Dagur - 23.02.1991, Síða 17
Laugardagur 23. febrúar 1991 - DAGUR - 17
Leikreglur í stríði
Það mál sem hefur verið hvað mest fjall-
að um í fjölmiðlum bæði hér heima og
erlendis undanfarnar vikur, er Persa-
flóastríðið. Þar eigast við annars vegar
George Bush Bandaríkjaforseti og hans
bandamenn og hins vegar Sadam
Hussein forseti íraks og landar hans. í
fjölmiðlum er Bush góði karlinn en
Hussein vondi karlinn.
Ég hef nú aldrei getað skilið þetta
hernaðarbrölt þjóða heims og því síður
þær leikreglur sem settar hafa verið f
stríði. Hvernig í ósköpunum er hægt að
setja um það reglur hvernig eigi að berj-
ast f stríði. Genfarsáttmálarnir - alþjóð-
legar leikreglur á ófriðartímum, eru allir
samdir að frumkvæði Rauða krossins.
Markmið þeirra eru m.a.; „að draga úr
þjáningum vegna vopnaviðskipta hvort
sem menn eru teknir til fanga, veikjast
eða særast í bardögum. Þetta á jafnt við
um hermenn, óbreytta borgara og
stríðsfanga. Markmiðið skal ávallt vera
að koma mannúðlega fram þótt styrjöld
geisi. Mannúð á skilyrðislaust að auð-
sýna öllum sem ekki taka þátt í styrjöld-
um.“
Einnig er í viðaukum sem samþykktir
voru árið 1977, lagt bann gegn árásum
af handahófi, þ.e. árásum þar sem ekki
er greint milli hernaðarlegra og borgara-
legra skotmarka, bann gegn svæða-
sprengjukasti og ógnarsprengjuvarpi og
aukin vernd náttúru og umhverfis, svo
eitthvað sé nefnt.
En þá vaknar sú spurning, hvort farið
sé eftir leikreglum í strfði. Fyrir mér sem
leikmanni er þaö algjörlega tiigangslaust
að setja einhverjar stríðsreglur, þó svo
að viðleitnj Rauða krossins sé sjálfsagt
góðra gjalda verð. Stríð er stríð og her-
menn og óbreyttir borgarar eru drepnir
eða limlestir, hvað sem segir í einhverj-
um leikreglum. Heilu borgirnar eru
sprengdar í loft upp og mikilvæg mann-
virki eyðilögð. Það sem hlýtur að skipta
máli í stríði (ef hægt er að komast þann-
ig að orði), er að vinna og þá skiptir ekki
máli hvaða aðferðum er beitt, heldur
aðeins að hafa betur en óvinurinn.
— Og svo þetta að lokum: í upphafi
Persaflóastríðsins voru írakar sakaöir
um að pynta fanga en því neituðu írakar.
Einnig var rifist út af því hversu marga
hermenn írakar höfðu tekið til fanga. Þá
sögöu írakar, allt í lagi við erum með 20
fanga en þið viðurkennið ekki nema 15.
Þá er í lagi þó að við pyntum 5 fanga, þar
sem þið kannist ekki við þá.
Er þetta ekki eitthvað skrýtið allt
saman. Fyrir mér er þetta nánast
óskiljanlegt. Kristján Kristjánsson
Handritasamkeppni evrópskra sjónvarpsstöðva:
Ungir pennar í Evrópu
hvattir til dáða
Árið 1987 brydduðu evrópskar
sjónvarpsstöðvar og menningar-
stofnanir sameiginlega upp á
þeirri nýbreytni að veita ungum
og óþekktum höfundum tækifæri
til að koma verkum sínum á
framfæri svo um munaði. Var í
þessu skyni efnt til sérstakra
verðlauna, hinna svonefndu
Genfarverðlauna Evrópu (Prix
Geneva Europe) er renna skyldu
fjárhagslegum stoðum undir
sköpunargáfu hinna ungu höfunda
og koma jafnframt verkum þeirra
á framfæri við evrópska sjón-
varpsáhorfendur. Jafnframt er
miðað að því að efla leikna dag-
skrárgerð í hinum ýmsu löndum
Evrópu. Verðlaunin eru ætluð
fyrir þau handrit að leiknu sjón-
varpsefni sem skara þykja fram
úr að innihaldi og efnistökum og
hafa þau verið veitt annað hvert
ár.
Viðurkenning þessi er tvíþætt:
í fyrstu umferð eru veitt starfs-
laun til allt að tíu þátttakenda, er
sent hafa inn áhugaverðustu
frumdrögin að sjónvarpshandriti.
Ári síðar hreppir einn hinna
tíu höfunda síðan hin svonefndu
Heiðursverðlaun (Grand-Prize)
fyrir handrit er dómarar Genfar-
verðlauna Evrópu telja fram-
bærilegast. Smærri viðurkenning-
ar eru einnig veittar þeim
höfundum sem skilað hafa
athyglisverðri úrvinnslu hug-
mynda sinna.
Dómnefnd Evrópsku sjón-
varpsverðlaunanna er skipuð til
tveggja ára í senn og kemur hún
saman í Genf í Svisslandi. í henni
eiga sæti 9 dómendur frá hinum
ýmsu löndum Evrópu. Okkur
Islendingum liggur samkeppni
þessi nærri hjarta, því forseti
Islands, Frú Vigdís Finnboga-
dóttir, hefur verið í forsvari hinnar
fjölþjóðlegu dómnefndar frá
upphafi og verður einnig svo í ár.
Þá má minna á hinn eftirtektar-
verða árangur er handrit þeirra
Vilborgar Einarsdóttur og Krist-
jáns Friðrikssonar Steinbarn,
náði í verðlaunasamkeppninni
1987. Var það hið þriðja besta af
alls 1600 framlögum er þá bárust
og færði höfundum sínum því ein
starfslaun Genfarverðlaunanna
það ár. Svo sem marga rekur
minni til, var Steinbarn kvik-
myndað á vegum Sjónvarpsins og
sýnt sem nýjársleikrit 1990.
Sjónvarpið er aðili að verð-
launaveitingunni og mun því efna
til samkeppni um framlög íslands
til starfslaunaveitingarinnar í ár,
en heimilt er að senda þrjú hand-
ritsdrög utan. Auglýst hefur ver-
ið eftir handritsdrögum og eru
skilyrðin þau, að höfundarnir séu
undir 35 ára aldri og hafi ekki
lagt hönd á plóg við handritsgerð
fyrir sjónvarp áður. Heimilt er
þeim þó að eiga að baki eitt
handrit enda sé það ekki að
veigameira verki en svo að sýn-
ingartími sé 50 mínútur. Nauð-
synlegt er einnig að ekki sé byggt
í neinu á öðru verki, heldur sé
hugmynd og útfærsla að öllu leyti
verk höfundar sjálfs. Ekki er
beðið um fullunnið handrit að
sinni, heldur 5-10 blaðsíðna drög
að leikritshandriti, ásamt ítar-
legri efnis- og persónulýsingu.
Einnig skulu höfundar láta fylgja
1-2 bls. sýn’shorn af handrits-
texta og eigið æviárgrip.
Það er von Sjónvarpsins að
sem flestir úr hópi ungra höfunda
hérlendis, sem ekki hafa látið ljós
sitt skína fram til þessa, grípi
þetta tækifæri til að sýna hvað í
brjóstum þeirra býr. Hinn glæsi-
legi árangur þeirra Vilborgar og
Kristjáns sýnir og sannar að
íslensk handrit sitja síst við lak-
ara borð en ritsmíðar annarra
þjóða í Evrópu. Þá má minna á,
að í ár nema starfsverðlaun hinna
útvöldu handritshöfunda 25000
svissneskum frönkum og er því
eftir nokkru að slægjast fyrir upp-
rennandi leikskáld.
Skilafrestur er til 15. maí næst-
komandi og skal framlögum skil-
að til Innlendrar dagskrárdeildar
Sjónvarpsins, Laugavegi 176, 105
Reykjavík.
• tölvupappir .
. uósritunarpappir
. ENDURUNNINN
PAPPÍR nnÍD
. TELEFAXPAPPIR
. ÁÆTLUNARBLOÐ
. ÁÆTLUNARBLOÐ
fyrir sumarleyfi
• SKÝRSLUBLOKKIR
, . HVERS kyns
SÉRPRENTUN
DAGSPRENT
STRANDGÖTU 31 • 600 AKUREYRI
SÍMAR 24222 & 24166
Auglýsing
vegna prófs fyrir skjalþýðendur
og dómtúlka.
Hér með er minnt á að fresturtil innritunar í prófið, sem
hefst 18. mars n.k. rennur út 1. mars 1991. Próftöku-
gjald er kr. 40.000, sem er óendurkræft.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 20. febrúar 1991.
AKUREYRARB/ER
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 25. febrúar 1991, kl. 20-22 verða
bæjarfulltrúarnir Björn Jósef Arnviðarson og Gísli
Bragi Hjartarson til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra
að Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfuiitrúarnir munu svara símaviðtölum
eftir því sem aðstæður leyfa.
Síminn er 21000.
Bæjarstjóri.
Nauðungaruppboð:
Laugardaginn 2. mars 1991 verður haldið nauðung-
aruppboð á lausafé, sem hefst við Lögreglustöðina
við Þórunnarstræti á Akureyri kl. 14.00 og verður
framhaldið annars staðar eftir ákvörðun uppboðs-
haldara, sem kynnt verður á uppboðsstað.
Selt verður, væntanlega, að kröfu innheimtumanns
ríkissjóðs, og ýmissa lögmanna, lausafé, sem hér
greinir:
Bifreiðarnar; A-1180, A-1322, A-1596, A-1726, A-1953,
A-2014, A-2746, A-2763, A-2852, A-2974, A-3281, A-4417,
A-4446, A-4956, A-5403, A-6061, A-6096, A-6506, A-7249,
A-7710, A-8663, A-8732, A-9305, A-9307, A-9417, A-10007,
A-10195, A-10399, A-10596, A-10877, A-10960, A-11005,
A-11020, A-11374, A-11563, A-11655, A-11685, A-11697,
A-11748, A-11964, A-12051, A-12258, A-12270, A-12309,
A-12335, A-12343, A-12596, A-12620, A-12791, A-12841,
A-12846, A-13158, B-699, E-264, F-243, F-705, F-974,
G-4217, G-24379, G-25517, G-26326, í-3204, K-1777,
N-986, Ó-299, Ó-320, P-3074, R-25771, R-32837, R-40091,
R-49147, R-57008, R-63684, R-73586, S-1655, U-4780.
X-550, X-5937, X-7748, Y-16425, Y-17078, Þ-417, Þ-436;
Þ-1240, Þ-2521, Þ-2787, Þ-3110, Þ-3357, Þ-3854, Þ-4503,
Ö-8930, DN-231, FK-271, FY-841, FX-617, FÞ-425, FÖ-220,
GH-389, GV-021, GY-067, HS-044, ID-709, ID-732, IE-547,
KF-794, LA-306, LB-329, LD-557, LE-790, OA-246, RU-254.
Lausafé, m.a.: Sjónvörp, myndbandstæki, farsími, hljóm-
flutningstæki, sófasett, hillusamstæður, píanó, þvottavélar
og tauþurrkarar, ísskápar, Ijósritunarvélar, gufuofnar af
teg. Franke, Carlspro gítarmagnari, gufupressa af teg.
Kuarsler og prufubekkur af teg. Cebora, peningakassi, 11
st. löndunarspil af gerðinni Partek, trésmíðavél af gerðinni
Sicma, torfærutæki F-8, vélsleði FB-20 Artic Cat, Carponi
heyvagn, heybindivél, festivagn AT-39.
Að kröfu tollstjórans á Akureyri verður seldur Land Rover
árg. 1984, skemmdur eftir umferðaróhapp.
Að kröfu lögreglustjórans á Akureyri verða væntanlega
eftirtaldar bifreiðar boðnar upp vegna ógreiddra stöðu-
sekta-
DI-519, EN-992, ER-738, EX-896, EY-871, EÞ-215,
FE-136, FO-854, FS-136, FS-204, FU-058, FÞ-909,
GD-775, GD-867, GJ-979, GL-902, GN-951, GP-401,
HE-084, HJ-669, HL-437, HO-592, HV-013, HV-920,
IG-203, IZ-162, JA-657, JU-924, LA-248, LA-670, LB-187,
LB-504, LD-925.
Ávísanir eru ekki teknar gildar sem greiðsla, nema
með samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Uppboðsskilmálar eru til sýnis hjá uppboðshaldara.
Bæjarfógetinn á Akureyri og
Dalvík, sýslumaður Eyjafjarðarsýslu.
20. febrúar 1991.
Eyþór Þorbergsson, fulltrúi.