Dagur - 01.03.1991, Side 8
8 - DAGUR - Föstudagur 1. mars 1991
Lykill að efíingu
samstöðu og samvinnu
Aldarfjórðungur er síðan Múla-
vegurinn var tekinn í notkun.
Á þeim tíma var það mikil og
gagnger samgöngubót sem
tengdi Ólaí'sfjörð traustari
böndum við aðrar byggðir
Eyjafjarðar, ýtti undir upp-
byggingu á staðnum og jók
fólki framfarahug og bjart-
sýni.
Þótt sá áfangi í samgöngu-
málum væri mikilsverður á
þeim tíma verður því ekki
neitað að vegurinn um Múl-
ann mikla hafði sínar skugga-
hliðar. Erflð veðrátta, snjóa-
lög, hálka og grjóthrun hafa
tekið sinn toll afvegfarendum.
Þeir sem ótrauðir réðust til
farar heiman frá - eða heim
til Ólafsfjarðar - náðu ekki all-
ir þeim leiðarlokum sem
áformuð voru. Því er mér efst í
huga nú að fagna því að eng-
inn þarf lengur að búa við
angist og óvissu um ættmenn
og ástvini vegna ferða um
Ólafsfjarðarmúla í misjöfnum
veðrum við erfíð skilyrði.
Aukin nálægð og auðveldari
leið til grannbyggðanna
breytir viðhorfum og opnar
möguleika sem áður voru tæp-
ast fyrir hendi. Hugmyndir
sem uppi hafa verið um vest-
urströnd Eyjafjarðar eða jafn-
vel Eyjafjörð allan sem eitt
atvinnusvæði er ekki lengur
fjarlægur draumur. í sjónmáli
er nú að sá draumur geti ræst.
Nú þegar sverfur að lands-
byggðinni í atvinnumálum og
atvinnuuppbyggingu, sem
aldrei fyrr, er sú nauðsyn enn
brýnni en áður að sveitarfélög
standi saman, verji hagsmuni
sína og sæki jafnframt fram.
Bættar samgöngur eru mikils-
verður þáttur til að auðvelda
samstöðu og samvinnu. Ég sé
fyrir mér aukna samvinnu á
ótal sviðum á komandi árum
milli sveitarfélaga við Eyja-
Qörð sem leiðir til hagræðing-
ar í rekstri þeirra og gerir
þeim fært að sameinast um
verkefni til uppbyggingar og
atvinnusköpunar.
Þó að mörgum virðist sem
eitthvað „stórt“ þurfi að koma
til, til að tryggja atvinnu og
áframhaldandi hagsæld þá
má ekki stara svo fast á það að
mönnum sjáist yfir smærri at-
vinnutækifæri, jafnvel þar sem
eru aðeins 1-2 störf. Öllu fylgir
einhver margfeldisáhrif. Jöfn
og stöðug þróun atvinnuupp-
byggingar er öllum hagstæð-
ari en stór stökk þar sem jafn-
vægið tæpast ef til vill í lend-
ingunni.
Ég ber engan vafa um að
með samstöðu og samvinnu
vinna Eyfirðingar sig frá þeim
vanda sem uppi er nú,
minnugir þess að úrræðin eru
fyst og fremst fólgin hjá heima-
mönnum í atorku þeirra
sjálfra. Þau munu aldrei koma
að sunnan.
Hin nýja, greiða leið frá
Ólafsfirði til Akureyrar, höfuð-
staðar Norðurlands, kallar á
nýjar tengingar. Þó að tengsl
Eyjafjarðar og SigluQarðar
hafi verið rofin um skeið eru
þar á milli sterk söguleg tengsl
og sterkar hefðir fyrir sam-
skiptum. Nýr vegur yfir Lág-
heiði hlýtur að verða beint
framhald af þeim atburðum
sem nú hafa gerst. Með slíkum
leiðabótum tengjast Norður-
land eystra á ný og á nýjan
hátt, sem enn opnar nýja
möguleika á mörgum sviðum
fyrir bæði héröðin.
essi opnun á styttra og
greiðfærara vegarsam-
bandi til og frá Ólafsfirði hlýt-
ur að efla sókn heimamanna
til nýbreytni um margt. Aug-
ljóst er að skólasókn til Dalvík-
ur og Akureyrar verður auð-
veldari. Fólk getur sótt í öld-
ungadeildina í V.M.A. þó að
það búi heima og áfram mætti
telja. Ólafsfirðingar verða að
halda áfram að efla verslun og
þjónustu í sinni heimabyggð,
en ekki sækja hana í of mikl-
um mæli til annarra nú, þegar
auðveldara verður um vik.
Reynslan sýnir að slíkt hefur
gerst þegar einangruðum
byggðarlögum hafa opnast
leiðir til annarra, hafi þau
ekki haldið vöku sinni í þeim
efnum.
Ég treysti Ólafsfirðingum til
að gæta sín á þeim vettvangi.
Þetta samgönguátak sem nú
er að ljúka vekur bjartsýni í
brjóstum þeirra landsmanna
sem enn búa við samgöngu-
Málmfríður Sigurðardóttir.
vanda af því tagi sem einungis
fæst leystur með jarðganga-
gerð. Viðhorf manna til bú-
setu á áður einangruðum
stöðum gerbreytast. Bættar
samgöngur eru einn mikil-
vægasti þátturinn í að efla
samstöðu og samvinnu sveit-
arfélaga og styrkja stöðu
landsbyggðarinnar. Á þessum
tímamótum er sannarlega
ástæða til að óska Norðlend-
ingum, og þá sérstaklega
Ólafsfirðingum og Eyfirðing-
um öllum, til hamingju með
þann áfanga sem náðst hefur
nú í breyttum og bættum sam-
göngum með opnun jarð-
ganga um Ólafsíjarðármúla.
Að lokum endurtek ég heilla-
óskir mínar til Ólafsfirðinga
og lýsi þeirri vissu, að þetta
samgönguátak verði Norð-
lendingum öllum til hagsæld-
ar og farsældar.
Málmfríður Sigurðardóttir.
(Höfundur er alþingismaður fyrir
Kvennalistann í Norðurlandskjördæmi
eystra.)
Skeljur Öll þjónusta við 1 / f igur hf. ferðamanninn
Bensín - olís a - smávara
Við fyllum á t lílinn og fólkíð