allan sinn feril átt í miklu basli
meö trommuleikara og hefur hún
til aö mynda notað tvo gesta-
trommuleikara á tveimur síöustu
plötum sínum.
Þessi trommuleikaravandræði
viröast enn engan endi ætla aö
taka því aö við vinnu á nýrri
plötu, sem hófst fyrir áramót, hef-
ur hljómsveitin notast viö tvo
trommuleikara sem hvorugur
hefur viljaö ganga í hljómsveitina
að fullu.
Fyrst kom við sögu Matt nokk-
ur Sorum, sem yfirgaf Cult fljót-
lega eftir aö honum var boðið aö
taka sæti Steven Adler í Guns ’n'
Roses (því veseni öllu saman
hefur Poppsíðan skýrt frá áöur),
en í hans stað kom síðan James
Kotak, sem áður var í hljómsveit-
inni Kingdom Come, sem heldur
Umsjon:
Magnús Geir
Guðmundsson
Þeir fólagar lan Astbury og Billy
Duffy úr The Cult vinna nú aö nýrri
plötu af fullum krafti þrátt fyrir vand-
ræði meö trommu- og bassaleikara.
ekki stoppar lengi viö, en hefur
þó fallist á aö spila á hina nýju
plötu Cult sem gestur og veröur
því sá þriðji í rööinni í því hlut-
verki hjá hljómsveitinni.
Leit aö föstum trommuleikara
er reyndar ekki eina vandamáliö
sem viö blasir hjá The Cult því aö
ennþá hefur enginn bassaleikari
fundist í staö Jamie Stewart,
sem yfirgaf hljómsveitina á fyrri
hluta síðasta árs.
Þeir félagar, lan Astbury
söngvari og Billy Duffy (ekkert
skyldur Patrick í Dallas) gítarleik-
ari, máttarstólpar The Cult og
stofnendur hljómsveitarinnar áriö
1981, láta þó engann bilbug á
sér finna og hafa haldið ótrauðir
áfram viö vinnu á nýju plötunni,
sem þegar þetta er ritaö er ekki
vitað hvenær kemur út.
Þaö er þó Ijóst aö úr verður að
rætast fyrr en seinna hjá Cult því
óhjákvæmilegt er annað en
hljómsveitin fari í mikla tónleika-
ferö til aö fylgja plötunni eftir.
Það er annars um þessa nýju
plötu Cult aö segja að hún er sú
fimmta í röðinni undir nafni The
Cult (hljómsveitin hét upphaflega
Southern Death Cult og kom ein
plata út undir því nafni) og er
hennar beðiö meö nokkurri eftir-
væntingu þar sem síðasta
platan, Sonic Temple, sem út
kom 1989, þótti mjög góð og
seldist mjög vel, sérstaklega í
Bandaríkjunum.
Eins og áöur segir er ekki vitað
hvenær platan kemur út en
Poppsíöan mun greina frá því
þegar fregnir af því berast.
Hitt og þetta
Stranglers
Stranglers, sem missti forsprakka
sinn og söngvara Hugh Cronwell í
ágúst sl. hefur nú loks eftir langa
mæöu fundið eftirmann hans.
Heitir hann Paul Roberts og er alls
óþekktur, enda verður Stranglers
fyrsta hljómsveitin sem hann
starfar formlega meö. Þá hefur
John Ellis verið tekinn inn í hljóm-
sveitina en hann spilaði með
henni á síðustu tónleikaferðinni
um Bretland. Hefur Ellis m.a.
unnið sér til frægðar áður að
spila með Peter Gabriel og þá var
Kirk Hammet og félagar í Metallica
líklega í annað sinn á Donnington í
sumar.
hann einn af upprunameðlimum í
nýbylgjusveitinni Vibrators
Metallica og Skid Row
á Donnington?
Poppsíðan skýrði frá því fyrir
nokkru að ástralska sveitin AC/DC
yrði aö öllum líkindum aðalnúm-
erið á Donningtonrokkhatíðinni,
sem haldin er ár hvert í Englandi
og margir Islendingar hafa sótt.
Nú hafa nöfn Metallica og Skid
Row einnig verið nefnd, sem lík-
legir kandidatarfyrir hátíðina í ár.
Mun Metallica koma fram sem
sérstakir gestir næst á undan AC/
DC og Skid Row þar á undan, ef af
verður. Enn sem komið er hefur
R.E.M. hafa I nógu að snúast þessa
dagana.
ekkert verið staðfest, þó má gera
ráð fyrir að málið skýrist innan
skamms og úr því fáist skorið
hvaða fimm hljómsveitir munu
koma fram.
R.E.M.
Fyrir skömmu skýrði Poppsíðan
frá því að R.E.M. myndi koma
með nýja plötu í byrjun mars og
að hljómsveitin væri að taka upp
lag eftir Leonard Cohen fyrir safn-
plötu með lögum hans (lagið First
we take Manhattan). En þeir fé-
lagar í R.E.M. láta ekki þar við
sitja heldur eru enn í hljóðveri og
nú til að taka upþ tónlist fyrir nýja
kvikmynd þýska leikstjórans Wim
Wenders. Ekki er þó vitað enn
hvort um nýja tónlist verði að
ræða, þar sem einnig er inni í
myndinni að endurvinna lög af
Out of time fyrir myndina. En
hvað sem því líður þá ætlar
hljómsveitin að verkinu loknu að
fljúga til Bretlands og koma þar
fram í sjónvarpi í þeim tilgangi að
kynna Out of time.
Bob Marley
Þótt nú séu um tíu ár síðan
Reggiekóngurinn frá Jamaika
Bob MarleyiéW frá þá er minningu
hans haldið vel á lofti og hans
enn sárt saknað. Ný plata með
áður óútgefnum útvarpsupptök-
um frá San Fransiskó árið 1973,
en þá var Bob Marley ásamt
hljómsveit sinni The Wailers á
sinni fyrstu tónleikaferö um
Bandaríkin, er nú að koma út, ef
hún er þaö þá ekki nú þegar, og
nefnist hún Talkin’ Blues. Þá hafa
stjórnvöld á Jamaika ákveðið að
heiðra Marley með þvi að tileinka
sjötta febrúar ár hvert honum og
mun hann framvegis nefnast
dagur Bob Marley.
Morrissey
Aðdáendur gamla Sm/ttssöngv-
arans geta nú gerst kampakátir
því nú þegar hefur kappinn sent
frá sér nýtt lag sem kallast Our
Frank og nýja breiðskífan Kill
Uncle sér dagsins Ijós á mánu-
daginn kemur. Efni plöturnar
samdi Morrissey í félagi við gítar-
leikarann Mark Nevin. en aðrir
sem spila með á plötunni eru
m.a. Bedders, sem spilar á bassa,
og trommuleikarinn Andrew Par-
esi.
KILOID AF
GOUDÁ
/ / /
IKILOAPAKKNINGUM LÆKKAR UM:
v
VAR: 763,00 KR/KC
VERÐUR: 563,00 KR/KG
Haldið ykkur
I fast $
ÞVÍ HÉR KEMIR: '