Dagur - 01.03.1991, Qupperneq 13
Föstudagur 1. mars 1991 - DAGUR - 13
JARÐGONG UM
ÓLAFSFJARÐARMÚLA
Vogagjá
ofugjá
W Mígandi
Áður en jarðgangaleiðin Kúhagagil-Tófugjá var ákveðin voru fimm aðrar leiðir kannaðar; Bríkargil-
Flag, Bríkargil-Vogagjá, Kúhagagil-Vogagjá, Kúhagagil-Mígandi og Brimnes-Mígandi. Á þessu korti er
sú leið sem valin var að lokum sýnd með skyggðum deplum. Hálfskyggðu deplarnir sýna hinar ílmm
leiðirnar. Kort: Óskar Þór Halldórsson.
hefur þó verið greinilega verst
í síðasttalda mánuðinum.
Mörgum vegfarendum hef-
ur verið í nöp við veginn um
Ólafsfjarðarmúla vegna tíðra
snjóflóða þar. Flest snjóflóð
hafa fallið á hæsta hluta Múla-
vegar, sem fer af með tilkomu
jarðganganna. Athuganir
sýna að rúm 90% snjóflóða í
Múlanum hafa fallið á svæð-
inu milli gangamunnanna í
Kúhagagili og Tófugili. Flest
flóð hafa samkvæmt skýrslum
fallið í Bríkargili og Ytra-
Drangsgili.
Ætla má að sú áhætta sem
óneitanlega hefur fylgt akstri
á Múlavegi, hafi ráðið miklu í
ákvörðun um að ráðast í jarð-
göngin langþráðu.
Góðar samgöngur
forsendur framfara
Það er eðlileg krafa vegfar-
enda að áhætta við að aka
þjóðveg hér á landi sé sem
minnst og öryggi þeirra sé
tryggt. Á það hefur hins vegar
skort í Múlanum, með stöðugt
yfirvofandi ógn snjóflóða og
grjóthruns.
Þrátt fyrir að fjórir hafi látið
lífið í Múlanum hefur saman-
tekt Vegagerðar ríkisins sýnt
að vegurinn var undir lands-
meðaltali í slysatíðni. Rétt er
að taka fram að þessi saman-
tekt segir ekki til um orsakir
slysanna eða hversu alvarleg
þau voru. Athyglisvert er að
samkvæmt lögregluskýrslum
má rekja meirihluta slysa í
Ólafsfjarðarmúla beint til
óhagstæðra akstursskilyrða,
hálku, grjóthruns eða snjó-
ílóða.
f nútíma þjóðfélagi eru
háværar kröfur um allt land
um tryggar samgöngur byggð-
arlaga við „umheiminn".
Menn eru sammála um að
góðar samgöngur séu for-
senda framfara. Þetta er
spurningin um líf eða dauða
afskekktra svæða.
í bréfi sem, Jón Friðriksson,
þáverandi bæjarstjóri í Ólafs-
firði, skrifaði Árna Gunnars-
syni, alþingismanni, árið
1983 segir; „íbúafjölgun hér
hefur stöðvast og íbúum í
raun fækkað, þrátt fyrir að
atvinna hefur verið mikil, en
að vísu fábreytt. Ég tel það
undantekningartilfelli ef
menn flytja héðan vegna
Múlavegar, en hins vegar er
mjög líklegt að slíkur Ó-vegur
dragi mikið úr að aðkomufólk
setjist hér að. Jarðgöng í
gegnum Múlann er því lykil-
atriði hvað varðar alla íbúa-
fjölgun og framþróun á staðn-
um.“
Jarðgöng öflugt
„byggðavopn“
Þessi orð Jóns segja allt sem
segjá þarf um gildi jarðgang-
anna fyrir ÓlafsQörð í nútíð og
framtíð. Rökin fyrir göngum á
Vestfjörðum, sem byrjað verð-
ur á í vor, eru af svipuð-
um toga. Menn fullyrða ein-
faldlega að án byltingar í sam-
göngumálum Vestfirðinga
liggi ekkert annað fyrir en
stórkostlegur fólksflótti af
norðanverðum Vestfjörðum.
Göngin séu þannig öflugt
„tæki“ til að halda þessu svæði
íbyggð.
Snemma árs 1988 var gerð
ÓlafsQarðarganganna boðin
út. Fjölmörg fyrirtæki, innlend
sem erlend, tóku þátt í forvali
og útboði. Það var rafmagnað
andrúmsloft í Rúgbrauðsgerð-
inni gömlu í Reykjavík á vor-
dögum 1988 þegar tilboðin
voru opnuð. 1 ljós kom að
norsk-íslenska fyrirtækið
Krafttak sf., sem vann m.a. við
gerð neðanjarðarmannvirkja
Blönduvirkjunar og upp-
steypu stöðvarhúss virkjunar-
innar, bauð lægst. Tilboð
Krafttaks sf. var yfirfarið af
Vegagerð ríkisins og síðan
voru undirritaðir verksamn-
ingar þann 1. júlí 1988. Á
haustdögum það ár hófust
sprengingar í Múlagöngum.
Verkið var hafið.
Óhætt er að fullyrða að gerð
Múlaganganna hafi gengið
vonum framar. í ljós hefur
komið að verkið hefur verið
vel undirbúið, jarðfræðikort-
lagning af fjallinu hefur t.d.
staðist eins vel og hugsast
getur. Að verkinu hefur unnið
samstilltur hópur manna.
Samstarf hinna norsku og
íslensku aðila hefur verið með
miklum ágætum.
Við gerð Ólafsfjarðargang-
anna hefur aflast ómetanleg
þekking á sviði jarðganga-
gerðar á íslandi. Þessi fram-
kvæmd hefur fært mönnum
heim sanninn um það að jarð-
göng eru það sem koma skal á
þeim svæðum hér á landi þar
sem þannig háttar til að vega-
samgöngur á landi eru erfið-
ar. óþh
Ólafsfirðingar fagna nú bœttum samgöngum með
Á þessum tímamótum þakka þeir öllum
þeim sem lagt hafa hönd á plóginn til
að gera þennan draum að veruleika.
Til hátíðahalda í dag 1. mars
bjóða Ólafsfirðingar alla velkomna.