Dagur - 23.02.1991, Síða 20

Dagur - 23.02.1991, Síða 20
Verkið sem rykféll í Reykjavík: Farsi Böðvars skýtur Piaf ref fyrir rass Nú er Ijóst að Ættannótið hef- ur slegið aðsóknarmet hjá Leikfélagi Akureyrar ef aðeins söngleikurinn My Fair Lady er undanskilinn, en mönnum ber saman um að aðsókn að My Fair Lady hafi verið ótrúleg og ekki raunhæft að taka verkið með í samanburði. Eftir sýn- ingar helgarinnar hafa um eða yfir 7.200 manns séð Ættar- mótið og hcfur leikrit Böðvars þar með skotið Piaf ref fyrir rass. Leikfélag Akureyrar auglýsti síðustu sýningar á Ættarmótinu um helgina og voru aðgöngumið- ar fljótir að renna út. Þessar 34 sýningar nægja greinilega ekki til að fullnægja eftirspurn en hvað gera bændur þá? Sigurður Hróarsson, leikhús- stjóri, sagði að ákveðið hefði ver- ið að taka Ættarmótið til sýninga aftur þegar hlé yrði gert á söng- leiknum Kysstu mig, Kata! um páskana. Tvær sýningar hafa þeg- ar verið njörvaðar niður, miðvikudaginn 27. mars og fimmtudaginn 28. mars, skírdag. Þess má til gaman geta að Böðvar Guðmundsson sendi Leikfélagi Reykjavíkur og Þjóð- leikhúsinu handrit að Ættarmót- inu áður en hann sneri sér til Leikfélags Akureyrar. Handritið lá drjúga stund hjá leikfélögun- um fyrir sunnan án þess að ákvörðun væri tekin um upp- færslu og má segja að þessar dauflegu undirtektir hafi orðið Leikfélagi Akureyrar til happs. SS Áfengið Ál'engis- og tóbaksverslun ríkisins opnar útsölu að Tún- götu 1 í húsakynnum Fata- hreinsunar Húsavíkur í vor. Útsölustjóri verður Sigurður Þórarinsson. Samningar við Fatahreinsunina voru undirrit- aðir á fimmtudaginn og stefnt Lögreglan á Siglufirði: Bílbeltaherferd Vantar fólk til starfa í Fiskiðju Sauðárkróks: Með réttu grœjurnar. Mynd: Golli Atviimulausir geta eða vilj'a ekki vinna í fiski - fyrirtækjum ber ekki skylda til að ráða fólk af atvinnuleysisskrá Nokkrar umræður hafa spunn- ist um frétt í föstudagsblaði Dags um atvinnuleysi samhliða vöntun á fólki til starfa á Sauð- árkróki. Á atvinnuleysisskrá hjá Vinnumiðlun á Sauðár- króki eru um fimmtíu manns. í Fiskiðju Sauðárkróks vantar um þrjátíu manns til vinnu á næstu mánuðum. Að sögn Jóns Karlssonar hjá Verkamannafélaginu Fram á - opnað í maí er að því að útsalan verði opn- uð síðari hluta maímánaðar. -Ég vona að þetta verði byggðarlaginu til framdráttar meira heldur en til ógæfu og auki þjónustu við það. Þetta er orðinn hlutur, fólkið vill fá þetta og er búið að biðja um það,“ sagði Sigurður, nýráðinn útsölustjóri. Aðspurður sagðist hann reikna með að hætta þeim störfum sem liann hefur gegnt á Sýsluskrifstof- unni. Sauðárkróki eru margþættar skýringar á því að fólk er á atvinnuleysisskrá og að fólk vant- ar til starfa hjá Fiskiðjunni. „Fiskiðjunni ber ekki skylda til að ráða það fólk sem er á atvinnuleysisskrá og þeir eru frjálsir að því að ráða það fólk sem þeir vilja. Hins vegar sviftum við það fólk atvinnuleysisbótum sem neitar vinnu hjá Fiskiðjunni eða öðrum fyrirtækjum,“ sagði Jón Karlsson. strikamerkingum og tölvuskrán- ingu. „Fólk á þó nokkuð stóru svæði hefur átt alllangt í útsölu að sækja og opnum útibúsins ætti að verða töluverð breyting fyrir það. Þetta verður í svipuðu formi og þau útibú sem við höfum opnað upp á síðkastið, á Höfn í Horna- firði og í Neskaupstað. Við horf- um björtum augum til viðskipta við Húsvíkinga," sagði Þór Oddgeirsson. IM Eitthvað af því fólki sem er á atvinnuleysisskrá getur af líkam- legum orsökum ekki unnið við fiskvinnslu. Hluti atvinnulausra eru í hlutastarfi og bíða eftir að vinna aukist og sækjast ekki eftir að missa af þeirri vinnu sem þeirra bíður. Að sögn Matthíasar Viktors- sonar hjá Vinnumiðlun Sauðár- króks hefur hluti bótaþega unnið hjá Fiskiðjunni áður og verið reknir eða farið þaðan sjálfviljug- ir. „Ég má ekki bjóða því fólki sem er á skrá hjá vinnumiðlun vinnu hjá Fiskiðjunni. Það eina sem ég get gert er að segja fólki að fara og sækja um. Einnig sendi ég fyrirtækjum lista yfir atvinnulausa í hverjum mánuði. Nú þegar hefur Fiskiðjan ráðið einhverja af listanum en þeir velja væntanlega þá sem þeir vilja." í stuttu máli virðst staðan vera sú að þeir sem eru á atvinnu- leysisskrá komast upp með að sækja ekki um fiskvinnu þó þar vanti starfsfólk. Fiskiðjan er ekki skuldbundin til að ráða þá sem eru á skrá og getur því neit- að þeim um vinnu. Á atvinnu- leysisskrá eru margir sem geta ekki eða vilja ekki vinna í fiski og þar við situr. kg Húsavík: í Fatahreinsunina Akureyri: Vísbendingar um inflúensu Lögreglan á Siglufirði hvetur ökumenn og farþega til að nota bílbelti og hún hefur beitt nýstárlegum aðferðum í þess- ari herferð, m.a. komið þess- um boðskap inn í fyrirtækin. Að sögn Guðna Sveinssonar, lögregluþjóns, hefur lögreglan beðið verkstjóra á vinnustöðum að skila því til fólksins að spenna beltin og árangurinn er þegar kominn í ljós. Hann sagði að fólk tæki tilmæl- um lögreglunnar almennt vel og áminningarherferð gæti borið fullt eins góðan árangur og sektir. SS Áfengisverslunin leigir 90 fm af húsnæði Fatahreinsunarinnar og er það að hluta til lagerrými. Gengið verður inn í áfengis- útsöluna frá Árgötu, um sömu dyr og í fatahreinsunina. Mark- miðið er að opna útsöluna seinni hluta maímánaðar en opnunar- dagurinn er ekki ákveðinn enn, að sögn Þórs Oddgeirssonar, aðstoðarforstjóra Áfengisversl- unarinnar. Aðspurður sagði Þór að í versluninni yrði bæði áfengi og tóbak á boðstólnum og allar algengustu tegundir, þó óvíða væri allt til í verslunum sem fáan- legt væri. Sjálfsafgreiðsla verður í versluninni, og afgreitt eftir Margt bendir til þess aö inflú- ensa hafi stungiö sér niður á Akureyri. Ingvar Þóroddsson, heilsugæslulæknir, segir að þetta hafi ekki fengist staðfest, en einkenni veikinda fólks kunni að benda til inflúensu. Ekki þarf að koma á óvart að inflúensa geri vart við sér hér nyrðra því fyrir nokkrum vikum varð hennar vart á höfuðborgar- svæðinu. Einkenni flensunnar eru m.a. eymsli í hálsi, beinverk- ir og hár hiti. Ingvar segir að í flestum tilfell- um gangi flensan fljótt yfir. Hins vegar beinir hann því til fólks sem hefur veikst á undanförnum dögum með ofangreind einkenni að fara vel með sig og taka enga óþarfa áhættu. Fyrir áramót voru að sögn Ing- vars um 3000 manns bólusettir á Akureyri gegn inflúensu. óþh Helgarveðrið: Kalt áfiram - en hlýnar á mánudag Samkvæmt spá Veðurstofu íslands breytist veður lítið um helgina á Norðurlandi, og vcrður kalt áfram. í dag er spáð hægri austan og aust-norðaustanátt, með éljuni við ströndina austan til, en léttskýjað verður vestan til og í innsveitum. Á sunnudag léttir heldur til og vindur verður hægari. Á mánudag er gert ráð fyrir vax- andi suðaustanátt, hiti fer yfir frostmark síðdegis, og fer veð- ur smám saman hlýnandi. EHB SigluQörður: Þokkalegur aflihjá togurimum Stálvík SI-1 kom til hafnar á Siglufirði sl. föstudag með 65 tonn. Aflinn var ein- göngu þorskur og kættust menn hjá Þormóði ramma hf. við þau tíðindi. Sigluvík SI-2 landaði sl. mánudag 120 tonnum og var helming- ur aflans ufsi en einnig slatti af karfa og þorski. Þær upplýsingar fengust hjá Þormóði ramma að það hefði verið nóg að gera í vinnslunni í þessari viku og eftir að Stál- víkin landaði hefðu menn úr nægu að rnoða fram í næstu viku. Allmörg skip hafa verið að vciðum úti fyrir Norðaustur- landi og hafa aflafréttir ekki verið upplífgandi vegna brælu. En menn vonast til að aflinn glæðist með norðanáttinni. SS Sjömannanefnd: TiUagna um mjólkur- framleiðslu að vænta Gunnlaugur A. Júlíusson, aðstoðarmaður landbúnað- arráðherra, segir að áfrain sé unnið á þeim nótum að nýr búvörusamningur ríkisvalds- ins og bændasamtakanna verði undirritaður í byrjun mars. Nokkuð ljóst þykir að umdcildar tillögur sjömanna- nefndar unt nýskipan í sauð- fjárrækt verða lagðar til grund- vallar við gerð nýs búvöru- samnings, enda áttu bænda- samtökin, launþegar og atvinnurekendur fulltrúa í nefndinni. Beðiðer eftirsams- konar tillögum sjömannanefnd- ar um mjólkurframleiðsluna. Ekki er gert ráð fyrir að þær verði eins róttækar og I sauð- ljárræktinni, enda er sem stendur nokkuð gott jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar mjólkurafurða. óþh

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.