Dagur - 01.03.1991, Síða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 1. mars 1991
Bestu kveðjur
Magnús Gamalíelsson hf.
Ávallt gott úrval
pottablóma og
afskormna blóma
Úrval gjafavöru
við flest tækifæri
Blóm og gjafavörur
Aðalgötu 7, Ólafsfirði
Bestu kveðjur
og heíllaóskir
DALVÍK
Ólafeflrdtngar
Bestu kveðjur og
heillaóskir
Þingeyrarhreppur
Við á Hótel Ólafsfirði minnum ykkur,
sem œtlið að skoða Ólafsfjarðargöngin,
á kaffihlaðborð laugardag og sunnudag.
Hótel Olafsfjörður
Draumur hefur rœst
- ávarp samgönguráðherra í tilefni af vígslu jarðganga
í gegnum ÓlafsQarðarmúla
Langþráður draumur hefur
ræst. Undanfarnar vikur hafa
Ólafsfirðingar og aðrir vegfar-
endur ekið rúmlega þriggja
km spöl í upplýstum og nota-
legum göngum í tilheyrandi
logni á pallsléttu slitlaginu í
stað hrollvekjandi ófæru einna
verstu vega á öllu íslandi og
er þá langt til jafnað.
A slíkum tímamótum ber að
gleðjast og fagna um leið og
staldrað er við, litið til baka og
lesið af spjöldum sögunnar.
Að lokum horfum við fram á
veginn því áfram skal halda.
Langtímaáœtlanir
og Ó-vegir
Það er með langtímaáætlun
um vegagerð og samkomulagi
um svonefnda O-vegi sem var-
anlegar vegasamgöngur milli
ÓlafsQarðar og EyjaQarðar
komast fyrir alvöru á dagskrá.
Þáverandi samgönguráð-
herra, Steingrímur Her-
mannsson, flutti tillögu til
þingsályktunar um viðauka
við vegáætlun á 104. löggjaf-
arþingi veturinn 1981-1982
og voru þar Ó-vegirnir festir í
sessi sem sérstakur verkefna-
flokkur. Framkvæmdir heflast
haustið 1982 við Ó-vegina
þegar byijað er á vegi í ijör-
unni undir Ólafsvíkurenni.
Næst tóku við framkvæmdir í
Óshlíð og síðastur í röðinni
svonefndra Ó-vega var svo
Ólafsfjarðarmúli. Það er einnig
upp úr 1980 sem undirbún-
ingur framkvæmda í Múlan-
um hefst á vegum Vegagerðar
ríkis'ins. Varð fljótlega ljóst að
af þeim leiðum sem til greina
kæmu væru jarðgöng eini
kosturinn og mælti Vegagerð-
in með þeirri leið í skýrslu
sem út kom 1981. Jarðfræði-
rannsóknir hófust einnig í Ól-
afsfjarðarmúla um 1981 og má
segja að meira og minna hafi
síðan verið unnið samfellt að
undirbúningi framkvæmda allt
til ársins 1988 að þær hófust.
Stórverkefnaflokkar
Með afgreiðslu vegáætlunar
vorið 1989 verða ákveðin
tímamót í sögu jarðganga-
gerðar því þá er tekin inn í
vegáætlun sérstakur stórverk-
efnaflokkur, þar sem jarð-
gangaframkvæmdir eru einn
af þremur verkefnaflokkum
sem komið er fyrir með sér-
stökum hætti í vegáætlun.
Hinir verkefnaflokkarnir eru
stórbrýr og framkvæmdir á
höfuðborgarsvæðinu. Skiptir
mestu við stórverkefnin að
verulegur hluti kostnaðar og
allt að 80% þegar jarðganga-
framkvæmdir eiga í hlut, er
greiddur úr sameiginlegum og
óskiptum vegasjóði lands-
manna, en einungis lítill hluti
kostnaðarins (20%) kemur af
hlutdeild hvers kjördæmis í
vegatekjum. Skiptir þetta
sköpum fyrir möguleika ein-
stakra kjördæma til að ráðast í
slíkar stórframkvæmdir. Þessi
tilhögun mála hefur gert það
mögulegt fyrir okkar kjör-
dæmi að halda úti verulegum
almennum framkvæmdum
samtímis Múlanum, auk þess
sem sýnt er að engum skuld-
um verður til að dreifa þegar
framkvæmdum lýkur. Með
vegáætlun 1989 og samþykki
hennar á Alþingi er fest í sessi
Steingrímur J. Sigfússon.
fyrsta samfellda langtímaáætl-
unin um jarðgangagerð, en
eins og kunnugt er er ætlunin
að hefjast handa við jarð-
gangagerð á Vestfjörðum þeg-
ar í framhaldi af framkvæmd-
um í Ólafsfjarðarmúla. Á sl.
ári var tekin ákvörðun um að
færa þær framkvæmdir fram
um eitt ár og vinna þær hrað-
ar en áður hafði verið áætlað
og er undirbúningur þeirra nú
í fullum gangi og væntanlega
nötra vestfirsk Qöll undan
fyrstu sprengingunum áður
en snjóar falla á komandi
hausti.
Verkið lofar
meistarann
Upphaf sjálfra jarðganga-
framkvæmdanna í ÓlafsQarð-
armúla var 11. október 1988
þegar fyrsta sprengjan kvað
við og jarðgangamenn lögðu
af stað inn í fjallið. 15. mars
kvað svo við síðasta drunan
og nú rétt tæpu ári síðar er
mannvirkið formlega tekið í
notkun og vígt, fullfrágengið
að því undanskildu að eftir er
að tvöfalda slitlag í botni
ganganna. Þannig eru ekki
liðin nema rétt rúm þrjú ár frá
því útboð hófst og um tvö og
hálft ár frá því framkvæmdir
hófust þar til þessu marki er
náð. Hundrað þúsund rúm-
metrar af grjóti hafa í um þús-
und sprengingum verið losað-
ir og fluttir út úr göngunum.
Rík ástæða er til að fagna því
hversu vel þetta verk hefur
gengið og lofa þá menn sem
að því hafa staðið. Það hefur
án nokkurra verulegra
óhappa gengið greiðar en
jafnvel áætlanir gerðu ráð
fyrir. Ég vil sérstaklega fagna
þeirri góðu einkunn sem öll
undirbúnings- og hönnunar-
vinna íslenskra vísindamanna
fær í raun og veru með þeim
dómi reynslunnar sem nú
liggur fyrir. Ég vil fyrir hönd
samgönguráðuneytisins færa
öllum þeim sem að verkinu
hafa unnið, Vegagerð ríkisins,
verktökum og öðrum sem
þarna hafa lagt hönd á plóg-
inn kærar þakkir.
Samgöngubœtur
- framfarir
Enginn vafi er á því að hér er
verið að taka í notkun ein-
hverja stórfelldustu sam-
göngubót sem eitt byggðarlag
hefur orðið aðnjótandi fyrr og
síðar. Þess verða tæplega
fundin nema fá dæmi að jafn
stórfelld breyting verði á sam-
gönguhögum einstakra
byggðarlaga og jarðgöng
gegnum ÓlafsQarðarmúla
valda. Þá er einnig óhjá-
kvæmilegt og eðlilegt að
staldrað sé við þau tímamót
og það upphaf nýrra tíma í
þessum efnum sem notkun
þessa mannvirkis markar.
Með áframhaldandi fram-
kvæmdum af þessu tagi, jarð-
gangagerð á Vestíjörðum og
AustQörðum og með fleiri
stórátökum sem að því miða
að leysa samgönguvandamál
einstakra byggðarlaga og
rjúfa einangrun þeirra, að
tengja saman héruð og
landshluta, er verið að breyta
og bæta aðstæður í landi okk-
ar og búa í haginn fyrir fram-
tíðina með einhverjum árang-
ursríkasta hætti sem ég tel að
völ sé á.
Sameinaðir
stöndum vér
Að lokum vil ég leggja á það
áherslu að þegar litið er til
baka yfir þá löngu sögu sem
að baki þessum framkvæmd-
um liggur, koma auðvitað í
hugann nöfn margra manna
sem af miklum dugnaði og
ósérhlífni hafa barist fyrir
þessum framkvæmdum. Ég
ætla hér ekki að nefna nein
nöfn af þeirri ástæðu fyrst og
fremst að um þetta verk hefur
undantekningarlítið ríkt ágæt
pólitísk samstaða. Sama má
reyndar segja yfirleitt um okk-
ar vegamál sem í flestum til-
vikum hafa verið afgreidd
samhljóða á Alþingi. Það er
auðvitað þegar til kastanna
kemur einmitt þessi pólitíska
samstaða og sú skynsamlega
tilhögun við framkvæmdir
sem tekist hefur með skipu-
lögðum og faglegum vinnu-
brögðum gegnum vegáætlun
og langtímaáætlun þar sem
lögð er niður ákveðin forgangs-
röð verkefna að bestu manna
yfirsýn sem mestu skiptir.
Þannig að í stað þess að berj-
ast um á hæl og hnakka á
hverju ári um hituna, semja
menn af skynsamlegu viti um
ákveðna forgangsröðun. Það
er rétt að minnast þess líka að
í þessu sambandi hefur oftast
tekist furðu góð og breið
samstaða, ekki bara milli
ólíkra pólitískra flokka og ein-
staklinga, heldur líka milli
fulltrúa úr þéttbýli og dreif-
býli. Fyrir þetta ber að þakka
og á þetta vil ég leggja áherslu
að hér er það sem oftar sam-
staðan sem mestum árangri
skilar.
Til hamingju!
Ég vil að lokum færa Ólafsfirð-
ingum, Eyfirðingum, Norð-
lendingum og landsmönnum
öllum hjartanlegar hamingju-
og árnaðaróskir í tilefni þess
að hin myndarlega og mikla
samgönguframkvæmd, ein
hin mesta í sögu slíkrar upp-
byggingar á landinu, er nú
tekin í notkun. Megi gæfa
fylgja þessari framkvæmd og
megi hún verða til þess að efla
byggð og bæta mannlíf og lífs-
skilyrði í landshluta okkar og
verða landsmönnum öllum til
gagns og gleði um ókomin ár.
Steingrímur J. Sigfússon.
(Höfundur er samgöngu- og landbún-
aðarráðherra og alþingismaður fyrir
Alþýðubandalagið í Norðurlandskjör-
dæmi eystra.)